Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 31 MINNINGAR JOHANNA JÓHANNSDÓTTIR SCHEVING + Jóhanna Jó- hannsdóttir Scheving fæddist 7. ágúst 1912 að Horni í Arnarfirði. Hún lést á Borgar- spítalanum 7. sept- ember 1994. For- eldrar Jóhönnu voru Guðríður Ein- arsdóttir sem ættuð var úr Hvamms- sveit í Dölum og Jóhann Ólafur Guð- mundsson sjómað- ur sem ættaður var úr Arnarfirði. Jó- hann fórst með þil- skipinu Geir árið 1912. Guð- ríður var farsæl ljósmóðir um fjörtíu ára skeið. Hún lést ní- ræð að aldri árið 1958. Jóhann og Guðríður eignuðust sautján börn og komust tíu þeirra til fullorðinsára. Guðmundur var þeirra elstur og var hann síð- asti ábúandi að Dynjandi í Am- arfirði. Núna er aðeins eitt systkinanna á lífi, Bjarney Sig- ríður, búsett í Reykjavík. Jó- hanna giftist Lárusi Scheving vélstjóra í október 1939 og Ennþá geymast í minni mér margar stundir í faðmi þér, sumar og gleði sífellt hér og sólskin í augum bláum. En svo kom haustið og eftir er aðeins leikur að stráum. (Ragnheiður Sveinbjömsdóttir.) Elskuleg amma okkar er nú horf- in úr þessu jarðlífi. Ekkert benti til þess að hún ætlaði að segja skilið við þetta líf. Hún sem var alltaf svo hress og kát. Það er sárt að sjá á eftir ömmu, hennar mjúka og hlýja faðmi og yndislega viðmóti. Það var sama hvenær við komum til ömmu og afa, þau tóku höfðinglega á móti okkur. Helst vildi maður dvelja hjá þeim um langan tíma og alltaf var jafn erfítt að kveðja. A Afla- granda þar sem amma bjó hin síð- ari ár kvöddum við hana ávallt með kossum og miklum faðmlögum. Hún fylgdi okkur fram á gang og út að lyftu og enn var hún að kveðja þeg- ar lyftudyrnar lokuðust. Þegar niður var komið stóð amma úti á svölum og kallaði til okkar og veifaði. Það var oft glatt á hjalla hjá ömmu og afa og margt um mann- inn. Þegar ekki var setið í eldhúsinu og borðaðar nýsteiktar kleinur sem amma veiddi upp úr pottinum var spilað á spil inni í stofu. A okkar yngri árum var heimili ömmu og afa ævintýri líkast. Við fengum að vaða í fataskápana og klæða okkur upp og amma tók virkan þátt í tísku- sýningunum. Við vorum mikið með ömmu og margar voru næturnar sem við gist- um hjá henni. Þegar afí var á sjón- um fengum við að sofa í „afakúlli". Stundum voru ansi margir þar í einu. Amma kenndi okkur bænimar og fór með þær með okkur fyrir svefninn. Hún var mjög trúuð og átti það til að signa yfír útidyrnar þegar hún fór út úr húsi og þakka Sérfræðingar í blóiiiaskivvtiii^'iiiii i ió öll la'Uilæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 1909« bjuggu þau lengst af í Reykjavík. Nokkur ár bjuggu þau í Hafnarfirði. Síðustu árin áttu þau heima á Áflagranda 40 í Reykjavík. Lárus lést á Hrafnistu í Reykjavík 20. des- ember 1993. Jó- hanna og Lárus eignuðust þijú börn. Þau eru: 1) Krist- jana, f. 24. október 1943, d. 23. júlí 1978. Eiginmaður hennar var Pétur Maack og eignuðust þau þijár dætur. 2) Hannes, f. 16. septem- ber 1946, kvæntur Gunnhildi Magnúsdóttur, eiga þau tvö börn. 3) Jón Karl, f. 11. október 1947, kvæntur Láru Berntsen og eiga þau þijár dætur. Einn- ig ólu Jóhanna og Lárus upp bróðurdóttur Jóhönnu, Guðríði Einarsdóttur og er hún gift Sigurði A. Finnbogasyni. Þau eiga þijú börn. Barnabarna- börn Lárusar og Jóhönnu eru sjö. Utför hennar fer fram frá Fossvogskirkju í dag. fyrir laun“ sig með því að segja „guð Amma var mikill listamaður. Allt- af var hún með eitthvað í hönd- unum, hún ptjónaði, heklaði og saumaði. Þegar sjóninni fór að hraka þótti henni verst að þurfa að leggja hannyrðimar á hilluna. En hún lét ekki deigan síga og allt fram undir það síðasta var hún að rýna í saumaskapinn. Amma var hrifín af bömum og átti erfítt með að standast það að klappa á kollinn á litlum börnum í stórmörkuðum og segja við þau eitt- hvað fallegt. Hún mátti ekkert aumt sjá. Hún var mikill dýravinur og ávallt vom einhver dýr á heimilinu. Hún hændi að sér kráku og þröstur gerði sig heimakominn hjá henni að ekki sé minnst á hunda, ketti og páfagauka. Á morgnana borðaði hún grautinn sinn í mesta bróðemi með páfagauknum sínum, Búdda kalda. Amma persónugerði blómin sín og vakti athygli okkar á því þegar þau blómstruðu um Ieið og hún talaði hlýlega til þeirra. Alla tíð var amma í umönnunar- hlutverki. Hún vildi allt fyrir alla gera. Ósjaldan rétti hún frændfólki sínu og eiginmanns síns hjálpar- hönd. Aldraða móður sína annaðist hún á heimili sínu til dauðadags. Þegar amma eignaðist sitt fyrsta bam hélt hún lífí í ungbarni á fæð- ingardeildinni sem síðar varð tengdasonur hennar. Bróðurdóttur sína ól hún upp frá sex ára aldri. Þegar amma og afí misstu dóttur sína fluttust þau búferlum úr Drápuhlíðinni til Ilafnarfjarðar til að annast dæturdætur sína þijár. Og einn vetur bjó hjá þeim sonar- dóttir þeirra. Amma annáðist afa í veikindum hans heima fyrir þar til hann þurfti að leggjast á sjúkra- deild Hrafnistu í Reykjavík. Hún heimsótti afa reglulega og stóð við hlið hans allt þar til hans lést seint á síðasta ári. Á heimili ömmu og afa var pláss fyrir alla og allir velkomnir. Við barnabömin áttum alla tíð athvarf hjá þeim og gátum gengið inn og út hjá þeim eins og okkur lysti. Þegar eitthvað bjátaði á hjá okkur var gott að koma til ömmu. Hún skildi okkur svo vel og orð vom óþörf. Aldrei urðum við vör við for- dóma eða hneysklun frá hennar hálfu. Amma var síung og tileinkaði sér talsmáta okkar þegar við vomm á unglingsárunum. Það var hjákát- legt að heyra hana segja „mergjað" og „pæliði í því“. Hún fýlgdist vel með öllum nýjungum og var alltaf til í að prófa nýja hluti. Hún tók eftir klæðaburði unga fólksins og sagði „er þetta nýmóðins?“ Alltaf var hún til í að smakka mat sem hún áður hafði ekki heyrt getið og hafði dálæti jafnt á pítsum sem pasta. Amma kíkti á kaffíhúsin í bænum og hafði yndi af þvi að bragða á hinum ýmsu kaffigerðum. Alltaf var stutt í hefðarkonuna í ömmu. Þegar hún var búin að klæða sig upp var hún sannkölluð príma- donna í öllum hreyfíngum og fasi. Hún hafði gaman af því að punta sig og klæðast fallegum fötum. Hún var mikill nautnaseggur og kunni vel að meta þegar við barnabörnin litum inn til hennar og dúlluðum við hana. Snerting skipti hana miklu máli og hún naut þess að láta nudda sig og greiða. Þrátt fyrir að hafa verið ung í anda var amma af gamla skólanum og kunni að nýta alla hluti. Sérstak- lega var hún nýtin á mat. Hún dó ekki ráðalaus þegar afí fussaði og sveiaði yfír að fá sama matinn tvisv- ar í röð. Amma eignaðist nefniléga galdravél, svokallaða „múlinexvél", sem hún setti matinn í og úr varð hin fínasta kássa sem afí kunni vel að meta og þá glotti amma góðlát- lega. Með þessu móti gat hún gefíð honum ýmislegt sem hann annars vildi ekki bragða eins og pylsur og kál. Amma og afi höfðu mikla ánægju af ferðalögum bæði innanlands og utan. Þau hjónakornin nutu sín vel úti í náttúrunni. Einn staður var þó ömmu mjög hjartfólginn, það var „fossinn hennar" Dynjandi í Arnar- fírði sem er á hennar æskuslóðum. Ömmu fannst yndislegt að fara með fjölskyldunni í ferðir og þegar gönguferðir voru famar lét hún sig ekki vanta og ekki sakaði að fara í heitan pott á eftir. Hún dvaldi flest- ar helgar hjá einhveijum úr fjöl- skylduni og hafði því í nógu að snú- ast. Sumarið var fallegt og amma naut sín vel. Við vitum að amma er í góðum félagsskap með afa, móður sinni og dóttur. Við minnumst ömmu með mikilli hlýju. Við emm rík að hafa átt svo góða ömmu og vitum að hún tekur á móti okkur handan móðunn- ar miklu með opinn faðminn þegar þar að kemur. Nú segjum við við þig, elsku amma, guð laun. Barnabörnin. t móðir okkar, langamma og Ástkær eiginkona mín, tengdamóðir, amma, systir, ÁSTA KRISTINSDÓTTIR, Smyrlahrauni 47, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafn- arfirði fimmtudaginn 15. september kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Kristinn Ó. Karlsson, r_? Lilja Kristinsdóttir, Salóme Kristinsdóttir, Soffia Kristinsdóttir, Sigríður A. Kristinsdóttir, Ásta K. Kristinsdóttir, Karl Kristinsson, Þorsteinn S. Jónsson, Hreiðar Júlíusson, Guðni S. Ingvarsson, Örn Sveinbjörnsson, Þorsteinn Heiðarsson, Sólborg L. Steinþórsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn, Lilja Kristinsdóttir, Þorsteinn Kristinsson. Útför hjartkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KJARTANS A. KRISTJÁNSSONAR bifreiðastjóra, Skriðustekk 14, ferfram frá Neskirkju fimmtudaginn 15. september kl. 13.30. Þóra Þórðardóttir, Kristján A. Kjartansson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Ingþór Kjartansson, Elisabet G. Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför bróður okkar, SKÚLA ÓLAFSSONAR THEODÓRS. Bergþór Ólafsson, Sigríður Siemsen. + Alúðarþakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall föður okkar, ANTONS INGIMARSSONAR frá Siglufirði, Smáragrund 3, Sauöárkróki. Synir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur, tengda- dóttur og systur, GUÐRÚNAR ÓSKAR ÓLAFSDÓTTUR. Gunnar Jónsson, Ingi Björn Sigurðsson, Elísabet Þ. Jóhannesdóttir, Ingibjörg Axelsdóttir, tengdaforeldrar og systkini. + Þökkum samúð og vinarþel okkur sýnt, vegna andláts systur okkar, INGIGERÐAR ÞORSTEINSDÓTTUR frá Vatnsleysu, Jörfabakka 22, Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild 7 við Borgar- spítala og heimahjúkrunar við heilsugæslustöðina í Mjódd. Steingerður Þorsteinsdóttir, Sigurður Þorsteinsson, Einar Geir Þorsteinsson, Kolbeinn Þorsteinsson, Bragi Þorsteinsson, Sigríður Þorsteinsdóttir, Viðar Þorsteinsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför móöur okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, KRISTÍNAR ARNGRÍMSDÓTTUR, Dvalarheimilinu Dalbæ, Dalvík. , Sigrún Jónsdóttir, Ásdís Jónsdóttir, Gunnþóra Jónsdóttir, Sveinn Jónsson, Ingigerður Jónsdóttir, Arngrimur Jónsson, Gunnar Jónsson, Eiríkur Jónsson, Auður Kinberg, Þorvaldur Baldvinsson, Gfgja Kristbjörnsdóttir, Alice Christensen og ömmubörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför dóttur minnar, vinkonu, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR VALGERÐAR TÓMASDÓTTUR, Skarðshlíð 38F, Akureyri. Sóley Sveinsdóttir, Sigtryggur Davfðsson, Sólveig Guðmundsdóttir, T ómas Guðmundsson, Rebekka Björnsdóttir, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Hermann R. Jónsson, Guðmundur Guðmundsson, Helga G. Ásgeirsdóttir, Sóiey Guðmundsdóttir, Ævar Pálsson, Kjartan Guðmundsson, Guðrún E. Skírnisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.