Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Byltur meðal aldraðra Bryndís Fanný Ósk Guðmundsdóttir Axelsdóttir UM ÞAÐ BIL þtjá- tíu af hundraði ein- staklinga 65 ára og eldri detta á ári hverju. Miðað við það má gera ráð fyrir að um 8.720 íslendingar í þessum aldurshóp hafi dottið árið 1993. Hvers vegna dettur fólk á þessum aldri? Sjaldnast er orsökin ein, heldur sambland margra undirliggj- andi þátta. Stundum ætlar eldra fólk sér um of. Oft verður fall- ið til þess að áður óþekktur sjúkdómur greinist. Orsakir má greina í innri og ytri þætti: Innri orsakaþættir - Frá hjarta- og æðakerfi: t.d. getur lækkaður blóðþrýstingur við stöðubreytingar valdið aðsvifi. - Frá stoðkerfi: Með hækkandi aldri verða breytingar í vöðva- byggingu og vöðvastarfssemi lík- amans, þannig að vöðvarúmmál minnkar. Við það minnkar vöðva- styrkur. Ýmsar rannsóknir benda til þess að aldraðir sem detta hafi mun lakari vöðvastyrk en þeir sem ekki hafa dottið. Bein tengsl eru á milli jafnvægis hjá einstaklingi og vöðvastyrk, þó svo að aðrir þættir hafi einnig áhrif á jafn- vægi. Skert hreyfing í liðum neðri útlima t.d. ökkla, eykur hættu á falli. - Frá taugavöðvakerfi: Vilja- stýrðar hreyfingar og viðbrögð verða hægari með aldrinum. Það eykur hættuna á byltu. Parkinson sjúkdómurinn er t.d. þekktur sjúk- dómur frá taugavöðvakerfi. - Skyntruflanir: Sjón, jafn- vægis- og stöðuskyn eru nauðsyn- legar forsendur stöðugleika. Skerðist tvö af þessum skynfær- um, eykst verulega hættan á falli. - Skert dómgreind: Heilabilun, þar sem Alzheimer-sjúkdómur er ein helsta orsökin, leiðir iðulega til skertrar dómgreindar. Sumir áhættuþættir eru tengdir sjúk- dómnum sjálfum, svo sem ráp, truflun á göngumynstri og jafn- vægi, en aðrir tengjast öðrum sjúkdómum og aldurstengdum breytingum. Þeir sjúkdómar og sú fötlun sem hefur áhrif á bein, vöðva og liði hafa áhrif á stöðugleika og geta því aukið líkur á byltum. Fall má oft rekja til skerts jafn- vægis og truflaðs göngulags. Vandamál frá fótum, svo sem líkþom og skakkar tær, eru einnig vanmetnar orsakir. Ytri orsakaþættir: - Lyf: Ýmsar rannsóknir sýna að bein tengsl eru milli fjölda lyfja sem einstaklingurinn tekur og fall- hættu. Marktæk tengsl eru talin vera á milli dettni og neyslu svefn- og róandi lyfja. - Umhverfi: Framandi um- hverfi eykur hættuna á að detta. Byltur eru mikið vanda- mál meðal aldraðra, segja Bryndís F. Guð- mundsdóttir og Osk Axelsdóttir, vegna tíðni þeirra og afleiðinga. Aðlögunarhæfni minnkar með aldri vegna undirliggjandi sjúk- dóma og breytinga á andlegri líð- an. Mörgum rannsóknum ber sam- an um að þröngir gangar, slitin teppi', mottur, léleg lýsing og lang- ar leiðslur á gólfi geti valdið bylt- um, svo að dæmi séu tekin. Einn- ig eru lélegir skór varasamir. - Áfengisneysla: Óhófleg áfengisneysla getur leitt til lélegr- ar samhæfingar og dregið úr eðli- legum stöðuviðbrögðum. Afleiðingar þess að detta eru margvíslegar. Um fimm af hund- raði einstaklinga brotna og þótt brot geti átt sér stað hvar sem er í líkamanum, þá eru upphand- leggs- og framhandleggsbrot, mjaðmagrindar- og mjaðmabrot álitin aldurstengd og verða vegna sameiginlegra áhrifa beinþynning- ar og byltu. Vegna beinþynningar brotna konur oftar en karlmenn. Um það bil 250 einstaklingar hljóta lærleggsbrot árlega. Áætl- aður beinn kostnaður við hvert brot er 200-250.000 krónur. Þannig er kostnaður á ári áætlað- ur um 65 miljónir króna vegna þessara brota. Að brotum undanskildum þurfa um tíu af hundraði einstaklinga á læknismeðferð að halda, vegna alvarlegra mjúkvefjaáverka. Um áttatíu og fímm af hundraði þeirra sem detta, skaðast ekki alvarlega líkamlega en hjá fjórðungi veldur byltan ótta við að detta aftur. Þegar einstaklingur hefur einu sinni dottið dregur hann oft úr virkni umfram getu, vegna óör- yggis. Talið er að um helmingur aldraðra einstaklinga sem hafa dottið, detti aftur. Byltur eru mikið vandamál með- al aldraðra vegna tíðni þeirra og vegna líkamlegra, andlegra og fé- lagslegra afleiðinga, sem þær hafa í för með sér. Þekking á undirliggj- andi orsökum fyrir byltum, er for- senda þess að hægt sé að beita árangursríkum fyrirbyggjandi að- gerðum. Höfundar eru sjúkraþjálfar & Hrafnistu DAS í Hafnarfirði. ISLENSKT MAL Umsjónarmaður Gísli Jónsson 771. þáttur Enn til vamar tveimur smáorðum: Sem stundum fyrr skal vitn- að í Grím (Þorgrímsson) Thomsen: Náköld er Hemra, því Niflheimi frá nöpur sprettur á. En kaldara und rifjum er konungsmönnum hjá. Kalinn á hjarta þaðan slapp eg. Grímur jók_þessu erindi við kvæði sitt Á Glæsivöllum. Fékk hann mönnum með því í hendur lykil að öllu kvæðinu. Var þá auðveldara að opna dyr skilningsins, en útskýring á því er ekki meginefni máls míns nú. Ég er að minna á aðalteng- inguna en. Hún er eitthvert dýrmætasta orð máls okkar, „gáfaðasta orð tungunnar“, eins og Sigurður skólameistari orðaði það á djarflegu líkinga- máli sínu. Fáum mun gleymast hvemig hann skýrði kvæðið Á Glæsivöllum, þar sem öll er- indin hverfast um þetta gáfaða „smáorð“ en. Aðaltengingin en hefur í þeim flokki samteng- inga fengið sérstakt nafn: gagnstæðistenging. Ekki er það tilviljun. Sitt hvorum megin við hana er tíðum eitthvað sem stendur hvað gegn öðru. Gáfað- ir menn, sem geta séð mál eða hlut frá fleiri en einni hlið, nota hana oft. Því er hún á líkinga- máli Sigurðar Guðmundssonar, með hæfilegum skáldlegum ýkjum, „gáfaðasta orð tung- unnar“. Lesið þið nú kvæðið Á Glæsivöllum, og fyrir ykkur mun uppljúkast, eins og skel sem opnuð er um samskeyti sín, hvert og eitt erindi, hverf- andist um aðaltenginguna en. Er þá tíðast öðrum megin það sem sýnist, hins vegar það sem er. „Esse quam videri bonus malebat", sagði Marcus Tullius Cicero um Cato gamla. Það er svo að skilja: Hann vildi heldur vera góður en sýnast það. í þessari þýðingu er komið að annarri tengingu en, og verður brátt reynt að skjóta skildi fyr- ir hana. En um gagnstæðistenging- una en var ekki fullrætt. Hún á sér ekki augljósar skyldleika- hliðstæður í samstofna málum, en auðvitað merkingarlegar hliðstæður (dönsku men, sbr. ísl. meðan, lat. sed, þýsku aber, ensku while). Út frá enskunni, vankunnáttu í henni, hefst svo undanhaldið hérlend- is. While í ensku er ekki aðeins aðaltenging, heldur einnig tíð- artenging = á meðan, þegar. „A Iittle learning is a danger- ous thing.“ Því miður er svo að sjá, að ýmsir íslendingar, sem þýða fréttir úr ensku, viti ekki að while er ekki síður aðaltenging en tíðartenging. Og þá hefst stakkasund vitleys- unnar: „The Conservative party won sixteen seats, while the Liberal party won twenty.“ Algeng álappaleg þýðing er *íhaldsflokkurinn vann sextán sæti, á meðan Fijálslyndi flokkurinn vann tuttugu. Engu skiptir í þýðingu sem þessari hvor vann og hvor tapaði. En rétt þýðing væri: íhaldsflokkur- inn fékk sextán sæti, en Frjáls- lyndi flokkurinn (fékk) tutt- ugu. Síðan mætti segja frá því, hvemig höfðu orðið vinn- ingar og töp. Útfrá fyrrgreindri vankunnáttu í ensku kemur svo endalaus röð „á meðan“ í stað- inn fyrir en, þótt ekki sé um þýðingu að ræða: *Fram- kvæmdastjórinn hafði 200 þús- und á mánuði, á meðan skrif- stofustúlkan hafði 50 þúsund. Án þess að gera sér ljóst, vegna fákunnáttu og metnaðarleysis, eru menn komnir vel á veg með að útrýma „gáfaðasta orði tungunnar". í guðanna bæn- um, snúið þið af villu vegarins. Það er enn ekki of seint. ★ Og þá kemur að hinni teng- ingunni en, samanburðarteng- ingunni, sbr. orð Ciceros. Hún á sér augljósar skyldleika- og merkingarhliðstæður í frænd- málum okkar (dönsku end, ensku than). En hún er samt í hættu, og enn kemur enskan til sögunnar. Þar í máli þykir stundum fínna að skrifa „compared to“ heldur en than. Óg Islendingar þýða eins og gaukar æ ofan í æ: *Þetta er meira „miðað við (samanborið við)“ í fyrra (síðastliðið ár) o.s.frv. Venjulegt íslenskt, lát- laust og beinskeytt mannamál er hins vegar: Þetta er meira en í fyrra. Hvernig þætti ykk- ur, ef haldið yrði áfram á ensku brautinni og sagt: *Hann er eldri miðað við mig, í staðinn fyrir: Hann er eldri en ég. Á skal að ósi stemma, sagði Þór. ★ Hlymrekur handan kvað: Álfhildi frú, Aratungu oft var búvara á tungu hún söng líka af kæti og sýndi af sér læti yfir sigri Kúmaratungu. ★ Manni hafði fyrirfram verið neitað um að flytja samsætis- ræðu, enda þegar komnir yfir tuttugu á mælendaskrá. Hann stóð upp eigi að síður og sagði svo: „Fyrst ég hef verið beðinn að mæla hér nokkur vel valin orð, þá vil ég taka mér í mun orð hins vitra manns, þau er mælti á alþingi forðum, Jón Arason sá er drekkt var í Goða- fossi: „Hveiju reiddust goðin, þegar hér brann undir oss?““ Er skattaparadís hjá heljum hafsins? ALMENNT er nú uppi sú skoðun að allir eigi að sitja við sama borð í skattamálum. Og virðist viðhorf stjórn- málamanna vera á einn veg, að afnema beri sérstakan sjómannaaf- slátt. Mun þá jafnt á komið með landsmönn- um öllum. Þetta sjónarmið get ég ekki tekið undir, því langt er frá því að sjó- menn sitji við sama borð og aðrir hér á landi og þá ekki síst hvað varðar öryggismál. Ef gætt er að er sjó- mannastéttin sú stétt manna hér- lendis sem býr við hæstu vinnuslys- atíðni og því miður langhæstu dánat- íðni við skyldustörf. Árið 1991 voru 6.845 ársverk við sjósókn, af þeim tilkynntu 522 um vinnuslys til Tryggingastofnunar ríkisins eða 7,6%. Sama ár voru tilkynnt slys 522ja íþróttamanna og 57- slys starfsmanna við opinbera stjórnsýslu eða 0,85%. Alls voru tilkynnt 2.132 slys á landi á landinu öllu eða 1,5%. Samkvæmt skýrslu frá Rannsókn- arnefnd sjóslysa sem út kom árið 1993 frá tímabilinu 1.1. til 31.12. 1991. Var meðaldánatíðni sjómanna á ári við skyldustörf (1982-1991) 11,7 menn eða 117 menn á besta aldri yfír 10 ára tímabil. Hér má bæta við að á árinu 1992 létust 17 sjómenn við skyldustörf en það er átakanleg aukning frá árunum á undan. Sjómennirnir fá ekki sömu sjálf- sögðu þjónustuna og fólk í landi eins og t.d. sjúkraflutninga og Iæknis- þjónustu á hafi úti. Þegar varðskip fór loks í Smug- una með Iækni innanborðs undruð- ust menn hversu þörfín var mikil eftir læknisþjónustu. En hvað var að undrast? Smugan er jú stór vinnu- staður og ekki síður mikilvægur fyr- ir þjóðarbúið og samsvarandi arð- bært fyrirtæki í landi. Hvar eru björgunarþyrlur sem ættu að vera staðsettar minnst á hveijum landsfjóðungi til sjúkra- flutninga á sjó og landi? Hvers vegna hefur ekki verið rætt um hvað hefði verið hægt að gera ef þyrlur hefðu verið tiltækar til hjálpar mönnunum sem fórust við Grinda- vík um árið? Mjög er það ámælis- vert að stjórnvöld og aðrir valdamenn skuli ekki koma auga á þessa vankanta. Hvað eru sjómenn í augum þínum? Eru fískimiðin auð- lind sem allir lands- menn ættu að fá bita af í formi auðlinda- skatts? Hvers vegna að taka eina atvinnugrein út úr flóru atvinnulífs- ins og sérskatta hana? Væri þá ekki rétt að láta hið sama yfir allar ganga og að fólk al- mennt greiði auðlindaskatt af notk- un sinni á íslenskri náttúru, s.s. hreinu vatni, sólarorku, sandi, lands- lagi og hveiju eina sem ætla mætti Hvers vegna að taka eina atvinnugrein út úr flóru atvinnulífsins, spyr Ester Sveinbjarn- ardóttir, og sérskatta hana? að fólk nýtti sér við framleiðslu vöru sinnar eða þjónustu? Svo er hægt að veðsetja þetta allt. Er þá ekki eins hægt að skattleggja fjármagns- tekjur eins og t.d. verðbréf svo ekki sé minnst á hátekjuskatt? Það hefur svo sannarlega ekki staðið á fjármagnsaðilum að taka veð í fískikvótum. Segja má að búið sé að veðsetja að fullu hvern einasta fisk í sjónum. Vissulega er þetta viðhorf tímanna tákn en er þetta ekki öfugþróun? Hvern á að lög- sækja ef fískurinn hverfur úr sjón- um? Að lokum langar mig að spyija eins og svo margir aðrir hver séu tengslin milli sjómanna og þeirra sem stjórna landinu. Höfundur er iðnrekstrar- fræðingur ogfyrrum sjómaður. Ester Sveinbjarnardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.