Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 IVIIIMIMIIXIGAR MORGUNBLAÐIÐ -I- Ingvi Rafn Al- ' bertsson fædd- ist á Eskifirði 13. ágúst 1939. Hann lést á Landspít- alanum 9. nóvem- ber sl. Foreldrar hans voru Hrefna Björgvinsdóttir og Albert Aalen. Hann ólst upp hjá móðurforeldrum sínum, Sigurveigu Maríu Kristjáns- dóttur og Einari Björgvin Guð- mundssyni. Bræð- ur Ingva Rafns eru: Sverrir, búsettur í Grindavik, Harald- ur, búsettur í Garðabæ, Guð- mundur, Viktor og Stefán Ing- var, búsettir á Eskifirði. Ingvi Rafn kvæntist Maríu Hjálmarsdóttur 25. desember 1961, þau bjuggu allan sinn búskap á Eskifirði. Börn þeirra eru: 1) Hjálmar, f. 3.11. 1959, kvæntur Elínborgu Þor- valdsdóttur og eiga þau tvær dætur, Maríu og Birtu Krist- ínu. Þau eru búsett á Eski- firði. 2) Sigurveig, f. 14.4. 1962. Böm hennar em Mist og Veigar. Hún er búsett í Reykjavík. 3) Björgvin, f. 12.1. 1964, kvæntur Aðalheiði Kristjánsdóttur. Þau eiga tvö börn, Alfheiði og Ingva Rafn. ELSKU pabbi minn. Þetta bréf ætlaði ég að skrifa ~ þér þegar ég vissi að þú værir orðinn veikur og hefðir verið flutt- ur á sjúkrahúsið á Norðfírði. Mér fannst þá, að ef ég skrifaði þér hefði þér fundist það vera kveðju- bréf frá mér. í þessu óskrifaða bréfí mínu langaði mig svo mikið til að endurtaka enn og aftur og lýsa með orðum væntumþykju minni og þakklæti fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og börnin mín. Upp í hugann koma öll samt- ölin og samverustundir okkar, bæði á Eskifirði og í Reykjavík. Ailtaf vissi ég að þú stæðir með mér og bærir hag minn fyrir bijósti þó að oft værum við ekki sam- ,mála. Ég er svo þakklát fyrir það, elsku pabbi minn, að hafa fengið að kynnast þér, ekki bara sem föður, heldur líka sem vini. Ég man hvað þú varst á móti því að ráða mig sem kokk á síldar- í blóiiiiisliivyliii^iini \ió öll lii'Kilu'i'i Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími19090 Þau eru búsett í Reykjavík. 4) Brynjar Rafn, f. 27.11. 1969. Hann er í sambúð með Þórunni Hrefnu Siguijónsdóttur og eiga þau einn son, Oskar Frey. Þau eru búsett í Reykjavík. Ingvi Rafn hóf sjómannsferil sinn á Amarfellinu 16 ára gamall. Hann lauk prófi úr Stýri- mannaskólanum árið 1962 og varð skipstjóri á Hólmanesinu frá Eskifirði 24 ára gamall. Hann var skip- sljóri samfleytt í 20 ár á eftir- töldum skipum: Hólmanesi, Hafdísi, Sveini Sveinbjöras- syni, Áma Sigurði, Þorsteini, Andvara, Ársæli Sigurðssyni, Þórshamri, Seley og Sæ- björgu. Frá árinu 1984 var hann veiðieftirlitsmaður að aðalstarfi, en stundaði síld- veiðar á haustin á Guðmundi Kristni ásamt fleiri bátum. Ingvi Rafn var í stjóra Fé- lags hjartasjúklinga á Austur- landi frá stofnun félagsins 29. september 1990 og formaður frá 1992. Útför hans verður gerð frá Eskifjarðarkirkju í dag. vertíð á Guðmund Kristin SU haustið 1986. Þú, skipstjórinn, hafðir ekki mikla trú á mér, græn- metisætunni, að elda kjötmeti ofan í heila skipshöfn, þú helst líka að ég yrði óvinnufær sökum sjóveiki. Auðvitað fann ég fýrir sjóveiki en til þess að bregðast þér ekki var ég ákveðin í því að standa upprétt yfír pottunum. Mikið var ég glöð, elsku pabbi minn, þegar þú sagðir að ég væri besti kokkurinn sem þú hefðir haft, vitandi það að matsveinar þínir voru margir hveijir mjög góðir. Þegar við Hjalli bróðir vorum með þér úti í Norðursjó, eins og hveijir aðrir krakkabjálfar, ég 11 ára og hann 14 ára, kom þolin- mæði þín berlega í ljós; alltaf hafð- ir þú tíma til að sinna okkur þrátt fyrir miklar annir á síldveiðunum. Það voru tímamót í okkar sam- skiptum þegar ég fylgdi þér út í hjartaaðgerðina fyrir nákvæmlega 11 árum. Þá mynduðust á milli okkar enn nánari tengsl en áður höfðu verið. í þessari ferð reyndir þú að segja mér frá því hve veikur þú værir orðinn og hve áhættan af uppskurðinum væri mikil, en kannski hef ég ekki skilið það nógu vel. Við fjölskyldan erum fyrst núna að gera okkur grein fyrir því hve hjartað í þér var orð- ið veikt strax þarna fyrir ellefu árum. Allan þennan tíma vildir þú hlífa okkur við því hve veikur þú varst. Mér fínnst það sárt að þú skyldir bera þessa vitneskju al- einn. En eflaust vildir þú hafa það þannig. Læknarnir hafa einnig sagt okkur að það sé ótrúlegt hve lengi þú hélst starfsorku þrátt fyrir veikindin. Þér voru samverustundirnar við okkur íjölskylduna afskaplega dýrmætar. Alltaf varstu tilbúinn að hitta mig og börnin á miðri leið ef mér datt í hug að skreppa í smá sumarauka til Akureyrar eða eitthvað út á land. Það er svo gott að eiga þá minn- ingu um þig, elsku pabbi minn, að þú áttir gott líf, þó auðvitað hafí skipst á skin og skúrir eins og hjá öllum öðrum. Það er líka dýrmæt minning að vita til þess hve ykkur mömmu þótti vænt hvoru um annað og hvað þið áttuð oft skemmtilegar og góðar stundir saman. Stuðningurinn sem þú og mamma sýnduð mér þegar Mist fæddist var mér ómetanlegur, enda varstu dóttur minni miklu meira en bara afí. Þú varst frábær dagmamma, meðan Mist var lítil og þegar við mæðgur fluttum til Reykjavíkur varst það þú sem vandir hana á leikskólann. Þegar við komum í heimsókn á spítalann nokkrum klukkutímum fyrir and- lát þitt, sá ég alla þessa elsku á milli ykkar þar sem hún, sex ára gömul, sat hjá þér og hélt í hönd þína allan tímann. Einnig varst þú einn af þeim fáu sem ávallt fengu koss og blítt bros frá Veig- ari syni mínum, sem er núna að- eins eins og hálfs árs, og missir mikils að geta ekki kynnst þér. Mér fínnst ég vera rík að hafa átt pabba eins og þig. Þú lifðir stutt, en þú notaðir tímann vel. Þú kvaddir þennan heim með sömu reisn og þú barst veikindi þín. Með þessum orðum kveð ég þig, elsku pabbi minn, rík að fallegum og góðum minningum. Sigurveig. Elskulegur afí minn, Ingvi Rafn, er dáinn, hrifinn burt frá okkur alltof snemma. Hann sem var svo bjartsýnn og sagði að um leið og honum batnaði ætlaði hann að fara með ömmu út í lönd. Með þessu kvaddi ég afa og óskaði honum góðrar ferðar suður á sjúkrahúsið, en afí kom ekki aftur. Minningamar sem ég á um afa eru hvað hann var alltaf góður, alltaf sýndi hann mikinn áhuga á því sem ég var að gera, sérstak- lega í íþróttaiðkunum mínum. Ef hann var að heiman eða úti á sjó þegar ég var að keppa í fijálsum þá þurfti hann að vita upp á senti- metra hvað ég kastaði í kúlunni eða spjótinu. Við Birta systir mín eigum eftir að finna fyrir sárum söknuði að afí skuli ekki vera hjá okkur leng- ur. Nú kemur afí ekki lengur við hjá okkur í hjóltúrum sínum eða á göngu með ömmu og biður um kaldan vatnssopa að drekka, ekki kemur afi á aðfangadag með pakkana til okkar og ekki verður það Ingvi afí sem geymir flugelda handa okkur til að skjóta upp á gamlárskvöld þegar við komum við í Bleiksárhlíð. í þögulli sorg en með þakklátu hjarta þökkum við sámfylgd svo góða og bjarta. Far þú nú vinur í ró. Þín lengsta og síðasta sigling er hafin söknuði og bænum frá ástvinum vafinn. Guð veiti þér himneska fró. (ebþ) Elsku amma, Guð styrki þig í þessari miklu sorg, við eigum eftir að sakna þess að afi komi ekki lengur með þér í heimsókn til okk- ar, einnig biðjum við Guð að styrkja pabba okkar Hjálmar, Veigu, Bögga og Binna. Þínar María og Birta Kristín. Örfá minningarorð frá skipshöfninni Hann hvessir oft með skjótum hætti og á sama hátt bar lát Ingva Rafns að. Með allt of skjótum hætti. Ingvi Rafn var tengdur skipi okkar. Leysti þar af sem skip- stjóri, bæði fyrir mörgum árum og sömuleiðis nú upp á síðkastið. Virtum við hann bæði sem vin og foringja. Auk þess að vera fiskinn var hann góður félagi. Hrókur alls fagnaðar þegar svo bar undir, þolgóður og kappsfullur þegar það átti við, góður sjómaður í þess orðs fyllstu merkingu. Óþarfí að hafa of mörg orð um Ingva Rafn. Við vitum að hann var lengi far- sæll skipstjóri og aflamaður. Einn- ig var hann búinnn að vera manna lengst við Veiðieftirlitið. I okkar huga var hann fyrst og fremst félagi. Félagi sem fór allt of fljótt, svo fljótt að eftir stendur ófyllt skarð. Við vottum eiginkonunni, Mar- íu, svo og uppkomnum börnum þeirra og öðrum ættingjum og venslafólki okkar innilegustu sam- úð. Minning Ingva mun lifa. Ó, vefjið hann í ástúð, ljós og yl. Þvi allt, sem best og fegurst verður til hann veitti þeim, sem voru í umsjá hans, með viljaþreki sínu. Ó, lát’ann fínna, að hann sé kominn heim, vor Herra, í ríki þínu. (Kristján frá Djúpalæk.) Skipshöfnin mb. Þórshamri GK-75. Kveðja frá veiðieftir- litsmönnum í dag verður borinn til hinstu hvflu, vinur okkar og starfsfélagi, Ingvi Rafn Albertsson, sem lést fyrir aldur fram. Þótt allir vissu að Ingvi Rafn gengi ekki heill til skógar áttum við ekki von á að kallið kæmi svo snögglega. Ingvi Rafn átti alltaf heima á Eskifírði og var hagur Austfjarða honum ofarlega í huga. Eins og tíðkaðist um unga menn á æskuár- um hans átti sjórinn hug hans all- an og þegar aldur og kraftar leyfðu lágu leiðir hans þangað og urðu störf hans alla tíð tengd sjón- um. Ingvi lauk prófi frá Stýrimanna- skolanum árið 1962. Það segir sína sögu um hve framúrskarandi sjó- maður Ingvi Rafn var, að honum var ungum, aðeins 24 ára gömlum, falin skipstjóm á Hólmanesinu frá Eskifírði og var alla tíð meðal eftirsóttustu og virtustu nótaskip- stjóra landsins. Lengst var hann skipstjóri á Seley sem hann var einn af eigendum að. Hann var jafnan vinsæll af undirmönnum sínum og reyndist farsæll maður, athugull og hygginn í starfi. Eftirtektarvert var hve Ingvi Rafn hafði með langri reynslu sinni öðlast þekkingu á hegðun síldarinnar, þeirrar kenjóttu skepnu. Þar stóðu honum fáir á sporði. Hann áttaði sig á, betur en flestir hvar veiðihorfur væru bestar, vegna þekkingar sinnar á þeim margvíslegu skilyrðum sem hafíð og náttúruöflin þyrftu að bjóða upp á svo síldin hlypi saman til að verða veiðanleg. Eftir að hann hóf störf hjá veiðieftirliti fékk hann oft frí á haustin til að fara til síldveiða og veiddi þá jafn- an tvo til þijá kvóta meðan aðrir veiddu einn. Árið 1984 réðst Ingvi Rafn til veiðieftirlitsstarfa á vegum sjávar- útvegsráðuneytisins, en þau störf heyra nú undir Fiskistofu, en þá jukust störf veiðieftirlitsmanna að umfangi til sjós og lands vegna nýrra laga um stjóm fiskveiða. Störf Ingva Rafns að veiðieftirliti vora mest bundin við Austfirði og eru þær orðnar margar ferðirnar sem hann fór með austfirskum togurum í þeim tilgangi að koma í veg fyrir of miklar veiðar á smá- fiski og margar era orðnar heim- sóknirnar í þau sjávarpláss þar sem fiski er landað sem hann fór til að sjá um að lögum og reglum sem fiskveiðum tengjast væri framfylgt. Ævilöng reynsla tengd veiðum og sú þekking, sem sá einn öðlast sem alið hefur aldur sinn í sjávarplássi, þar sem allt snýst um fisk kom Ingva Rafni að góðum notum. Hann fór aldrei með of- forsi eða óðagoti að mönnum, hon- um var sérstaklega lagið að koma málum í horf með því að tala menn til með lempni og útskýring- um. Hann var réttsýnn en fastur fyrir og einarður ef þess þurfti við. Ingvi Rafn var greindur maður og víðsýnn og hafði skoðanir á flestum þjóðfélags- og dægurmál- um og kunni á þeim góð skil, létt- ur í máli og hressilegur í tali, gamansamur og oft gáskafullur. Hann kunni vel við sig í hópi góðra vina, og þótti gaman að hafa létt INGVIRAFN ALBERTSSON í kringum sig og kunni vel að meta góðan söng. Veiðieftirlitsmenn minnast með hlýhug þeirra stunda er þeir á ferðum sínum um Austfirði nutu gestrisni þeirra hjóna, Maríu og Ingva, því þau vora höfðingjar heim að sækja og þar var oft skraf- að og sagðar sögur því umræðu- efni skorti ekki þar sem Ingvi Rafn var. Ingvi Rafn kvæntist eftirlifandi konu sinni, Maríu Hjálmarsdóttur, árið 1960 og hefur hún af alúð og umhyggju stutt mann sinn í blíðu og stríðu öll þessi ár, ekki síst eftir að hann kenndi þess sjúk- dóms sem varð honum að endingu að aldurtila, með uppörvun og bjartsýni. Þau eignuðust fjögur börn. Við veiðieftirlitsmenn og annað starfsfólk Fiskistofu minnumst Ingva Rafns með söknuði og trega og þökkum honum samfylgdina, sem skilur eftir minningar um sómamann og góðan dreng. Við biðjum því góðan guð að fylgja honum um ókunnar slóðir eilífðar- innar og styðja og styrkja Maríu, börn þeirra og afkomendur í sorg þeirra um ókomin ár. Kveðja frá Félagi hjarta- sjúklinga á Austurlandi Laugardaginn 22. október sl. var haldinn á Reyðarfirði stjórnar- fundur í Félagi hjartasjúklinga á Austurlandi. Og eitt er víst, að ekkert okkar granaði að það yrðu okkar síðustu samfundir við form- anninn okkar, hann Ingva Rafn. Hann, sem alltaf var allra manna hressastur, óvílinn, hreinskilinn og talaði tæpitungulaust um málefnin hveiju sinni. Við vissum vel að heilsa hans mætti vera betri, en í ágúst hafði hann þó verið á sjón- um, þar sem hans starfsvettvang- ur var að mestu frá 15 ára aldri. Eftir hjartaaðgerð í London haust- ið 1983 gekk hann í nýstofnuð Landssamtök hjartasjúklinga og síðan Félag hjartasjúklinga á Austurlandi, sem stofnað var 29. september 1990. Þar var hann í stjórn frá upphafi og formaður frá 1992. Fyrir hönd félagsins sat hann öll landsþingin, einnig lands- þíng SÍBS eftir að LHS varð aðili að þeim samtökum. Á þingunum og öllum okkar fundum var hann ötull talsmaður jafnréttis til handa sjúklingum óháð búsetu og var þjónusta sérfræðinga og þjálf- unarmálin þar jafnan efst á blaði. Hann lagði miída áherslu á að fá hæfa fyrirlesara á fundi okkur til fróðleiks og uppörvunar. Hann vissi líka vel, að ekkert gerist af sjálfu sér og við þyrftum því sjálf að leggja nokkuð af mörkum. Svæði félagsins okkar er stórt og við þekkjumst því fremur lítið. En í starfi sínu síðustu ár ferðaðist Ingvi mikið um Austurland og hitti marga, m.a. okkar félaga og í hans anda reynum við að þjappa okkur saman og vinna að málefn- um allra hjartasjúklinga. Hann var gæfumaður í starfi og einkalífi, giftur góðri og traustri konu, Maríu Hjálmars- dóttur, átti mannvænleg börn, tengdabörn og barnabörn. Þeim öllum ásamt móður hans, tengda- móður og öðrum ástvinum vottum við dýpstu samúð. Góður vinur og félagi er geng- inn og okkur fínnst hann hafí far- ið alltof fljótt. Við erum þakklát fyrir sam- fylgdina. Guð blessi minningu Ingva Rafns Albertssonar. Kveðjustundin kemur oft alltof fljótt og án þess að gera boð á undan sér. Það gerði hún í þetta sinn þegar hann Ingvi Rafn var tekinn burt frá okkur. Kunningsskapur okkar hófst þegar Ingvi Rafn réð sig sem skip- stjóra á Ársæl Sigurðsson sumarið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.