Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 23 AÐSENDAR GREINAR Stj órnlagaþing ÁRATUGUM saman hefur heildarendur- skoðun stjómarskrár- innar vafist fyrir al- þingismönnum. Fimmta stjórnarskrár- nefndin var skipuð 1978 og situr hún enn að störfum. Sama gildir um að hafna atkvæða- vægi landsmanna, en flestir eru sammála um að þær breytingar sem þar hafa verið gerðar hafi misheppnast og því marki brenndar að margir þingmenn tóku afstöðu til tillagna eftir því hvort Iíklegt væri að þær væru inn eða útaf þingi. Verkefni stjórnlagaþings Mikilvægt er að höggva á þennan hnút. Það er ekki lengur hægt að búa við það, að löggjafarsamkoman geti ekki tekið á mikilvægustu grundvallarþáttum í stjórnskipan landsins sem er endurskoðun stjórn- arskrárinnar og að jafna atkvæða- vægi landsmanna. A Alþingi hef ég lagt til breyt- ingu á stjómarskránni þess efnis, að efnt skuli til sérstaks stjórnlaga- þings sem skipað verði þjóðkjömum fulltrúum sem kjörgengir verða samkvæmt sérstökum kosningalög- um og kosnir persónukjöri. Stjómlagaþing hefur það verk- efni að leggja fram breytingar á kosningalögum og reglum með það að markmiði að jafna atkvæðavægi landsmanna. Jafnframt að endur- skoða stjómarskrána í held, ekki síst mannréttindaákvæði hennar, en tillögur stjómarskrámefndar um það efni hafa sætt gagnrýni og mörgum þykja þær ekki nógu skýr- ar eða markvissar. Stjórnlagaþing á einnig að skoða sérstaklega æskilegar breytingar á stjómkerfmu, svo sem skýrari skil milli framkvæmda- og löggjafar- valds. Er þar átt við atriði eins og hvort ráðherrar eigi jafnframt að vera þingmenn og hvort afnema skuli aukafjárveitingar. Jafnframt á þingið að skoða hvort rétt sé að breyta og setja skýrari ákvæði um þingrofsréttinn, t.d. hvort tekin verði upp sú skipan sem er í gildi í Noregi, þar sem þingrofsheimild er ekki fyrir hendi. Ennfremur er rétt að huga að ákvæðum stjómar- skrárinnar um setningu bráða- birgðalaga í ljósi þess að nú situr Alþingi allt árið. Stjórnlagaþing á einnig að íjalla um ákvæði stjórnarskrárinnar um ráðherraábyrgð. Til umfjöllunar á að taka þær skráðu og óskráðu regl- ur sem í reynd ríkja um embætt- isfærslur í opinberri stjórnsýslu, einkum varðandi embættisveitingar í æðstu störf og breytt fyrirkomulag þess. Svo og fjalli þingið um hvort rétt sé að setja reglur um ráðstöfun opinberra ijármuna og þá hvort rétt sé að draga úr stjórnmálalegum afskiptum í sjóða- og bankakerfiriu. Einnig verður þinginu falið að athuga hvort rétt sé að setja heim- ild í stjómarskrána um að auka rétt fólksins til þjóðaratkvæðagreiðslu í stærri málum. Að sjálfsögðu mun stjórnlagaþingið, auk fyrrtaldra at- riða, taka stjórnarskrána til endur- skoðunar í heild. Skipan stjórnlagaþings Um skipan stjómlagaþings og starfshætti þarf að setja sérstök lög. í frumvarpi því sem ég hef lagt fram á Alþingi er m.a. lagt til að þingið verði skipað þjóðkjörnum fulltrúum sem verði kjörgengir sam- kvæmt lögum um kosningar til Al- þingis, öðmm en alþingismönnum. Með slíku þingi væri komið í veg fyrir að alþingismenn fjölluðu um mál sem vörðuðu þá sjálfa, t.d. ákvæði stjórnarskrárinnar um kosn- ingaskipan og ráðherraábyrgð. Samkvæmt frumvarpinu skal efnt til stjórnlagaþings eigi síðar en 1. júni 1995, en þingið skal hafa lokið störfum fýrir 15. sept- ember 1995. Stjórnlagaþing skal skipað 41 kjörnum full- trúa. Þeir skulu kosnir persónukosningum, en slíkt fyrirkomulag gef- ur kjósendum tækifæri til að velja menn á þingið án tillits til hvaða flokki eða sam- tökum þeir tilheyra. Það er gerð krafa til þess að frambjóðendur hafi tilskilinn frjölda meðmælenda, enda mikilvægt að til þings- ins veljist einstaklingar er njóti góðs trausts samborgara sinna. Slík krafa er einnig í samræmi við lög um kosningar til Alþingis, en þar er kveðið á um tiltekinn fjölda með- mælenda með hveijum framboðs- lista. Gert er ráð fyrir að fulltrúar á stjórnlagaþingi verði kjörnir í núver- andi kjördæmum landsins. Við skiptingu fulltrúa á kjördæmin hef- ur verulega verið tekið mið af fjölda íbúa í kjördæmum og þannig reynt að jafna vægi atkvæða mun meira en nú er. Þó er gert ráð fyrir að hvert kjördæmi kjósi eigi færri en þijá fulltrúa á þingið. í heild hefðu Reykjavík og Reykjaneskjördæmi samtals 21 fulltrúa, en samanlagðir fulltrúar annarra kjördæma yrðu 20. Stjórnlagaþing verði skipað þjóðkjömum full- trúum samkvæmt til- lögu Jóhönnu Sigurð- ardóttur. Þeir mega ekki vera alþingismenn. í frumvarpinu er kveðið á um að stjórnlagaþing starfí í einni mál- stofu á Alþingi næsta sumar. Skal það hafa lokið störfum 15. septem- ber á næsta ári. Þá þegar færi fram þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjómlagaþings. Bindandi þjóðar- atkvæðagreiðsla Lagt er til að tillögur stjómlaga- þings verði bornar undir þjóðarat- kvæði. Niðurstaða af þeirri at- kvæðagreiðslu yrði bindandi. Nái tillaga stjómlagaþingsins fram að ganga í þjóðaratkvæðagreiðslu verður hún lögð fyrir forseta Islands til staðfestingar og tekur þá ný stjórnarskrá gildi. Eðlilegt er að stjórnlagaþing setji ákvæði í hina nýju stjómarskrá um að eftir að hún hefur verið staðfest af forseta lýðveldisins skuli Alþingi rofið og efnt til kosninga þegar næsta haust samkvæmt þeirri kosn- ingaskipan sem hin nýja stjómar- skrá kveður á um. Höfundur er óháður aJþingismaður. fieilsurúmin LURA FLEX Verð frá: Kr. 29.000,-Br. 97 cm. Kr. 48.450,- Br. 132 cm. Kr. 50.845,- Br. 153 cm. Kr. 78.696,- Br. 193 cm. Dýna, botn og hjólagrind Nýborg-# Ármúla 23, sími 812470. Jóhanna Sigurðardóttir VANTAR ÞIG r RRENimRM FRÁBÆRU VERÐI? Líttu þá inn í verslun okkar í Skaftahlíð 24 og kynntu þér frábær tilboð tölvuprenturum - ekki bíða of lengi... r>SlZM'fAsiJ-\ÐAQZ\Sl J Star SJ-144 litaprentari Star LC-100 litaprentari Star 24-200 C litaprentari ♦ Hraðvirkur, allt að 306 stafir/sek. ♦ Upplausn: 360 x 360 (pát) ♦ Nú prentar þú sjálf(ur) á bolinn þinn! ♦ Prentar á sérstaka merkistrimla ♦ Allar glærurnar þínar í lit! ♦ Einnig til fyrir Macintosh tölvur ♦ 9 nála litaprentari ♦ 10 þumlunga vals ♦ 180 stafir/sek ♦ Litaprentari fyrir heimilið, skólann og í vinnuna kr. 1 S.900 ♦ 24 nála litaprentari ♦ 10 þumlunga vals ♦ 225 stafir/sek ♦ Hentugur í grafíska útprentun, töflur og ritvinnslu kr. 24.900 Star LC-20 nálaprentari ♦ 9 nála prentari ♦ 10 þumlunga vals ♦ 180 stafir/sek ♦ Hentugur í grafíska útprentun, töflur og ritvinnslu kr. 14.90 Star SJ 48 Bleksprauta ♦ Bleksprautuprentari - 64 spíssar ♦ 30 blaða arkamatari fylgir! ♦ Upplausn: 360x360 (pát) ♦ Gæðaprentari fyrir ritvinnslu, töflureikna o.fl. kr. 28.900 ♦ "Ekta" laserprentari A4 ♦ 1 MB minni, stækkanl. í 5 MB ♦ PCL-5, innbyggt stækkanlegt letur ♦ Upplausn: 600 x 300 (pát) m/ REP ♦ 4 blöð á mínútu -16 MHz RISC ♦ Hentugur sem hágæða ritvinnslu- prentari, fyrir töflureikna o.fl. Star Laser 4 III Geislaprentari kr. 66.900 er opiN NÝHEIUI / GÉPÉ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.