Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ m IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK Innritab verbur á vorönn 1995 mánudaginn 21. og þriðjudaginn 22. nóvember kl. 13.00-18.00. ítarleg auglýsing birtist í blabinu á sunnudag Sögur frá Þýskalandi I tilefni af útkomu samnefndrar bókar eru komnir hingað þýsku höfundarnir Gert Heidenreich, Franz Hodjak og Kalid Al-Maaly, ásamt ritstjóranum Wolfgang Schiffer. Laugardaginn 19. nóvember kl. 14.00 er bókmenntakynning í Þjóðleikhúskjallaranum þar sem þeir koma fram, auk þess sem lesið verður úr íslenskum þýðingum á sögum þeirra. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Mál og menning Goethe-stofnun Helgl Porglls Hriöjónsson (f. 1953) Heilaga fjölskyldan SAMSÝJVING í GALLERI BORG Nú stendur yfir sýning á verkum listamanna af yngri kynslóðinni í Gallerí Borg við Austurvöll. Á sýningunni eru verk eftir sjö fram- sækna listamenn, sem hafa getið sér gott orð hér heima og erlendis. Einnig eru sýnd tvö stór málverk eftir Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur, sem lést fyrir nokkrum árum. Þeir sem eiga verk á sýningunni eru: Jóhanna Kristin Yngvadóttir, Sigurbjörn Jónsson, Jón Axel Björnsson, Vignir Jóhannesson, Gunnar Örn, Valgarður Gunnarsson, Helgi Þorgils Friðjónsson og Daði Guðbjörnsson. Öll verkin eru til sölu. í tilefni af sýningunni býður Gallerí Borg upp á léttar veitingar laugardaginn 19. nóvember kl. 16.00 til 18.00. Sýningin stendur aðeins yfir í nokkra daga, en henni lýkur fimmtudaginn 24. nóvember. BOHG v/Austurvöll. IDAG Farsi ldAIS6(-ASS/cotít-TIMl2-T C1994 Farout CartoorWDIrtributwl by Untwwal Pr»M Syrntofa i/iLjum gjarMn, hzbotb nálxgt þjo'nc. SKAK Bmsjón Margeir l'étursson ÞAÐ urðu óvænt úrslit í fyrstu umferð Intel atskák- mótsins í París um helgina. Anatólí Vaiser vann Vysw- anathan Anand í fyrri skák þeirra og Anand varð að vinna á hvítt til að jafna metin. En það varð snemma sýnt að Indveijinn yrði úr leik: Hvitt Anand (2.720), svart: Vaiser 82.575), Sikil- eyjarvöm, 1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3 - Rc6, 6. g3 — Db7, Rxc6 — bxc6, 8. e5 - Rd5, 9. Re4 - Db4+, 10. Rd2 - Dd4, 11. De2 - Hb8, 12. Rb3?? — þama var Anand of fljótur á sér. sjá stöðumynd 12. - Hxb3H, 13. axb3 - Bb4+, 14. Bd2 (Eða 14. c3 - Bxc3+!) 14. - Bxd2+, 15. Dxd2 — De4+, 16. De2 — Dxhl og svartur hefur unnið mann. Anand gerði örvænt- ingarfulla tilraun til að króa svörtu drottninguna inni en hún mistókst: 17. h3 - f5, 18. Ha4 - Rb6, 19. Hxa7 - 0-0, 20. c4 — c5 og svartur vann auð- veldlega. 7 dagar í Disney mótið! Skráning hjá SÍ, sími 689141, frá 10-13 virka daga. VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Tapað/fundið Leðurjakki tapaðist SVARTUR, fremur síður karlmanns leðuijakki með þremur hnöppum, tapaðist seinni part ágústmánað- ar. Finnandi vinsamlega hringi í 21428. BRIDS Umsjön Guðm. Páll Arnarson TVÆR spilaleiðir blasa við í sex spöðum suðurs. Sú þriðja og besta leynir hins vegar á sér: Norður gefur; allir á hættu. Norður ♦ KG ¥ 1052 ♦ DG6 ♦ Á10832 Vestur ♦ 653 ¥ G ♦ K1092 ♦ D9763 * ÁD10987< I ÁK43 ♦ Á4 Vestur Norður Austur Suður Pass Pass 1 spaði Pass 2 lauf Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass 6 spaðar Pass Pass ÚtspiL hjartagosi. Pass Hvemig á suður að spila? Fyrsta hugmynd: Drapa á hjartaás, henda hjarta niður í laufás og svína fyrir tígulkóng. Þá vinnst spilið ef austur á tíg- ulkónginn, en tapast í þess- ari legu því vestur klippir á samganginn með þvi að spila trompi. Önnur hugmynd: Drepa á hjartaás og spila tígulás og meiri tígli. Sem heppn- ast eins og spilið er, en kæmi kjánalega út ef aust- ur ætti tígulkónginn og gæfi makker sínum stungu í hjarta! Þriðja leiðin: Drepa á hjartaás og leggja niður tíg- ulás! Fara svo inn í blindan á trompi, henda tígli niður í laufás og trompsvína fyrir tígulkónginn. Þá er sama hvom meginn tígulkóngur- inn er. HÖGNIHREKKVÍSI Víkveiji skrifar... EINMUNA veðurblíða undan- famar vikur og mánuði, þótt komið sé fram yfir miðjan nóvem- ber, veldur því að víða í borginni, þar sem skýlt er, eru tré enn laufg- uð. Er hér einkum um gljávíði að ræða, sem lengst heldur laufi allra lauftijáa að hausti. Víkveiji minnist þess ekki að haust hafi um langan tíma verið svo kyrrt, sem raun ber vitni. Von- andi verður þessi veðrátta ekki þó til þess að tijágróður kali, en ein- hveiju sinni hefur hann heyrt, að standi lauftré laufguð langt fram eftir hausti sé þeim hætt við því. xxx NÝLEGA barst Víkveija til- kynning frá Lánasjóði ís- lenzkra námsmanna, LÍN, og var þar heiti sjóðsins bæði skráð á ís- lenzku og ensku. Víkveiji átti svo sem von á því að enska heiti sjóðs- ins væri eitthvað á þessa leið: „The Icelandic Student Loan Fund“, en því var ekki að heilsa, heldur ber hann fullt heiti: „The Icelandic Go- vernment Student Loan Fund“. Eitthvað hljóðar þetta undarlega á enskunni, að vera að troða stjóm- völdum eða ríkisstjóm þama inn í enska heitið. í íslenzka heitinu kem- ur slíkt hvergi fram og ekki getur Víkveiji skilið að það sé sjóðnum til framdráttar, að vera að klína ríkisvaldinu inn í nafn sjóðsins, þeg- ar hann er kynntur erlendis. Eins og farið hefur fyrir ríkisreknum fyrirbærum í heiminum síðasta ára- tuginn, hlýtur þessi „govemment“- stimpill miklu frekar að fæla fólk frá trú á sjóðinn heldur en hitt. xxx YÍKVERJI rakst á það í brezku tónlistarblaði, að nú í nóvem- ber yrði gefinn út 6. píanókonsert Ludvigs van Beethovens. Ekki er að undra að menn reki upp stór augu við slík tíðindi, því að hingað til hefur ávallt verið talið að píanó- konsertar þessa mikla tónlistarsnill- ings væm aðeins fimm. Skýringin, sem blaðið gefur á þessu, er að Clementi nokkur mun hafa óskað eftir því við Beethoven að hann endurgerði fiðlukonsert sinn opus 61 fyrir píanó og varð Beethoven við þessari ósk. Og nú er sem sagt verið að gefa þetta verk út bæði hjá ASV og Decca. Þetta eru ótvírætt ánægjuleg tíðindi fyrir tónlistarunnendur, sem eflaust eiga eftir að bera saman fiðlukons- ertinn og þessa píanóútgáfu af hon- um. Á ASV-disknum leikur Pietro Spada einleik við undirleik Phil- harmonia-hljómsveitarinnar, stjóm- andi Sir Alexander Gibson, en á Decca-disknum leikur Olli Muston- en á píanóið, en Jukka-Pekka Sar- aste stjórnar þýsku kammerfíl- harmóníuhljómsveitinni. xxx EINN lesenda Morgunblaðsins hringdi og talaði um misræmi í framsetningu Morgunblaðsins á tölulegum upplýsingum, er menn settu fram krónutölur væri oft mgl- ingur í hvar kommur og punktar væru settir. Til þess að aðgreina þúsund frá hundmðum, skal í ís- lenzku ritmáli setja punkt, en þegar kemur að því að aðgreina aura frá krónum skal vera komma. Þetta er reglan í íslenzku, sem Bretar hafa einnig með sama hætti, en Banda- ríkjamenn hafa annan hátt á. xxx AÐ ER gömul saga og ný að í kjaradeilum eins og verkfalli sjúkraliða er það oft þriðji aðili sem líður. Eldri maður sem ræddi þessi mál við skrifara sagði að kona hans Iægi á hjúkrunarheimili fýrir aldr- aða og væri upp á aðra komin með nánast alla aðstoð. í verkfallinu hefðu hjúkrunarkonur og aðrir þurft að bæta á sig sjúklingum og verkefnum og hefðu sýnt mikla fómfýsi og lipurð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.