Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 43 Ráðstefna um starfs- menntun TÆKNISKÓLI íslands stendur fyrir ráðstefnu með yfirskriftinni: Ópnari og fjölbreyttari starfs- menntun, sem haldin verður á morgun, föstudaginn 9. febrúar, á Hótel Sögu. Ráðstefnan er í formi fyrirlestra og vinnuhópa. Fyrir- lestra munu flytja: Sigurður Guð- mundsson, verkefnastjóri lands- skrifstofu Leonardo á íslandi, Gerður _G. Óskarsdóttir, kennslu- stjóri HI, Þórunn Káradóttir, deild- arstjóri í röntgentækni TI, Eygló Eyjólfsdóttir, skólameistari Borg- arholtsskóla, Gísli Erlendsson, for- stöðumaður Fiskvinnsluskólans, Ingi Bogi Bogason frá Samtökum iðnaðarins og Hörður Lárusson, deildarstjóri í menntamálaráðu- neytinu. Ráðstefnan stendur frá kl. 9 til 16.15 og er haldin í sal A á annarri hæð hótelsins. ------------- Náttúru- skoðunar-og landfræða- skemmtiferð á Reykjanes FJALLIÐ, félag jarð- og land- fræðanema, gengst fyrir náttúru- skoðunar- og jarðfræðiskemmti- ferð á Reykjanes sunnudaginn 11. febrúar. Leiðsögumaður er Ari Trausti Guðmundsson og er ferð- inni heitið á sunnanvert Reykja- nesið, að Eldborg undir Geitahlíð og á Meitil og lýkur svo í Bláa lóninu. Skráning fer fram í and- dyri Jarðfræðahúss milli kl. 12 og 13 fimmtudaginn 8. febrúar og föstudaginn 9. febrúar. Brottför er kl. 9 frá Jarðfræðahúsi og heim- koma áætluð um kl. 18. Allir vel- komnir. Yogesh K. Gandhi til Islands YOGESH K. Gandhi, forseti Gandhi Foundation og langafabarn ind- verska leiðtogans og friðarsinnans Mohandas Gandhi, er váéntanlegur til Reykjavíkur föstudaginn 9. febr- úar. Gandhi stofnunin óskar að setja upp friðargarð í Reykjavík. Gandhi mun hitta frú Vigdísi Finnbogadóttur á skrifstofu forseta íslands í Stjórnarráðinu kl. 11 á föstudag. Sunnudaginn 11. febrúar verður síðan haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur opinn félagsfundur Friðar 2000 þar sem Gandhi mun skýra frá því hvernig íslendingar geta breytt gangi heimsmálanna með því að taka virkan þátt í alþjóð- legu friðarstarfí, en í fréttatilkynn- ingu frá Friði 2000 segir að Yogesh 'K. Gandi haldi því fram að forseti íslands og íslendingar geti breytt gangi sögunnar með því að gera Island að miðstöð friðarmála í heim- inum. Á fundinum mun Ástþór Magnússon, stofnandi Friðar 2000, tala um mikilvægi þess að íslensk stjórnvöld taki virkan þátt í friðar- málum og Lois Nicolai, fram- kvæmdastjóri World Citizen Diplo- mats, kynna Peace 2000 Caravan sem síðar á þessu ári mun leggja af stað frá Princeton í Bandaríkjun- um í fímm ára ferð um allan heim. -----» ♦ ♦--- Umræðukvöld um vímuefni UMRÆÐUKVÖLD um vímu- og vímuefnanotkun verður haldið í fé- lagsmiðstöðinni Þróttheimum næst- komandi föstudagskvöld ki. 20.30. Sérstakir gestir verða Jón Arnar Guðmundsson úr forvarnadeild lög- reglunnar, Guðmundur Þórarinsson og Björn Ragnarsson úr Mótorsmiðj- unni og svo verða tveir framhalds- skólanemar sem vinna að jafningja- fræðslu. FRÉTTIR STARFSFÓLK Sljá sjúkraþjálfunar ehf. Morgunblaðið/Ámi Sæberg. • / • / UM ÁRAMÓTIN tók til starfa sjúkraþjálfunarstofan Stjá sjúkraþjálfun ehf. í Sjálfs- bjargarhúsinu, Hátúni 12, sjúkraþjálfarar yfirtóku reksturinn af Vinnu- og dval- arheimili Sjálfsbjargar. Ástæða þessarar breytingar var nýr samningur milli Fé- lags íslenskra sjúkraþjálfara og Tryggingastofnunar ríkis- ins sem tók gildi á síðasta ári og gerði það óhjákvæmilegt að breyta rekstrarformi sjúkraþjálfunar. í fréttatilkynningu segir m.a. að eftir sem áður sé arar taka við rekstri í Sjálfsbjarg- arhúsinu boðið upp á alhliða sjúkra- þjálfun hjá Sljá sjúkraþjálf- un ehf. og þjálfunaraðstöðu í vel búnum tækjasal. Sömu sjúkraþjálfarar og starfsfólk verða áfram, en eigendur og sjúkraþjálfarar stofunnar eru: Ágúst Jörgensson lögg. sjúkraþjálfari og liðfræðing- ur, Elín Magnúsdóttir lögg. sjúkraþjálfari, Jakob Már Gunnarsson lögg. sjúkra- þjálfari, Jósteinn Einarsson lögg. sjúkraþjálfari, Kristín E. Guðmundsdóttir lögg. sjúkraþjálfari og fram- kvæmdastjóri, Olöf Guð- mundsdóttir lögg. sjúkra- þjálfari og Þórhallur Vík- ingsson lögg. sjúkraþjálfari. Móta - og viðburða- skrá hestamanna- félaga LH1996 Febrúar 3. Sörli Grímuleikar, Sörlavöllum. 10. Geysir Vetrarmót, Gaddstaðaflöt- um. 10. Félög stór-Rvíkursv. Æskulýðs- dagur, Reiðhöll Kópav. 16. AndvariVetrarleikar, Kjóavöllum. 17. GusturVetrarleikar, Glaðheimum. 24. Fákur Vetraruppákoma, Víðivöllum. 24. Hörður Árshátiðarmót, Varmár- bökkum. 24. Sörli Töltkeppni/félagsmót, Sörla- völlum. Mars 1. Gustur Fjölskyldumót (inni), Glað- heimum. 2. -3. Léttir Vetrarleikar, Leirutjöm. 9. Geysir Vetrarmót, Gaddstaðaflöt- um. 9. Fákur Töltkeppni (opin), Reiðhöll Víðidal. 9. Sörli Vetrarleikar (Árshátíðarm.), Sörlavöllum. 16. Andvari Vetrarleikar, Kjóavöllum. 16. Gustur Vetrarleikar, Glaðheimum. 16. Hörður Vetrarleikar (opið), Varm- árbökkum. 21. 23. Gustur Bikarmót (Reiðhöll,) Glaðheimum. 24. Fákur Kaffihlaðborð, Víðidal. 30. Glaður Vetrarleikar, Búðardal. 30. Fákur Vetraruppákoma, Víðidal. 30. Sörli PON (opið) inni, kvöld, Sörla- stöðum. Apríl 4. Sörli Skírdagskaffi, Sörlastöðum. 6. Gustur Uppákoma (tölt o.fl), Reið- h.Glaðheimum. 12. -14. Fákur Hestadagar stórsýn., Reiðhöllin Víðidal. 13. Gustur Vetrarleikar, Glaðheimum. 13. Ilörður Heimsókn í Fák. 13. Geysir Vetrarmót, Gaddstaðaflöt- um. 13. Sóti íþróttakeppni, Mýrarkoti. 14. Fákur Æskulýðsdagar, Víðivöllum. 19. Fákur Unghrossakeppni, Víðivöll- um. 19. Gustur Gustskonur, heimsókn til Fákskvenna. 20. Gustur Firmakeppni, Glaðheimum. 20. Sörli Hestadagar Gaflarans, Sörla- völlum. 21. Sörli Hróa hattar-mót, Sörlavöllum. 20.-21. Léttir íþróttamót (vormót), Hlíðarholti. 25. Geysir (Rangárv.d.) Firmakeppni, Gaddstaðaflötum. 25. Fákur Firmakeppni, Víðivöllum. 25. Gustur Kaffihlaðborð, Glaðheimum. 25. Andvari Firmakeppni, Kjóavöllum. 25. Funi íþróttamót, Melgerðismelum. 25. Kópur Firmakeppni, Sólvöllum. 27. Geysir(Hvolhr.d.) Firmakeppni, Hvolsvelli. 27. Gustur Heimsókn til Harðarfélaga. 27. Sörli Firmakeppni, Sörlavöllum. 27. Faxi íþróttamót, Hvanneyri. 27. Dreyri Firmakeppni, Æðarodda. 27. Skuggi Firmakeppni, Vindási. Maí 1. Glaður fþróttamót, Búðardal. 1. Hörður Firmakeppni, Varmárbökk- um. 3. -5. Norðl/ Sunnl. Hestadagar stór- sýn., Reiðhöllin Víðidal. 4. Stóðhestastöðin Sýning, Gunnars- holti. 10. -12. Fákur Reykjavíkurm. í hesta- íþr., Víðivöllum. 11. Dreyri íþróttamót, Æðarodda. 11. Skuggi Iþróttamót, Vindási. 11. Snæfellingur Gæðingakeppni (op- in), Stykkishólmi. 11. Ljúfur Firmakeppni, Reykjakoti. 11. Máni Firmakeppni, Mánagrund. 11. Sóti Firmakeppni, Mýrarkoti. 11.-12. Andvari Iþróttamót, Kjóavöll- um. 11.-12. Hörður íþróttamót, Varmár- bökkum. 11.-12. Sleipnir íþróttamót, Selfossi. 16. Andvari Coka-Cola dagur, Kjóavöll- um. 16. -18. Sörli íþróttamót, Sörlavöllum. 17. Fákur Kvennareið. 17.-18. Máni fþróttamót, Mánagrund. 17.-19. Gustur íþróttamót, Glaðheim- um. 23.-27. Fákur Hvítasunnukappr., Víði- völlum. 25. Hörður Kjötsúpureið á Kjalarnes. 25. Skuggi Gæðingakeppni, Vindási. 27. Snæfellingur Iþróttamót, Grundar- firði. 31.-01. Sörli Gæðingakeppni, Sörlavöll- um. 31.-01. Máni Gæðingak/kappr., Mána- grund. Júní ? Hornfirðingur Félagsmót/kynbóta- sýn., Fomustekkum. 1. Dreyri Gæðingakeppni, Æðarodda. 1. Fákur Hlégarðsreið. 1.-02. Gustur Gæðingakeppni, Glað- heimum. 1.-02. Andvari Gæðingakeppni (úrtFM), Kjóavöllum. 1.-02. Léttir Gæðingakeppni, Hlíðar- ' holti. 2. Hörður Kirkjureið. 6. -08. Hörður Gæðingakeppni, Varm- árbökkum. 7. -09. Geysir Félagsmót/Kynbótasýn., Gaddstaðaflötum. 8. Funi Gæðingamót, Melgerðismelum. 8. Hending Félagsmót, Búðartúni. 8. Sóti Gæðingak. /Úrt.FM, Mýrarkoti. 15. Trausti Gæðingak./Úrit.FM’96, Bjarnastaðavelli. 15. Glaður Firmakeppni, Búðardal. 15. Svaði Félagsmót, Hofsgerði. 15. Ljúfur Félagsmót, Reykjakoti. 16. Þytur Firmakeppni, Stóru-Ásgeirsá. 16. Léttfeti Félagsmót, Flæðigerði. 17. Geysir (FljóLshl.d.) Deildarmót, Goðalandi. 21. -23. Fákur/Hörður Ferð á Þingvöll. 22. Þjálfi Firmakeppni, Einarsstöðum. 22. Þytur Gæðingamót/kappr., Króks- staðamelum. 22.-23. Neisti/Óðinn/Snarfari Hesta- þing, Húnaveri. 28.-29. Glaður Hestaþing, Nesodda. 28. -29. Freyfaxi Félagsmót, Stekk- hólma. 29. Þráinn Félagsmót, Grenivík. 29. Funi Bæjakeppni, Melgerðismelum. 29.-30. Feykir Félagsmót, Ásbyrgi. JÚlí 4.-7. Fjórðungsmót á Gaddstaðaflöt- um. 12. -13. Kópur Hestaþing, Sólvöllum. 13. Glófaxi Finnakeppni, Skógarmel- um. 13. -14. Léttir íþróttamót (meistaram), Hlíðarholti. 14. -21. Youth Cup Unglingamót FEIF, Seljord Noregi. 19.-20. Stormur Félagsmót, Söndum Dýrafirði. 19. -28. Youth CampUnglingabúðir, Finnlandi. 20. Blakkur/Kinnskær Gæðingak./ kappr., Sólheimamelum. 20. Stigandi Félagsmót, Vindheimamel- um. 20.-21. Sleipnir/Smári Hestaþing, Mumeyri. 26. -27. Snæfellingur Félagsmót, Kald- ármelum. 27. -28. Funi/Léttir/Þráinn Hátíðis- dagar hestafólks., Hlíðarholti. 26.-28. Freyfaxi Stórmót (opið) æsk- ul. d., Stekkhólma. 28. -29. Sindri Gæðingak./ kappr., Pét- ursey. Ágúst 2. -4. Léttfeti/Stígandi/Svaði Stór- mót, Vindheimamelum. 3. -4. Logi Félagsmót, Hrísholti. 7.-11. Norðurlandamót í hestaíþrótt- um Svíþjóð. 9. -11. Islandsmót í hestaíþróttum Varmárbökkum. 10. Þytur fþróttamót, Króksstaðamel- um. 10. Svaði Töltmót, bæja- og firmak., Hofsgerði. 10.-11. Grani/Þjálfi Félagsmót, Ein- arsstöðum. 10. -11. Glæsir/Gnýfari/Svaði Hesta- dagar, Siglufirði. 10.-11. Faxi Gæðingak./Faxagleði, Faxaborg. 17. Trausti Vallarmót, Laugardalsvöll- um. 17: Feykir/Snæfaxi Félagsmót, Löngu- hlíðarmelum. 17. Hringur Félagsmót, Flötutungum. 17.-18. Dreyri íþróttamót (opið), Æðar- odda. 24. Þráinn Firmakeppni, Áshóli. 31. Hörður Lokasprettur. September 7.-8. Andvari Metamót, Kjóavöllum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.