Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ y tS*E*R-S*T*A*K*I *R Hestadagak Fimmtudag^’~\ Föstudagy'-'VLaugardag^ y'"'V Febrúar o. V. 1U. Kynning á vöruvali, gæðum og verði. Sérstakt kynningarverð, verulegur afsláttur. MR búðin • Laugavegi 164 Símar: 551 1125 • 552 4355 Framtalsaðstoð - skatttrygging Get bætt við einstaklingum með og án reksturs. Innifalin í gjaldtöku er svonefnd skatttrygging, en hún felst í því að framteljandi hefur með einu gjaldi í upphafi greitt fyrir: 1. Framtalsaðstoð. 2. Skattútreikning. 3. Svör við hvers konar fyrirspurnum frá skattyfirvöldum 4. Kærur til skattstjóra og æðri yfirvalda. 5. Munnlegar upplýsingar um skattamál viðkomandi allt árið 1996 Upplýsingar, tímapantanir og frestbeiðnir veittar á skrifstofu minni kl. 09.00-17.00 alla virka daga. Notaðu tækifærið og tryggðu þér áratugareynslu undirritaðs meðan færi gefst. Sanngjarnt verð. Skattaþjónustan sf. Bergur Guðnason hdl. - Lögskipti, Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík, sími 568 2828 - fax 568 2808. ANTIK-UPPBOD ÍAÐALSTRÆTI6 (morgunblaðshúsinu) SUNNUDAGINN 11. FEBRÚARKL. 16.00 HÚSGÖGN, SMÁVARA OG PERSNESK TEPPI. SÝNING UPPBOÐSVERKA ÍDAGKL. 12-18, FÖSTUDAGKL. 12-18, LAUGARDAGKL. 12-18 OG SUNNUDAG KL. 12-14. TÖKUMINN TVO GÁMA AF ANTIKVÖRUM í NÆSTU VIKU. STÓRKOSTLEGT ÚRVAL! SÓFAR, SÓFABORÐ, SKENKAR, SKÁPAR, BORÐSTOFUSETT, STÓLAR, BÓKASKÁPAR OG FLEIRA. ALLTAF SAMA LÁGA VERÐIÐ. <!SfaéI&iF BÖRG við INGÓLFSTORG SÍMI552 4211 I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Hvað er til ráða? ÞANN 28. janúar sl. lagði Þórður Halldórsson fram eftirfarandi spurningu: „Hver er staða móðurmáls- ins?“ Hér verður þeirri spurn- ingu ekki nákvæmlega svarað, en að öllum líkind- um mætti ætla að stundum hafi málvöndunarmenn a.m.k. „sofíð“ á verðinum. Fyrir u.þ.b. 30 árum var málfarið almennt miklu skárra en núna. Þá höfðu málvöndunarmenn (hinir fyrri) nær því útrýmt flá- mæli í landinu. Og ekki spillti að þulir Ríkisútvarps- ins, svo sem Pétur Péturs- son, Jóhannes Arason, Jón M. Arnason o.fl. voru alveg sérlega góðir. Flámæli kallaðist það þegar menn höfðu e hljóð og ö hljóð í framburði í stað- inn fyrir i og u. Dæmi: Útletið (útlitið), högurinn (hugurinn) En nú gengur þetta út á hina hliðina (öfug flámæli). Hlustið á útvarps- fréttir: Dæmi: Fjugur (fjög- ur), sju (sjö), sjutíu og sju (sjötíu og sjö), frjittir, tvu (tvö), stuðuhækkun (stöðu- hækkun). Sem betur fer eru fáeinar undantekningar frá þessu. Þegar svo þessi sí- bylja kemur í flestum frétt- um þá bregður svo við að jafnvel fólk sem gert hefur sér far um að vanda málfar sitt sem best, er óvart farið að standa sig að því að tala svona sjálft. Hvernig eiga börnin að læra réttritun þegar framburðurinn er svona? Sé það vilji fólksins í landinu að hafa þennan framburð, þá er víst ekkert við þessu að gera, eða hvað? Til er saga af manni ein- um sem var hljóðvilltur, hann sendi stúlku bónorðs- bréf. Hann bað hana um hennar hund og hjarta. Stúlkan sendi svarbréf, þar sagði hún að hann mætti svo sem eiga hundinn, en ekki hjartað. Líklega gætu málvönd- unarmenn ekki notað þessa sögu sem áróður gegn þessari hljóðvillu, því að sennilega eru bónorðsbréf ekki notuð nú til dags. En hver veit nema þau verði einhvern tímann í tísku. 21.11.31-7219 Á Kirkjusandi árin 1954-’62 ÁKVEÐIÐ hefur verið að reyna að smala saman fólki sem vann á Innri-Kirkju- sandi á árunum 1954-’62 undir stjórn Gunnars Val- geirssonar. Þórður Berg- mann og Ásta Jónsdóttir ætla að bera hitann og þungann af því að fá fólkið saman og er stefnt að því að hittast á Kringlukránni nk. laugardag, 10. febrúar, kl. 21. Fólk er hvatt til að gera sér glaðan dag en allar nánari upplýsingar gefur Halldóra í síma 557-9079 eða Ásta Jóns- dóttir í síma 557-3705. Tapað/fundið Taska tapaðist BRÚN kventaska tapaðist aðfaranótt sl. sunnudags. Mögulegir staðir eru í Seljahverfi við Seljabraut, þar sem farið var út úr strætó, eða á leið þaðan í áti að Asparfelli. í tösk- unni var merkt seðlaveski með skilríkjum, snyrtivör- ur og eitthvað fleira. Hafí einhver fundið töskuna er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 557-8860 eftir 18 eða í síma 569-1155 á dagvinnutíma. Frakki tapaðist DÖKKBLÁR herrafrakki tapaðist úr fatahengi í Fé- lagsheimilinu Glaðheimum í Kópavogi sl. laugardags- kvöld eftir þorrablót Þin- geyingafélagsins. Viti ein- hver um frakkann er hann beðinn að hringja í síma 552-6686. Óskilamunir í Kópavogskirkju ÓSKILAMUNIR eru í Kópavogskirkju, s.s. karl- mannshanskar frá því á jólum, gleraugu o.fl. Upp- lýsingar veittar eftir há- degi í síma 554-1898. Gleraugu töpuðust GLERAUGU í grannri umgjörð töpuðust í vestur- bænum um áramótin. Finnandi vinsamlega hringi í síma 562-4579 eða 431-4322. Hjólkoppur tapaðist HJÓLKOPPUR undan Toyotabifreið tapaðist við Staldrið sl. föstudag. Finnandi vinsamlegast skili honum í Staldrið. Húfa tapaðist FJÓLUBLÁ, hvít og túrk- isblá, munstruð handprjón- uð húfa með stórum dúski tapaðist sl. föstudag á Sól- on Islandus eða nágrenni. Húfunnar er sárt saknað því hún er hluti af setti. Finnandi vinsamlega hringi í síma 551-8205 eða skila henni á Sólon Island- us. Köttur í heimilisleit FALLEG níu mánaða iæða fæst gefíns á gott heimili. Upplýsingar í síma 587-0624 eftir kl. 19.30. HÖGNIIIREKKVÍSI Farsi Víkveiji skrifar... að hefur vakið athygli Vík- verja, hversu margir, sem hann þekkir til, sækja nú alls konar námskeið. Félög, fyrirtæki og ein- staklingar bjóða námskeið ýmiss konar og tómstundaskólar og náms- flokkar eru sóttir sem aldrei fyrr. Svo dæmi séu tekin af handahófi sækir einn kunningi Víkveija mat- reiðslunámskeið, annar lærir ljós- myndun, sá þriðji vill verða mæltur á franska tungu, einn lætur sig hverfa inn í einhveija vélsmiðju og lærir þar logsuðu, annar hefur tek- ið höndum saman við fleiri og feng- ið myndlistarmann til að kenna þeim að mála. Þannig mætti halda lengi áfram. Fjölbreytnin er með ólíkindum. Að sjálfsögðu er til nám- skeið í því að skrifa pistla eins og Víkveija. Og á dögunum heyrði Víveiji af manni, sem var að hugsa um að leggja upp með námskeið fyrir fólk og viðfangsefnið átti að vera, hvernig menn eiga að velja sér námskeið og hafna! xxx Sem Víkverji veltir þessu fyrir sér, rekur hann augun í Fréttabréf Endurmenntunarstofn- unar Háskóla íslands. Þar kemur m.a. fram að fjöldi þátttakenda hefur sjöfaldast, þeir voru 1000 árið 1985 og 7000 á því síðasta. í fréttabréfinu segir, að flestir þátttakendur sæki styttri námskeið 10 - 20 klukkustundir, en á hveiju ári bætist við námsbrautir, sem taka eitt til tvö ár og nemendur sækja jafnframt starfi. Þessi mikli vöxtur i starfi Endur- menntunartofnunarinnar og sú gróska, sem Víkveiji veit af annars staðar, sýnir mikla þörf fyrir menntun og endurmenntun. í Fréttabréfinu er vísað til samstarfs Háskóla íslands við ýmsa aðila, skóla, samtök háskólamanna og samtök í atvinnulífi, ráðuneyti, rik- isstofnanir, menningarstofnanir, fyrirtæki og fagfólk. Þetta sam- starf telur stjórn Endurmenntunar- stofnunarinnar lífæð hennar og geta efalaust aðrir, sem fyrir nám- skeiðum standa, flutt svipaða rullu. xxx Svo lengi lærir sem lifir. Árið 1996 hefur verið útnefnt ár símenntunar í Evrópu og hér á landi eru margir atburðir í undirbúningi. Dagur símenntunar verður haldinn 24. febrúar. í auglýsingu frá framkvæmda- stjórn ársins hér á landi kemur fram að þennan dag verður haldin sérstök ráðstefna um símenntun. Þá munu margir skólar og fræðsluaðilar verða með opið hús fyrir almenning. Víkveiji telur sig vita, að þessi dagur verði mörgum kærkominn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.