Morgunblaðið - 14.02.1999, Side 8

Morgunblaðið - 14.02.1999, Side 8
8 SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Ennbanka- r stjóralaust ~ Þröstur Ólafsson bankaráðsmað- ^ ur í Seðlabanka hefur Iýst því op- inberlega yfir að nauðsynlegt sé að taka um það formlega ákvörð- un hvort nýr maður setjist í stól Steingríms Hermannssonar, eins 3 — Seðlabankalög segja til um. _ • P ■VV vv §0 w -5- 9-gr _ , QrfAU i ÞIÐ verðið að fara að gera eitthvað í þessu, Ólafur. Það yrði nú saga til næsta bæjar ef við þyrftum að byggja við bankann vegna nagaraskorts. 2xiraCUwáfpsmagnari Rms • 5x60 • 30 stöðva minni • Rds Myndgeislaspilari AC3 • framtíðin í hljóð og mynd mr-m 1 Jj?' mmf' »£ ** m \ rT kTmi fzTa Afmælisár Fríkirkjunnar í Reykjavík Samfélag um Guðstrú Fríkirkjusöfnuður- inn í Reykjavík á hundrað ára af- mæli í haust. Af því tilefni var ákveðið að ráðast í miklar framkvæmdir í Fríkirkjunni innanhúss, og líklega þær mestu sem farið hafa fram frá því hún var byggð á árunum 1902 til 1904. Söfnuður- inn er annar elsti lúth- erski söfnuðurinn í Reykjavík. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson tók við starfi fríkirkjuprcsts í vor sem leið. Hvað ber að hans mati hæst á hund- rað ára afmælisári Frí- kirkjusafnaðarins? „Fyrst er að telja end- urnýjun Fríkirkjunnar í Reykjavík, þar sem að nýtt gólf er sett í kirkjuna, nýir kirkjubekkir hannaðir og smíð- aðir, kirkjan ásamt kirkjuhvelf- ingu öll máluð í upprunalegum litum og nýju hljóðmögnunar- kei’fi komið fyrir. Formaður safnaðarstjórnar er Sigurður E. Guðmundsson og hefur hann borið hitann og þungann af þess- um framkvæmdum. Stefnt er að því að opna kirkjuna eftir endur- bæturnar í nýjum búningi 7. mars nk. Einnig er stefnt að vígslu kapellu hér í safnaðar- heimilinu, en kapellu Fríkirkj- unnar, sem var í Garðastræti þar sem prestbústaðurinn vai-, hefur verið lokað vegna þess að húsið var selt. Stefnt er að því að halda Fríkirkjuhátíð á sumar- eða haustmánuðum og halda málþing þar sem fríkirkjuhug- sjónin verður til umfjöllunar. Af- mælistónleikar eru fyrirhugaðir, en í hundrað ára sögu kirkjunn- ar hafa margir þekktir organist- ar starfað þar, má nefna Pál Is- ólfsson og bróður hans, Sigurð Isólfsson. Núverandi organisti við kirkjuna er Guðmundur Sig- urðsson. Loks er stefnt að af- mælishátíð í tengslum við af- mæli safnaðarins 19. nóvember nk.“ - Er Fríkirkjusöfnuðurinn fjöl- mennurí dag? „Já, hann er langstærsta trúfé- lagið á íslandi sem er utan þjóð- kirkjustofnunarinnar. Þó játum við nákvæmlega sömu trúna, við erum evangeliskur-lútherskur söfnuður. Yfir fimm þúsund manns tilheyra Fríkirkjusöfnuð- inum í Reykjavík og á undan- fómum mánuðum hafa um 150 manns gengið í söfnuðinn. A fyrri hluta þessarar aldar tilheyrði um helmingur Reykvíkinga Frí- kirkjusöfnuðinum, áður en Reykjavík var skipt upp í land- fræðilega afmarkaðar sóknir þjóðkirkjunnar, en Fríkirkjan er óháð landfræðilegum sóknar- mörkum.“ - Er ástæða til þess að vera með Fríkirkjusöfnuð? __________ „Full ástæða er til þess. Víðast hvar í heiminum í dag eru fríkirkjur í örum vexti. Einnig má benda á að á Is- landi er verið að vinna að að- greiningu ríkis og kirkju. Þess vegna lítum við svo á að frí- kirkjufyrirkomulagið sé trúverð- ugt safnaðar- eða kirkjufyrir- komulag og þar sé kannski meiri möguleika á að móta kirkjustarf- ið.“ - Er safnaðarstarf í Fríkirkj- unni með öðru móti en í söfnuð- um þjóðkirkjunnar? Hjörtur Magni Jóhannsson ►Hjörtur Magni Jóhannsson er fæddur í Keflavík 18. apríl 1958. Hann lauk stúdentsprófí frá Fjölbrautaskóla Suður- nesja og guðfræðiprófí frá Háskóla Islands 1986. Hann hlaut um svipað leyti tveggja ára háskólanámstyrk í Jes- úsalem. Hann vígðist til Ut- skálaprestakalls á Suðurnesj- um haustið 1986 og var þar prestur í ellefu ár. Þrjú ár af þeim tíma bjö Hjörtur með fjölskyldu sinni í Skotlandi. Hann var í launalausu leyfí og stundaði framhaldsnám við Edinborgarháskóla þar sem hann rannsakaði ímynd og samfélagsstöðu íslensku og skosku þjóðkirknanna 1 fjöl- miðlasamfélaginu. Hjörtur varð fríkirkjuprestur í Reykjavík í maí sl. Hann er kvæntur Ebbu Margréti Magnúsdóttur lækni og eiga þau tvö börn en Hjörtur á einn son frá fyrra hjónabandi. „Undanfarið hefur það verið með mjög svipuðu móti, enda er tráin hin sama. En einmitt það sem við viljum leggja áherslu á núna á hundrað ára afmælinu er sérstaða okkar í því að virkja og efla þátt safnaðarfólks í starfinu sjálfu. Sérstaða safnaðarins felst í því að við erum óháð ríki og rík- isframlögum, við fjármögnum safnaðarstarf okkar sjálf og trá- um að of náið samband kirkju og ríkis sé ótráverðugt og ekki kirkjunni til góðs. Fríkirkjuna stofnuðu upphaflega iðnaðar- og verkamenn í Reykjavík. Þeir voiti ósáttir við áhrif ríkisvalds- ins eins og þau birtust í þá daga. Barátta þeirra einkenndist af mikilli tráardjörfung og athafna- þrótti.“ - Hver er framtíðarsýn frí- kirkjufólks í Reykjavík? „Eg sé fyrir mér kirkju þar sem safnaðarfólkið er virkt og __________ tekur þátt í mótun kirkjustarfsins á eig- in forsendum. Þar _______ sem að fólk lítur á kirkjuna sem sitt eig- ið andlega heimili þar sem vett- vangur sé til þess að ræða þau ýmsu mál sem á fólki brenna út frá trúarlegum forsendum, svo sem uppeldis- og fjölskyldumál, ýmis þjóðfélagsleg réttlætis- og velferðarmál, náttúruvernd og fleira. Við leggjum áherslu á að kirkjan okkar er ekki stofnun, né heldur félag um þjóðlegar hefðir og siði, heldur samfélag venju- legs fólks um Guðstrá." Fríkirkjur í ör um vexti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.