Morgunblaðið - 14.02.1999, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.02.1999, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999 i--------------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, LILJA GUÐMUNDSDÓTTIR, Efstasundi 60, Reykjavík, lést á Vífilsstaðaspítala fimmtudaginn 28. janúar. Þökkum af alhug umönnun lækna og starfsfólks spitalans. Útförin hefur farið fram i kyrrþey frá Fossvogskapellu. Anna Agnarsdóttir, Hreinn Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORGEIR IBSEN fyrrverandi skólastjóri, Sævangi 31, Hafnarfirði, sem lést mánudaginn 8. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudag- inn 15. febrúar kl. 13.30. Ebba Lárusdóttir, Ásgerður Þorgeirsdóttir, Júlíus Valgeirsson, Þorgeir Ibsen Þorgeirsson, Denise M. Ibsen, Heiðrún Þorgeirsdóttir, Benedikt Sigurðsson, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Magni Baldursson, Árni Ibsen Þorgeirsson, Hildur Kristjánsdóttir og barnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR ÁSMUNDSSON sendifulltrúi, Kleppsvegi 142, Reykjavík, sem lést á heimili sínu föstudaginn 5. febrúar, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni á morgun, mánudaginn 15. febrúar, kl. 13.30. Karí Karólína Eiríksdóttir, Edda D. Sigurðardóttir, Sigurður K. Kolbeinsson, Birna K. Sigurðardóttir, Erlingur Hjaltested, Ellisif A. Sigurðardóttir, Hafliði Ragnarsson, Sunna M. Sigurðardóttir og afabörn. t Eiginmaður minn og faðir, ARI GUÐJÓNJÓHANNESSON, Jökulgrunni 2, sem lést á Hrafnistu föstudaginn 5. febrúar, verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 16. febrúar kl. 13.30. Anna Ingunn Björnsdóttir, Viggó Jóhannesson. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, INGiBJARGAR LÁRUSDÓTTUR frá Sarpi, Skorradal, Grænuhlíð 16, Reykjavík. Ragnhildur Hannesdóttir, Guðrún Hannesdóttir, Björn Þorsteinsson, Auðbjörg Hannesdóttir, Helga Hannesdóttir, Vilhjálmur Hannesson, Hanna Hannesdóttir, Hjördís Hannesdóttir, Jónas Hannesson, Lárus Hannesson, Valborg Hannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hans Árnason, Guðmunda Jónsdóttir, Garðar Einarsson, Haraldur Magnússon, Sigurlaug Ingimundardóttir, Dröfn Halldórsdóttir, LILJA GUÐMUNDSDÓTTIR + Lilja Guðmunds- dóttir fæddist 10. febrúar 1914. Hún andaðist á Víf- ilsstaðaspítala 28. janúar síðastliðinn. Lilja ólst upp hjá þeim mætu hjónum Ólöfu Sigurðardótt- ur og Eggerti G. Waage á Litla- Kroppi í Flókadal í Borgarfirði. Lilja var gift Gunnari Halldóri Árnasyni, sem lést 24. nóvember sl. Fyr- ir átti hún Önnu Agnarsdóttur með fyrri manni sinum. Útför Lilju fór fram frá Foss- vogskapellu 11. febrúar. Elsku amma, nú ertu búin að fá hvíldina sem þú þráðir. Síðustu árin barðist þú við astmann og varst nær til jafns heima í Efstasundinu og uppi á Vífilsstöðum. Oft hélt ég að þú myndir ekki ná þér en lífsviljinn var mikill og alltaf komstu heim. Heim þar sem afi beið og hugsaði svo vel um þig. En svo fyrir rúmum tveimur mánuðum fóruð þið sam- dægurs á spítala, þú á Vífilsstaði og afi í hjartablástur sem hann var bú- inn að bíða svo lengi eftir að komast í. Hann átti að koma heim tveimur dögum síðar, en hjartað var veikara en við héldum og afi lifði aðgerðina ekki af. Ekki er hægt að lýsa hversu erfitt það var fyrir mömmu að færa þér þessa frétt um kvöldið. En þú varst sterk eins og alltaf og áttir til kraft til að fylgja afa hans síðustu ferð. En nú áttirðu ekki mikið meira þrek eftir enda beið afi ekki eftir þér heima heldur á öðrum stað, til- búinn að taka á móti þér. Og nú ertu komin til hans og ekkert að- skilur ykkur framar. Æskuheimili okkar systranna var aðeins tveimur götum neðar en ykk- ar þannig að ég var mikið hjá ykk- ur. Alltaf áttirðu til brúntertu handa mér og fleira góðgæti. Þú varst alltaf að baka og ég fékk að hjálpa til. Þér fannst nú reyndar óþarflega margar ósteiktar kleinur hverfa upp í mig þegar ég var að snúa. Þú kenndir mér að sauma út og prjóna. Þú prjónaðir lopapeysur fram á síðustu ár en vegna astmans varðstu að hætta að prjóna úr lopa og breyta til og síðustu vettlingana prjónaðir þú fyrir nokkrum vikum, þrátt fyrir að sjónin væri orðin mjög léleg. Ég fór oft fyrir þig á bókasafnið því þú last svo mikið. Stundum byrjaðir þú á endinum og kíktir svo á upphafið. Ég man svo vel í einu sumarfríinu sem ég fór með ykkur í að við tókum með okk- ur fjögurra binda skáldsögu. Við leyfðum afa að lesa hana í réttri röð en við náðum alveg samhenginu þótt við læsum hana í ruglaðri röð. Afi hristi bara hausinn yfir okkur. Þið afi unnuð bæði á Kleppsspítal- anum og ég fékk stundum að fara með þér í vinnuna þegar þú vannst á heimilinu í Laugarási. Þar kennd- irðu mér að allir eiga skilið virðingu og tækifæri. Þú varst ein af þeim sem réttir óumbeðin hjálparhönd og ÚTFARARSTOFA OSWALDS s.Mi 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN AÐALSTRÆIT »11 • 101 RFYIvJAVÍK LÍKKISTUVINNUSTOFA EWINDAR ÁRNASONAR vildir ekki að talað væri um það sem þú gerðir. Það skipti ekki máli hvort viðkomandi væri þér nákominn eða ekki, þú máttir ekkert bágt sjá. í þessu voruð þið afi samstiga eins og í svo mörgu öðru, enda eru minningar mínar um ykkur svo sam- tvinnaðar, þið voruð alltaf bæði til staðar. Ykkur afa tókst svo vel að ná tengslum við fólk. Þið fóruð ekki að fara til útlanda fyrr en þið voruð orðin vel fullorðin og það brást ekki að þið höfðuð eignast kunningja í hverri ferð sem þið hékluð síðan tryggð við. A meðan heilsan leyfði vöruð þið dugleg að hreyfa ykkur. Keyra norður, fara til Hveragerðis og ekki má nú gleyma; út að dansa. Þegar ég var unglingur held ég að þið haf- ið farið oftar út að skemmta ykkur en ég. Þú hafðir svo gaman af því að dansa og hafa glatt í kringum þig. „Njóttu lífsins, Björk mín, vanda- málin leysast alveg eins þó maður velti sér ekki um of upp úr þeim,“ sagðh-ðu við mig uppi á spítala um daginn. Það er örugglega rétt hjá þér. Ég veit að ég er ótrúlega lánsöm að hafa fengið að hafa ykkur afa svo lengi hjá mér og börnin okkar Bjössa sem eru eins og hálfs, fimm og tíu ára að eiga langömmu og langafa. Við fjölskyldan áttum dýr- mætar stundir með ykkur sem aldrei munu gleymast og við þökk- um ykkur fyrir allt sem þið hafið gert fyrir okkur og kennt okkur. Ég veit að við getum í bænum okkar leitað til ykkar og þið munuð styrkja okkur og vaka yfir okkur. Elsku mamma mín, missir þinn er mestur en þú ert sterk eins og amma. Blessuð sé minning ykkar, elsku amma og afi. Ykkar Björk og fjölskylda. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Pýð. S. Egilsson.) Elsku hjartans amma mín. Þetta vers er eitt margra, sem þú kenndir mér. Þá var ég bara smá- skott og þótti skemmtilegra að syngja með þér dægurflugur þess tíma, s.s. „Blátt lítið blóm eitt er“ og „Komdu inn í kofann minn“. Þú kunnir nefnilega býsn af textum og dansaðir með mig um stofuna þína. Afi sat hjá og hló að okkur. Hann setti plötur á fóninn og þú kenndir mér gömlu dansana, t.d. skottís og ræl. En öll dönsuðum við „Fríðu litlu lipurtá“! Stundum fór ég með þér í strætó niður í bæ. Þú varst svo fótfrá að ég hljóp með þér Laugaveginn en það var allt í lagi, því við enduðum á „Hressó“ með kakó og kleinu. Svo var það á jólum að þú bauðst upp á ekta súkkulaði með rjóma og við fá- vís dásömuðum þetta góða kakó. Þú þurftir að leiðrétta okkur í mörg ár áður en við mundum muninn á þessu tvennu. Þú sast aldrei auðum höndum og taldir illa farið með tímann ef ekk- ert lægi eftir. Hvað skyldu þær vera margar lopapeysurnar sem þú framleiddir eða vettlingarnir og sokkarnir? Mörgum hefur þú lið- sinnt gegnum árin og oft lagðirðu lykkju á leið þína til að létta undir með öðrum. „Þetta er nú ekki til- tökumál," svaraðir þú, þegar þér var þakkað. Svo lítillát varstu ávallt. Oft sat ég með þér yfir kaffibolla og masaði um allt og ekkert eða dýpstu hjartans mál. Einatt gafstu mér tíma, hlustaðir og gafst góð ráð. Fyrir um níu árum sagðir þú mér draum þinn. Ég var íklædd hlýrri og vel sniðinni kápu. Þú réðst drauminn á þann veg, að ég væri að eignast góðan mann, sem myndi reynast mér vel. Þetta gekk eftir og Sigurður minn kom inn í fjölskyld- una. Mér þótti þá sem líf okkar væri um margt líkt. Ég ímyndaði mér að eins og Gunar afi og þú áttuð gott heimili og góða samheldna fjöl- skyldu myndi ég eiga farsæla daga með Sigga. Ég sá fyrir mér að eld- ast og eiga stuðninginn vísan eins og afi reyndist þér. En Siggi minn dó langt um aldur fram, en þann tíma sem við áttum saman var ég umvafin ást og hlýju. Svo draumur- inn um kápuna stóð fyrir sínu. Elsku amma mín, margs er að minnast og hugurinn reikar um liðnar samverustundir. Minningin um dillandi hlátur þinn og létta lund, þar sem sungið var og dans- sporin stigin við húsverkin, mun ávallt fylgja mér. Eins er um rútu- ferðina norður í land forðum daga. Líka þau gi-andvöru orð þín að þótt ýmislegt mæti okkur í lífsins ólgu- sjó sé heillavænlegast að leita sátta við menn og málefni. Ganga ekki ósáttur til svefns og láta reiði og hatur aldrei setjast að í huga okkar. Sárt er að missa ykkur afa á svo skömmum tíma. En þú kvaddir þetta líf eftir langvarandi veikindi og þið afi munuð finnast aftur hin- um megin. Þótt fárveik værir vild- irðu alltaf líta vel út, fórst í hárlitun og permanent og barst þig ávallt vel. Ég ætla nú að biðja ykkur að skæla ekkert yfir mér þegar þetta er búið, voru orð þín. Elsku amma - við syrgjum þig öll og tár falla. Guð geymi þig og blessi minningu þína. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Einlæg þökk fyrir allt. „Sólin hennar ömmu sinnar,“ þín Lilja. Við kveðjum hana elsku langömmu okkai' með söknuði. Hún sem alltaf var svo blíð og góð. Við munum þegar við vorum í heimsóknum eða í pössun hjá langömmu og langafa að þau laum- uðu alltaf til okkar rúsínum eða súkkulaði án þess að aðrir sæju. Svo voru alltaf til nýbakaðar klein- ur, pönnukökur eða kökur þegar við komum í kaffi. Hún bakaði alltaf svo góðar brúntertur, sem voru í miklu uppáhaldi hjá okkur og fleirum. Hún kenndi okkur að hekla og prjóna og hjálpaði okkrn- með ýmis- legt sem við áttum í vandræðum með. En svo brást heilsan. Amma veiktist og þurfti oft að dvelja á Víf- ilsstaðaspítala. Þegar komið var í heimsókn til hennar, átti hún alltaf nammi í skúffunni hjá sér. „Viltu tungu, elskan," sagði hún og bauð okkur. Svo þegar afi dó mánuði fyrir jól hrakaði heilsunni ört og hinn 28. janúar sl. var komið að leiðarlokum. Minningar okkar um langömmu og langafa munu seint fara okkur úr minni. Við biðjum góðan Guð að blessa ömmu og afa á þessum erfiðu tím- um. Ó, faðir gjör mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið, til hjálpai- hverjum hal og drós, sem hefur villst af leið. Ó, faðir, gjör mig styrkan staf að styðja hvern sem þarf, uns allt það pund, sem Gud mér gaf, ég gef sem bróðurarf. (Þýð. M.Joch.) Hvíl í friði, elsku langamma. Þóranna Hrönn, Gunnar Már, Elín Margrét og Anna María.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.