Morgunblaðið - 14.02.1999, Page 28

Morgunblaðið - 14.02.1999, Page 28
28 SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Fuglafræðingar Náttúrufræðistofnunar Islands eru út og suður flestum stundum, rannsakandi allt milli himins og jarðar í fuglaríkinu. Þeir vildu vera með miklu fleiri járn í eldinum, en tíminn svíkur og fuglarannsóknir eru yfirleitt því marki brenndar að til að vit sé í þeim þarf að stunda þær um eitthvert árabil. Guðmundur Guðjónsson ræddi við Guðmund A. Guðmundsson og fékk að vita að eitt af gæluverkefnum hans síðustu árin hefur verið að hengja mælitæki á langvíur, stuttnefjur og álkur í Látrabjargi og kortleggja ferðir -—------------------------------— 7 þeirra, köfunartíðni og fleira í atferli þeirra. Ymislegt skrítið og skemmtilegt hefur komið á daginn, STUTTNEFJA undir mannahöndum og komin með mælitæki á bakið. Flj úga - kafa djúpt MARKMIÐ rannsóknanna segir Guðmundur vera að finna fæðuslóðir svart- fugla við mismunandi björg og lýsa ferðum þeiira og tíma- notkun. Notuð hafa verið tæki sem þróuð hafa verið og smíðuð við Há- skólann í Pisa, svokallaðir leiðamtar. Léttari tæki sem ekki hafa inn- byggða áttavita hafa líka verið notuð. Nákvæmar upplýsingar hafa feng- ist um ferðir og ferðanotkun, þ.e.a.s. hve lengi fugiinn er á flugi, hvað hann dvelur lengi í bjarginu, hvað hann situr lengi á sjónum og hversu iengi og hve djúpt hann kafar. „Ferðaskráning af þessu tagi gefur m.a. nákvæmar upplýsingar um við- vist fugla, en siíkar upplýsingar geta nýst m.a. við vöktun stofna,“ segir Guðmundur. Rannsóknimar má rekja til þess, að Guðmundur hitti ítalann Silvano Benvenuti á ráðstefnu í Birming- ham. Par kynnti Silvano niðurstöður rannsókna sem hann hafði gert á dúfum í heimaborg sinni Pisa. Þar hafði hann notað tæki af þeirri gerð sem síðar voru sett á svartfugla í Látrabjargi, en tækin voru smíðuð og hönnuð af ítalanum og samstarfs- mönnum hans við Háskólann í Pisa. Silvano hefur komið hingað til lands síðustu fimm árin til að vinna að rannsóknunum. Sjö metra veiðistöng Veiðiskapurinn er kúnstugur. Guðmundur og félagar eru með sjö metra ianga hollenska síkjaveiði- stöng og á endanum hangir snara úr nælongimi. Fuglinum er náð með þeim hætti að veiðimaður gægist fram af bjarginu fyrir ofan varpbæli, velur fugl og reynir að læða snörunni upp á hálsinn á honum. Það er mesta furða hvað þetta reynist auðvelt, sé hægt að komast að fuglinum yfirleitt, en mismunandi hversu vel fuglarnir hafa tekið trufl- uninni og áfallinu sem henni fylgir. Þannig unnu þeir félagamir mest með langvíur í byrjun, en sneru sér að stuttnefjum síðar og síðan álkum, því langvíumar voru erfiðar í sam- vinnu, afræktu egg sín og náðust ekki aftur til að hægt væri að lesa af mælitækjunum. Tapaðist þannig mikill og dýr búnaður. „Þetta eru 25.000 ki'óna tæki þannig að maður setur þau ekki á hvaða fugl sem er. Bara þá sem maður telur að ömggt sé að vinna með,“ segir Guðmundur. Hann segir eitt og annað geta hafa valdið óstöðugleika langvíanna, t.d. að þær voru með eggjum þegar þær voru veiddar og þá sé ekki eins mikil hvöt til að snúa aftur eins og þegar ungar eru komnir úr eggjum. Eftir að þeir fóro að vinna með stuttnefjur voru þeir á ungatíma og þá gekk miklu betur. Langbest gekk þó að eiga við álkur og náðust flestar eða allar álkurnar aftur. Afrækt egg og ungar leiddu af sér mikið afrán, enda bíða máfar og hrafnar á hverju strái eftir tækifær- um til fæðuöflunar og vísindamenn- ii-nir þurftu að taka tillit til þess í rannsóknum sínum. Hins vegar segir Guðmundur að alltaf sjái menn eitt- hvað nýtt og skemmtilegt. „Langví- an er t.d. í bælum, margar saman og landamæraýfingar sjást varla. Það er gaman að sjá hvernig langviumar hjálpast að, t.d. við að taka að sér unga sem afræktir hafa verið. Við höfum jafnvel séð langvíur taka að sér stuttnefjuunga sem voro í reiði- leysi og hlúa að þeim rétt eins og það væro þeirra eigin ungar. Þá var líf í tuskunum í álkubyggð- unum. Þar er m.a. mikill fjöldi geld- fugla og að því er virðist lítið hreið- urrými, enda era álkuvörpin ekki þétt eins og hjá langvíum. Að minnsta kosti er slegist svo hat- rammlega um hvert pláss, að sjáist afrækt egg eða ungi, eru óðar komn- ar ókunnugar álkur sem hreinlega ryðja ungum og eggjum fyrir björg og helga sér plássið. Við sáum þetta MERKT álka kúrir á eggi. eiga sér stað tvívegis, en þessi ásókn geldfuglsins í hreiðurstæðin orsakar háa endurkomutíðni álkanna, þær snúa strax til baka þegar við erum búnir að koma tækjunum fyrir. Þær vita að unginn er ekki óhultur einn,“ segir Guðmundur. Fljúga langt, kafa djúpt Það hefur reynst vera mikill at- ferlismunur á stuttnefju og álku í þessum ferðum. Stuttnefjan á það til að fljúga langt og kafa djúpt og oft. Álkan fer miklu styttri ferðir, er síkafandi, en fer ekki eins djúpt og með öðrom hætti. Þetta kann að stafa af mismunandi fæðuvali að sögn Guðmundar. „Stuttnefjur stoppa reglulega á leiðinni út og kafa þá talsvert. Þær kafa dýpra og dýpra með hverju stoppinu sem bendir til könnunar. ÁLKUR í kvöldsól. KORTIÐ sýnir ferðaleiðir mælimerktra stuttnefja. Ljósmynd/Úr safni Guðmundar A. Guðmundssonar Þær kafa að meðaltali niður á 40 metra dýpi, en í fyrstu skemmdust nokkur tæki vegna þess að þau þoldu ekki dýpið sem kafað var niður á. Þá mældist yfir 70 metra dýpi. Við vit- um ekki hversu djúpt fuglarnir köf- uðu þegar dýpst var farið, en dæmi eru til um langvíur sem hafa fundist á 180 og 200 metra dýpi, hvaða er- indi sem þær svo eiga á þeim slóð- um. Þá var dægursveifla í þessu, þ.e.a.s. fuglai'nir köfuðu gi-ynnra um lágnættið en þegai' bjart er, en það er ugglaust í beinu samhengi við hreyfingu á fæðunni. Þá kom á óvart hversu langt stutt- nefjan sótti ætið. Algengt var að flogið væri 20 til 40 kílómetra á haf út, en sumir fuglarnir flugu alveg út að ísjaðri á miðlínu milli íslands og Grænlands, hátt í 200 kílómetra leið og þá alls hátt í 400 kílómetra fram

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.