Morgunblaðið - 14.02.1999, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.02.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999 21 „STARFSANDINN hefur verið góður og hópurinn samhent- ur,“ segir Stefán Baldursson Þjóðleikhússtjóri. með sömu mælistiku og erlend verk en stundum er þetta verulega ósann- gjarnt vegna þess að erlend verk sem verið er að sýna hér er yfirleitt búið að margreyna áður en þau koma hingað en íslensku verkin eru að verða til í írumuppfærslu sinni.“ Vegna smæðar hins íslenska leik- húsumhvei’fís eru flest íslensk leikrit í ofanálag undir þau örlög seld að fá ekki nema þetta eina tækifæri í at- vinnuleikhúsi. Það heyrir til undan- tekninga ef leikrit er tekið aftur til sýninga eftir fímm, tíu eða fímmtán ár. Slæm gagnrýni í upphafí getur ráðið talsverðu um hvort leikriti er gefíð lif að nýju eða ekki. „Þetta er alveg rétt og setur höf- undum okkar mjög þröngar skorð- ur,“ segir Stefán. „Við megum samt ekki gleyma því að leikritunarformið er gífurlega erfítt og það eru fáir sem ná góðu valdi á því. Það er mikil kúnst að setja sig inn í hugarheim margra persóna í senn og búa um leið til flókin samskipti og átök á milli þeirra. Oftar en ekki skrifa byrjend- ur allan textann út, það er enginn undirtexti svo ekkert verður eftir fyrir leikhúsfólkið að túlka eða fylla upp í með aðferðum leikhússins.“ Erlendir gestir Fyrir því er talsvert löng hefð að hingað komi erlendir leikstjórar til að starfa í leikhúsunum. Skortur á hæfum leikstjórum var gjarnan sögð ástæðan en líklega eru þau rök farin að tapa fylgi. „Það er svosem engin nýjung við Þjóðleikhúsið að flytja inn erlenda leikstjóra, þó fyiT á árum megi segja að valið hafi stundum ver- ið dálítið tilviljanakennt. Mér fínnst að þegar verið er að ráða erlenda leikstjóra hingað verði maður að vera sannfærður um þeir geti fært okkur eitthvað nýtt og spennandi, því hér heima eru starfandi margir góðir og nokkrir frábærir leikstjórar. Nýstár- legast í minni tíð er samstarfið sem þróast hefur milli okkar og litháísku leikhúslistamannanna Rimas Tum- inas, Faustas Latenas og Vytautas Narbutas. Það var ekki hugsað þannig í upphafi en þróaðist þannig að úr varð eins konar samstarfs- samningur. Við höfum þrisvar fengið þremenningana frá Þjóðleikhúsinu í Litháen til að setja upp sýningar og þetta hefur verið alveg ótrúlega gjöf- ult og auðgandi samstarf. Fyrst settu þeir upp Mávinn, síðan Don Juan og nú síðast Þrjár systur. Okkur hefur í tvígang verið boðið með sýningar til Litháens auk þess sem einstakir listamenn hafa verið að fara á milli þessara tveggja þjóðleikhúsa. Rimas Tuminas kemur hingað með mjög sérstaka og nýstárlega vinnuaðferð sem hefur verið mjög spennandi fyrir okkur að kynnast. Áhiifin af vinnu hans hafa líka skilað sér á ýmsan hátt inn í íslenskt leikhúslif, m.a. í uppsetningum nokkuira af okkar efnilegustu yngstu leikstjói-um.“ Stefán hefur einnig lagt nokki'a áherslu á að Þjóðleikhúsið fylgdi eftir eriendum tengslum með leikferðum á leiklistarhátíðir eriendis. Hafa nokkrar sýningar Þjóðleikhússins farið utan á síðustu ái-um og verið sýndar þar við góðan orðstír. Má nefna Kaffi eftir Bjarna Jónsson í leikstjórn Viðars Eggertssonar, Don Juan í leikstjórn Rimas Tuminas, Ferðalok eftir Steinunni Jóhannes- dóttur í leikstjórn Þórhalls Sigurðs- sonar, Listaverkið í leikstjórn Guð- jóns Pedersens, Hafið eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Þór- halls Sigurðssonar og Leitt hún skyldi vera skækja í leikstjórn Baltasars Kormáks. „Það er mjög Morgunblaðið/Kristinn nauðsynlegt að fá svörunina sem felst í því að fara með okkar sýningar utan og fá erlenda leikhúsmenn hing- að. Ég leyfi mér að fullyrða að ís- lenskt leikhús nýtur mikils álits á Norðurlöndunum. Hingað komu nor- rænir leikhússtjórar á síðasta ári til fundar og tóku sumir svo sterkt til orða að fullyrða að leikhópur Þjóð- leikhússins væri sá sterkasti á Norð- urlöndum. Sýningar okkar erlendis hafa einnig vakið athygli. Við áttum okkur kannski ekki á því sjálf en út- lendir leikhúsmenn sem fylgst hafa með okkur tala um íslenska leikhúsið sem eitthvað sérstakt og spennandi. Islenska leikhúsið þarf líka að verða sýnilegt til að leikhúsfólkið okkar fái tækifæri til að spreyta sig erlendis. Það réttlætir m.a. kostnaðarsamar leikferðir til útlanda." Stöðugt val Stefán er sér þess mjög meðvit- andi hve orð hans vega þungt í leik- húsheiminum og er skiljanlega mjög varkár í lýsingum vegna þess. Hann viðurkennir að ei-fítt sé að tala opin- skátt um málefni leikhússins þar sem forðast verði eftir fóngum persónu- lega þætti en auðvitað snýst leikhús fyrst og síðast um persónur, tilbúnar eða raunverulegar, eftir atvikum. „Vandinn við leikhússtjórastarfíð er hið stöðuga val sem fer fram. Starfið felst að miklu leyti í að velja á milli einstaklinga. Velja hvaða lista- menn eiga að starfa við leikhúsið á hverjum tíma; höfundar, leikstjórar, leikmyndateiknarar, tónskáld, leikai-- ar o.s.frv. Þetta val byggist á skoðun leikhússtjórans á listrænni getu og möguleikum þeirra sem koma til greina. Það komast ekki allir að og einhverjum verður að hafna, það fer ekki hjá því. Það er heldur ekki í gangi einhver sjálívii-k jafnaðarregla eða goggunarröð sem byggist á því að á ákveðnum punkti sé komið að viðkomandi að fá tækifæri við Þjóð- leikhúsið. Það eru ýmsir leikstjórar og leikarar sem sóst hafa eftir verk- efnum hér en ekki fengið. Það er engin tilviljun og auðvitað verður maður stundum að vera afdráttar- laus í valinu. Þarna verður hið list> ræna mat leikhússtjórans að ráða. Hins vegar er önnur hlið á þessu sem fólk áttar sig kannski ekki alltaf á. Hún er þessi: Þegar um leikara er að ræða þá sækjast allir eftir sama fólk- inu. Mitt hlutverk er oft að benda leikstjórunum á aðra leikara en þá sem þeir setja efsta á óskalistann, vekja athygli á þeim sem hafa ekki fengið jafnmörg tækifæri og einhver annar en ég treysti fullkomlega til að takast á við verkefnið. Leikstjóramir era oft mjög tregir til að taka slíka áhættu. Iðulega skrifast þó þessi tregða á reikning leikhússtjórans af þeim sem ekki þekkja til.“ Gagnrýnendur langt á eftir „Leiklistin er alltaf í þróun og ís- lenskt leikhús ^ hefur mótað sér ákveðinn stíl. Utlendingar líkja ís- lensku leikhúsi oft við hið finnska og þykjast fínna sama sterka undirtón- inn, sömu eftirfylgjuna og ki-aftinn í íslenskum leiksýningum og Finnurn um hefur oft verið hrósað fyrir. Á þeim 25-30 árum sem ég hef tekið þátt í leikhúsinu þá hefur geysimargt breyst. Á þessum sama tíma er búið að prófa svo fjölmargt, nánast allt hefur verið reynt hvað varðar leikstfl og aðferðir. íslenskt leikhúsfólk er í stöðugri framför og alvarlegri leit í listsköpun sinni. Þarna finnst mér gagnrýnendur oft hafa bragðist. Um- fjöllun þeirra er oft á eftir þróuninni í leikhúsinu. Leikhúsfólkið sjálft er iðulega komið mun lengra heldur en þekking og skilningur gagnrýnand- ans nær. Oft ríkir mikil íhaldssemi í viðhorfi gagmýnendanna. Auðvitað er starf þeirra vandasamt og van- þakklátt en þeir era þátttakendur í leiklistarlífinu og auðvitað verðui' að vera hægt að ræða um þeirra starf eins og störf okkar hinna í leikhús- inu. Því miður hefur það sýnt sig að margir þeirra era mjög viðkvæmir fyrir þeirri umræðu. Svo er líka mik- ilvægt að gagnrýnendur geri sér grein fyrir að á framsýningu er list- sköpun leikarans ekki lokið og að leikarinn heldur áfram að standa á sviðinu. I myndlist eða bókmenntum er listaverkinu lokið af hálfu málar- ans eða rithöfundarins þegar gagn- rýnandinn kemur að því. Leikarinn er kannski rétt að byrja í sinni list- sköpun því yfirleitt gerist það með leiksýningar að þær þróast og dýpka eftir því sem sýningum fjölgar. Það getur því verið einkennilegt rothögg fyrir leikara að fá sleggjudóm á það sem hann er að gera og er kannski ekki alveg búinn að ná utanum á framsýningarpunktinum, þó sýning- in í heild sinni sé kannski þokkalega tilbúin." Leikferðir sæta ekki tíðindum Stefán segii’ að hann hefði kosið að geta farið meira í leikferðii- innan- lands. „Við höfum reyndar gert það og stundum með glæsibrag. Eitt sumarið gerðum við stórátak og fór- um með þrjú leikrit í alla landshluta undir kjörorðinu Leikið um land allt. Ferðin tókst mjög vel og sýnt var á tæplega 40 stöðum, en leikferðir verða sífellt þyngri í vöfum og þeim fylgir ótrúlegur kostnaður. Oðra sinni sýndum við bamaleikritið Næt- urgalann fyrir rúmlega 40 þúsund grannskólabörn um land allt. Því miður hefur það líka sýnt sig að það sætir ekki lengur sömu tíðindum á landsbyggðinni að Þjóðleikhúsið sé á leikfór. Sums staðar hefur aðsókn brugðist. Þá má heldur ekki gleyma því að mikill fjöldi fólks utan af landi sækir Þjóðleikhúsið hingað, bæði 1 skipulögðum hópum og sem einstak- lingar. Þjóðleikhúsið er ekki farand- leikhús. Þjóðleikhúsið er flaggskip ís- lenskrar leiklistar og það á að sjálf- sögðu að vera stolt okkar allra að búa þannig að leikhúsinu að þar sé unnt að vinna leiksýningar við bestu hugs- anlegar aðstæður með öllum þeim tækjabúnaði og kröfum sem gera verður til nútíma leiksýninga. Það á að vera viðburður að koma í Þjóðleik- húsið, ekki síst fyrir landsbyggðar- fólkið. Hættan í sambandi við leik- ferðirnar er að út á land fari litlar og einfaldar sýningar sem sýna kannski ekki alltaf hvers Þjóðleikhúsið er megnugt." Stefán bendir á ýmis önnur ný- mæli sem bryddað hefur verið upp á í Þjóðleikhúsinu. „Við opnuðum nýtt leiksvið, Smíðaverkstæðið, í janúar 1992. Það hefur reynst mjög skemmtileg og gagnleg viðbót og notið mikilla vinsælda, sérstaklega hjá unga fólkinu. Þarna hefur gefist tækifæri til að sviðsetja verk sem annars vegar era of umfangsmikil til að sviðsetja á Litla sviðinu en henta heldur ekki Stóra sviðinu. Þá höfum við staðið að námskeiðum um höf- unda og verk þeirra í samvinnu við Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands í tengslum við leikrit sem hér hafa verið sviðsett. Þessi námskeið hafa verið mjög vinsæl og yfirstand- andi námskeið um Sjálfstætt fólk hefur slegið öll aðsóknarmet, en um 200 manns taka þátt í því. Þá höldum við reglulega námskeið innan Þjóð- leikhússins fyrir listamennina og aðra starfsmenn og einu slíku er ný- lokið. Loks má nefna að við tókum upp samvinnu við Bandalag íslenskra leikfélaga fyrir nokkrum áram um að velja „Áhugaleiksýningu ársins“ og bjóða henni síðan hingað í Þjóðleik- húsið. Þetta hefur reynst mjög vel og í fyrra sóttu 16 leikfélög víða af land- inu um að vera með í valinu. Þetta hefur alið af sér mjög aukin og per- sónulegri tengsl okkar í Þjóðleikhús- inu við áhugahreyfinguna." Engin einangrunarstefna Listamenn Þjóðleikhússins hafa oft verið býsna áberandi í sýningum ann- arra leikhúsa og leikhópa. Á það ekki síst við um leikara hússins en einnig hafa aðrir listamenn komið við sögu utan Þjóðleikhússins. „Mér hefur fundist mjög rangt að reka einangr- unarstefnu varðandi Þjóðleikhúsið. Við höfum því verið nokkuð örlát á að lána okkar fólk til starfa í öðrum leik- húsum. Um þetta gilda ákveðnar reglur og þarf að gerast þannig að stangist ekki á við önnur störf þessa fólks hér í húsinu en mér finnst þetta liður í þeirri hugmynd um hlutverk Þjóðleikhússins að sjá til þess að leik- listarlífið í heild sinni þróist og eflist á sem flestum • sviðum. Þetta getur gerst með því að lána leikara, leik- stjóra eða aðra listræna starfsmenn. Þetta getm- verið reynsla fyrir við- komandi listamann sem kemur hon- um til góða við störf hans hér síðar. Mér finnst mjög ánægjulegt að þeir sem stóðu að fyrstu sýningum Hafn- arfjarðarleikhússins og Flugfélagsins Lofts vora fólk sem hlotið hafði þjálf- un sína hér í Þjóðleikhúsinu. Leik- stjórar, leikarar, leikmyndahönnuðir, ljósahönnuðir, búningar, fórðun, hár- greiðsla; þetta var allt ungt fólk héð- an úr Þjóðleikhúsinu. Mér finnst mjög gaman þegar hægt er að miðla kunnáttu og þekkingu með þessum hætti. Jafnframt verður að hafa í huga að hérlendis er ekki til neinn skóli í leikhústæknivinnu svo Þjóð- leikhúsið hefur ákveðinni skyldu að gegna í því sambandi. Þetta má reyndar ekki misskilja þannig að starfsfólk Þjóðleikhússins sé að vinna úti í bæ í vinnutíma sínum. Þessi verkefni hefur fólkið unnið utan síns vinnutíma eða fengið tímabundið leyfi til að sinna.“ Ráðningarsamningi lýkur Stefán hefur stýrt Þjóðleikhúsinu í átta ár og samkvæmt núgfldandi ráðningarsamningi rennur tímabil hans út um næstu áramót. Með nýj- um lögum um Þjóðleikhús hefui’ ver- ið felld niður takmörkun á endur- ráðningarmöguleika starfandi Þjóð- leikhússtjóra en Stefán verst fimlega öllum spurningum um hvort hann ætli sér að sækja um endurráðningu. „Þetta hefur verið mjög skemmtileg- ur tími og að óreyndu hefði ég ekki trúað þvi hvað starf Þjóðleikhússtjór- ans gæti verið skemmtilegt. St- arfsandinn hefur alltaf verið mjög góður og hópurinn samhentur. Ég lít þó svo á að ráðningartíma mínum ljúki um næstu áramót og ég mun skipuleggja næsta leikár, 1999-2000, sem er hálfrar aldar afmælisleikár Þjóðleikhússins. Lengra er ég ekki að hugsa á þessari stundu.“ Annað fæst Stefán ekki til að segja um þetta enda þekktur að öðra í gegnum tíð- ina en lausmælgi. Hann lætur þó að því liggja að gaman gæti verið að taka aftur upp þráðinn á erlendri grand þar sem frá var horfið í árs- byrjun 1991. „Mér standa ýmis verk- efni til boða ef ég hætti í Þjóðleikhús- inu. Það gæti líka verið spennandi.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.