Morgunblaðið - 24.08.1999, Side 53
mnf, jflWTíwlW
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
flger tp’ií>A as RrFnAmiMfrs«f SJL
ÞRIÐJUDAGUR 24. AGUST 1999 53
Stórmót á Gaddstaðaflötum við Hellu
Síðsumarsrigningar hafa löngum átt samleið
með Stórmóti sunnlenskra hestamanna í
gegnum tíðina og á því varð engin breyting
nú þótt þurrt væri framan af móti. Annað
skiptið í sumar fá Gaddstaðaflatir væna gusu af
himnum ofan þegar mikið lá við að þurrkar ríktu.
En fjörleg var keppnin og óhætt að segja að hesta-
kostur mótsins hafí verið með því besta sem gerist.
Dómarar voru í miklu stuði og teygðu sig stundum
í hæstu tölur og fannst mörgum nóg um einkunna-
gleði þeirra á köflum. Víst ber að umbuna fyrir það
sem vel er gert en menn greinir á um hversu mikið
skuli launa. En það fer ekki milli mála að hross eru
mörg hver í feiknagóðu formi og áhugi fyrir keppni
mjög mikill um þessar mundir.
En af þeim sem sköruðu fram úr er helst að
nefna nýbakaðan heimsmeistara, Sigurbjörn Bárð-
arson, sem var eins og á flestum ef ekki öllum mót-
um stigahæstur keppenda. Hann sigraði í bæði 150
og 250 metra skeiði, tölti meistara og slaktauma-
tölti. Þá vakti árangur Daníels Inga Smárasonar í
ungmennaflokki athygli þar sem hann sigraði í öll-
um greinum sem hann tók þátt í. Seiður hans frá
Sigmundarstöðum hefur verið í mjög góðu formi í
sumar og líklega aldrei verið betri en nú. Daníel
mætti með hann í gæðingakeppni ungmenna þar
sem hann hlaut 8,83 í einkunn og hefði sú einkunn
nægt til sigurs í B-flokki gæðinga.
Sigurður Sigurðarson var atkvæðamikill í opn-
um flokki þar sem hann sigraði í tölti, fjórgangi og
fimmgangi og Þórður Þorgeirsson var vel með á
nótunum er hann reið Kjarki frá Ásmúla til sigurs
í A-flokki gæðinga og gæðingaskeiði. Þá varð hann
stigahæstur keppenda í meistaraflokki og þar fyr-
ir utan sýndi hann fimmtán kynbótahross í kyn-
bótasýningunni.
Síðast á dagskrá mótsins var
skeiðmeistarakeppnin þar sem
knapar á fjórum fljótustu
vekringunum í 150 og 250 metra
skeiði höfðu þátttökurétt. Ekki
nýttu allir sér réttinn og í 250
metrunum var farið niður allan
skalann til að fá þátttakendur.
Svo virðist sem knapar séu sumir
hverjir ekki sólgnir í að leggja
hestana í þessa erfiðu keppni.
Aðeins þrír kepptu í 250 metrun-
um. Ekki verður því neitað að
þegar aðstæður eru eins og best
verður á kosið er engin keppni
eins spennandi og góð skeið-
meistarakeppni. Keppnin nú
bauð upp á góða spennu en þar
sem skeiðbrautin sem venjulega
er notuð var orðin umflotin vatni
varð að færa keppnina á vestur-
langhlið stóra vallarins og það að
færa keppnina svo fjarri áhorf-
endum dró aðeins úr spennu. Þá
var suddaveður meðan á keppn-
inni stóð og allir vita hver áhrif
slíkt veður hefur á annars góðar
samkomur. En tíðindi urðu í 250
metrunum er Friðdóra Friðriks-
dóttir sigraði fyrst kvenna og braut þar á bak aft-
ur að því er virtist óvinnandi karlavígi. Magnús
Benediktsson sigraði í 150 metra meistarakeppn-
inni.
Úrslit mótsins urðu annars sem hér segir:
A-flokkur
1. Kjarkur frá Ásmúla Geysi, eig.: Ragnar K. Árnason, kn.:
Þórður Þorgeirsson, 8,91
2. Bylur frá Skáney Fáki, eig. og kn.: Sigurbjörn Bárðar-
son, 8,74
3. Skafl frá Norður-Hvammi Mána, eig.: Sigurður V. Ragn-
arsson, kn.: Sigurður Sigurðarson, 8,71
4. Saga frá Holtsmúla Geysi, eig.: Holtsmúlabúið, kn. í
fork.: Sigurður Sæmundsson, kn. i úrsl.: Logi Laxdal,
8,56
5. Gyrðir frá Skarði Geysi, eig.: Fjóla Runólfsdóttir, kn.:
Kristinn Guðnason, 8,54
6. Breki frá Efri-Brú Fáki, eig. og kn.: Gunnar Amarsson, 8,51
1. Skör frá Eyrarbakka Homfirðingi, eig.: Ómar I. Ómars-
son og Ómar Antonsson, kn.: Daníel Jónsson, 8,50
8. Hrani frá Hala Geysi, eig.: Jón Karlsson, kn. Auðunn Kri-
stjánsson, 8,49
B-flokkur
1. Fönix frá Tjamarlandi Geysi, eig.: Sigurður B. Guð-
mundsson, kn.: Þórður Þorgeirsson, 8,76
2. Garpur frá Krossi Fáki, eig. og kn.: Sigurbjörn Bárðar-
son, 8,73
3. Númi frá Miðsitju Mána, eig.: Sigurður V. Ragnarsson,
kn.: Sigurður Sigurðarson, 8,73
4. Tumi frá Skjaldarvík Létti, eig.: og kn.: Baldvin A. Guð-
laugsson, 8,63
5. Funi frá Grænuhlíð Fáki, eig. Kristinn Skúlason, kn.:
Sigurður Matthíasson, 8,60
6. Kvistur frá Stóra-Hofi Geysi, eig.: Gunter Veber, kn.:
Kristjón Kristjánsson, 8,53
1. Kormákur frá Kvíarhóli Ljúfi, eig.: Óttar Baldurson, kn.
Vignir Siggeirsson, 8,50
8. Skundi frá Krithóli Mána, eig.: Sigurður V. Ragnarsson,
kn. í fork.: Sigurður Sigurðarson, kn.: í úrsl.: Friðdóra
Friðriksdóttir, 8,42
Ungmenni
1. Seiður frá Sigmundarstöðum Sörla, eig. og kn.: Daníel I.
Smárason, 8,83
2. Höldur frá Kollaleiru Freyfaxa, eig.: Hans Kjerúlf, kn.:
Hafdís Arnardóttir, 8,76
3. Freydís frá Tjarnarlandi Freyfaxa, eig.: Eysteinn Ein-
arsson, kn.: Einar K. Eysteinsson, 8,70
4. Snotur frá Bjargshóli Þyti, eig.: Eggert Pálsson, kn.:
Þómnn Eggertsdóttir, 8,47
5. Laukur frá Feti Gusti, eig. og kn.: Birgitta Kristinsdóttir,
8,44
6. Vorboði frá Hafnarfirði Geysi, eig. og kn.: Jakob Jakobs-
son, 8,41
Enn eitt
karlavíg’ið
fallið
Stórmót sunnlenskra hesta-
manna og Suðurlandsmótið er
án efa eitt umfangsmesta hesta-
mót ársins. Og gott betur en
það, því líklega hefur mótið um
helgina verið eitt umfangsmesta
hestamót sem haldið hefur verið
--y------------------
á Islandi, keppt í nánast öllum
viðurkenndum greinum hesta-
íþrótta, og þar með taldir kyn-
bótadómar. Valdimar Kristins-
son tíundar hér það helsta sem
gerðist á þessu vikulanga móti.
7. Gjafar frá Traðarkoti Fáki, eig. og kn.: Hannes Sigur-
jónsson, 8,33
8. Myrkvi frá Kamphoiti Andvara, eig. og kn.: Ingunn B.
Ingólfsdóttir, 8,30
Unglingar
1. Maístjama frá Svignaskarði Gusti, eig.: Jón Þ. Bergsson,
kn.: Berglind R. Guðmundsdóttir, 8,80
2. Hrafnar frá Hindisvfl? Herði, eig. Hafdís Kristjánsdóttir,
kn.: Kristján Magnússon, 8,73
3. Léttingur frá Bemstöðum II Geysi, eig. Egill Sigurðsson,
kn.: Andri L. Egilsson, 8,66
4. Blika frá Kollaleiru, eig. og kn.: Þórdís E. Gunnarsdóttir,
8,63
5. Aron frá Oddhóli, eig. og kn.: Silvía Sigurbjömsdóttir, 8,58
6. Túndra frá Reykjavík, eig.: Rúnar og Sigrún, kn.: Sigurð-
ur S. Pálsson, 8,56
7. Stjarni frá Miðkoti Geysi, eig.: Ásdís Kristinsdóttir, kn.:
Þorgerður D. Frostadóttir, 8,35
8. Blakkur frá Þóroddsstöðum Trausta, eig. og kn.: Bjami
Bjamason, 8,33
Böra
1. Viljar frá Skarði Geysi, eig.: Marjolyn Tiepen, kn.: Hekia
K. Kristinsdóttir, 8,72
2. Kostur frá Tókastöðum Geysi, eig.: Erlendur Ingvarsson,
kn.: Layfey Kristinsdóttir, 8,63
3. Fróði frá Miðsitju Mána, eig. og kn.: Camilla P. Sigurðar-
dóttir, 8,57
4. Fasi frá Nýjabæ Herði, eig.: Kolbrún Ólafsdóttir, kn.:
Linda R. Pétursdóttir, 8,53
5. Nökkvi frá Miðskeri Homfirðingi, eig.: Sigurður Torfa-
son, kn.: Torfi Þ. Sigurðsson, 8,48
6. Össur frá Auðsholtshjáleigu Fáki, eig.: Eyvindur Hregg-
viðsson, kn.: Þóra Matthíasdóttir, 8,45
7. Árvakur frá Sandhóli Sörla, eig.: Þorvaldur og Margrét,
kn.: Rósa B. Þorvaldsdóttir, 8,34
8. Gjafar frá Hofstöðum Herði, eig.: Orri Snorrason, kn.:
Hreiðar Hauksson, 8,28
Tölt - meistaraflokkur
1. Sigurbjöm Bárðarson Fáki, á Oddi frá Blönduósi, 8,22
2. Þórður Þorgeirsson Geysi, á Fönix frá Tjamarlandi, 7,64
3. Tómas Ö. Snorrason Fáki, á Skömngi frá Akureyri, 7,44
4. Fríða H. Steinarsdóttir Geysi, á Hirti frá Hjarðarhaga,
7,43
5. Baldvin A. Guðlaugsson Létti, Tuma frá Skjaldarvík, 0,0
Fjörgangur - meistaraflokkur
1. Guðmundur Einarsson Herði, á Ótta frá Miðhjáleigu, 7,63
2. Birgitta Magnúsdóttir Herði, á Óðni frá Köldukinn, 7,39
3. Berglind Ragnarsdóttir Fáki, á Bassa frá Möðmvölium,
7,26
4. Sigurbjöm Bárðarson Fáki, á Oddi frá Blönduósi, 7,25
5. Baldvin A Guðlaugsson Létti, á Tuma frá Skjaidarvík, 6,61
Fimmgangur - meistaraflokkur
1. Vignir Jónasson Fáki, á Klakki frá Búlandi, fsl. tvík.: Sig-
urbjöm Bárðarson
Skciðtvík.: Þórður Þorgeirsson
Stigahæsti keppandi f meistara-og opnum flokki: Sigur-
björn Bárðarson
Tölt - opinn flokkur
1. Sigurður Sigurðarson Herði, á Skuggabaldri, 7,35
2. Sigurður Kolbeinsson Mána, á Giampa frá Hjalla, 7,17
3. Adolf Snæbjömsson Sörla, á Glóa frá Hóli, 7,04
4. Áslaug F. Guðmundsdóttir Ljúfi, á Drift frá Hala, 6,87
5. Leó G. Arnarsson Fáki, á Djákna frá Hrútsholti, 6,87
6. Jón Styrmisson Andvara, á Glitni frá Skorragili, 6,78
Fjórgangur - opinn flokkur
1. Sigurður Sigurðarson Herði, á Skuggabaldri frá Litladal,
7,03
2. Helgi L. Sigmarsson Fáki, á Fleyg frá Hörgsholti, 6,91
3. Jón F. Hansson Sleipni, á Feng frá Garði, 6,85
4. Jón Styrmisson Andvara, á Glitni frá Skorragili, 6,75
5. Sigurður V. Matthíasson Fáki, á Funa frá Blönduósi, 6,28
6. Kristjón Kristjánsson Geysi, á Kvisti frá Stóra-Hofi, 1,33
Fimmgangur - opinn flokkur
1. Sigurður Sigurðarson Herði, á Safír frá Öxl, 6,67
2. Marjolyn Tiepen Geysi, á Viljari frá Skarði, 6,64
3. Hermann Þ. Karlsson Fáki, á Fonti frá Akureyri, 6,49
4. Sigurður V. Matthíasson Fáki, á Vöku, 6,39
5. Leifur Helgason Sleipni, á Barón frá Búðarhóli, 5,19
Siaktaumatölt - opinn flokkur
1. Sigurbjöm Bárðarson Fáki, á Húna frá Torfastöðum, 7,70
2. Dagur Benónýsson Herði, á Galsa frá Bæ, 7,55
3. Maríanna Gunnarsdóttir Fáki, á Hyl frá Stóra-Hofi, 6,73
4. Adolf Snæbjörnsson Sörla, á Vímu frá Vindheimum, 6,61
5. Marteinn Njálsson Dreyra, á Fursta frá Vestri-Leirár-
görðum, 6,38
Gæðingaskeið - opinn flokkur
1. Þórður Þorgeirsson Geysi, á Kjarki frá Ásmúla, 105,40
2. Baldvin A. Guðlaugsson Létti, á Geysi frá Dalsmynni,
102,40
3. Logi Laxdal Sörla, á Hraða frá Sauðárkróki, 97,30
4. Páll B. Hólmarsson Gusti, á Kórónu frá Hafnarfirði, 94,90
5. Adolf Snæbjörnsson Sörla, á Vímu frá Vindheimum, 89,80
fsl. tvík., skeiðtvík. og stigah. keppandi: Sigurður Sigurðar-
son
Töit - ungmenni
1. Daníel I. Smárason Sörla, á Seiði frá Sigmundarstöðum,
7,45
2. Davíð Matthíasson Fáki, á Prata frá Stóra-Hofi, 7,43
3. Guðni S. Sigurðsson Mána, á Amali, 7,23
4. Matthías Barðason Fáki, á Ljóra frá Ketu, 6,96
5. Sigfús B. Sigfússon Smára, á Garpi frá Vestra-Geldinga-
holti, 6,73
6. Árni B. Pálsson Fáki, á Fjalari frá Feti, 6,71
Fjdrgangur
1. Daníel I. Smárason Sörla, á Seiði frá Sigmundarstöðum,
7,02
2. Sigfús B. Sigfússon Smára, á Garpi frá Vestra-Geldinga-
holti, 6,87
3. Hafdís Arnardóttir Freyfaxa, á Heldi frá Kollaleim, 6,75
4. Davíð Matthíasson Fáki, á Prata frá Stóra-Hofi, 6,73
5. Kristín Ó. Þórðardóttir Sörla, á Síak frá Þúfu, 6,72
6. Árni B. Pálsson Fáki, á Fjalari frá Feti, 6,65
Fbnmgangur
1. Daníel I. Smárason Sörla, á Vestfjörð frá Hvestu, 5,99
2. Ásta K. Victorsdóttir Gusti, á Nökkva frá Bjamastöðum,
5,69
3. Birgitta D. Kristinsdóttir Gusti, á Dimmbrá, 5,60
4. Hinrik Þ. Sigurðsson Sörla, á Spútnik frá Krithóli, 5,47
5. Árni B. Pálsson Fáki, á Kóngi frá Teigi, 5,32
Gæðingaskeið
1. Daníel I. Smárason Sörla, á Vála, 86,80
2. Sigurður S. Pálsson Herði, á Höffu frá Sandhóli, 63,60
3. Berglind R. Guðmundsdóttir Gusti, á Ótta, 57,70 '
4. Hinrik Þ. Sigurðsson Sörla, á Spútnik frá Krithóli, 45,30
5. Rakel Róbertsdóttir Geysi, á Herði frá Árbakka, 44,70
fsl. tvík. og stigah. kcpp.: Daníel I. Smárason.
Skeiðtvíkeppni: Hinrik Þ. Sigurðsson
Unglingar - tölt
1. Sylvía Sigurbjömsdóttir Fáki, á Djákna frá Litla-Ðun-
haga, 6,96
2. Andri L. Egilsson Geysi, á Léttingi frá Berustöðum II,
6,68
3. Kristján Magnússon Herði, á Hrafnari frá Hindisvík, 6,63
4. Berglind R. Guðmundsd. Gusti, á Sjöstjömu frá Svigna-
skarði, 6,62
5. Sigurður S. Páisson Herði, á Rimmu frá Ytri-Bægisá,
6,51
6. Viðar Ingólfsson Fáki, á Glaumi frá Bjarnanesi, 6,29
Fjdrgangur
1. Sylvía Sigurbjömsdóttir Fáki, á Djákna frá Litla-Dun-
haga, 6,81
2. Kristján Magnússon Herði, á Hrafnari frá Hindisvík, 6,62
3. Ragnar Gylfason Sleipni, á Létti frá Laugarvatni, 6,46
4. Sigurður S. Pálsson Herði, á Rimmu frá Ytri-Bægisá,
6,41
5. Hrefna M. Ómarsdóttir Fáki, á Jónka frá Álfhólum, 6,37
Fimmgangur
1. Sigurður S. Pálsson Herði, á Höffu frá Sandhóli, 5,93
2. Berglind R. Guðmundsdóttir Gusti, á Ótta frá Svigna-
skarði, 5,80
3. Kristján Magnússon Herði, á Draupni frá Sauðárkróki,
5,79
4. Rakel Róbertsdóttir Geysi, á Herði frá Árbakka, 5,54
5. Perla D. Þórðardóttir Sörla, á Blæ frá Stafholtsveggjum,
5,22
fsl. tvfk.: Silvía Sigurbjömsdóttir
Stigah. keppandi: Kristján Magnússon
Tölt - börn
1. Laufey G. Kristinsdóttir Geysi, á Gyrði frá Skarði, 6,28
2. Linda R. Pétursdóttir Herði, á Fasa frá Nýjabæ, 6,19
3. Sandra L. Þórðardóttir Sörla, á Díönu frá Enni, 6,11
4. Vigdís Matthíasdóttir Fáki, á Gyðju frá Fjalli, 6,03
5. Bjamleifur Bjamleifsson Gusti, á Tinna frá Tungu, 6,00
6. Auður S. Ólafsdóttir Mána, á Sólilju frá Teigi, 5,93
Fjdrgangur - börn
1. Hermann R. Unnarsson Mána, á Sóta frá Vallanesi, 6,48
2. Linda R. Pétursdóttir Herði, á Darra frá Mel, 6,45
3. Auður S. Ólafsdóttir Mána, á Sóllilju frá Feti, 6,45
4. Sandra L. Þórðardóttir Sörla, á Díönu frá Enni, 6,18
5. Camilla P. Sigurðardóttir Mána, á Fróða frá Miðsitju, 6,11
6. Bjamleifur S. Bjamleifsson Gusti, á Tinna frá Tungu, 4,58
fsl. tvfk. og stigah. kcppandi: Linda R. Pétursdóttir
Skeið 150 m
1. Neisti frá Hala og Sigurbjöm Bárðarson, 14,71
2. Röðull frá Norður-Hvammi og Jónas Hermannsson, 14,85
3. Ölver frá Stokkseyri og Sigurður V. Matthíasson, 15,06
4. Áki frá Laugarvatni og Þórður Þorgeirsson, 15,06
Skeið 250 m
1. Ósk frá Litla-Dal og Sigurbjöm Bárðarson, 23.30
2. Hnoss frá Ytra-Dalsgerði og Þórður Þorgeirsson, 23,38
3. Glaður frá Sigríðarstöðum og Sigurður V. Matthíasson,
23,99
4. Katrín frá Kjamholtum og Þórður Þorgeirsson, 24,02
Stökk 350 m
1. Leiser frá Skálakoti og Sylvía Sigurbjömsdóttir, 23,06
2. Gáski frá Þorkelshóli og Kolbrún S. Indriðadóttir, 23,19
3. Kósi frá Efri-Þverá og Davíð Matthíasson, 23,41
4. Völsungur og Sigurjón Ö. Bjömsson, 23,45
Daníel I. Smárason og Seiður frá Sigrnundarstöðum voru í
feiknastuði á Gaddstaðaflötum er þeir sigruðu í tölti og fjór-
gangi ungmenna og gæðingakeppni ungmenna og hlutu auk
þess sigur í Islenskri tvíkeppni.
MorgunblaðiðA'aldimar Kristinsson
Enn eitt karlavxgið failið og
Friðdóra Friðriksdóttir, sem
situr hryssuna Línu frá Gilla-
stöðum, hampar hér verðlauna-
gripnum sem skeiðmeistari árs-
ins í 250 metra skeiði.
Skeiðið
veitir góða
útrás og
vellíðan *
FRIÐDÓRA Friðriksdóttir braut
blað í sögu skeiðmeistarakeppn-
innar á Islandi er hún varð fyrst
kvenna til að sigra í 250 metra
skeiðmeistarakeppninni. Eftir því
sem næst verður komist mun hún
einnig fyi-st kvenna hér á landi tii
að taka þátt í slíkri keppni. Hulda
Gústafsdóttir hefur hins vegar
tekið þátt í slíkri keppni erlendis.
Friðdóra sagði hreint frábært
að taka þátt í þessari keppni. Öll *
hrossin þrjú hefðu legið hjá sér
og hún verið í fyrsta sæti í tveim-
ur sprettum af þremur. Hún sat
hryssu sína Línu frá Gillastöðum,
sem er undan vekringaföðurnum
Kjarval frá Sauðárkróki og
Lukku frá Hjarðarhaga, í fyrsta
spretti og sigraði. I öðrum
spretti var hún á hryssunni Bunu
en í ræsingu rákust beisiisstang-
irnar í hliðið þegar það opnaðist
og við það hentist hryssan aftur
á bak og tafðist og urðu þær síð-
astar í mark. í síðasta spretti var
hún með hinn kunna vekring
Pæper frá Varmadal, sem nú er
19 vetra, og brást hann ekki
frekar en í öðrum sprettum og
urðu þau fyrst í mark og sigur-
inn þar með tryggður.
Aðspurð kvaðst Friðdóra ekki
telja þessa keppni of erfiða fyrir
vel þjálfuð, fúllorðin hross. „Það
var engan bilbug á þeim að finna
í síðasta spretti þrátt fyrir að
brautin væri mjög léleg, blaut og
þung, enda tímarnir ekki góðir,“
sagði Friðdóra sem hefur tekið
þátt í skeiðkappreiðum í sumar
og fyrra. Og hún bætir við:
„Þessi sigur nú hvetur mig vissu-
lega til frekari þátttöku í skeiði á
Línu ef hún verður ekki seld
bráðlega. Okkur hefur gengið
prýðilega, meðal annars unnum
við Framtíð frá Runnum á Kaid-
ármelum í sumar en hún hefur
verið í fremstu röð í 250 metrun-
um. Á þessu móti keppti Lína í
fyrsta skipti á þessari vegaiengd
svo ég tel að hún eigi góða mögu-
leika og sé bráðefnileg.“
Þegar Friðdóra var spurð
hvers vegna konur blönduðu sér
svo lítið í skeiðkeppni hér á landi
sagði hún að skeiðið hefði alltaf
verið karlaveldi á íslandi. f
skeiðkappreiðum væri mikill
hraði og gífurleg spenna og svo
virtist sem það höfðaði minna til ^
kvenna en karla.
„En það er verulega spennandi
að ríða hesti á góðu skeiði, það
framkallar mikið adrenalinflæði
og veitir manni góða útrás og
notalega vellíðan að loknum vel
heppnuðum spretti,“ segir skeið-
meistarinn Friðdóra að endingu. ±