Skírnir - 01.01.1868, Page 139
Orikkland.
FRJETTIB.
139
eSa fallnir til aS planta til líkra ávaxta þar eystra? — þaS er
spurningin, er svaraÖ er á ýrasa vega, en verSur þó eigi leyst
úr fyrr en meiri raun er fengin.
G r i k k I a n d.
J>ó Grikkir hafi orSiS aS hafa sig í skefjum af ótta fyrir
reiSi stórveldanna, hafa þeir veitt allt fulltingi er þeim var unnt
á Krítarey. Eitt hraSsiglingaskip jpeirra/ er Arkadion var kallaS,
sigldi í sumar um kveld í flasiS á tyrknesku varSskipi, erlzzeddin
hjet, og tókst þegar meS þeim grimmasti bardagi. Á gríska
skipinu voru 200 sjálfboSaliSa, og mundu Tyrkir hafa beSiS fullan
ósigur, ef freigáta hefBi eigi skundaS Izzeddin til hjálpar. Grikkir
vörSu sig lengi, en skipshjóliS hafSi laskazt, og mátti því eigi
undan leita, en þeir hleyptu aS lokum upp aS ströndinni og
kveiktu í skipinu áSur þeir stukku í land. SíSan voru tvö ný
skip eSa þrjú fengin til ferSanna milli eyjarinnar og meginlands.
Skip annara þjóSa hafa og tekiS fjölda manna — einkum konur,
börn, gamla menn eSa vanfæra, og flutt af eyjunni til Grikklands.
Menn segja aS tala þeirra, er flúiS hafa og nú berast fyrir á
Grikklandi, muni vera 60 þúsundir. Grikkir hafa orSiS aS leggja
á sig þungan kostnaS til aS fá svo miklum fjölda vist og viSur-
væri, enda hefir víSa veriS skotiS saman miklu fje þeim til ljettis
og styrktar, einkanlega á Rússlandi. — Georg konungur var á
ferSum í sumar, kom til Parísarborgar og Lundúna, og dvaldi all-
lengi viS hirS föSur síns ásamt unnustu sinni, Olgu, dóttur Con-
stantíns stórfursta. BrúSkaup þeirra fór fram í Pjetursborg í
haust eS var, og fóru þau síSan heim til ríkis síns. I heiman-
mund fjekk hin unga drottning eina miiljón rúfla (t rubel
= 8V2 mark), og þann búlagseyri skal hún hafa aS auk hvert ár
frá Rússlandi meSan hún er á lífi. þó eigi væri annars en pening-
anna vegna, mátti Grikkjum líka vel sá ráSahagur konungs síns,
svo skuldugir sem þeir voru orSnir, en drottningin er sögS bezta
kona og hin áhugamesta um velfarnan og framgang þjóSarinnar.
Koma þeirra varS Aþenumönnum aS miklu hátíSarefni, og meSal