Skírnir - 17.06.1911, Blaðsíða 58
154
Vísindastörf Jóns Sigurðssonar.
minna, ef til vill af þvi, að Jóni bauðst aldrei nein æfi-
staða, er hann gæti sýnt málfræðisþekkingu sína.
Fyr en farið er út í hin einstöku störf Jóns, skal
þess getið, að hann varð annar stipendiarius Arnamagnœanus
1835, ekki nema 2 árum eftir komu hans til Hafnar, og
sýnir það, hvílíkt álit hann hefir þegar áunnið sér; er
farið þessum orðum um hann í gjörðabók Arnanefndar
þá: »Hinn fyrstnefndi umsækjandi »John Sivertsen« iðk-
ar málfræði í eiginlegum skilningi, og má þá gera ráð
fyrir að hann haldi altaf við og auki þekkingu sína í
latínu. Hann hefir . . . hin beztu meðmæli frá Steingrími
biskupi Jónssyni fyrir dugnað, iðni og siðsamlega hegðun;
hann hefir og þar haft tækifæri til að lesa og rita upp
gamlar ísl. skinnbækur og skjöl; hann hefir og nægilega
sýnt dugnað sinn í þessari grein, ásamt mikilli nákvæmni,
og ritar þar að auk mjög fagra og greinilega hönd«. 25.
marz 1839 varð hann fyrsti stipendiarius með 150 dala
styrk, og er um það sagt svofeldum orðum í gjörðabók-
inni, að »hann hafi sýnt ágætan dugnað og iðni« (sem 2.
styrkþegi).
Níu árum síðar (1848) varð Jón skrifari Arna-
nefndarinnar, kosinn í einu hljóði; í gjörðabókinni stendur
svo: »hann hefir nú i nokkur ár verið fyrsti styrkþegi,
og auk þess meðverkamaður í fornritanefnd Fornfræða-
félagsins; hann hefir sýnt til fullnustu, að hann hefir
stundað fornmálið frá rótum, sýnt hinn heiðvirðasta og
ávaxtaríkan vinnudugnað og þar með látið sér mjög ant
um fornbókmentir ættjarðar sinnar«. Það er Rafn, sem
hefir letrað þetta. Skyldur Jóns sem ritara voru að styðja
og sjá um útgáfur þeirra rita, sem nefndin ákveður
að gefa út, hafa umsjón með uppskriftarvinnu þeirri, sem
nefndin lætur gera, og við hvers árs lok semja skýrslu
um hana, er prentuð skuli í Antiquarisk Tidsskrift; þar
Það sem hér er tekið úr gjörðabók Arnanefndarinnar hefir
nefndin góðfúslega leyft mér að prenta. Þess skal getið, að Jón skrif-
aði sig sjálfur „J. (eða John) Sivertsen11, fyrstu Hafnarárin sin, en svo
hætti hann þvi alveg.