Skírnir - 17.06.1911, Blaðsíða 59
Visindastörf Jóns Sigurðssonar.
155
skal og skýra frá störfum styrkþeganna, að svo miklu
leyti sem þörf gerist.
1838 hafði Jóni verið falið á hendi að safna til hins
mikla safnverks Dana, er Vísindafélagið ætlaði að gefa út:
Regesta diplomatica historiæ Danicæ, þ. e. yfirlit yfir öll
skjöl, er snerta sögu Dana, og ágrip af efni þeirra. Þetta
var ógurlega mikið verk, og er vist vafalaust að það má
teljast upphaf allrar vísindavinnu Jóns, það verk sem
leiddi hann á þá braut, er hann siðar gekk alla æfi sína.
Hve mikla vinnu Jón hefir lagt í þetta verk eru nú ekki
föngtilað rannsaka, en í Vísindafélagssögu Molbechs (1843)
er þess getið (á 485. bls.), að öðrum manni, sem vann að
sama verki, hafi verið greiddir 1288 dalir árin 1838—42,
en »cand. Sivertsen« 756 dalir; eftir því hefir verk hans
verið töluvert minna en hins. Vér hverfum aftur að þessu
verki hans og því, sem af því leiddi. 1841 var Jóni og
01a.fi Pálssyni, síðar dómkirkjupresti í Reykjavík, falið á
hendi að fara til Stokkhólms og Uppsala til þess að rann-
saka hin islensku handritasöfn þar, gera skrá yfir hand-
ritin og rita upp hin helstu þeirra. Förin var svo kom-
in til, að Rich. Cleasby hafði kvartað yfir því *) að svo
óhægt væri með að ná í handrit þessi, en þeirra þyrfti
hann við samningu oiðabókar þeirrar, er hann hafði til
stofnað og hafið skömmu áður. Þeir félagar skiftu aðal-
lega störfum með sér þannig, að Jón gerði skrána yfir
handritin, en Olafur reit þau upp, er þeim kom saman um.
Arangurinn varð ágætur, fyrst og fremst fullkomin hand-
r i t a s k r á 2) (í Arnasafni), sem menn lengst hafa leitað
til og notað. Annars er nákvæm skýrsla um ferðina og
árangur hennar prentuð í Antiquarisk Tidsskrift 1846—48
(87. bls. osfrv.). Nokkru áður en þetta varð hafði Jón
byrjað að semja skrá yfir alt Arnasafn, afar-
nákvæma, svo að hverju handriti var lýst i krók og kring,
‘) Gjörðab. Arnan.
s) Utdráttur úr henni er sú sem Arwidsson lét prenta í Stokk-
hólmi 1848. Síðar hefir V. Gödel gefið út fulla og sjálfstæða skrá yfir
bæði söfnin, i Stokkhólmi og Uppsölum.