Skírnir - 17.06.1911, Blaðsíða 139
Jón Sigurðsson og Bókuientafjelagið.
235
Tnöimum hafði fjölgað óðum flrst í stað, svo að tala þeirra
komst brátt upp í 600, þegar flest var, á íslandi, auk
fjelaga í Danmörku. Fjelagið hafði afkastað miklu starfl,
gefið út, auk Sagnablaða og Skírnis, alla Sturlungu, 9 hinar
flrstu deildir af árbókum Espólíns, Almenna landaskipunar-
fræði Gunnlaugs Oddssonar, Ljóðmæli Stefáns í Vallanesi,
Æfisögu Jóns Eiríkssonar eftir Svein Pálsson, þiðingar
Jóns Þorlákssonar á Paradísarmissi Miltons og Messíasi
Kloppstokks, Málsháttasafn Guðmundar Jónssonar, Grasa-
fræði Odds Hjaltalíns og Lestrarkver Rasks. Og þó hafði
fjelagið aukið vaxtasjóð sinn stórkostlega, svo að það átti
árið 1837 12800 kr. á pöxtum1). Það sem gerði, að fje
lagið gat staðið straum af svo miklum útgáfukostnaði og
þó safnað allmiklum sjóði, var einkum það, að það greiddi
þá engin ritlaun, og eigi síður hitt, að fjelagsmenn fengu
þá engar bækur firir tillög sín, heldur urðu að kaupa
bækur þær, sem fjelagið gaf út, firir bókhlöðuverð, eins
og hverjir aðrir, ef þeir vildu eignast þær. Hins vegar
sannaðist það á fjelaginu, að »leiðir verða langþurfamenn«,
því að fjelögum á íslandi fór sífækkandi, og þegar hjer
var komið (1837), var tala reglulegra fjelaga á Islandi
komin niður í 28. Allar framkvæmdir vóru þá enn í
höndum Hafnardeildarinnar. Reikjavikurdeildin gerði ekki
annað enn safna saman þeim tillögum frá Islandi, sem
hún náði til, og senda þau Hafnardeildinni, sem sá að öllu
leiti um prentun bóka í Kaupmannahöfn og framkvæmdi
það, sem gera þurfti. Þó komu frá Reikjavíkurdeildinni
ímsar góðar bendingar, sem Hafnardeildin tók til greina
eftir föngum, t. d. tillagan um að stirkja Björn Gunnlaugs-
son til að mæla landið og gera uppdrátt af því, er kom
fram um það leiti sem Þorgeir Guðmundsson tók við
stjórn Hafnardeildarinnar, og filgdi hann fram þessu firir-
tæki með mestu alúð2).
Jón Sigurðsson Ijet fljótt til sin taka, er hann var
kominn í fjelagið. Á fundi Hafnardeildar 31. mars 1837
*) Minningarrit Bmf. 100. bls. *) Minningarrit Bmf. 23.—41. bls.