Vísir - 18.08.1962, Blaðsíða 10
)
10
V'lSIR
Laugardagur 18. ágúst 1962.
Vikan 19. til 26. ágúst.
mjög hagstæð þér sérstaklega
þó fyrri hluta vikunnar, og
hentugt að styrkja þau bönd.
Aðstaða á vinnustað síðari
hluta vikunnar verður þér mjög
hagstæð.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr: Þrátt fyrir ýmis vandamál
og andstreymi mun vikan ganga
þér að óskum, sérstaklega að
því er varðar uppáhaldsáhuga-
mál þín. Hins vegar bendir allt
til að þú þurfir að vera varkár
í fjárútlátum. Síðari hluti vik-
unnar getur orðið skemmtilegur
og ástamálin undir góðum á-
hrifum.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Þú munt að öllum líkum
komast 1 smá ‘ferðalag til ætt-
ingjanna nú í vikunni. Hentug-
ar aðstæður til að láta öðrum
I té skoðanir þínar og sjónar-
mið. Heimilismálin verða tals-
vert á döfinni síðari hluta vik-
unnar og þarfnast þess að þú
takir þau föstum tökum.
SlíturKongó sam-
bandi viSBretland
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Þú mátt reikna með að
þér áskotnist óvænt peninga-
upphæð fyrri hluta vikunnar. í
flestum tilfellum mun þetta
vera á einhvern hátt tengt at-
vinnunni. Þú ættir ekki að
stofna til kynna við eldra fólk
fyrri hluta vikunnar, en afstöð-
urnar Iagast síðari hluta henn-
ar. Föstudagur og laugardagur
gætu orðið skemmtilegir f sam
bandi við ættingja þinn eða ná-
granna.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Vikan yerður þér hagstæð í
flestu tilliti. Máninn gengur nú
I gegn um merki þitt þannig, að
fólk mun taka meir eftir þér og
tekur fullt tillit til skoðana
þinna og orða. 1 vikubyrjun
máttu reikna með að komast al-
veg óvænt á skemmtun þar sem
margt mun koma þér á óvart.
Síðari hluti vikunnar getur
reynzt þér nokkuð kostnaðar-
samur, ef þú ferð ekki sérlega
gætilega með fjármuni þína.
Tvíburamir, 22. maí til 21.
júní: Þú ættir að hugleiða fyrri
hluta vikunnar leiðir til að auka
tekjur þínar af þeim störfum,
sem þú kannt að hafa með
höndum. Annars bendir allt til,
að þér takist nú að koma í verk
og ljúka ýmsum viðfangsefnum,
sem legið hafa ókláruð undan-
farið. Þú ættir að nota kvöld-
stundir fyrri hluta vikunnar til
að hvíla þig vel, því þreyta
sækir þá að þér.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Mikill tími muni fara í að sinna
vinum þínum og kunningjum,
sérstaklega fyrri hluta vikunn-
ar. Margt ánægjulegt getur átt
sér stað í sambandi við þetta
og smá ferðalag út í sveit er
mjög líklegt. Þú getur lent í
einhverjum vandræðum við
skattayfirvöldin í vikunni, í
sambandi við gamla skuld.
Ljónsmerkið, 24. júlí til 23.
ágúst: Fyrri hluti vikunnar mun
að mestu leyti fara f að sinna
skyldustörfum á vinnustað og
hætt er við að þér muni finnast
of þungur ábyrgðarhluti hvíla
á þér. Þetta breytist allt þegar
líða tekur á vikuna, því þá
muntu eiga margar glaðar
stundir með vinum og kunn-
ingjum.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Þér hættir nú til of mikilla dag-
drauma og skýjaborga um stór-
virki í framtíðinni. Gættu þess
að Iáta það ekki koma fram á
nauðsynlegri vinnu þinni. Ekki
er ólíklegt að þú fáir bréf langt
að, sem mun reynast skemmti-
legt.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
í vikunni má reikna með að á
ýmsu gangi í fjármálunum, sér-
staklega að því er varðar sam-
eiginleg fjármál, t. d. maka eða
verzlunarfélaga. Annars væri
ágætt að hyggja að eignunum
og halda hlutunum í góðri
reglu. Nú er hentugur tími til
að innheimta skuldir hjá öðrum.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Þú ættir ekki að hafa hátt um
þig í vikunni, heldur ættirðu að
láta aðra um að hafa forystu-
hlutverkið. Þitt hlutverk er
bezt að tjaldabaki, þar sem lítið
fer fyrir þér. Fyrri hluti vik-
unnar gæti orðið töluvert
skemmtilegur með kvikmynda-
húsferð eða dansleik.
Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Góð afköst þín á vinnu-
stað mun vekja athygli yfir-
mannanna, þó á nokkuð ó-
venjulegan hátt verði og þú
munt hljóta lof þeirra fyrir. Þér
býðst einnig tækifæri til að
hagræða vinnuskilyrðum og
jafnvel að þreifa fyrir þér um
kauphækkun. Síðari hluti vik-
unnar getur orðið nokkuð á-
takasamur, ef þú ferð ekki að
með gát.
Steingeit, 22. des. til 20. jan.:
Ekki er ólíklegt að þú fáir sér-
stakan áhuga á tómstundaiðju
eða einhverju frístundagamni í
vikunni. Einnig eru ástamálin
Fréttir bárust um það I gær frá
Leopoldville, að Adoula forsætisráð
herra sambandsstjðrnar Kongó,
hefði rætt um það á stjórnarfundi
hvort slíta skyldi stjórnmálasam-
bandinu við Bretland.
Er það vegna afstöðu brezku
stjórnarinnar til ágreiningsins um
Katanga, sem sambandsstjórnin
hefur til athugunar að stíga þetta
róttæka skref.
að hafa tal af lækni, en Tjsombe
er veill á hjarta.
Barizt í Katanga.
1 gærkvöldi var frá því skýrt í
bandarískum fréttum, að Katanga-
hersveitir hefðu tekið tvo bæi norð
arlega í fylkinu, og í brezka út-
varpinu í morgun, að Katangalið
hefði tekið bæ 80 km. fyrir sunnan
Albertville. Tekið var fram, að
gæzlulið Sameinuðu þjóðanna hefði
ekki tekið þátt í neinum bardög-
Tsjombe forsætisráðherra Kat-
anga er nú á heimleið frá Sviss,
en þangað fór hann til þess um.
| Úr einni Ásverzlananna, við Brekkulæk.
1 Verzlunin Ás, sem eitt sinn var
innsta verzlun við Laugaveg, 40 ára
Verzlunin Ás í Reykja-
vík varð nýlega 40 ára.
Tildrög að stofnun verzl
unarinnar var óvenjuleg.
Hún var stofnuð í því
húsnæði, sem hún er enn
í að Laugavegi 160, af
þeim hjónum Helgu
Árnadóttur og Geir Hall
dórssyni þann 2. ágúst
1922.
Þegar verzlunin var stofnuð
mátti heita að húsið Laugaveg-
ur 160 væri fyrir innan bæ, en
svo mjög hefur Reykjavík
stækkað, að nú má telja þetta
svæði til miðhluta borgarinnar
og aðalverzlunarsvæðis.
Það voru einkum ferðamenn
sem voru viðskiptavinir í Ási
til að byrja með. Það var altítt
að þeir mæltu sér mót við
Vatnsþróna þegar þeir höfðu
lokið erindum sínum í bænum
og héldu af stað heimleiðis.
Komu þeir þá oft við í Ási, sem
varð alkunnur staður ferða-
manna. Hafði frú Helga greiða-
sölu um alllangt skeið í húsinu
áður en verzlunin tók til starfa.
Auk ferðamannanna voru
átta eða níu fiskverkunarstöðv-
ar þarna í grenndinni, þar sem
fjöldi fólks vann allar vertíðir,
fram á sumar og sumt allan árs-
ins hring. Þar vann það oft
langan dag án þess að fara
heim í mat eða kaffi. Margt af
þessu fólki leitaði stöðugt til
Helgu í veitingastofunni Ás
eftir ýmsum nauðsynjum, ■ enda
reyndi hún alltaf að leysa
vanda þess, eftir því sem henni
var unnt og leitaðist við að hafa
þær vörutegundir sem tíðast
var spurt eftir. Naut Helga fyrir
þetta almennra vinsælda hjá
þessu fólki, sem þóttist eiga
hauk í horni, þar eð aðbúðin á
vinnustöðum var ekki góð þá.
•k
Brátt fór því svo, að geymslu
rými þraut í búri og eldhús-
skápum Helgu í veitingastof-
unni. Ás, en 'viðskiptin jukust
jafnt og þétt. Þetta leiddi til
þess að þau hjónin Helga og
Geir hófu þarna verzlunar-
rekstur. Ekki var laust við að
kaupmönnum í miðbænum
þætti það óráð að fara að setja
á stofn verzlun fyrir innan bæ,
en verzlunin dafnaði vel engu
að síður.
Ás að Laugavegi 160 var hátt
á þriðja áratug innsta verzlun
við Laugaveg og nú tók byggðin
að þokast nær og síðan að fær-
ast inn fyrir. Nú er gamla verzl-
unin Ás inni i miðjum bænum.
★
Nú hefur Ás-verzlunum fjölg-
að. Eru þær orðnar fimm tals-
ins, að Laugavegi ,160, Brekku-
læk 1, Laugarnesvegi 100, Mel-
haga 2 og Lækjarfit 7 í Garða-
hreppi. Framkvæmdastjóri
þeirra er Svavar Guðmundsson,
stjúpsonur Geirs I-Ialldórssonar.