Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1986, Side 2
2
m' TST'mÁ gr « lívArnrv/. v
MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 1986.
Fréttir
Sverrir Hermannsson ávarpar gesti við hina hátíðlegu athöfn í gærmorgun.
Afmælisgjöf ríkisins afhent:
Gott afmælisveður:
Þó kannski
httaskúrir
Veðuriræðingar gera ráð fyrir
góðu afinælisveðri í dag, þó geta
orðið hitaskúrir siðdegis.
Það verður hægviðri um allt iand
en skýjað víðast hvar.. Að sögn
Braga Jónssonar veðurfræðings
er stutt í heiðan himininn en vegna
hægviðrisins nást skýin ekki
burtu. Hann sagði þó að hlýtt yrði
í dag en búast mætti við hita-
skúrum er líða tekur á daginn.
-KÞ
Afmæíis-
gjafimar
streyma
Gjafir til afinælisbamsins hafa
streymt til borgarinnar undan-
fema daga.
Starfsmannafélag Reykjavíkur-
borgar gaf málverk frá Þingvöllum
eftir Kristján Magnússon, Eim-
skipafélag íslands gaf málverk af
Ingólfi Amarsyni með öndvegis-
súlurnar, málað af danska málar-
anum Johan Peter Raadsig árið
1850, og Vörubílastjórafélagið
Þróttur gaf ágrafinn skjöld, unn-
inn af Friðriki Friðleifssyni.
Þá afhenti Hörður Bjamason
fyrir hönd 58 fyrirtækja og stofh-
ana tilkynningu um að þau myndu
sameinast um að gefa borginni eir-
afeteypu af Úr álögum, höggmynd
eftir Einar Jónsson, fbúasamtök
vesturbæjar gáfu líkan af lista-
verki eftir Jón Gunnar Ámason
Reykjavíkurboig
eignast Viðey
Það vom hátt í þrjú hundruð
manns samankomin i Viðey í gær-
morgun þegar Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra gaf fyrir hönd
ríkisins Reykvíkingum í afinælisgjöf
hlut þess i Viðey.
Þetta var hátíðleg athöfn. Lúðra-
sveit Reykjavíkur lék ættjarðarlög
þegar gestimir gengu á land í eynni.
Síðan var safnast saman við kirkj-
una þar sem menntamálaráðherra
bauð gesti velkomna, rakti að
nokkru sögu Viðeyjar og síðast en
ekki sist, og það sem allir höfðu beð-
ið eftir, afhenti borgarstjóra form-
lega eignarhlut ríkisins í Viðey við
innilegt lófatak viðstaddra.
Davíð Oddsson borgarstjóri þakk-
aði hina veglegu gjöf, fyrir hönd
Reykvíkinga, og sagði að ákveðið
hefði verið, eftir tillögu fluttri af öll-
um flokkum og samtökum sem eiga
fulltrúa í borgarstjóm, að heíja strax
viðgerðir á húsunum í eynni. Stefnt
væri að því að viðgerðum á Viðeyj-
arstofu lyki á árinu 1988 og viðgerð-
um á Viðeyjarkirkju lyki ekki síðar
en 1990.
„Það ætti að verða léttur leikur,"
sagði borgarstjóri. „Það er okkar
skylda sem Reykvíkinga að reisn
þessa staðar haldist og það gildi, sem
eyjan hefúr, bæði frá sögulegu og
byggingarlegu sjónarmiði, verði það
sama,“ bætti hann við.
Einnig hefur verið ákveðið að efiia
til hugmyndasamkeppni um nýtingu
eyjarinnar í framtíðinni.
Við athöfnina í gærmorgun mátti
sjá helstu máttarstólpa þjóðfélags-
ins. Þama vom ráðherrar, ráðuneyt-
isstjórar, borgarfulltrúar, varaborg-
arfulltruar, helstu embættismenn
Reykjavíkurborgar og ráðuneyt-
anna. Þama var biskup íslands og
helstu menmngarfrömuðir borgar-
innar, svo einhverjir séu nefndir.
-KÞ
. „Til hamingju, Reykjavík." Sverrir Hermannsson afhendir Davíð Oddssyni eignarhlut ríkisins í Viðey.
og Blómamiðstöðin gaf borginni
200 rósir.
Áður höfðu Þýsk-íslenska gefið
útiklukku, Skógræktarfélag
Reykjavikur myndarlegan tijá-
lund og Líf og land tré.
-KÞ
Borgarstjóri
prédikar
Borgarstjóri prédikaði í Nes-
kirkju í gærmorgun en hátiðar-
guðsþjónustur voru í öllum
kirkjum og messustöðum borgar-
innar i tiiefni afmælisins.
DV-mynd Bj.Bj.