Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1986, Side 20
20
MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 1986.
MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 1986.
Keflvíkmgar sigruðu
íþróttir
• Magnús Ólafsson.
Glæsilegt
íslandsmet
hjá Magnúsi
Halþór Guámundssan, DV, Madrid;
Magnús Olafsson setti nýtt
glæsilegt íslandsmet í 200 m
skriðsundi á heimsmeistara-
keppninni í sundi í Madrid í
gær. Magnús bætti met sitt um
tvær og hálfa sekúndu. Hann
synti á 1:55,09 mín. en gamla
metið hans var 1:57,83 mín.
„Mér tókst vel upp í sundinu,"
sagði Magnús eftir sundið en hann
synti mjög vel. Magnús var skráður
nr. 46 af 60 keppendum fyrir sundið.
Eflir sundið var hann kominn upp
í 37 sætí þahnig að hann ílaug upp
eílir listanum.
Eðvarð Þór Eðvarðsson keppti í
100 m bringusundi í gær sem er ekki
aðalgrein hans. Hann lagði ekki
mjög mikla áherslu á sundið, mætti
órakaður til keppni. Eðvarð Þór
synti vegalengdina á 1:08,92 mín.
-sos.
Magnus GÉlason, DV, Suðumfisjum:
Keflvíkingar sigruðu Víði í nokkuð
dauíúm leik hér í Keflavík í gær-
kvöldi. Voru leikmenn beggja liða
nokkuð kærulausir á köflum. Það
mátti reyndar búast við hörðum og
spennandi leik því bæði liðin urðu að
vinna þennan leik. Bæði liðin reyndu
að leika knattspymu en það gekk brö-
suglega. Keflvíkingar náðu tveggja
marka forystu í byrjun fyrri hálfleiks
og kom það fram í leik þeirra. Þeir
urðu varkárari í sóknaraðgerðum sín-
um og Víðismenn komust meira inn í
leikinn. Sterk vöm og góður mark-
vörður sá til þess að stigin þrjú urðu
eftir í Keflavík. Þetta var þýðingar-
mikill sigur fyrir Keflvíkinga en þeir
hafa nú góðan möguleika á Evrópu-
sæti.
Keflvíkingar vom mun ákveðnari í
upphafi leiksins og fengu fljótlega gott
marktækifæri þegar Bjöfgvin Björg-
vinsson komst á auðan^sjó en Gísli
varði vel.
• Á 13. mínútu kom fyrsta mark
Keflvíkinga. Gunnar Oddsson fékk þá
boltann fyrir utan vitateig Víðis-
manna og lék inn í teig þar sem hann
skaut óvæntu skoti í vinstra mark-
homið - óverjandi fyrir Gísla mark-
vörð. Þama bjuggust flestir við þvi
að Gunnar gæfi boltann en hann af-
greiddi hann þá laglega inn.
• Þrem mínútum síðar kom annað
mark Keflvíkinga. Sigurður Björg-
vinsson komst þá inn að endamörkum
og gaf fyrir á Freyr Sverrisson sem
skallaði boltann laglega inn.
Víðismenn sækja
Víðismenn gerðu eina breytingu í
hálfleik þegar þeir settu Gísla Eyjólfs-
son inn á og Daníel Einarsson var
færður fram. Á 48. mínútu átti Daníel
einmitt þrumuskot á mark ÍBK úr
aukaspymu. Þorsteinn Bjamason
kallaði „farinn“ en í því skall knöttur-
inn í þverslána og endasentist þaðan
út á völl. Víðismönnum tókst þó lítið
að komast áleiðis gegn sterkri vöm
Keflvíkinga sem beittu helst fyrir sig
skyndisóknum.
• Það var ekki fyrr en þrjár mínút-
ur voru eftir til leiksloka að Víðs-
mönnum tókst að skora. Eftir lipurt
þríhymingaspil Víðismanna afgreiddi
Grétar Einarsson boltann inn með
glæsilegu skoti.
Hjá Keflvíkingum átti Gunnar
Oddsson bestan leik. Hann vann vel
og skapaði sér færi. Þá átti hann
margar góðar sendingar. Þorsteinn
stóð sig vel í markinu og þeir Valþór,
Sigurður og Freyr léku allir þokka-
lega.
Hjá Víðismönnum var Óli Róberts-
son góður en Dam'el var góður á
meðan hann var í vömini. Guðjón og
yilberg áttu einnig ágætan dag.
Áhorfendur: 1120
Dómari: Baldur Scheving og dæmdi
hann vel.
Liðin: Þorsteinn Bjamason, Gísli
Grétarsson (Jóhann Magnússon á 76.
mín.), Einar Ásbjöm Ólafsson, Valþór
Sigþórsson, Sigurjón Sveinsson, Sig-
urður Björgvinsson, Rúnar Georgsson,
Freyr Sverrisson, Gunnar Oddsson,
Óli Þór Magnússon, Björgvin Björg-
vinsson (Skúli Rósantsson á 67. mín.).
Víðir: Gísli Heiðarsson, Ólafur Ró-
bertsson, Vilhjálmur Einarsson (Gísli
Eyjólfcson á 46. mín.), Daníel Einars-
son, Klemenz Sæmundsson, Grétar
Einarsson, Mark Duífield, Guðjón
Guðmundsson, Bjöm Vilhelmsson,
Vilberg Þorvaldsson (Helgi Bentsson
á 79. mín.)
Maður leiksins: Gunnar Oddsson ÍBK.
-SMJ
21
Iþróttir
Eru Framarar að
i missa af lestinni?
- gerðu jafntefli við FH og hafa misst foiystuna til Valsmanna rétt eina ferðina enn
Kristinn Jónsson sést hér skora fyrra mark Fram gegn FH.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Það er erfitt að segja hvað er að.
Við spiluðum vel i bikarkeppninni en
ekki núna. Það var ákaflega slæmt
að missa þessi stig. Þetta er hins vegar
allt opið ennþá. Við verðum að hafa
það hugfast að enn em eftir þrjár
umferðir, “ sagði Guðmundur Steins-
son fyrirliði Fram eftir að Framarar
höfðu gert 2-2 jafntefli gegn FH. Það
var dapurleg stemmning í herbúðum
Framara eftir leikinn. Ekki nema von,
forysta sú sem öllum virtist ætla að
duga Frömurum til að vinna fyrsta
íslandsmeistaratitilinn síðan 1972 er
horfin. Framarar hafa misst forystuna
til Valsmanna sem nú leiða deildina
með eins stigs forystu. FH-ingar fengu
„Fram fékk gefíns tvö víti“
- sagði Ingi BJöm Aibertsson
„Það er auðvitað ergilegt að Frömurum voru hrein-
lega geíhar þama tvær vítaspymur. Ég skil til dæmis
ekki seinni vítaspymuna en þá fór boltinn í andlitið á
Ólafi Kristjánssyni og síðan í höndina á Viðari Þorkels-
syni Framara. Boltinn fór aldrei í höndina á FH-ingi,“
sagði Ingi Bjöm Albertsson, þjálfari F'H-inga, eftir leik-
inn en það var þungt í FH-ingum út af þessum víta-
spymudómum en tvær vítaspymur vom dæmdar á þá
í leiknum. Eftir að Þóroddur dómari hafði flautað leik-
inn af var hann umkringdur af leikmönnum og liðsstjór-
um FH og var greinilegt að þeir vom mjög ósáttir við
dómgæslu Þórodds.
„Annars er ég ánægður með fá stig gegn toppliðinu í
deildinni og það á þeirra heimavelli. Þetta var ágætur
leikur hjá okkur og við áttum meira í leiknum lengst
af. Ég gerði ákveðnar breytingar á liðinu fyrir leikinn
og þær gengu uppsagði Ingi Bjöm sem fékk að sjá
gula spjaldið í leiknum og verður því að öllum líkindum
í banni í næsta leik.
-SMJ
Þóroddur Hjaltalin sýnir Inga Bimi gula
spjaldíö.
þama hins vegar dýrmætt stig í fall-
baráttunni. Leikurinn í gær var ekki
vel leikinn en spennandi var hann.
• Framarar vom mun sprækari í
byrjun og náðu forystunni á 10. mín-
útu. Var þar að verki Kristinn Jóns-
son. Ormar Örlygsson gaf þá fasta
sendingu fyrir markið. Þar tók Krist-
inn við boltanum og tók hann laglega
niður, sneri á einn vamarmarm og
skaut undir Halldór í marki FH. Á 26.
mínútu fengu Framarar vítapymu eft-
ir að Ingi Bjöm, sem lék í vöminni
að þessu sinni, hafði verið að kljást
við Guðmund Torfason út við endalínu
í vítateignum. Þetta var strangur dóm-
ur. Ekki virtist ljóst í fyrstu hver tæki
vítaspymuna en að lokum var það
fyrirliðinn Guðmundur Steinsson sem
það gerði. Hann virtist eitthvað óör-
uggur og skaut framhjá markinu.
FH skorar tvö mörk á tveim
mínútum
I seinni hálfleik voru Framarar mun
meira með boltann framan af en gekk
illa að skora enda var FH-vömin
traustari nú en undanfarið og Halldór
í markinu var mjög ömggur.
• FH-ingar jöfnuðu síðan óvænt á
66. mínútu. Var þar að verki Hörður
Magnússon eftir góða sendingu frá
Ólafi Danivaldssyni. Hörður afgreiddi
boltann laglega inn af stuttu færi.
• Tveim mínútum síðar skorað Ól-
afur Danivaldson furðulegt mark.
Magnús Pálsson gaf þá sendingu inn
í vítateig þar sem Ólaíúr virtist vera
rifinn niður af vamarmanni. Hann
náði þó að teygja sig í boltann og ýta
honum að markinu. Friðrik rann til,
náði ekki í knöttinn og hann „lak“
inn. Þetta var ákaflega klaufalegt hjá
Friðrik.
Nú höfðu svo sannarlega skipast
veður í lofti hjá Frömurum og urðu
þeir að fara að sækja af fúllum krafti
en áður virtist einhver dofi vera yfir
sóknaraðgerðum þeirra. Þeir vildu fá
vitaspymu þegar Guðmundi Steins-
syni var skellt við vítateig en Þórodd-
ur dómari taldi brotið hafa verið utan
vítateigsins. Hann dæmdi þvi auka-
spymu þrátt fyrir áköf mótmæli
Framara.
• Á 85. mínútu náðu síðan Framar-
ar að jafna leikinn og kom það mark
úr umdeildri vítaspymu. Þóroddur
dómari taldi að boltinn hefði farið í
hendina á vamarmanni FH en þeir
\dldu hins vegar meina að hann hefði
farið i hendina á Viðari Þorkelssyni
Framara. Að þessu sinni tók Guð-
mundur Torfason spymuna og
þrumaði hann boltanum inn.
Framarar virðast haldnir einhverju
sleni nú um þessar mundir. Að vísu
virðist þetta slen aðeins birtast í deild-
arkeppninni. í bikarkeppninni leika
Framarar enn af réttri getu. Þeim
gengur illa að ljúka sóknum sínum
og vörnin er ekki nógu traust. Þá gera
sumir vamarmanna Fram sig seka um
að hanga alltof lengi á boltanum í stað
þess að koma honum í sóknina. Pétur
átti góðan leik framan af en datt síðan
niður. Þá voru þeir Viðar og Ormar
frískir og komu vel fram í sóknina.
Ingi Bjöm gerði töluverðar breyt-
ingar á liði sinu og þær virtust
heppnast ágætlega. Hann spilaði nú
sjálfur sem aftasti maður og var sterk-
ur í þeirri stöðu - það var greinilegt
að hann vissi hvað varnarmennimir
ætluðu sér. Ingi Bjöm var nokkuð
harðskeyttur í vöminni og fékk að sjá
gula spjaldið fyrir vikið. Þá kom Ólaf-
ur Jóhannesson sterkur út en hann
kom nú inn aftur eftir að hafa verið
í fríi. Þá vom þeir Hörður og Pálmi
ógnandi frammi.
Áhorfendur: 890
Dómari: Þóroddur Hjaltalín
Liðin: Fram: Friðrik Friðriksson. Ormar
Örlygsson, Jón Sveinsson, Þorsteinn Þor-
steinsson. Viðar Þorkelsson. Steinn
Guðjónsson. Kristinn Jónsson. Gauti Lax-
dal (Öm Valdimarsson). Pétur Ormslev.
Guðmundur Steinsson (Arrdjótur Daviðs-
son). Guðmundur Torfason. FH: Halldór
Halldórsson, Magnús Pálsson. Ingi Bjöm
Albertsson, Ólafur Jóhannesson. Leifur
Garðarsson. Guðmundur Hilmarsson.
Kristján Gíslason. Hörður Magnússon
(Hlynur Eiríksson). Pálmi Jónsson, Ólafur
Kristjánsson. Ólafur Danivaldsson.
Maður leiksins: Halldór Halldórsson. FH
-SMJ
TIL HAMINGJU
200 metraafmælistertaog „kamivalstemmning1
í miðbæ Reykjavíkur
er nokkuð sem við ætlum ekki að missa af!
Við sendum Reykvíkingum og öðrum
landsmönnum hamingjuóskir í tilefni
200 ára afmælis höfuðborgarinnar og væntum
þess að hitta sem flesta viðskiptavini
okkarog samstarfsmenn í hátíðarskapi.
EIMSKIP *