Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1986, Blaðsíða 36
36
"Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Nick Nolte
gaf öllum samstarfsmönnum
sínum vindil um daglnn. Tilefnið
var fæðing fyrsta barnsins.
Rebecca eiginkona hans fæddi
af sér lítinn Nikka og var hinn
stolti faðir viðstaddur fæðing-
una allt til enda. Það fylgir
sögunni að ekki hafi liðið yfir
filmstjörnuna eina einustu mín-
útu og er kappinn fjallmontinn
yfir afrekinu.
Mick Jagger
þakkar lögreglunni að ekki fór
verr þegar hann lenti í klóm fox-
illra aðdáenda sem ætluðu að
veita honum kjarngott endur-x
uppeldiástaðnum. Ljósmyndari
af tegundinni kvenmaður hafði
smellt mynd af rokkaranum en
Mikka ekki líkað betur en svo
að hann braut myndavélina og
gaf eigandanum síðan rækilegt
kjaftshögg. Þetta þótti ekki góð
latína að mati annarra áhorfenda
þannig að hafin var myndarleg
lúskrun á Rollingnum þegar
lögreglan mætti á staðinn.
Prince
heitir víst alveg örugglega ekki
eftir sígarettunum dönsku sem
hinar reykspúandi eftirlegukind-
ur nota í nautnaskyni. Hins
vegar vill litli prinsinn nú ólmur
í • giftast og veldur umboðsmönn-
um sínum miklum hugarkvölum
með þeim fyrirætlunum.
Hnappheldan sú hæfir ekki
ímyndinni og hræðast speking-
arnir að ný og betri Prince yrði
þeim harla lítils virði í aurum
talið.
Brjóstgóð
frelsisfrú
Frelsisstyttan á
Manhattan átti
afmæli fyrr í
sumar og svo
sem áður hefur
verið tæpt á hér
á síðunum var
mikið um dýrð-
ir. Meðal þeirra
sem mættu á
svæðið var
Dolly Parton og
hún kom að
sjálfsögðu
iklædd viðeig-
andi búningi
syngjandi há-
stöfum: „Hún á
afmæli i dag!“ .
Að auki lét
söngkonan
fljóta með að
menn ættu að |
vera hreyknir
af landi og þjóð
- hvergi í heim-
inum hefði
almenningur
jafnmikla
möguleika á því
að láta alla
drauma sina
rætast-og
væri hún sjálf
ágættdæmi uml
sannleiksgildi
þeirrar fuliyrð-
ingar.
Skáld
í afmælisgjöf
Reykjavíkurborg fær svo að sjálfsögðu afmælisgjafir, sem vera ber á slíkum
degi, og ef til vill er stærsta gjöfm skáldið sem gefur út meðfylgjandi flug-
rit. Þetta er hann Eiríkur góðan daginn sem segist vera borgarstjóri inn við
beinið. Hann gefur stórgjöf- sjálfan sig - til höfuðborgarinnar og þá einkum
og sér í lagi þeim borgarhluta sem kenndur er við gamla miðbæinn. Sem
áður segir er þetta stórgjöf - heilt skáld - og er þessum listviðburði ætlað
að verða okkur borgarbúum til ánægju, heilla og blessunar.
• , Hv2 r 1 ístviðbur'iurinn rekur nú annan í OKKAR rdGRU BORG, á
2'.);} ár3 :ifns! ínu -horqarbúum til ÁNXGJIJ, HEILLA oq BLESSUNAR.
..Ein mestn LIST oq KÚNST er að nka oifreiðum oq ekki síður að
LEIOBEINA okumonnun um okkar FÖGRU BORG, banniq að beir hitti
ekki i GAMLAR KONUR oq APÓTEK.
..Ekki er öllum sú LIST qefin on mönnun fer hún nis.iafnleqa úr
hendi. Hér R.jást nokkur sýnishorn á MYNDUM, sem fvlq.ja oq bar
sést bet ta qiöqnt:
MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 1986.
Undir fölsku
flaggi
Nú heita þau herra og frú Hirsh
Brúðkaup þeirra Karólínu Kennedy og Edwins Schlossenbergs varð til
þess að sameina Kennedyklanið á einn og sama staðinn um stund - Banda-
ríkjamönnum til ólýsanlegrar kæti. Þarna er þeirra kóngafjölskylda á móti
slikum hefðardúllum evrópskum og vilja þeir ólmir tylla einhverjum úr geng-
inu í forsetastól. Vandinn er að ekki hefur fundist neinn nothæfur ennþá
innan ættarinnar en þess er beðið með mikilli eftirvæntingu að upp rísi nýr
spámaður.
Nýju hjónin forðuðu sér hið skjótasta úr troðningnum og familíugleðinni
eftir að vígslan var afstaðin og eru nú á brúðkaupsferð um Indónesíu. Þar
heita þau því ágæta nafni herra og frú Hirsh og eru sannfærð um að ekki
nokkur maður átti sig á hinu sanna. Fyrstu nóttinni eyddu þau á lúxus-
hótelinu Borobudur í Jakarta og næst lá leiðin á Ambarrukmo Palace Hotel
i Jogyakarta. Talsmaður síðara hótelsins sagði að þessi gersamlega óþekktu
Hirshhjón dveldu þar með algert næði í huga og gerðu kröfu til að engir
ljósmyndarar fengju að mæta á staðinn.
Næsti viðkomustaður er Bali þar sem hindúamenning verður grandskoðuð
- í næði - og er haft eftir Karólínu að hún njóti ferðarinnar stórvel svo lengi
sem þau fái að vera í friði. Það hafa ferðamálafrömuðir á staðnum sagt að
muni verða svo lengi sem þeir fái einhverju ráðið um gang mála.
Pottþéttir blaðasalar
Þeir kalla ekki allt ömmu sína, blaðasalamir í Kuala Lumpur í Malasíu.
Fátt getur raskað jafnvægi þeirra, enda hreinlega sérfræðingar í að aðlag-
ast aðstæðum. Hvort þeir síðan verða sem blaðakóngar brautryðjendur
nýrrar tækni á sínum heimavígstöðvum er erfitt að segja til um en hingað
til hafa aðferðimar við blaðburðinn reynst vel nothæfar eystra.