Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1987, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987.
41
Nú er haustíð komið með hval-
veiðum í vísindaskyni og einhverri
nefnd sem aldrei hefur farið til út-
landa fyrr en ósköpin hentu hana
um daginn ef marka má fjölmiðla-
byltinguna sem er orðin eins og
jeppabifreið sem ég átti þegar ég
bjó við þjóðveg 711, hún stóð yfir-
leitt alltaf fóst þegar ég þurfti að
komast leiðar minnar á henni og
var að hjakka í sama farinu á með-
ap bensínið entist á tanknum.
Þaö þótti sem sagt fréttnæmt að
hér skyldi finnast nefnd sem hefði
aldrei komist út fyrir landstein-
ana og sagði fólk að þetta heföi nú
verið meira meðvitundarleysið í
henni og þetta hlyti að hafa verið
skattanefnd sem hefði ekki mátt
vera að því að fara til útlanda af
því að hún hefði veriö að finna upp
þrjátíu og sjö tegundir af söluskatti.
- Og hvað var svo þessi nefnd að
gera í útlöndunum? spurði konan
mín áður en hún áttaði sig á því
hvað það skiptir í rauninni htlu
máh hvað nefndir gera þegar þær
eru ekki heima hjá sér.
- Hún hefur ábyggilega skroppið
til Timbúktú að kynna sér hænsna-
rækt, sagði ég, því að fyrir utan
þann vanda kartöflubænda að hafa
ræktað allt of margar kartöflur að
þessu sinni hef ég grun um aö það
sem helst hái íslenskum land-
búnaði nú sé það hve fáir eru í
rauninni sérfræðingar í hænsna-
rækt þótt flestir bændur séu að
gutla við þetta í frístundum eins
og kanínurækt, laxeldi, refarækt,
vaxtarrækt, ræktun íslenska
hundsins og minkarækt svo fátt
eitt sé nefnt sem bændur stunda
þegar þeir eru búnir að framleiða
kjöt sem enginn vih borða og mjólk
Háaloft
Benédikt Axelsson
sem enginn vih drekka.
íslenskt
Og nú er farið að halda hér feg-
urðarsamkeppni hunda og hingað
fenginn dómari frá útlöndum sem
er sérfræðingur í göngulagi, gelti
og hárprýði og þegar búið er að
finna út hvaða hundur hlýðir hús-
bónda sínum best kemur borgar-
stjórinn okkar með bikar handa
honum og heldur yfir honum ræöu
sem er ekkert lík ræðunni sem Jón
á Hóh hélt yfir hundinum sínum
sem fór undantekningarlaust að
elta fugla þegar hann átti að vera
að smala.
Það var langt frá þvi að Jón bóndi
héldi einhverja lofræðu yfir and-
skotans kvikindinu og skrækirnir
í honum heyrðust um aha sveitina
þegar það var búið að tvístra fénu
og þá var Jón á Hóh að thkynna
hundinum sínum hvað hann ætlaði
að gera við hann þegar hann næði
honum.
Þessi hundur Jóns var af frægu
skosku fjárhundakyni sem geltir
ekki heldur læðist aftan að fénu og
bítur í lappimar á því og var Jón
ekkert hrifinn af þessari framkomu
hundsins, hann vhdi að hundar
geltu því að sjálfur sagðist hann
geta bitið í lappimar á rohunum
ef á þyrfti að halda.
Aldrei gerði Jón þó neitt við
hundinn annað en bölva honum og
ragna þrátt fyrir góðan ásetning
um hroðalegar hmlestingar á með-
an hann var honum sem reiðastur
fyrir að kunna ekki að smala og
þótt mér sé svo sem alveg sama er
talsvert skrýtið fyrir mann sem er
aiinn upp í sveit að horfa upp á
hvernig fólk í þéttbýh er farið að
umgaiigast dýrin, það er engu hk-
ara en fólki þyki orðið jafnvænt um
þau og bílana sína.
Haust
Mér hefur ahtaf fundist haustið
sorglegasta árstíðin og þegar blöðin
fara að faha af tijánum fer ég að
hlakka th vorsins og þegar fólk fer
að tala um hvað hausthtimir séu
fahegir og hvað sumarið hafi verið
gott og hvað veðrið sé oft gott héma
í september finnst mér að það
mætti gjaman koma á fót nefnd og
senda hana th útlanda th að reyna
að komast að því hvað hrjárir þetta
fólk.
Mín vegna mætti hún kynna sér
hænsnarækt í Timbúktú í leiðinni.
Kveðja
Ben. Ax.
Finnurðu
átta breytíngar?
Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins. En á neðri
myndinni hafa failið burt hlutar af myndinni eða þeir breyst,
alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt að finna þessar
breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa þetta trú-
um við því að allt komi þetta að lokum.
Merkið með hring eða krossi þar sem breytingamar eru og
sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar. Að
þeim tíma hðnum drögum við úr réttum lausnum og veitum
þrenn verðlaun, öll frá versluninni Japis, Brautarholti 2. Þau
eru Supertech ferðatæki (verðmæti 3.860,-), LED útvarpsvekj-
ari (verðmæti 2.350,-) og Supertech útvarpstæki (verðmæti
1.365,-).
í öðru helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu en
ný þraut kemur í næsta helgarblaði.
Góða skemmtun!
Merkið umslagið:
„Átta breytingar - 62, c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík.
Verðlaunahafar reyndust vera fyrir 60. gátu, Sigurður Andri
Sigvaldason, Grettisgötu 39 b, 101 Reykjavík (ferðatæki), Guð-
rún Sigvaldadóttir, Einigrund 3, 300 Akranesi (útvarpsvekj-
ari), Jóna Pétursdóttir, Safamýri 54,108 Reykjavík (útvarps-
tæld). Vinningamir verða sendir heim.