Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1987, Page 6
44
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987.
Veiðivon
«
Þú hringir - við birtum og auglýsingin verður færð á kortið.
Víðidalsá í Húnavatnssýslu
Fengu 100 bleikjur og 9
laxa þrátt fyrir ískulda
Kristmundur Jónasson fyrir miðjum Harðeyrarstrengnum nokkru eftir barátt-
una við þárStóru, 20 og 17 punda laxana. DV-mynd Frímann
„Við veiddum á þessar tvær stang-
ir 9 laxa og 100 bleikjur, sem okkur
fannst gott því að veðurfarið var
ógeðslegt, ískuldi og rigning nema
síöasta morguninn," sagði Krist-
mundur Jónasson, íluguhnýtari og
matreiðslumaður, en hann veiddi
síðasta daginn í Víðidalsá í Húna-
vatnssýslu á tvær stangir viö fjórða
mann. Þetta var tveggja og hálfs dags
veiðiferð hjá þeim og fengu þeir fína
veiði, stærstu laxarnir hjá þeim voru
20 og 17 punda laxar. Kristmundur
Jónasson og veiðifélagi hans, Frí-
mann Ólafsson, fóru þama sína
fyrstu ferð í ána en höfðu með sér
Heimi Barðason, sem gjörþekkir ána,
enda hefur hann verið leiðsögumað-
ur í Víðidalsá og Vatnsdalsá. „Við
sáum víða fisk í ánni og mikið sums
staðar."
- Nú fékkst þú þarna 20 punda lax á
SMÁAUGLÝSINGAR DV
MARKADSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö
nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
flugu, þinn stærsta fisk um ævina.
„Við vorum að veiöa í Harðeyrar-
streng, skemmtilegum veiðistað, og
þar var töluvert af fiski. Ég fékk þar
Veiðivon
Gunnar Bender
þennan 20 punda fisk til að taka flug-
una Black and blue og var með níu
feta stöng, stórkostleg barátta sem
stóð yfir í 45 mínútur. Laxinn stökk
þrisvar sinnum og hann fór niður
með öllu, svo náði ég honum inn í
smálygnu nokkru neðar og þar tók
Frímann veiðifélagi minn fiskinn
með sporðlykkju. Fiskurinn átti tölu-
vert eftir þegar við náðum honum á
þurrt. Frímann fékk skömmu áður
lax á flugu og þá sáum við að annar
fylgdi þeim laxi eftir. Það var 17
punda hrygna, minn var hængur.
Kannski hefur þetta verið par, við
höldum það.“
- Þið fenguð helling af bleikju.
„Bleikjuveiðin gekk vel og við feng-
um 100, þær stærstu voru um 5 pund,
annars voru þetta nokkuð minni
bleikjur. Bestu veiðistaðirnir í bleikj-
unni voru Neðri-Vaðhylur, Síma-
strengur og fyrir neðan brú. Það er
gaman að veiða bleikjuna á flugu.“
- Svo Víðidalsáin hefur tekið vel á
móti ykkur í fyrsta skipti þrátt fyrir
að veðurfarið hafi ekki verið gott.
„Þetta var skemmtilegt og verður
reynt að fá veiðileyfi aftur næsta
sumar í ánni því að hún býður upp
á fjölbreytta veiðistaði og maður get-
ur átt von á þeim stóra. Baráttan við
þann stóra, eins og ég fékk, var mik-
ill fætingur og barátta í lagi. Vonandi
á maður eftir að upplifa aftur eitt-
hvað svipað í Víðidalsá,“ sagði
Kristmundur í lokin.
-G.Bender
Þeir eru tignarlegir, stórlaxarnir úr Víðidalsánnni, sem veiddust á síðasta
degi er áin var opin. DV-mynd Kristmundur
Léttgeggjaði
leiðsögumaðurinn
við Elliðaárnar
Hann er búinn að veiða oft í ánni í sumar
„Léttgeggjaði leiðsögumaður-
inn“ við Elliðaárnar hefur mikið
komið við sögu við veiðar í ánni
og svo virðist að hann hafi tekiö
sér bólfestu við ána í sumar. Þessi
„léttgeggjaði leiðsögumaður“ hef-
ur fengið að veiða oftar en nokkur
annar í ánni í sumar og fengið þá
marga til að taka. Hann hefur tekið
að sér að leiðbeina mönnum hvort
sem það er á maðk eða flugu. „Jú,
ég varð var við þennan mann við
ána og hann var þar allan tímann
meðan ég var að renna fyrir
skömmu. Hann setti í einn lax fyrir
mig á Hrauninu á flugu og það var
skemmtileg viðureign," sagði einn
af þeim fjölmörgu veiðimönnum
sem veitt hafa með þeim „léttgegg-
aða“ við Elliðaárnar. En sumir eru
ekki hressir með þennan leiðsögu-
mann og vilja vera einir við ána
þó það sé erfitt. „Jú, ég varð var
við þennan mann en vildi lítið tala
við hann, samt var þarna hjá mér
í um þrjá tíma,“ sagði annar veiði-
maður. Ein var sú veiðisaga sem
sá „léttgeggjaði" sagði af sér og þaö
var það að hann hefði sjálfur átt
veiðileyfi í ánni og fengið kvótann
8 laxa um leiö, alla á flugu. Síðan
bitu á eftir þetta um 10 laxar en þá
varð hann að hrista af því hann
mátti ekki fá fleiri fiska þennan
dag. Allir fengust fiskarnir á
Hrauninu á flugu. Við getum upp-
lýst að þessi „léttgeggjaði leiösögu-
maður“ er líklega búinn að renna
um hundrað sinnum fyrir aðra í
sumar og ótrúlega oft búinn að
setja í lax, þó er víst hjálpin oft
misskilin hjá veiðimönnum. Hver
eru eiginlega laun heimsins?
„Léttgeggjaði leiðsögumaðurinn“
mun ganga undir dulnefni en um
hríð en hann er krydd í tilveru
veiðimanna sem renna í Elliðaám-
ar. Hver veit nema hann mæti aftur
næsta sumar?
-G.Bender
Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV
lesiö.
Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og
eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný-
komnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gaetu hafa
keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn máft.
Þar er allt sneisafullt af tækifaerum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Þú hringir...2 022 Viö birtum... Það berárangur!
Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11.
Oplð:
Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
laugardaga, 9.00— 14.00
sunnudaga, 18.00—22.00
ER SMÁAUGLÝSINGABLADID
hrjalst ohaö dagblaö
KREDITKORTAÞJÓNUSTA