Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1987, Side 36
48
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987.
Handbolti unglinga
Geysispenn-
andi keppni í
3. flokki kvenna
Mjög hörð keppni var víðast hvar í
3. flokk kvenna um sæti í deildum
og réð markamismunur oft úrslitum.
Víkingar unnu alla leiki sína í A-
riðli en stærsti sigur þeirra var þó
aðeins tvö mörk. Innbyrðis viðureign
Hafnarfjarðarliðanna, FH og Hauka,
tryggði Haukastúlkum sæti í annarri
deild með naumum sigri, 8-7.
í B-riöli kom lið Þróttar mjög á
óvart og sigraði alla leiki sína nokk-
uð örugglega. í innbyrðis viðureign
HK og Stjörnunnar sigraði HK stórt
og spilar í 2. deild en Stjarnan í þeirri
þriðju.
KR vann stóra sigra í C-riðli og
virðist þar vera á ferðinni eitt af
sterkustu liðum í 3. flokki kvenna.
Reykjanesmeistarar Njarðvíkur
virðast koma mjög sterkir til leiks
og unnu þeir alla andstæðinga sína
án teljandi erfiðleika í D-riðli.
Fram sigraði í E-riðli með fullu
húsi stiga en Grótta og ÍA hlutu bæði
eitt stig en vegna hagstæðari marka-
tölu fer Grótta í 2. deild.
í Vestmannaeyjum fór fram keppni
í F-riðli, var hún mjög jöfn og spenn-
andi og hlaut hvert lið tvö stig. Vegna
hagstæðari markatölu spilar Grinda-
vík í 1. deild, ÍBV í 2. deild en UMFA
rekur lestina.
Deildimar eru því skipaðar eftir-
töldum hðum:
1. deild
UMFN
Víkingur
Þróttur
KR
DV
• Hart barist í leik Stjörnunnar og HK í 3. flokki kvenna.
UMFG ÍBV UMFA
Fram Grótta ÍA
2. deild 3. deild 4. deild
Selfoss Fylkir ÍR
Haukar FH UFHÖ
HK Stjarnan UBK
ÍBK Reynir
Leikgleðin í fyrirrúmi hjá 5. fl. karla
Keppni í 5. flokk karla fór fram á
ýmsum stöðum á landinu um sl.
helgi. Keppt var um sæti í deildum
og var oft um mjög harða keppni
að ræða enda lið oft áþekk að styrk-
leika.
Að Varmá áttust við lið í A- og
F-riðli og var keppni jöfn og spenn-
andi milli Stjömunar og Fylkis í
F-riðli. Unnu þau bæöi lið Hvera-
gerðis og réðust úrslit ekki fyrr en
í innbyrðis leik þessara liða.
Stjarnan byrjaði mjög vel og komst
í 4-1 en Fylki tókst að jafna með
mörkum frá fyrirliðanum, Kjartani
Sturlusyni, en þar er á ferðinni
mjög öflugur miðjumaður sem dríf-
ur sína leikmenn áfram er illa
gengur. í seinni hálfleik náði
Stjarnan forystu á nýjan leik með
glæsilegum mörkum Sigurðar Við-
arssonar en hann skoraði þrjú
fyrstu mörkin í seinni hálfleik. Er
5 mínútur vom til leiksloka hafði
Stjarnan forystu, 11-8, en með góð-
um endaspretti náðu Fylkisstrák-
arnir að laga stöðuna og endaði
leikurinn með sigri Stjömunnar,
13-12. Markahæstir í Úði Stjöm-
unnar vom Sigurður Viðarsson,
sem skoraði 4 mörk, og Viðar Erl-
ingsson með 3 mörk. Fyrir Fylki
skoruðu þeir Kjartan Sturluson 6
mörk og Jón Þór Grímsson 5 mörk.
í A-riðli unnu Reykjanesmeistar-
ar HK ömggan sigur á öllum
andstæðingum sínum og verða þeir
illsigranlegir í vetur en lið þeirra
er mjög heilsteypt með Gunnleif
Gur.nleifsson og Hafþór Hafliðason
sem bestu menn.
KR-ingar sigmðu í B-riðli sem
keppt var í á Akranesi og var að-
eins lið ÍA sem veitti þeim keppni.
KR sigraði innbyrðis leik þéssara
liða meö einu marki, 11-10, og var
mikil harka í þeim leik. Tveir leik-
menn Akraness fengu réttilega að
sjá rauða spjaldið í seinni hálfleik
en hann einkenndist af mikilli
hörku.
ÍR sigraði alla andstæðinga sína
í C-riðli er fór fram í Reykjavík og
virtust þeir hafa yfirburði yfir hin
liðin í riðlinum og eiga fullt erindi
í 1. deild.
í D-riðli, er fór fram á sama stað,
háðu Víkingar og UBK harða keppni
og endaði innbyrðis leikur þeirra
með jafhtefli, 10-10. Þar sem um-
sjónaraðili týndi einni skýrslu er
ekki hægt að segja til um hvort liðið
spilar í 1. deild er þetta er skrifað.
í Vestmannaeyjum fylgdi 5. flokkur
Þórs góðu fordæmi 3. flokks og vann
alla andstæðinga sína og spila þvi í
1. deild.
Deildarskipting er því þessi:
l.deild
Stjaman
KR
IR
Þór, Vestmannaeyjum
Lið úr D-riðli
2. deild
Fram
Fylkir
IAUMFN
FH
Lið úr D-riðli
3. deiid
Reynir, Sandgerði
UFHÖ
Selfoss
Týr, Vestmannaeyjum
Haukar
Lið úr D-riðli
4. deild
IBK
Grótta
Þróttur
Ármann
UMFA
• Reykjanesmeistarar HK1987 og sigurvegarar í A-riðli 5. flokks karla.
• Hafþór Hafliðason, fyrirliði HK i
5. flokki karla.
„Einar er frá-
bær þjátfari“
-segir Hafþór Hafliöason
„HK varö íslandsmeistari í 6. flokki
fyrir tveimur árum og ætlum við að
vinna hann núna aftur í 5. flokki,
allavega að vera í 1. deild. Einar Þor-
varðarson þjálfar okkur og er hann
mjög góður þjálfari. Viö æfum tvisv-
ar í viku og svo spilum vlð æfinga-
leiki líka.
Við erum búnir að taka þátt í
Reykjanesmóti og þar unnum við
alla andstæðinga okkar. í úrslitum
spiluðum við á móti FH og unnum
þá, 10-8.
Uppáhaldsleikmennimir mínir eru
Einar Þorvarðarson, Siggi Gunn.,
Kristján Ara og Atli Hilmarsson."
Þetta sagði markvörðurinn snjalli og
fyrirliði 5. flokks HK.
» Bergur Þór Eggertsson, fyrirliði
Reynis frá Sandgerði í 5. flokki karla.
„ÆUum að gera
okkarbestaívetur“
- segir Bergur Þór
„Ég byijaöi æfa handbolta í 6.
flokki og er núna á seinna ári í 5.
flokki. Við erum flestir á seinna ári
í vetur. Ég er mjög ánægður með
þjálfarana, þá Willum Þórsson og
Stefán Arnaldsson. Við spiluðum
ekki nógu vel á móti HK og töpuðum
15-9 en ég held að HK sé með besta
hðið í 5. flokki. Við stefnum að því
að komast í 1. dehd og gera okkar
besta þar. Ég fylgist ekki mjög mikið
með fyrstu deildinni í handbolta en
uppáhaldsleikmennirnir mínir eru
Héðinn Gilsson og Alfreð Gíslason.“
Þetta sagði fyrirhði Reynis frá Sand-
gerði þegar unglingasíðan spjahaði
við hann í Garðabænum um síðustu
helgi.
Meiriháttarjassvakning íAmsterdam
Frábœrar hljómsveitir á þrjátfu stöðum á svœði sem er eins og
frá Lœkjartorgi að Tjarnarbrúnni. m 29. október til 1. nóvember.