Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987. 3 Skattkort hafa veríð send til allra sem verða 16 ára og eldri á árinu 1988. Skattkortin eru lykill að réttrí stað- greiðslu opinberra gjalda og þess vegna mikilvægt að notkun þeirra og meðferð sé öllum Ijós. • Lesið upplýsingamar og leiðbeiningamar sem fylgja skattkortinu vel. • Ef þið hafið eitthvað við persónulegu upplýs- ingamar að athuga þá hafið samband við næstaskattstjóra. • Ef þið viljið nýta ykkur möguleika á auka- skattkorti, þá er best að sækja strax um það hjáskattstjóra. AUKASKATTKORT Þeir sem nýta ekki persónuafslátt sinn á einum vinnustað, vinna ef til vill á fleirí stöðum eða vilja afhenda maka sínum ónýttan per- sónuafslátt, getafengið aukaskattkort. Þeir fylla þá út umsóknareyðublað og snúa sér með það til næsta skattstjóra. Á auka- skattkortum er mánaðarlegum persónuafslætti skipt niður á kortin í þeim hlutföflum sem launa- maðuróskar. MEÐFERÐ SKATTKORTS Afhendið launagreiðanda ykkar skattkort- ið sem fyrst til vörslu. Ef hann hefur ekki skatt- kortið við útborgun launa fæst ekki persónu- afsláttur og fullt skatthlutfall (35.2%) verður dregið af launum. Launagreiðanda ber að varðveita skatt- kortið og hann ber ábyrgð á því á meðan það er í hans vörslu. Þegar skipt er um vinnustað er skattkortið sótt og afhent nýjum launagreiðanda. Þeir sem vinna ekki utan heimilis varðveita kort sín sjálfir ef maki nýtirekki persónuafsláttinn. Án skattkorts -enginn persónuafsláttur RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.