Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1988. Tennis - tennis Hið árlega stofnana- og félagsmót í tennis á vegum T.I.K. verður haldið helgina 9.-10. apríl í Digranesi í Kópavogi. Skráning í mótið er í síma 41019, 21808 og 52941 T.Í.K. VIÐ SEUUM GÆÐASKO /CSj*#* *■ . VIÐ ERUM FLUTT VERSLUNIN $kóval Skólavörðustíg 22 - skóverslun fjölskyldunnar KR. 1.390 Dráttartaug sem vindur sjálf upp á sig. Hún helst ávallt stíf og slaknar því aldrei á henni í togi. Dráttartaugin er 4 m á lengd. Dráttartaugin er í höggheldri kassettu. Dregur fólksbíla allt að 1750 kg. Þvermál ca 13 cm. Póstverslunin Príma Pöntunarsími 62-35-35. Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00. _______g VISA ® EUROCARD_____________ Fótóhúsið - Príma - ljósmynda- og gjafavöruverslun, Bankastræti, sími 21556. Svidsljós Skemmtíkraftur á heimsmælikvarða Hinn heimsfrægi skemmtikraftur, Eddie Skoller, hefur verið hér í tví- gang frá áramótum til að skemmta landanum. í fyrra skiptið, rétt eftir áramótin, skemmti hann á einni skemmtun en nú fyrir skömmu hélt hann þijár skemmtanir í íslensku óperunni fyr- ir troðfullu húsi. Og óhætt er að segja að þeir sem lögðu leið sína í óperuna hafi ekki orðið fyrir vonbrigðum. Lá við að fólkið yrði að biðja sér vægðar því það stóð á öndinni af hlátri í yfir tvo tíma samfleytt. Upphaflega stóð til að halda aðeins tvenna tónleika en bæta varð einum viö vegna mikill- ar eftirspurnar. Eddie Skoller bjó fyrstu ár ævi sinnar í Bandaríkjunum. Faðir Skollers er rússneskur en móðirin sænsk. Þau fluttu frá Bandaríkjun- um til Danmerkur þegar hann var 6 ára gamall og hefur hann búið þar síðan. Að vísu hefur Eddie, frá því hann sló í gegn sem skemmtikraftur, verið mikið á ferð og flugi um heim- inn enda viðurkenndur orðinn sem einn fremsti skemmtikraftur sem völ er á frá Norðurlöndunum. Eddie Skoller hafði ekki áður kom- ið til íslands en þrátt fyrir það er hann vel þekktur hér á landi. Hver þekkir ekki frægasta lag hans, What Did You Learn in School today? þar sem Skoller gerir grín að ýmsum þjóðarbrotum? Einnig þekkja margir sögur eins og Finsk historie og lög hans þar sem hann hermir eftir ýms- um frægum hljómlistarmönnum eins og Elvis Presley, Rod Stewart, Paul Anka og fleirum. Athygli gesta vakti þó hversu vel hann var búinn að aðlaga dagskrá sína íslenskum aðstæðum. Ljósmyndari DV brá sér á eina af sýningum hans og sjón er sögu rík- ari. Hér hermir Eddie Skoller með tilþrifum eftir söngvaranum fræga Rod Stewart. Áhorfendur áttu erfitt með að hemja sig fyrir hlátrasköllum á sýningu þessa óborganlega skemmtikrafts. DV-myndir KAE Eddie Skoller: Prakkarastrik í Hafnaríirði ' Ifisf Þau Haraldur Freyr Gíslason og Katrin Sif Sigurgeirsdóttir fara með hlut- verk Emils og ídu í leikritinu. DV-myndir GVA Um þessar mundir sýnir leikfélag Hafnarfjarðar bamaleikritið „Emil í Kattholti“ eftir hinn kunna höfund, Astrid Lindgren. Leikritið er sýnt í Bæjarbíói í Hafn- arfirði, leikstjóri er Viðar Eggerts- son, en Jón Björgvinsson sér um hljómsveitarstjórn. Vilborg Dag- bjartsdóttir, sem þýddi bókina um Emil, sá einnig um þýðingu fyrir sviðsetningu verksins. Emil í Kattholti, sem er strákur frá Smálöndunum í Svíþjóð, framdi sín frægu prakkarastrik í byijun þessar- ar aldar. Með hlutverk hans fer Haraldur Freyr Gíslason sem er 13 ára nemi úr Öldutúnsskóla. Hann þykir passa sérlega vel í hlutverkið. Með hlutverk ídu, systur Emils, fer Katrín Sif Sigurgeirsdóttir. Ljós- myndari DV brá sér á frumsýningu verksins og tók nokkrar myndir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.