Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1989, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989.
UtLönd
Fjórlr menn, þar á meðal þessir tveir, Faustino Rodriguez og Abelino
Garcia, grunaðir um stórfellda framleiöslu á heróini, voru handteknir i
Mexíkó á mánudag.
Simamynd Reuter
Fíknlefnalögregla í Mexikó geröi upptæk 49 köó af hreinu heróíni í
Chiapas fylki á mánudag og er það mesta magn sem mexíkósk lögregla
hefur lagt hald á. Talið er aö heróínið sé virði tíu milljón dollara. Lög-
regla handtók íjóra menn í tengslum viö málið.
Heróinið fannst í leynilegri rannsóknarstofu í Tuxtla Gutierrez, höfuð-
borg Chiapas fylkis. Lögregla gerði víðtæka leit í miðfylkinu Michoacan
þar sem þeir bjuggust við að finna stóra valmúaakra en ópíum er unnið
úr valmúa. Á síðustu átta mánuöum hetur lögregla uppgötvað og lokað
tuttugu og átta leynilegum ópíumrannsóknarstofum í íjórum miö- og
suðurfylkjum Mexíkó. Fimm þúsund meintir fíkniefhasmyglarar hafa
veriö teknir í gæslu lögreglu.
Óttast um 70 fláttamenn
Óttast er um sjötíu víetnamska flóttamenn eftir að ræningjar réðust á
bát þeirra norðvestur af Malasiu á laugardag. Talsmaöur flóttamanna-
hjálpar Sameinuöu þjóðanna sagði að fulltrúar hennar væru að yfirheyra
þrettán flóttamenn sem lifðu árásina af. Þessi árás á flóttamennina er sú
versta sem oröið hefur á þessu ári.
Áttatíu og fjórir voru um borð í bátnum.
Kröftugur jarðskjálfti í KalKomíu
Vörur hrundu niður úr hillum í
verslunum i San Francisco f
Bandaríkjunum i gær í kjölfar jarð-
skjáffta sem skók borgina og
næsta nágrenní.
Simamynd Reuter
í gær varð vart allsnarps jarð-
skjálfta í San Franöseo og ná-
grenni í Kalifomíufylki í Banda-
ríkjunum. Jaröskjálftinn, sem
mældist 5,2 á Richter-skala, skók
borgina og skýjakljúfar riðuðu ei-
lítiðtil.
Vitað er um eitt mannslát sem
talið er að rekja megi til skjálftans
en að sögn lögreglu lést ungur
maður eftir að hafa falliö eða stokk-
iö út um giugga á fimmtu hæð.
Skemmdir virðast hafa veriö litl-
ar.
Skjáiftamiðjan var í Santa Cruz
fjöllunum um 120 kílómetra suöur
af San Francisco.
Nokkrir minni skjálitar fylgdu í
kjölfarið. Þar af mældist einn um
4,2 stig á Richter.
syntu í sjónum.
Óttast aukningu „gulu froðunnar"
Flskiskip reyndu að dreifa froðunni vlð strendur Ítalfu
Simamynd Reuter
Sérfræöingar Aiþjóöaheilbrigðismálastofhimarinnar óttast aö „gula
froðan" við strendur ítaliu kunni aö aukast á nassta ári og skapa frekari
vandamál. Sérfræðingamir sögðu að ef veðurfar '
JarðskjáKti á Nýja Sjálandi
Það var víöar en í Bandaríkjimum sem fólk varð vart jaröhrærmga. í
gær skók jarðskjálfti miðbik Nýja Sjálands og riðuðu íbúðarhús og aðrar
byggingar í höfuðborginni til. Jarðskjálftafræðingurinn Warwick Smith
telur að skjálfönn hafi mælst 5,5 til 6,0 stig á Richter-skala.
Smith telur að miðja skjálftans hafi verið um 140 kílómetra í jöröu niðri
og það hafi líklega átt sinn þátt í aö ekki uröu miklar skemmdir. Engar
fregnir um slys á mönnum haía borist.
Þingheimur
ekki sammála
Neðri deild japanska þingsins út-
nefndi Toshiki Kaifu nýjan forsætis-
ráðherra landsins í morgun. Efri
deildin hafnaði honum hins vegar en
stjómarflokkurinn, Frjálslyndi lýö-
ræðisflokkurinn, hefur ekid lengur
meirihluta í þeirri deild í fyrsta
skipt-
i í sögunni. Kaifu, sem hefur áður
gegnt embætti menntamálaráðherra,
er þriðji forsætisráðherra landsins á
þremur mánuðum.
Kaifu tekur við af Sosuke Uno sem
sagði af sér er honum mistókst að
hressa upp á ímynd Fijálslynda lýð-
ræðisflokksins á 68 daga valdaferli
sínum. Kaifu fékk 294 atkvæði í neðri
deildinni en helsti keppinautur hans
um embættið, Takako Doi leiðtogi
Sósíalistaflokksins, fékk 142 atkvæði.
í efri deildinni, sem hefur mun minni
völd, fóm leikar þannig að Doi var
útnefnd í embætti forsætisráðherr-
ans. Hún fékk 127 atkvæöi en Kaifu
109.
Þar sem þingdeildimar náðu ekki
samkomulagi um hver skyldi stjóma
landinu verður að setja á fót nefnd
til að reyna að komast aö niðurstöðu.
Ef það tekst ekki ræður atkvæða-
greiðslan í neðri deildinni úrslitum.
Stjóm Unos sagði af sér áður en tíl
atkvæðagreiðslunnar kom til að
rýma fyrir Kaifu. „Við reyndum að
endurheimta traust almennings á
stjómmálunum, bæta lífsafkomu
Japana og gera skyldu okkar á al-
þjóðavettvangi,“ sagði Uno í loka-
ræðu sinni. „En ákvörðun almenn-
ings í atkvæðagreiðslunni til efri
Toshiki Kaifu fagnar sigri eftir atkvæðagreiðslu í neöri deild japanska þings-
ins. Símamynd Reuter
deilarinnar var mjög óvægin. Ég tek kleift aö takast á við gífurleg vanda-
því á mig alla ábyrgð nú og segi af mál, bæði innan lands og utan.“
mér til að gera eftirmanni mínum Reuter
Hermenn særðir
Fimm ísraelskir hermenn særð- el. Heimildir innan hersins herma Eklú er ljóst hvort árásin tengist
ust, þar af þrír alvarlega, þegar aðþettahafiveriðsjálfsmorðsárás. ráni ísraelsmanna á shítaklerki frá
bíll lilaðinn sprengiefhi sprakk í Sömu heimildir herma að fjöldi Suður-Líbanon en múhameðstrú-
loft upp nærri ísraelskri herflutn- manns hafi látist eöa slasast í armenn hafa svarið að hefha fyrir
ingalest í Suður-Líbanon í morgun, sprengingunni en ekki var vitaö þaö.
réttviönorðurlandamærinaölsra- nánar um atburö þennan. Reutcr
Andvígir samkomulaginu
Bandarísk yfirvöld létu í Ijósi efa-
semdir um samkomulag-þaö sem for-
setar fimm Miö-Ameríkuríkja komu
sér saman um í gær þar sem kveðiö
er á um að kontraskæruliðar í Nic-
aragua skuh leggja niður vopn innan
fjögurra mánaöa og snúa til Nic-
aragua á ný. Bandaríkjamenn, sem
stutt hafa kontrana, segjast ekki full-
vissir um að stjórn Nicaragua komi
í raun á lýðræði í landinu, lýðræði
sem kontraskæruliðamir geti komið
heim til.
Talsmaður Bandaríkjaforseta
sagði að stefna bandarískra stjóm-
valda væri sú að afvopnun kontra-
skæmhðanna skyldi bíða þar til eftir
kosningar í Nicaragua sem stjóm-
völd þar hafa heitið að fari fram í
febrúar á næsta ári.
Talsmaðurinn sagði aö ef stjóm
sandinista 1 Nicaragua stæði við gef-
in loforð um pólitískar umbætur áð-
ur en kosningar færa fram myndu
Bandaríkin styðja að afvopnun
skæmliðanna færi fram. En hann
bætti við aö Bandaríkjastjóm efaðist
um að það slíkt myndi eiga sér stað.
Samkomulagið er ekki bindandi.
Skæruliðum er í sjálfsvald sett hvort
þeir hlita því og hafa nokkrir leiðtoga
þegar hafnað því. Einn háttsettur
leiðtogi þeirra sagði í gær að vopnað-
ir skæridiðar myndu fljótlega fara
yfir landamærin við Honduras, en
skæruliðarnir hafa höfuðstöðvar
sínar þar, þrátt fyrir samkomulagið.
Leiötoginn sagði að þegar skæra-
hðamir snem heim á ný væri aukin
hætta á vopnaskaki. Kontraleiötogar
hafa heitið því aö leggja ekki niður
vopn fyrr en aö kosningum afstöðn-
um.
Reuter
Forseti El Salvador, Cristiani, og forseti Nicaragua, Ortega, ræðast við á
fundi forseta fimm Mlð-Amerfkurfkja. Simamynd Reuter