Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1989, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1989, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989. 11 Utlönd Norðurlönd: Vaxandi kyn- þáttahatur Kynþáttahatarar í Svíþjóð beina spjótum sínum að innflytjendum og flótta- mönnum. Kynþáttafordómar og kynþáttahatur hafa farið vaxandi á Norðurlöndum á undanfómum árum í kjölfar sívax- andi straums flóttamanna og inn- flytjenda af öðrum litarhætti. Kyn- þáttahatarar í Svíþjóð eru að sækja í sig veðrið og í Noregi voru nýlega framin tvö morð sem rekin eru til kynþáttahaturs. Úr Framfaraflokknum Kynþáttahatarar í Svíþjóð hafa að undanfömu verið að skipuleggja hreyfingu sína upp á nýtt og stofnað samtök sem þeir kalla Sænska lýð- ræðisflokkinn, undir forustu manns að nafni Anders Klarström. Að baki honum standa hins vegar samtökin „Svíþjóð fyrir Svía“, SFS, sem ekki fara í launkofa með kynþáttafor- dóma sína. Nýi flokkurinn, sem var stofnaður í febrúar í fyrra, hefur nú um 2500 manns innan sinna vébanda. Hann hefur stofnað deildir í fjölmörgum bæjarfélögum víðs vegar um landið og fleiri eru í burðarliðnum. í flestra augum er Sænski lýöræð- isflokkurinn nýr og óþekktur flokk- ur. Hann getur þó rakið uppruna sinn til Framfaraflokksins sem stofn- aður var á 7. áratúgnum að fyrir- mynd samnefnds flokks Mogens Ghstrup í Danmörku. Framfara- flokkurinn í Svíþjóð varð innflytj- * endum enn fjandsamlegri þegar hag- fræðingurinn Stefan Herrmann tók við forustu hans. Flokkurinn sam- einaðist SFS árið 1986 undir nafngift- inni Svíþjóðarflokkurinn og varð Herrmann flokksformaður. „Svíþjóð fyrir Svía“ Samtökin „Svíþjóð fyrir Svía“ voru mynduð í upphafi 9. áratugarins af manni sem heitir Leif Zeilon og kom upphaflega úr Lýðræðisbandalaginu sem er öfgasinnaður hægriflokkur. Zeilon er nú aftur kominn fram á sjónarsviðið sem formaður kjör- nefndar Sænska lýðræðisflokksins. Zeilon var áður leiðtogi sænskra nas- ista og fasista og var rekinn úr vinnu þegar það komst í hámæli á árinu 1981. Höfuðmarkmið Zeilons og SFS var að berjast gegn innflyfjendum til landsins. Boðskapur Sænska lýð- ræðisflokksins er hinn sami. Ofbauð hatrið Samstarfið milli SFS og Framfara- flokksins varði í eitt ár. Þá fengu aödáendur Glistrups meira en nóg af hatursáróðrinum gegn innflytj- endum. Svíþjóðarflokkuriim sprakk árið 1987 eftir miklar deilur þar sem ásakanir um fjárdrátt og valdaráns- tilraunir gengu á víxl milli flokks- brotanna. Afleiðingarnar voru alger upplausn meðal flokksmanna og um tíma leit út fyrir að hatursstefnan væri með öllu horfin. Svo fór þó ekki, því Sænski lýðræð- isflokkurinn hefur hafið merki kyn- þáttahataranna á loft. Forusta hans er að mestu leyti hin sama og hjá SFS. Flokkurinn gefur út tvö dag- blöð, Sverige-Kuriren og Gjallar- hornet og flytur jafnframt boðskap sinn í svæðisútvarpi þeirra Svía um allt land. Anders Klarström, hinn nýi for- maður, vill ekki kannast viö það starfsheiti og kallar sig talsmann flokksins. Klarström hélt nýlega fund með fréttamönnum í Stokk- hólmi þar sem hann kynnti nýja stefnuskrá flokksins sem sett var saman í sumar. Klarström varði ræðu sinni að mestu í að tala um stefnuna í málefnum innflytjenda og flóttamanna og taldi þá óæskilega í sænsku samfélagi. Þá krafðist hann þess að skattaívilnanir væru ein- göngu fyrir Svía og að ríkisstjómin kæmi sér saman um „raunhæfa stefnu í málefnum flóttamanna". Einræði múhameðstrúar- manna í auglýsingabækhngum flokksins er varað við því að Svíþjóð geti orðið að einræðisríki múhameðstrúar- manna innan fimmtán ára. Þá er einnig krafist dauðarefsingar fyrir alvarlega glæpi. Á sama tíma er gamli framfara- flokkurinn að blása nýju lífi í starf- semi sína. Ný stjóm hefur tekið við forustu flokksins og hann starfar nú í um tuttugu hæjarfélögum. Nýi for- maðurinn heitir Tony Wiklander. Mesti vaxtarbroddurinn er í Helsing- borg og Stokkhólmi. Boðskapurinn er svipaður og hjá Sænska lýðræðis- flokknum, stöðva straum. innflytj- enda og flóttamanna til Svíþjóðar, barátta gegn glæpum og lækkun skatta. Morð í Noregi Innflytjendur í Noregi hafa heldur ekki farið varhluta af kynþáttafor- dómum. Tveir Pakistanar vora myrtir í miðborg Oslóar fyrir skömmu af óðum Pólverja sem er búsettur í Noregi. Tahð er að kyn- þáttahatur hafi búið að baki morðun- um. Pakistanarnir tveir vora að koma af veitingastað þar sem þeir héldu upp á 29 ára afmæh sitt þegar Pól- verjinn vatt sér að þeim og kom til orðaskaks með þeim. Skipti engum togum að árásarmaðurinn dró upp hníf og veitti Pakistönunum banasár. Tveir Pakistanar, Ghazanfar Ali Shan, t.v., og Muhammed Nawaz, voru myrtir á götu í Osió fyrir skömmu. Eftir ódæðisverkið flýði morðinginn til Svíþjóðar og þaðan th Póllands. Hann hafði ekki verið handsamaður þegar síðast fréttist. Mikinn óhug sló á aðra pakist- anska innflytjendur við fréttirnar af morðunum. Þeir segja að útlendinga- hatrið í Noregi hafi aukist mjög á síðasthðnum tveimur árum og nú sé svo komið að þeir séu famir að ótt- ast um líf sitt. í Noregi eru tólf þús- und innflytjendur frá Pakistan. Innflytjendumir komu flestir til Noregs þegar efnahagur landsins var blómlegur og atvinna næg. Þá var vel tekið á móti þeim. Með versnandi efnahags- og atvinnuástandi segja Pakistanarnir að annað hljóð sé komið í strokkinn, þeir séu sakaðir um að stela atvinnu og húsnæði frá Norðmönnum og misnota trygginga- kerfi landsins. DN, Dagbladet o.fl. Gabriel HÖGGDEYFAR STERKIR, ORUGGIR ÓDÝRIR! SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88 w BILASPRAUTUN LARÉTTINGAR Vantar þig vinnu? • Viljum ráða: % réttingamenn bílamálara • Góð vinnuaðstaða • Góðir vinnufélagar • Góð vinnulaun Varmi Sími 44250 Auöbrekka 14 - Kóp Lágmúla 7, sími 91-84477, Austurstræti 22, sími 91-623060.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.