Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1989, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1989, Page 3
MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1989. Með því að taka inn lýsi daglega ertu ekki bara að stuðla að bættri heilsu í dagsins önn, heldur leggur þú einnig hornstein að heilsu þinni í framtíðinni. LYSI I heilsunnar vegna... UFSALÝSI inniheldur helmingi meira af A og D vítamínum en þorskalýsi. Pví er æskilegt að börn og unglingar sem enn eru í vexti noti ufsalýsi til að styrkja beinin og bæta sjónina. D vítamín stuðlar að vexti og viðhaldi beina en A vítamín er mikilvægt fyrir sjónina og heil- brigði húðar. gjfcafci ÁVAXTALÝSI og MINTLÝSI er sniðið fyrir þá sem vilja bragðbætt lýsi. Petta er þorskalýsi sem bragðefnum hefur verið bætt út í. Bragðefnin draga úr lýsisbragðinu. AFBRAGÐSLÝSI er lýsi sem er sérstak- lega valið og meðhöndlað til að fjarlægja bæði lykt og bragð sem yfirleitt fylgir þorskalýsi. Afbragðslýsi er því einkar hentugt fyrir þá sem eiga erfitt með að taka inn lýsi vegna lýsisbragðsins. Hér er um að ræða nýja leið fyrir þá sem hafa viljað taka lýsi en ekki séð sér það fært hingað til vegna bragðsins. ÞORSKALÝSI er ætlað fyrir miðaldra og eldra fólk sem hefur meiri þörf fyrir þær fjölómettuðu fitusýrur sem finnast í lýsinu en A og D vítamín. Þessar fitusýrur eru af Omega-3 gerð og er talið að þær veiti vörn gegn kransæða- sjúkdómum. Þorskalýsi inniheldur um það bil helming þess A og D vítamín magns sem er í ufsalýsi þannig að fólki gefst kostur á að taka inn mun meira magn af þessum fjölómettuðu fitusýrum og gæta jafnframt hófs í A og D vítamín neyslu. ÞORSKALÝSISPERLUR eru ætlaðar fólki sem vill eða getur ekki tekið inn fljótandi lýsi. í perlunum er venjulegt þorskalýsi. Lýsisperlur eru einnig tilvaldar í ferðaiagið og auðvelt að hafa við hendina hvar sem er. Mundu eftir lýsisperlunum í ferðatöskuna næst þegar þú leggur í hann. LÚÐULÝSISPERLUR eru nær eingöngu notaðar sem A og D vítamín gjafar. Þær eru því ætlaðar þeim sem taka ekki inn þorska- lýsi né ufsalýsi en vilja þó fá A og D vítamín. Það er ekki ráðlagt að taka aðrar lýsisafurðir með lúðulýsis- perlum vegna hins háa vítamín innihalds. OMEGA-3 LÝSISPERLUR innihalda mun meira magn af Omega-3 fjölómett- uðum fitusýrum en venjulegt þorskalýsi án þess að A og D vítamín innihald þeirra hafi hækkað að ráði. Omega-3 lýsið er því hentugt fyrir fólk sem telur sig þurfa á að halda meira af þessum fitusýrum, sem taldar eru veita vörn gegn kransæða- sjúkdómum. Þetta á einkum við ákveðna áhættuhópa. w—.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.