Alþýðublaðið - 05.05.1968, Page 6
íslenzka sveitin sem sigraði Skotana, taiið frá vins 'ri: Stefán Guðjohnsen, Ásmundur Pálsson, Þorgeir
Sigurðsson, Þórður fyrirliði. Hjalti Elíasson og S ímon Símonarson. Á myndina vantar Eggert Ben-
ónýsscn. (Lj. Bjarnleifur).
|
fsSand sigraði Skotland
f gær kepptu Skotar og ís-
lendingar í bridge og sigraði
íslenzka sveitin með 104 stig
um gegn 70, eða 7 vinnings-
stigum gegn 1 í 40 spilum. í
hálfleik var staðan 74: 32. í
dag spilar skozka sveitin við
A sveit Norðurlandamótsins,
en hana skipa Benedikt Jó-
hannsson, Jóhann Jónsson, Sig
urður Helgason og Jón Arason.
Keppnin fer fram í Sigtúni og
hefst kl. 13.30.
Flugfélagið hefur gefið far.
andbikar til þessarar keppni,
sem ráðgert er að halda árlega.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Skotar kóma hingað til að
keppa við íslendinga í bridge.
Stérf ellt tap
Framhald af 3. síðu.
greind með heilum tug aura,
þannig að hálfum tug aura eða
lægri f.iárhæð skuli sleppt, en
hærrj fjárhæð í aurum hækk-
uð í heilan tug aura- Með bessu
er raunverulega gert kleift að
gera 10 aura áð minnstu reikn
ingseiningu og fella niður all-
ar smærri myntir.
Elstu seðlar, sem nú eru í
gildi, voru gefnir út af Lands
'bankanum árið 1948. Voru það
5, 10. 50, 100 og 500 króna seðl
ar. Eru seðlar þessir nú að
mestu eða öllu horfnir úr um-
ferð, nema 500 króna seðill-
inn, en haldið var áfram að
setja hann í umferð þangað til
fyrir fáum árum.
Árið 1959 voru nýir seðlar
gefnir út í nafni Landsbanka
íslands, Seðalbankans. Voru
þessir seðlar af stærðunum
5, 10, 25. 100 og 1000 krónur.
Eftir 1961, en þá voru Seðla-
banki íslands og Landsbanki
íslands endanlega aðskildir,
var farið að gefa út nýja seðla
í nafni Seðlabanka íslands, en
þeir voru að öðru leyti af ná-
kvæmleva sömu gerð og seðl-
arnir frá 1959. Svo til allir seðl
ar, sem nú eru í umferð, eru úr
þessum tveimur síðast töldum.
útgáfum. og nú eftir helgina
kemur svo nv>' 500 króna seð-
iilinn til sögunnar, en hann er
af miög svinaðri verð og þeir
seðlar, sem fyrir eru.
Fyrsta nvia mvntin
um 40 ára skeið
Um myntsláttúna er það að
segia. að myntstærðir hafa ver
ið hér hinar sömu frá upphafi,
en mvntútgáfa var fastákveð-
in í lövum um innlenda skipti-
mynt frá 1925, en þar voru
myntstærðir ákveðnar sem hér
segir, eins, tveggja, fimm, tíu
og tuttugu og fimm aura pen
ingar og eins og tveggja króna ‘
peningar. Ein þessara mynta, 2
eyringurinn, hefur horfið al-
gerlega úr umferð, enda hefur
ekkert meira verið slegið af
henni nú um margra ára skeið.
Hinn nýi 10 króna peningur,
sem nú kemur í umferð, er því
fyrsta nýja myntin, sem gef-
in er út hér á landi um 40
ára skeið.
Einseyringur
kostar 31 eyri
Sú mynt- og seðlaútgáfa,
sem nú hefur verið lýst, hef
ur ýmsa alvarlega ókosti.
Er þess þá fyrst að geta, að
minnstu mynteiningarnar
eru mjög dýrar í fram-
leiðslu, svo að stórfellt tap
er á útgáfu þeirra. Til dæm
is má nefna, að einseyring-
ur mun nú kosta í fram-
leiðslu um 31 eyri, fimm-
eyringur kosfar um 76 aura
og tíeyringur um 33 aura.
Aðeins krónu- og tveggja
króna peningar kosta minna
en nafnverð sitt. Þegar við '
þetta bætist svo, að minnstu
mynteiningarnar, a.m.k.
einseyringurinn og fimm-
eyringurinn, eru raunveru-
lega orðnar óþarfar og
kosta aðeins fyrirhöfn og
umstang, bæði fyrir fyrir-
tæki og almenning, er aug-
ljóst, hve æskilegt er að
hér verði breyting á gerð-
Svipuðu máli gegnir raun-
verulega um minnstu seðlana.
Þeir eru alldýrir í frapileiðslu,
þannig kostar fimm króna seð
ill 20 aura, jafnframt því sem
þeir endast mjög illa og miliil
vinna er við talningu þeirra,
bæði í bönkum og fyrirtækj-
um. Er enainn vafi á þvi, að
miklu hagkvæmara væri, að
mynt kæmi í stað minnstu seðl
anna. Þótt tíu króna mynt- sé
um þrefalt dýrari en tíu króna
seðill, verður hún þó miklu
ódýrari til lengdar, þar sem
sleginn peningur getur enzt
áratugum saman.
Loks hefur verið á það bent,
að núverandi seðlastærðir full
nægðu ekki á allan hátt eðli
legum kröfum viðskiptalífsins.
Sérstaklega hefur þótt vanta
500 króna seðil, og hefur nú
verið úr því bætt. Allt bendir
einnig til þess, að mikið hag-
ræði gæti verið að því fyrir
peningastofnanir og fyrirtæki,
ef stærri seðill en 1000 krónur
væri til.
Breytingar á myntsláttu
Auk niðurfellingar smá-
myntar sem getið er um á for-
síðu blaðsins er æskilegt að
-gera ýmsar breylingar á mynt
sláttunni. Þeear tíeyringurinn
er orðinn minnsta reikingsein
ingin og allar fjárhæðir standa
á tíu aurum. verður 25 eyring
urinn óþarfur, og er ráðgert,
að í hans st.að veði gefinn út,
50 aura peningur. Meeinbrevt
inein verður bó fólgin í því,
að hafin verði útgáfa stærri
mynta, og er hinn nýi 10 króna
penineur fvrsta skrefið í þá
átt. í kjölfar hans er ráðeert
að 1 gefa út. 5 króna penine,
sem verður af svipaðr1 gerð
oe 10 króna peningurinn, en
aðeins minni en krónupening
arnir nú Líklega verður
tveegia króna neningurinn ó-
þarfur, effir að fimm króna
nenineur kemur +il söeunnar,
svo að hæef. verði að taka
hann úr umferð. Loks hefur
svo Seð'abaukinn fyriræt.lanir
um bað. að cleeínn verði stærri
mvnt en lf> krónur, og er skoð
un bankans, að 50 króna pen
ingur mundi verða haekvæm-
astur. Mnndi bann verða af
svinuðu verðgildi og stærstu
myntir í ná.grannalöndunum.
AUGLÝ
ym ýtgáSw nýs krési® se9IIsf
samkvæmt fögum um SeöEabanka
islands og lögum um gJaldmiSil Is-
lands.
Samkvæmt heimild í lögum nr. 10 frá 29. marz
1961 og lögum um gjaldmiðil íslands nr. 22
frá 23. apríl 1968, mun Seðlabankinn hinn 6.
maí n.k. gefa út 500 króna seðil með svofelldri
gerð:
Stærð seðilsins er 150 x 70 mm.
Aðallitur er grænn.
Efst á framhlið er prentað „SEÐLABANKI
ÍSLANDS” og þar fyrir aftan í hominu talan
500 með upphleyptu letri og fyrir framan tal
an 500 tvisvar. Á miðju fyrir neðan nafn Seðla
banka íslands er prentað í tveim línum
„FIMM HUNDRUÐ KRÓNUR” og í næstu
línu þar fyrir neðan í einni línu „Samkvæmt
lögum nr. 10, 29. marz 1961”. Þar fyrir neðan
koma undirskriftir tveggja af þrem banka-
stjórum Seðlabankans, Jóhannesar Nordal,
Sigtryggs Klemenzsonar og Davíðs Ólafsson-
,ar. Tal’an 500 er prentuð 1 vinstra og hægra
horn seðilsins og neðst á seðlinum með smáu
letri „Hannes Hafstein” og þar fyrir aftan
talan 500 átta sinnum. Númer hvers seðils er
skráð vinstra megin ofantil og hægna megin
neðantil. Fyrir framan hvort númer er skráð
F. Til vinstri á framhlið er brjóstmynd af Hann
esi Hafstein, ráðherra, og á hægri hlið vatns-
merki innan í hring með mynd af Jóni Sig-
urðssyni, forseta. Málmþráður gengur lóð-
réttur í gegnum seðilinn til vinstri við miðju
framhliðar hans. Talan 500 í efra horni hægra
megin á framhlið er upphleypt, svo að sjón-
dapurt og blint fólk geti áttað sig á stærð
seðjlsins.
Á bakhlið er mynd af fiskibát og áhöfn hans
á iveiðum, auk þess er talan 500 skráð í efra
vinstra hom og neðra hægra horn bakhliðar
seðilsins.
Þetta er almenningi gert kunnugt hér með.
Reykjavík, 29. apríl 1968.
Viskiptamálsráðuneyt'%
Breytingar á seðlaútgáfu
Með útgáfu stærri mynta
verða að sjálfsögðu minnstu
seðlarnir óþarfir, og er gert
ráð fyrir því að hætta að gefa
út minni seðla en 100 kónur.
Hins vegar er ráðgert að gefa
út áður en langt um líður 5000
króna seðil, en það mál hefur
þegar verið nokkuð undirbúið.
Innköllun óþarfra niyntein-
inga og seðlastærða
Eðlilegur þáttur í þessari
endurskipulagningu felst í því,
að óþarfar stærðir mynta og
seðla, svo og eldri útgáfur, sem
nú eru að mestu horfnar úr
umferð, verði innkallaðar og
falli úr gildi. Á þetta sérstak
lega við um gömlu Landsbanka
seðlana frá 1948, svo og þær
mynt- og seðlastæi-ðir, sem
endurskipulagningin gerir ó-
þarfar eða óhentugar.
$ 5- maí i 1968 .
ALþ^ÐUBLAÐIÐ