Dagur - 12.12.1991, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 12. desember 1991
í góðu hjónabandi
- skáldsaga eftir
Doris Lessing
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér skáldsöguna ígóðu hjóna-
bandi eftir Doris Lessing. Þetta
er sjálfstætt framhald sögunnar
um Mörtu Quest sem út kom í
fyrra og annað bindi af fimm í
þeim meistaralega sagnabálki
sem Doris Lessing nefndi síðar
Börn ofbeldisins. Fríða Á. Sig-
urðardóttir rithöfundur þýddi
söguna á íslensku.
í kynningu Forlagsins segir:
„Marta Quest er af æskuskeiði,
ung kona í hjónabandi sem hún
hefur hafnað í gegn betri vitund
sinni, leiksoppur draumóra og
léttúðar augnabliksins. Styrjald-
arblikur eru á lofti og síðari
heimsstyrjöldin brátt í algleym-
ingi. Á þessum ógnartímum
vaknar félagsleg vitund Mörtu.
Hún getur ekki setið aðgerðar-
laus í skjóli sínu - ábyrgðin er
líka hennar."
í góðu hjónabandi er 400 bls.
Ævintýri
bamanna
- þrjár nýjar bækur
í ritsafninu
Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið
út þrjár nýjar bækur í ritsafninu
Ævintýri barnanna. Þær eru
Gosi, Litla stúlkan með eldspýt-
urnar og Þyrnirós. Áður hafa
komið út níu ævintýri í þessu
safni, allt sígild verk í safni ævin-
týra. Þorsteinn skáld frá Hamri
hefur þýtt öll ævintýrin.
í kynningu Foríagsins segir:
„Gömlu, góðu ævintýrin eru allt-
af í fullu gildi og hér eru sögð
óborganleg ævintýri sem börn
hafa skemmt sér við kynslóð
fram af kynslóð. Þau eru endur-
sögn við hæfi yngstu barnanna og
myndskreytt af frægum spænsk-
um listamönnum.“
Ævintýri barnanna eru 32 bls.
hver bók.
Reiðskólinn þinn
- undirstöðuatriði
reiðmennsku
í máli og myndum
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér bókina Reiðskólinn þinn -
undirstöðuatriði reiðmennsku í
máli og myndum. Haukur Hall-
dórsson hefur samið bókina og
myndskreytt.
í kynningu Forlagsins segir:
„Þessi glæsilega myndasaga er
ætluð börnum og unglingum sem
feta fyrstu sporin á hestbaki í
reiðskólum landsins á hverju
sumri. Þeir sem lengra eru komn-
ir geta líka sótt í hana nytsaman
fróðleik. Allir geta lært að sitja
hest, en góð reiðmennska byggist
á tilfinningu, þekkingu og reynslu,
og því er þessi bók kjörin til að
leiða unga knapa á rétta braut.
Hér eru undirstöðuatriðin
útskýrð: Börnunum er kennt að
handleika hnakk og beisli, sitja
hestinn og öðlast tilfinningu fyrir
gangtegundum hans. Hver gang-
tegund er útskýrð á einfaldan og
auðskilinn hátt og síðan eru unga
knapanum lagðar lífsreglurnar
áður en haldið er í fyrsta útreið-
artúrinn. Loks er í bókinni stutt-
ur kafli um hindrunarstökk og
tamningu hesta. Bókin er samin
og myndskreytt af miklu listfengi
og skilningi á þörf barna og ungl-
inga fyrir nákvæma leiðsögn.“
Reiðskólinn þinn er 60 bls. í
stóru broti og í fullum litum.
Hreyfimyndahók um
Mjóna rauðref
- ævintýri
refsins ráðsnjalla
Mjóni rauðrefur var að sálast úr
hungri en þá kom honum ráð í
hug. Hann bauð vinum sínum í
kvöldmat. En hann hafði ekki
búist við óboðnum gesti og sá
síðasti var annar en hann hafði
gert ráð fyrir.
„Örn og Örlygur hafa gefið út
þessa bráðfjörugu sögu. Hún er
með litfögrum lyftimyndum,
spjöldum og hólfum sem opnast
og lokast á hverri síðu. Það má
með sanni segja að hver síða
kvikni til lífs um leið og hún er
snert,“ segir í frétt frá útgefanda.
Höfundar bókarinnar eru
Stephen Wyllie og Korky Paul.
Hjörtur Pálsson þýddi.
Spakmæli
- málshættir frá
mörgum löndum
Hörpuútgáfan hefur sent frá sér
2. útgáfu bókarinnar Spakmæli, í
nýjum búningi. Safn þetta hefur
að geyma yfir 4000 spakmæli og
málshætti.
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Spakmæli er gamansöm og
alþýðleg menningarsaga. Les-
andinn finnur hér kjarnyrt spak-
mæli og jafnvel hneykslanlega
málshætti, en fyrst og fremst er
hér um að ræða skemmtilegt og
fróðlegt efni. í bókinni eru fjöl-
margar skopmyndir tengdar efn-
inu. Bókin hentar vel til hvers
konar notkunar í skólum og
ræðumenn nota hana mikið.“
Spakmæli er 227 bls. Gissur Ó.
Erlingsson þýddi.
Hið íslenska bókmenntafélag:
Hausthefti Skímis
Hausthefti Skírnis, tímarits Hins
íslenska bókmenntafélags, 165.
árgangur, er komið út. Heftið er
270 bls. að stærð.
Bókmenntafélagið er 175 ára á
þessu ári og fylgir Sigurður Lín-
dal heftinu úr hlaði af því tilefni.
Mun Skírnir nú vera eitt elsta
menningartímarit sem út kemur í
Evrópu. Efni heftisins er afar
fjölbreytt, en sem endranær lætur
það sig einkum varða íslenska
Tnenningu og menningarsögu. í
heftinu eru ritgerðir eftir íslenska
og erlenda fræðimenn. Einar
Már Jónsson skrifar ritgerð um
efnisskipan í kaupmannabálki
Konungsskuggsjár, Rory
McTurk fjallar um merkingu
nafnsins „loðbrók“ og tengir það
Gunnlaðar sögu, og Andrew
Wawn segir frá Þorleifi Repp og
Færeyinga sögu. Gísli Jónsson
fjallar um nöfn Dalamanna 1703-
1845, Sveinn Einarsson ritar um
leikskáldskap Steingríms Thor-
steinssonar og Sveinbjörn Rafns-
son skrifar stutta ritgerð sem
hann nefnir „Af fiskrykni og
hvalbera". Þá skrifar Ágúst
Hjörtur Ingþórsson ítarlega
rigerð um lýðræði og fleira mætti
nefna.
Þrjár greinar eru um bækur.
Kristján Kristjánsson skrifar yfir-
litsgrein um heimspekirit Páls
Skúlasonar, Halldór Stefánsson
fjallar um bók Gísla Pálssonar,
Sambúð manns og sjávar, og Ein-
ar Falur Ingólfsson ritar um Mýr-
arenglarnir falla eftir Sigfús
Bjartmarsson og Svefnhjól Gyrð-
is Elíassonar.
Skáld Skírnis að þessu sinni er
Vigdís Grímsdóttir. Einnig er
birt þýðing Sverris Hólmarssonar
á „Mansöng J. Alfreds Prufrock"
eftir T.S. Eliot, ásamt stuttri rit-
gerð þýðandáns um ljóðið.
Myndlistarmaður Skírnis er
Jóhannes Geir og prýðir mynd
hans „Bið“ kápu heftisins. Aðal-
steinn Ingólfsson fjallar um
myndina.
Ritstjórar Skírnis eru Vil-
hjálmur Árnason og Ástráður
Eysteinsson. Ritstjóri Bók-
menntaskrár, sem nú fylgir
Skírni í 23. sinn, er Einar Sig-
urðsson. Afgreiðsla Hins ís-
lenska bókmenntafélags, Síðu-
múla 21, er opin daglega kl. 13-
17.
íslandsmyndir
Páls Stefánssonar
- ný ljósmyndabók frá Iceland Review
Iceland Review hefur sent frá sér
ljósmyndabók eftir Pál Stefáns-
son og ber hún nafnið ísland.
Bókin er 192 síður í stóru broti
og hefur að geyma vel á annað
huiidrað- ljósmyndir í fullum
litum. Texti bókarinnar er á
íslensku, ensku og þýsku, og er
þetta í fyrsta sinn sem Iceland
Review gefur út íslandsbók sem
ekki síður er ætluð íslendingum
en útlendingum.
Páll Stefánsson hefur starfað
sem ljósmyndari Iceland Review
í tæpan áratug, og á þeim tíma
[SLAND
ÍCELAND
ISLAND
P Á L L S TKFANSSON
hefur hann ferðast um landið vítt
og breitt. Páll er fjölhæfur ljós-
myndari, en af öllum hans við-
fangsefnum er það íslensk nátt-
úra sem heillar hann mest.
Myndasafn hans er orðið mikið
að vöxtum, og úrvalið sem birtist
í þessari bók er valið úr fleiri þús-
undum mynda. Flestar myndirn-
ar í bókinni eru þó teknar á allra
síðustu árum.
í formála sínum segir Haraldur
J. Hamar, ritstjóri, meðal
annars:
„Þótt Páll sé metnaðarfullur og
nógu þolinmóður til að bíða eftir
réttu birtunni, þá er það ekki allt-
af nóg. Það er eins og hann nái
einhverju beinu sambandi við
náttúruna, sem ekki er á allra
færi. Þetta er það sem aðskilur
mann með Ijósmyndavél og lista-
ljósmyndara."
Bókin er öll hin vandaðasta.
Hún skiptist í sex kafla, sem bera
heitin Rauð jörð, Skínandi
perlur, Ströndin, Vatnið, Land-
nemar, og Vetur. Formáli og inn-
gangar að köflum eru eftir Har-
ald J. Hamar.
Skagfirdingar - Sauðárkróksbúar
fáið þiÓ hjá okkur
Sauðárkróki
Bókabúð Bryrijars
Minnisbók Bókrúnar komin út
Minnisbók Bókrúnar 1992, 6.
árgangur, almanak í dagbókar-
formi, er komin út. í bókinni eru
efnisatriði við hvern dag er snerta
konur og viðfangsefni þeirra fyrr
og nú og við upphaf hvers mán-
aðar er heilsíðu ljósmynd.
Fimm kunnar konur rita
áhugaverða pistla, kona úr
bændastétt lýsir starfi sínu sem
forðagæslumaður, kynnt er starf-
semi Stígamóta og eins og í fyrri
Minnisbókum sagt frá einhverj-
um samtökum kvenna, að þessu
sinni Zonta á íslandi en nú er hálf
öld síðan þessi merku alþjóða-
samtök námu hér land. Ljóð-
Stafir eru eftir Steinunni Eyjólfs-
dóttur. Formaður útgáfufélagsins
Bókrúnar, Björg Einarsdóttir,
fylgir Minnisbókinni úr hlaði en
ritstjóri hennar er Valgerður
Kristjánsdóttir.
Minnisbók Bókrúnar fæst í
Átta ára Reykjavíkurmær, Kristín
Guðmundsdóttir, gluggar í Minnis-
bók Bókrúnar frá yfirstandandi ári.
bóksölustöðum og á skrifstofu
útgáfunnar að Eínarsnesi 4, sími
91-14156, þar sem einnig er unnt
að panta bókina í áskrift.