Þjóðviljinn - 25.01.1979, Qupperneq 11
Fimmtudagur 25. janúar 1979. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA II
MARTEINN M. SKAFTFELLS
Opid bréf
til Almars Grímssonar, formanns
Lyfjaeftirlitsins og deildarstjóra
í heilbrigðisráðuneytinu
Almar minn elskulegur, fyrir
þlna hönd er ég mjög óánæg&ur
meO grein þina I Þjó&viljanum,
þvi aO þú sni&gengur og svarar
ekki athugasemdum og spurn-
ingum. Enætla mætti að opinber
embættisma&ur hef&i tileinkað
sér málefnaleg vinnubrögö og
gjarnan tamiö sér aö vi&urkenna
staöreyndir.
A& visu kemur grein þin mér
ekkert á óvart, því aO málefna-
legar umræöur I okkar deilumáli
henta þér ekki. Enda eölilegt, þar
sem þú hefur tekiö aO þér aö
sækja og verja málstaö, sem er ó-
verjandi.
Aöur en ég svara grein þinni,
vil ég leiðrétta slæma villu, sem
prentvillupúkinn, sá skelmir,
hefur lætt inn i fyrirsögn á grein
minni. ,,Hert efúrlit meö sölu
sterkra vitamina” var fyrirsögn
min, tekin úr fyrirsögn bla&sins á
viötalinu viö þig, þar sem þú fórst
meörangar upplýsingar ogvarst
á flótta frá staöreyndum, sem er
ekki nýtt i afskiptum þinur,, af
þessu máli.
Svargrein þln viö athugasemd-
um mlnum, geröum vegna viötals
Þjóöviljans viö þig, var blátt á-
fram ekkert svar; þú reynir aö
bjarga þér meö undanbrögöum
og nýjum rangfærslum. Og enn
viröistu gleyminn á staöreyndir.
Hörmulegt, aö ungur maöur skuli
hafa svo hrörnað minni. — En
vonandi er hrörnunin ekki á svo
háu stigi aö þig rámi ekki f staö-
reyndir.séuþær rifjaðar uppmeö
þér. — Ég skal þvl eyöa stundar-
korni meö þér, þótt ég kysi aö
eyöa timanum til annars
skemmtilegra.
Fyrirsögn þin er; „óveröskuld-
uö upphefö”. Ja, sér er nú hver
uppheföin! — Manstu nokkuö,
hvernig þú hófst þennan „leik”?
Afgreiðslubann i tolli
Dag nokkurn, þegar komiö var
meö vitaminpappira f rá Elmaro I
toll, var tilkynnt, aö án stimpils
lyfjaeftirlitsins, fengjust þeir
ekki afgreiddir. Lyfjaeftirlitið,
sem þú veitir forstööu, haföi sett
afgrei&slubann á vitamin í tolli.
Þú manst vonandi eftir fundum
meö landlækni og samkomulagi,
sem þar var gert, og aö hann fól
þér framkvæmd þess.— Svo og
hvernig þú inntir þaö af hendi.
Rámar þig ekki einnig I hvers
vegna ég kraföi landlækni, á
fundi I ráöuneytinu, raka fyrir
afgreiöslubanninu i tolli. Ég
spuröi 2var, en hann þagöi. — Þá
kannaöist þú viö aö hafa framiö
þá lögleysu.
A svona lágkúrulegan hátt
hófstu þennan ljóta leik, Almar.
Hugtakiö ,4jótur” i þessu sam-
bandi, skal ég rökstyöja, óskir þú
þess, en nokkuö mun þaö skýrast I
þessu bréfi til þin.
Mannréttindi
Aldrei hef ég farið i felur meö,
aö ég hef flutt inn náttúrleg lyf,
enda eru þau utan apóteka og
ltócna, einsog eölilegt er,þar sem
þau eru utan náms þeirra.
En i lækna- og lyfjastétt finn-
ast fjendur þessara náttúrlegu
e&ia. En varla aörir en þeir, sem
telja sig hafa eins konar einok-
unarrétt á sjúklingum. En þann
rétt öölast enginn, þótt hann lesi
lyfja- eöa læknisfræöi, þvl aö þaö
er borgaralegur réttur hvers
manns aö velja sér náttúrleg efni,
ef honum sýnist svo. Enda ber
læknirinn enga ábyrgö á heilsu
okkar. Og myndi ekki gera, þótt
horfiö væri frá þvi skuggaíega
skipulagi — eöa skipulagsleysi —
aö leggja ekki höfu&áhershi á aö
fyrirbyggja sjúkdóma, í staö
þess aö biöa eftir þeim. Og þar
þarf m.a. aö beita næringarfræö-
inni.
Þaö er þvi þverbrot á mann-
réttindum aö banna nokkrum
frjálsan aögang aö náttúrlegum
lyfjum, og þeim holle&ium, sem
viö viljum velja okkur.— Og þaö
er harla alvarleg mismunun á
mannréttindum.þegarþeim, sem
hallast aö neyslu hollefna, er þaö
bannaö, en allir hafa frjálsan aö-
gang aö þeim heilsuska&legu
efiium, sem á markaönum eru, án
nokkurra afskipta þeirra, sem
banna vilja hollefnin.
Þaö er þvi ástæöa til aö spyrja
þá, ekki einungis um afstööu
þeirra til lýöfrelsis, heldur einnig
um áhuga þeirra fyrir bættu
heilsufari. —
Samþykkt lyfjalaganna á siö-
asta Alþingi fól þvl i sér: mis-
mununogbrotá mannréttindum,
þótt þingmenn hafi ekki gert sér
þess grein i „hita” slöustu daga
þingsins og timaskorti — þeir
færöu apðtekurum réttindi, sem
þeireiga engan sérréttá, og hægt
er aö misnota á herfilegasta
hátt.
Lög - reglugerð
Ég er ekki meðal hinna óskeik-
ulu. Þaö var því ekki loku fyrir
þaö skotiö, aö ég flytti inn ein-
hverjar tegundir, sem apótekarar
teldu sig hafa meiri rétt til. — Og
hafir þú, Almar, taliö svo vera,
var ekkert eölilegra en aö þú
ræddir þaö og legöir fram þin
rök. Heföi samkomulag ekki
náöst vegna skiptra skoöana, bar
þér aö afhenda dómstólunum
máliö, teldir þú ástæöu til. Þetta
var hin eölilega, rökrétta leiö,
sem flestir heföu taliö sér skylt aö
fara. — En fórst þú þessa sjálf-
sögöu leiö, Almar? Nei, ekki al-
deiiis. Svo „stórmannlega”
stóðstu aö verki, aöþúfórst aftan
aö Elamro, talaöir ekki viö okk-
ur, eöa tilkynntir skriflega neinar
ákvaröanir, eöa barst fram fyrir-
spurnir, — ekkert af þessu gerö-
iröu — heldur læddist aftan aö og
settir afgreiöslubann i'tolli, nema
pappirár væru stimplaöir i
lyf jaeftirlitinu. — Slik voru
vinnubrögö þin, slik reisn þi'n, viö
okkar fyrstu kynni. — Deildar-
stjóri i ráöuneyti.
Vonandi er þetta meöal ein-
dæma.
Fyrirsögn þin var: „óverö-
skulduö upphefö” Þetta veitir
þér veröskuldaöa „upphefö”.
Rakalausar banntilraunir
þínar, sem hér skulu ekki raktar,
veita þér einnig verðskuldaða
„upphefö”
Þú minnist á lög. — Þau hafa
ekki verið þér tungutöm. Ég hef
margspurt, skv. hvaða lögum af-
greiöslubanniö og banntilraunir
þinar á vitaminum eru. Og þá
bentir þú oftast á lyfjareglu,-
geröina frá 1967, sem ég mót-
mælti sem broti á lögum. Og
henni var aldrei beitt gegn inn-
flutningi vitamina, þótt þar væru
þau bönnuö, utan apöteka. —
Þeir,sem þá fóru meö þessi mál,
sáu sóma sinn meiri I aö beita
henni ekki, en aö brjóta lög og
beita valdniöslu.
Teljir þú þig ekki hafa gert
þaö, spyrég enn einu sinni: skv.
hvaöa lögum framdir þú banntil-
raunir þlnar og afgr.-banniö i
tolli?
Hryggilegt er, sé svo komiö I
okkar þjóöfélagi, aö einstakir
embættismenn mikilvægra stofn-
ana geti leyft sér aö misbeita þvi
vaidi, sem þeim er fengiö i
hendur og trúað til aö fara meö i
þágu einstaklings eöa almenn-
ings^ Þaöer fullkomin ástæöa til
aö spyr ja. — Og fullkomin ástæöa
tU, aö háttsettir embættísmenn
séu ekki gerðir aö „heUögum
kúm”, sem ekki megi stugga viö,
misbeiti þeir valdi sinu.
Vandræðafálm —
lasburða minni
Þú segir landlækni og lyfja-
nefnd eiga aö fjalla um vörur,
sem vafi leiki á, hvort séu lyf eöa
aimennar neyshivörur.
Þau fæöubótaefni, sem um er
deilt, hefuröu viöurkennt, aö séu
almennar neysluvörur. Þær
koma þvi hvorki landlækni, lyf ja-
nefnd eöa þér viö. — En hver
hefur hunsaö þessar staöreynd-
ir?
Þií Almar, I eigin persónu
hefur gert þaö, sem I þinu valdi
hefur staöiö tU aö torvelda og
banna þessar vörur utan apð-
teka. Nálgastþetta ekki, skv. eig-
in upplýsingum, embættisafglöp,
sem valdiö hafa innflytjendum
töfum og tjóni, og sýnt rétti al-
mennings furöulitla viröingu?
En nú teluröu mig „upphefja
þig óveröskuldað” meö þvi aö
bendla þig viö afskipti, sem til-
heyri landlækni og lyf janefnd. Þú
vilt þvf færa ábyrgö geröa þinna
yfir á þá. En hafiröu slett þér inn i
störf þeirra, vUtu þá ekki bera á-
byrgöina sjálfur?
Sjálfur segistu hvorki hafa lög-
gjafar- né ráöherravald og
starfa skv. „lyfja- og lyfsölulög-
um”, og sinna eftirliti skv. þeim.
Athugum þetta eilftiö nánar.
Var afgreiðslubannið I toUi og
banntUraunir þinar skv. lyfsölu-
lögunum og samþykktar af ráö-
herra? — Hvorugu var til aö
dreifa. — Ég sé þvi ekki betur en
aö þú hafir bæöi tekiö þér „lög-
gjafar- og ráöherravald.
Oft baö ég þig aö benda á þær
greinar laganna, sem heimiluöu
þér afskipti þin. En aldrei
bentiröu á neina. Og braut reglu-
geröin þln ekki I bága viö lyfsölu-
lögin? Henni var mótmælt sem
broti á lögum. Og ráöherra ósk-
aöieftir endurskoöun á henni. En
af henni hefur ekkert frést. —
En þú vitnar óspart tU hennar,
eins og hún sé I fullu samræmi viö
lög.
Þegar litiö er á ofangreind at-
riöi,er ljóst, aö „uppheföin”,sem
þú baöst undan, er margfaldlega
„veröskulduö”.
Þú segir „aödróttanir” minar
ekki svara veröar. Séu þær rang-
ar eru þær leiðréttinga veröar.
Og hafi ég þig fyrir rangri sök,
mun ég biöja afsökunar. En séu
„aödróttanir ” mlnar rökréttar af
geröum þlnum, er sökin þih.
Þú segir mig snúa út úr og
leggja þér i munn lagatexta, sem
blaöamaöurinn hafi vitnað i. —
Lestu viötal ykkar. Þá séröu, aö
þú vitnar til nýju iaganna, en ekki
blaðamaðurinn. Ég fer þvl rétt
meö tilvitnun, — þú rangt meö
staðréyndir.
Enn segir þú: „Oröaval Mar-
teins, t.d., „hættuskammtar”,
„lyfjavald” „bannstefiia" og
„bannlisti”, er hans eigiö, og þvl
heUbrigöisyfirvöldunum, ogþar
meö mér, óviökomandi”. Hvort
þú og heilbrigöisvöld eru eitt og
hiö sama, læt ég þig og þau um.
En au&velt er aö rökstyðja, aö
hin tUvitnuöu orö eru tilheyrandi
þér og þeim. En ósköp er minni
þitt or&iö lasburöa, getiröu ekki
tengt þau eigin baráttu og reglu-
gerðinni þinni. — Láttu mig vita,
þurfi ég aö hjálpa þér. Skal þó
rif ja upp meö þér „bannlistann”,
þvi að hann er frá 1975.
Manstu ekkert eftir bannbréf-
inu frá bvi ári, meö lista yfir 35
teg. bannlýstum? Hverjir undir-
rituöu hann. og sendu fyrir hönd
ráöherra, sem fékk ekki einu
sinni afrit af bréfinu? Rámar þig
ekkert i þetta? Þarftu frekari
skýringa á þessum oröum?
Þaö vUl svo til, aö ég veit, hve
langan tima þaö tók aö „berja”
bannbréfiö saman, þvi aö þær
vikur neitaöiröu aö stimpla
pappira (skv. hvaöa lögum?) og
sagöir aö bréf væri á leiöinni. —
Þvf „kyngduö” þiö svo. Og
vonandi hefur það veriö bragö-
gott, svo krydduð sem bannrökin
voru.
Geðþóttaákvarð-
anir o.fl.
Framkvæmd lyfjamála engar
ge&þóttaákvar&anir einstaklinga,
segiröu. — Ekki skal ég dæma um
ákvaröanir eiginlegra lyfjamála.
En hvernig viltu skýra af-
greiöslubanniö I tolli, ogtilraunir
þinar tU aö banna vitamin utan
apðteka? Voru þaö ekki hreinar
geðþóttaákvaröanir, utan viö lög
og rétt? — Heföi ekki veriö
embættisskyldu þinni nær, og
meir til almenningsheUla, aö
kynna þér sem best skaðaverkan-
ir lyf ja og reyna aö vinna þar aö
umbótum?
Hverju hef ég svo dróttaö aö
Alþingi og fráförnum ráöherra?
Staöreyndir erusvo ótuktarlegar,
Almar, að halda áfram aö vera
sta&reyndir.þóttþærséu nefndar
ööru nafni tii af sökunar eöa ásök-
unar. Einnig þótt reynt sé aö
þegja þær i hel.
Bæði Alþingi og ráöherrum ber
aö þakka þaö, sem vel er gert. En
benda á þaö, sem miöur er gert.
En f þvl eru ekki fólgnar dróttan-
ir.
Þetta ætti maöur i þinni stööu
aö vita og skilja. En þú breytir
hér réttu i rangt sem viöar.
Slfc undantekning sem þaö er,
a& þú farir rétt meö, er sann-
gjarnt aö taka dæmi þér tU
hróss: I bréfi til min, 12. apr. 1977,
segirðu: „þaö er alkunn staö-
reynd, aö mörg efni eru jöfnum
höndum lyf og almenn neyslu-
vara. Þaö sem sker úr um I hvorn
flokkinn vara fellur er, I hverju
skyni hún er framleidd og seld”.
En þau vitamin og önnur fæöu-
bótaefni, sem þú hefur i lif og blóö
stritast viö a& banna, nema i
apðtekum, eru einmitt „fram-
leidd og seld” sem fæöubót. En
þótt þú vitir hiö rétta, helduröu
samt áfram aö vinna gegn því.
Svo tamt er þér aö snúa viö
staðreyndum, aö þú myndir lik-
lega veröa „Iþróttamaöur árs-
ins”, væri þetta keppnisgrein.
Seinheppni
Þú lýkur pistli þinum meo
þeirri aövörun, aö ekki skuli um
„þessi mál fjallaö i lágkúru i-
myndaörar hagsmunabaráttu”.
Þessi aövörun þin, Almar, er
eitt ljósasta dæmi þess, hve fá-
dæma seinheppinn þú ert i
athugasemdum, þvi aö erfitt er
aö hugsa sér hagsmunabaráttu á
lægra plani en að berjast fyrir
því, aö almenningur sé rændur
rétti sinum til hollefna, — til ein-
okunar þeim, sem hafa hvaö
mestar tdcjur i þjóöfélaginu.
En fyrir þessu hefur þú barist
undanfarin ár og beitt a&fer&um
sem hæfa málstaðnum mætavel,
eins og hanski hönd. En síöur
sæmandi manni hátt settum 1
heilbrigöiskerfinu. — Erum við
ekki sammála um þaö?
Þessi „lágkúra imyndaðrar
hagsmunabaráttu” hitti þvl sjálf-
an þig, en ekki mig, Almar. — Og
þvi miöur áttu þaö rikulega skiliö,
þvi aö tilraunir þlnar til a& banna
almenningi frjálsan aögang aö
heilsubótaefiium, eru svo sannar-
lega niöri á linu „lágkúru”.
Þú gafst þarna sjálfur betri
lýsingu á vinnubrögðum þinum
óg tilgangi en mér haföi komiö i
hug. — Þakka þér fyrir þaö,
Almar.
Þú fárast fádæma öfugt að I upp-
hafi, er þú hófst þessa „lágkúru”
baráttu þlna, ogréöist aö baki, I
staö þess aö ganga framan aö. —
Og mér viröist sú upphafsaðgerö
þin, sem þúlýsir svo vel meö eig-
in oröum: „lágkúru hagsmuna-
baráttu”, geti veriö samnefiiari
allra þinna afskipta af þessu
máli.
Vel er mér ljóst, aö þetta „lág-
kúru”-skeyti, ætlaöir þú mér. Og
ég skal viöurkenna, a& ég hef
dregiö aö ljúka þessu bréfi vegna
þess, að reksturshættir mínir á
Elmaro eru þér óviökomandi
meö öllu. Og mér ekki aö skapi aö
birta. Ensá reksturvar ekki nein
„Imynduö hagsmunabarátta”,
eins og þú oiöar þaö.
Elmaro rak ég I aldarf jóröung
einn. Og þaö var „hagsmunabar-
átta” án launa 1 venjulegri merk-
ingu. Höfuöatriöi var aö byggja
upp fyrirtæki til þjónustu viö á-
hugamál, vaxiö úr fenginni
reynslu af heilsugildi vitamina og
annarra fæ&ubótaefna. En þetta
átt þú vist erfitt meö aö skilja.
Góörar hjálpar naut ég I fjöl-
skyldunni. En ekkert okkar átti
svo mikiösem einakrónu i banka,
er Elmaro (heildversl.) var, eftir
25ár, afhentöörumtilumsjár, án
skulda, og án eigna, — nema
þeirra, sem aö var keppt: úrvals
hollefnaumboöa viöa um Evrópu,
og viðar. — Leit aö úrvali, eins og
vera ber I þessari grein, — hefur
veriö rikjandi sjónarmiö 1
Elmaro, ofar allri krónuhyggju.
Og ég vona aö svo veröi ávallt á-
fram.
Einnig vona ég, a& Elmaro eigi
langa framtíð fyrir sér, og eigi
eftir aö stuöla aö bættri heilsu
margra, þótt þú, Almar & Co.,
haldir áfram aö vinna þeirri
,4iugsjón”, aö koma Emaro á-
kné. — Þú hefur unniö þér til
„heiöurs” aö eiga viröingarverö-
an hlut I þeim tilraunum.
Hitt er svo vist, aö hefðir þú
sem embættismaöur leitaö hins
rétta i þessumáli.heföi enginn á-
rekstur oröiö. — En þú hefúr látiö
blinda öfughyggju ráða geröum
þinum frá upphafi.
Við suma menn getur bæöi
verið fróölegt og ánægjulegt aö
deila. Þvl miöur veröur þaö ekki
sagt um þig, Almar. — Málsvörn
þin einkennist af undanbrögöum,
mótsögnum og rangfærslum. Og
þú viröist bera hryggilega litla
viröingu fyrir staöreyndum. —
Rök skulum viö ekki minnast á.
— En meö þvi aö viöurkenna skil
lyfja og almennrar neysluvöru,
hefuröu viöurkennt rangfærslur
og réttarbrot undanfarandi ára.
Ég læt svo staöar numiö aö
sinni og óska þér heilsu og
þeirraheilla á þessu nýja ári, aö
þú vinnir aö rétti bæöi lyfsala og
almennings. Lyfsölum þaö, sem
lyfsölumber. Almenningi náttúr-
leglyf og almennar neysluvörur,
skv. þinni eigin skilgreiningu,
sem þú hefur ávallt unniö*gegn.
Samræmi oröa og gerða, eru i
bágbornasta lagi.
Meö bestu óskum
Marteinn M. Skaftfells