Þjóðviljinn - 03.01.1985, Qupperneq 16
Aðalsími: »1333. Kvöldsími: 81348. Hetgarsími: 81663.
Fimmtudagur 3. janúar 1985 1. tölublað 50. árgangur
Norska inflúensan
Bóluefni af skomum skammti
Ekki hafa enn greinst tilfelli hér á landi en nauðsynlegt
er að bólusetja sjúklinga og gamalmenni
Skæð inflúensa herjar nú í Nor-
egi og lýsir hún sér í upp-
köstum, beinverkjum og höfuð-
verk. Að sögn Guðmundar Sig-
urðssonar aðstoðariandlæknis
hefur hún ekki greinst enn hér á
landi. Bóluefni er af skornum
skammti en nauðsynlegt er að
bólusetja lungna- og hjartasjúk-
linga, sykursýkisjúklinga og gam-
almenni.
Allt bóluefni er t.d. búið á
Heilsuverndarstöðinni í Reykja-
vík og sagði Lúðvík Ólafsson,
settur borgarlæknir, að þetta
stafaði m.a. af því að undanfarin
tvö ár hefði inflúensu lítið gætt
hér á landi og hefði því verið á
ferðinni visst andvaraleysi en
einnig væri ástæðan sú að bólu-
efnið væri dýrt - hver skammtur
kostar 300 kr. - og vildu menn því
ekki panta í stórum stfl og eiga
það svo á hættu að aðeins lítill
hluti þess yrði notaður.
Ekki er enn fyllilega ljóst af
hvaða stofni inflúensan í Noregi
er en Lúðvík Ólafsson sagði að ef
um sama stofn væri að ræða og
gengið hefði í Evrópu sl. 3-4 ár
mætti ætla að hún þyrfti ekki að
leggjast mjög hart á sjúklinga ef
hún kæmi hingað.
Þess skal getið að það tekur um
3 vikur að panta bóluefni en það
kemur frá Frakklandi um Dan-
mörku en síðan verður það ekki
virkt fyrr en 2 vikum eftir bólu-
setningu. Lúðvík Ólafsson sagði
að lyfsölustjóri hefi gert vissar
ráðstafanir til að fá afgreiðslu
þess flýtt.
-GFr
El Salvador
100 þúsund
hafa
safnast
Um 100 þúsund krónur höfðu
safnast um áramótin á höfuð-
borgarsvæðinu í söfnun El Salva-
dornefndarinnar sem nú stendur
yfir. Fé þessu verður varið til
lyfja og sjúkragagna á yfirráða-
svæði þjóðfrelsisaflanna í El Sal-
vador.
Brýn þörf hefur verið á sjúkra-
gögnum þar sem stjórnarherinn
hefur að undanförnu stundað
grimmúðlegan lofthernað á yfir-
ráðasvæði skæruliðanna. Stjórn-
arherinn neitaði einnig að virða
vopnahlé það sem skæruliðarnir
höfðu boðað um jólin og ára-
mótin. Söfnunin hér á landi er
liður í alþjóðlegri stuðningsher-
ferð til þess að bæta úr brýnum
skorti á lyfjum á yfirráðasvæðum
þjóðfrelsisaflanna. Söfnunin
stendur út janúarmánuð, og hafa
söfnunargögn einnig verið send
út á landsbyggðina. Hægt er að
greiða beint inn á gíróreikning
303-25-59957, merkt Jólasöfnun
1984. -ólg.
Jóhann Hjartarson sigraði á Útvegsbankamótinu í skák sem haldið var sl. Iþví góðu ári með sigri í þessu móti en sem kunnugt er hefur hann tekið
sunnudag eftir að hafa sigrað Friðrik Ólafsson í æsispennandi viöureign. Hlaut gífurlegum framförum undanfarin misseri og virðist ekkert lát vera á. Myndin
Jóhann 131/2 vinning. Friðrik og Helgi Ólafsson skiptu með sér 2. og 3. sæti sýnir viðureign þeirra Jóhanns og Friðriks þar sem úrslit réðust. Ljósm. -eik.
með 121/2 vinning en Jón L. Árnason hafnaði 1 4. sæti. Jóhann Hjartarson lauk I
Náttúra
Fuglar ráðast á skokkara
Um leið og fólk hœttir að hlaupa láta fuglarnir af árásum sínum
Skák
Karl hætti
Karl Þorsteins sem staðið hefur
sig með mikilli prýði á Evrópum-
eistaramóti unglinga í skák í Hol-
landi hefur hætt þátttöku fyrir
síðustu umferð mótsins vegna
fráfalls náins vinar hérlendis.
Karl var í 3.-4. sæti á mótinu
fyrir síðustu umferðina sem tefld
var í gær.
Slysfarir
48 íslend-
ingar fórust
Töluvertfœrri en árið
á undan
Á nýliðnu ári fórust 48 íslend-
ingar af slysförum innanlands,
þar af 23 í umferðarslysum og 18
drukknuðu. Árið á undan fórst
61 af slysförum.
5 erlendir ferðamenn fórust
hérlendis á sl. ári, allir í einni og
sömu vikunni um miðjan ágúst í
þremur slysum. 13 erlendum
ferðamönnum og sjómönnum
var hins vegar bjargað úr lífs-
háska ýmist á sjó eða á landi.
8 íslensk skip fórust á árinu og
með þeim 7 menn.
-lg-
Ílæknatímariti sem kom út í
Bandaríkjunum fyrir skömmu,
segja svissneskir læknar frá því
að þar i landi verði fólk, sem er að
skokka um skógarstíga, iðulega
fyrir árás fugla. Þeir koma í hóp-
um og ráðast að fólkinu og veita
því rispur og smáskrámur, en um
leið og fólkið hættir að hlaupa
fara fuglarnir á brott. Drógu
læknarnir þá ályktun að með því
að hlaupa í skógunum brjóti fólk
eitthvert iögmál sem ríki og því
ráðist fuglarnir að friðarspillin-
um.
Þjóðviljinn bar þetta undir
Ævar Petersen fuglafræðing og
sagði hann að þetta þyrfti ekki að
koma á óvart, svo ekki væri nú
talað um ef þetta gerðist um
varptímann. Margar fuglateg-
undir verja hreiður sín út í hörg-
ul. Sagðist Ævar hafa orðið fyrir
árás skógarþrasta þegar hann
nálgaðist hreiður. Þá benti hann
á að í Bandaríkjunum væri fálka-
tegund, sem ræðst aftan að fólki
og beitir klónum, nálgist það
hreiður hans. Verða sérfræðingar
sem vilja rannsaka þennan fugl
að hafa sérstaka Ieðurhlíf á baki
og höfði til að slasast ekki.
Þá benti hann á að einn fræg-
asti fuglaljósmyndari, sem uppi
er, varð fyrir því er hann hugðist
mynda ugluhreiður á Spáni, að
uglan læddist aftan að honum,
Elsta fslenska skipið sem enn er
gert út er Nakkur SU380 frá
Djúpavogi og er það 72ja ára
gamalt. Þetta kemur fram í Is-
lenska sjómannaalmanakinu
fyrir árið 1985 sem var að koma
gerði árás og kroppaði úr honum
annað augað. Loks benti Ævar á
að það væri alþekkt að fuglar æs-
út. Þar kemur einnig fram að ís-
lenski skipastóllinn er 941 skip,
194.275 brúttórúmlestir að
stærð, og er þá miðað við 1. des-
ember sl.
Af þessum flota eru 106 skut-
ast mjög ef fólk fer um svæði
þeirra með látum.
togarar og 725 fiskiskip stór og
smá. Á árinu sem er að líða voru
skráð 17 ný skip, samtals 6.269
brúttórúmlestir að stærð, en 15
skip, samtals 5.797 brúttórúml-
estir að stærð, voru tekin af skrá,
af ýmsum orsökum.
Þetta er í 60. skiptið sem ís-
lenska sjómannaalmanakið kem-
ur út á vegum Fiskifélags íslands.
í almanakinu nú er efnið mjög
fjölbreytt, svo sem skrár yfir öll
íslensk þilfarsskip, ýmis lög og
reglugerðir varðandi veiðar og
vinnslu, vitaskrá, flóðatöflur og
fjarskipti, meðferð íslenska fán-
ans svo og upplýsingar um örygg-
ismál.
-S.dór
UNESCO
Sex sögðu nei
Sex þingmcnn greiddu atkvæði á móti framlagi íslands (1.351 þús-
und) til UNESCO, menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna,
við afgreiðslu fjárlaga. Það voru flmm þingmenn Sjálfstæðisflokksins
og formaður Alþýðuflokksins: Gunnar Schram, Halldór Blöndal, Ell-
ert Schram, Björn Dagbjartsson, Birgir ísleifur Gunnarsson og Jón
Baldvin Hannibaisson.
-S.dór
Skip
Nokkur á áttræðisaldri
Elsta íslenska skipið, 72ja ára, gert út frá Djúpavogi