Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1999, Side 4
4
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 JLlV
* < fréttir________________________
Sinnaskipti umhverfisráðherra varðandi Fljótsdalsvirkjun:
Verðum að vernda
hálendið
- sagði Siv Friðleifsdóttir fyrir flokksþing Framsóknarflokksins
Siv Friðleifsdóttir hefur skipt um
skoðun á umhverfismati fyrir
Fljótsdalsvirkjun frá því hún varð
umhverfisráðherra. í heilsíðuviðtali
við Morgunblaðið 19. nóvember
1998, eftir að hún hafði ákveðið að
bjóða sig fram til varaformanns
flokksins gegn Finni Ingólfssyni,
sagði hún við Morgunblaðið, að-
spurð um afstöðu sína til umhverf-
ismála, málefna hálendisins, virkj-
ana og stóriðju: „Okkur er öllum að
verða betur Ijóst hvað hálendið er
dýrmætt. Við erum í hópi útvalinna
þjóða hvað óspillta náttúru varðar.
Ég tel að við verðurm að vernda há-
lendið, sem og aðrar náttúruperlur
landsins. Ég útiloka þó ekki frekari
uppbyggingu vatnsaflsvirkjana, en
við verðum að fara með gát. Það er
von mín að Landsvirkjun taki frum-
kvæði í því að láta umhverfisathug-
anir sínar fara í sama ferli og lög-
formlegt umhverfismat. Landsvirkj-
un hefur í dag virkjanaleyfi fyrir
Fljótsdalsvirkjun en það leyfi var
gefið út áður en lög um umhverfis-
mat voru samþykkt. Það er mitt
sjónarmið að náttúran eigi að njóta
vafans og nota eigi bestu tæki, s.s.
umhverfismat, til að dæma um
áhrif framkvæmda."
Ólafur Magnússon, fyrrv. formað-
ur umhverfissamtakanna Sól í
Hvalfirði og frambjóðandi á lista
Framsóknarflokksins í Reykjanes-
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra.
kjördæmi í alþingskosningunum í
vor, stendur fast á því að Siv Frið-
leifsdóttir hafi á kjördæmisþingi í
aðdraganda síðasta flokksþings
flokksins stutt það markmið um-
hverflssinna innan flokksins í kjör-
dæminu um að flytja tillögu um um-
hverfismat fyrir Fljótsdalsvirkjun á
flokksþinginu. Hún hafi jafnframt
lýst því sem sérstöku fagnaðarefni
að tillaga um það kæmi úr hennar
eigin kjördæmi, Reykjaneskjör-
dæmi.
I samtali við DV í gær sagði Siv,
aðspurð um það mál, að hún hefði
aldrei skipt um skoðun varðandi
Ólafur Magnússon, fv. formaður
Sólar í Hvalfirði.
umhverfismat á Fljótsdalsvirkjun
frá því á kjördæmisþinginu og síðan
flokksþinginu. Ólafur Magnússon
hafi ekki verið á kjördæmisþinginu
þar sem hann hafi legið veikur með-
an á því stóð og því ekki í aðstöðu
til að fullyrða um afstöðu hennar.
„Siv lýgur“
„Siv er ekki bergnumin af virð-
ingu fyrir sannleikanum. Hún lýg-
ur,“ sagði Ólafur Magnússon, vara-
maður í miðstjórn Framsóknar-
flokksins og talsmaður þeirra sam-
flokksmanna umhverfisráðherra
sem kreíjast umhverfismats á
Fljótsdalsvirkjun. Eins og greint
var frá í DV í gær neitar umhverfis-
ráðherra því að hafa minnst á
Fljótsdalsvirkjun á kjördæmisráði
Framsóknarflokksins á Reykjanesi
síðastliðið haust og hafi að því 250
vitni.
„Ég hef hins vegar að því 15 vitni
að Siv lofaði stuðningi við að fram
kæmi tillaga um umhverfismat á
undirbúningsfundi sem haldinn var
i Kópavogi fyrir fundinn í kjördæm-
isráðinu,“ sagði Ólafur.
„Því miður var ég veikur í rúm-
inu og komst því ekki á umræddan
fund. Ég hafði hins vegar tekið þátt
í undirbúningi hans og meðan á
honum stóð hringdi ég í Siv og
spurði hana hvernig þessari tillögu
hefði reitt af. Þá sagði hún mér það
að Hjálmar Árnason hefði ekki stutt
hana og verið á móti því að tillaga,
þar sem Fljótsdalsvirkjun yrði sér-
staklega nefnd, færi í gegn. Því
hefði hún verið felld út í lokatextan-
um sem samþykktur var á kjör-
dæmisþinginu," segir Ólafur við
DV.
Ólafur Magnússon segist ætla að
halda áfram baráttunni fyrir lög-
formlegu umhverfismati á Fljóts-
dalsvirkjun. Hann varð þekktur
sem baráttumaður í samtökunum
Sól í Hvalfirði en starfar annars í
Osta- og smjörsölunni. -SÁ
10 ára drengur lenti í hundi sem hafði glefsað í annað barn á síðasta ári:
Krefjast aflífunar
hunds sem beit barn
Forráðamenn 10 ára drengs í
Kópavogi hafa farið fram á það hjá
lögreglu að hundur við Hjallaveg
verði aflífaður í kjölfar þess að
hann beit drenginn í handlegg og
glefsaði í buxur hans á miðvikudag.
Sauma þurfti fimm spor í handlegg
drengsins. Heilbrigðisyfirvöld í
Kópavogi eru með málið í
vinnslu.
Drengurinn, Adam Ósk-
arsson, var með föður sín-
um i vinnu við Hjallaveg á
miðvikudag þegar hann
hugðist stytta sér leið yfir skurð í
götunni þar sem framkvæmdir
standa yfir. Hann fór inn á lóð þar
sem hundurinn er skráður og var
bundinn. Hundurinn beit hann
skyndilega í handlegginn og reyndi
svo að bíta hann líka í fótinn en
drengnum tókst að víkja sér í burtu.
Farið var með Adam á slysadeild
þar sem gert var að sárum
hans.
Málið var kært til
lögreglu og verður
það síðan sent heil-
brigðisyfirvöldum.
Sigurborg Daða-
dóttir hjá Heil-
brigðiseftirliti
Kópavogs
sagði við
DV að
um-
rædd-
gert að setja múl á dýrið;
samkvæmt samþykkt um
hundahald.
Ákvæði hundasam-
þykkta eru hins vegar
skýr. Hafi hundur bit-
ið mann getur tjón-
þoli, sem í þessu til-
felli eru foreldrar
fyrir hönd drengs-
ins, krafist þess að
hundur verði aflíf-
aður telji þeir
hann hættulegan.
Eigendur hunds-
ins hafa þann
hund-
ur
hefði
glefs-
að í
bam á
síðasta
ári. Þá
hefði
eigend-
um verið
Sárið eftir hundskjaftinn er Ijótt að sjá.
andmæla-
rétt að
geta far-
ið fram
á að
fagaðili
meti at-
ferli
dýrsins.
Eftir það
ákveða
heilbrigðis-
yfirvöld
hvort aflifa
jkuli það.
Samkvæmt
upplýsingum DV hef-
ur það tíðkast hér á
höfuðborgar-
svæðinu á
undanfórn-
um misser-
um, afdrátt-
arlítið, að
verði hund-
ar vísir að
því að bíta
fólk eru
þeir í lang-
flestum til-
fellum af-
lífaðir fari
tjónþolar fram
á slikt. -Ótt
Sauma þurfti fimm
spor í handlegg
Adams Óskarssonar
eftir að
DV-mynd Teitur
frVPF’.V
LögganíSéð og heyrt
Yfirstjórn lögreglunnar mun nú vera
að íhuga hvort hún grípur til aðgerða
vegna nýútkomins tölublaðs tímarits-
(ins Séð og heyrt. Þar er viðtal við þrjá
handboltamenn á Akureyri, þá
Sverri Bjömsson, Hall-
dór Sigfússon og Leó
Örn Þorleifsson, sem
starfa allir í lögreglunni
á Akureyri. Á mynd
sem fylgir greininni má
sjá þessa þrjá lögreglu-
menn handijatla kylfu
og handjárn en mjög
strangar reglur gilda innan lögreglunn-
Íar um meðferð þessara hluta. Á mynd-
j inni mundar einn drengjanna kylfuna
'gegn þjálfara sínum meðan hinir tveir
handjárna þjálfarann og er sagt að yfir-
manni lögreglunnar á Akureyri, Daní-
el Guðjónssyni, sé ekki skemmt.
Rothögg
ÍElstu menn á þingi muna ekki eftir
því að nokkur ráðherra hafi byrjað fer-
il sinn með sömu ósköpum og Siv
Friðleifsdóttir. Eins og frægt er orðið
hefur ráðherradómurinn valdið algjör-
um sinnaskiptum hjá
henni í sambandi við af-
stöðuna til umhverfis-
: mats fyrir Fljótsdals-
virkjun. Ekki verður
sagt að stuðnings-
mönnmn Finns Ing-
ólfssonar hafi leiðst
þær hremmingar sem
i .umhverfisráðherrann hefur komið sér
í. En þeim varð þó ekki um sel þegar
Ólafur Magnússon, fyrrum formaður
|Sólar í Hvalfirði, gaf ráðherranum það
;sem á boxaramáli nefnist „knock-out“
eftir að Siv hafði haldið því fram að
jjhún hefði ekki breytt um skoðun um
að sökkva Eyjabökkum enda ekki berg-
j numin af þeim. Ólafur upplýsti nefni-
llega í sjónvarpi að á kjördæmisþingi í
IDigranesi til undirbúnings flokksþingi
Framsóknar hefði Siv ekki bara lýst
sérstökum stuðningi við umhverflsmat
heldur fagnað að tillaga um það kæmi
j einmitt úr hennar eigin kjördæmi...
Áhugi á Hjörleifi
Hinn sólbrúni háskólaprófessor
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
iskfifar opna grein í Morgunblaðið í
|gær þar sem hann beinir þeirri fyrir-
spurn til Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur borgarstjóra hvort
Jón Ólafsson hafi greitt
í kosningasjóð listans.
Hannesi virðist heitt í
hamsi og veður úr einu
í annaö og spyr m.a. að
því hvort Ingibjörg hafi
haldið veislur fyrir
Jón í Höfða. Það sem
kemur mest á óvart er skyndilegur
áhugi Hannesar á manni Ingibjargar,
Iljiirleifl Sveinbjörnssyni, því Hann-
ges hefur áhuga á því að vita hvort Ingi-
! björg og Hjörleifur eiginmaður hennar
myndu komast af með 79 þúsund á
jmánuði og hvort eiginmaðurinn sé á
fullum launum hjá Jóni Ólafssyni en
Hjörleifur er yfirþýðandi hjá íslenska
.útvarpsfélaginu...
Ég málaði hana
Erfingjar Nínu Tryggvadóttur heit-
linnar héldu sýningu í Reykjavík á
j verkum myndlistarkonunnar fyrir um
Aratug þar sem margt var um manninn.
Myndirnar á sýningunni komu úr dán-
arbúi Ninu en hún var
mikill vinur annars
j listamanns, Valtýs Pét-
urssonar, sem var
| æinmitt viðstaddur sýn-
iinguna. Valtýr gekk
; um og heilsaði fólki
eins og honum einum
er lagið en nam svo skyndi-
lega staðar við olíumálverk í abstrakt-
stfl sem merkt var með upphafsstöfum
| Nínu og sagði: „Þessi mynd er ekki eft-
ir Nínu, ég málaði þessa mynd!“ Flestir
Ígestanna störðu á Valtý en síðar kom í
ljós að þeir sem héldu sýninguna höfðu
Itekið allar myndir sem fundust heima
hjá Nínu að henni látinni og merkt þær
henni. Ekki er vitað hvar umrædd
mynd eftir Nínu og Valtý er í dag...
Umsjón: Stefán Ásgrimsson
Netfang: sandkorn @ff. is
■wsia———MIM—