Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1999, Qupperneq 23
DV LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
23
Monica slysarokkur
Svo virðist sem óheppnasta ást-
kona heims sé ekkert sérlega hepp-
in utan ástarlífsins heldur. Fyrir
tveimur vikum slapp hún naumlega
við örkuml þegar hún klessti bílinn
sinn og virðist yfir höfuð mesti
slysarokkur þessa dagana. Nokkru
fyrir bílslysið þurfti hún til dæmis
fylgd út af Standard-hótelinu í Los
Angeles. Samkvæmt heimildum var
Monica að nýta sér tilboð sem oft
hafa verið kennd við gleðistund
(happy hour) þegar svo vildi til að
hún hellti kokkteilnum sínum niður
í fokdýrt teppið. Og ekki bara einu
sinni heldur mörgum sinnum. Mon-
ica er þó skynsöm kona og hún var
hjartanlega sammála hótelstjóran-
um þegar hann færði í tal við hana
hvort nú væri ekki nóg komið. Hún
dreif sig heim og við skulum vona
að hún hafi fengið heppilega fylgd.
Bíltæki ssettí Imfa kraftínn
KENWOOD
KDC-4070R bílgeislaspilarí með útvarpi.
FM/MB/LB. 24 stööva minni meö
sjálfvirkri stöðva innsetningu
og háþróaöri RDS móttöku.
4x40W 4 rása magnari.
RCA útgangur fyrir kraftmagnara.
Fullkomnar tónstillingar.
Laus framhliö.
Tilboðsveró kr. 25.950,-
—Ria4;.| ....—
þar sem gæðin heyrast
Ármúla 17, Reykjavík, sími 568 8840
Hátalarar
Gibson í
svörtum naríum
Mel Gihson hlýtur að hafa
verið glaður þegar gæluverk-
efni hans, kvikmyndin
Braveheart, hlaut fullt af Ósk-
arsverðlaunum árið 1996. Því
| miður hefúr nú verið opnuð
i heimasíða sem gefur til kynna
að myndin
hafi ekki verið
sú gæöafram-
leiðsla sem
menn héldu á
sínum tíma.
Því hefur til að
mynda verið
haldið fram að
í henni sé vel
| farið með sögulegar staðreynd-
ir en engu að síöur er myndin
nú ofarlega á íista yflr flestu
| aulamistök kvikmyndasögunn-
ar. Sem dæmi má nefna þá var
i böðull Williams Wallace í skóm
með eldrauðum gúmmísólum
j (en myndin á að gerast löngu
áður en gúmmí var fundið
j upp), svo ekki sé minnst á öll
skiptin sem bardagaaxirnar
bogna eins og þær séu einnig
gerðar úr gúmmíi. Einnig
gamli maðurinn sem missir
handlegginn í einni senunni;
I hann sést síðar i myndinni með
J báða handleggi á sínum stað.
Hið besta af öllu er að ein-
hverju sinni klifrar Mel sjálfur
yflr vegg og sést þá í svartar
nærbuxur undir pilsinu. Nú er
þá komin lausnin við hinni
aldagömlu gátu hverju Skotar
klæðast næst sér. Það veldur
mörgum sjálfsagt sárum von-
brigðum.
Engin minningar-
athöfn um Díönu
| Drottningin hefur víst
ákveðið að konungsfjölskyldan
muni ekki standa fyrir neinni
minningarathöfn þegar tvö ár
r verða liðin frá hörmulegum
dauða Díönu prinsessu hinn
| 31. ágúst nk.
í staðinn ætla drottningin og
aðrir í kon-
ungsfjölskyld-
unni að biðja
fyrir henni i
kirkjuferð
sinni sunnu-
daginn áður.
„Það er ósk
konungsfjöl-
skyldunnar að
hver og einn
minnist hennar í einrúmi,"
sagði talsmaður Buckingham-
;i hallar.
Ákvörðunin um að halda
ekki sérstaka minningarathöfn
um prinsessuna er sögð hafa
angrað bróður hennar,
Spencer jarl, og hefur hann því
ákveðið að bjóða litlu prinsun-
um, William og Harry, til Alt-
horp, sem er setur Spencerfjöl-
skyldunnar. Þar mun verða
haldin athöfn sem látnum
prinsessum hæflr.
32" breiðtjald með myndbandstæki
Einstök hönnun
BlackLine V32" breiðtjald
■ Svartur, flatur skjár og 100 riða flöktfrí mynd.
> Tærari, hreinni og skarpari mynd - sjálfvirk stilling.
■ Skiptir sjálfvirkt um myndform, 4:3 eða 16:9.
> 440 siðna minni í textavarpi.
■ Velur sjálfvirkt bestu mynd m.v. gæði útsendingar.
• Sjálfvirk, stafræn myndsía.
» Tveir hátalarar og bassahátalari, einstök hljómgæði.
■ Fullkomið 6 hausa NICAM-stereo myndbandstæki o.fl.
Staðgreiðsluverð: 329.900 kr.
■ Svartur, flatur skjár.
■ 100 riða flöktfrí mynd.
> Tærari, hreinni og skarpari mynd - sjálfvirk stilling.
> Skiptir sjálfvirkt um myndform, 4:3 eða 16:9.
■ Velur sjálfvirkt bestu möguleg myndgæði.
■ Sjálfvirk, stafræn myndsía.
> Tveir hátalararog bassahátalari.
> 440 síðna minni í textavarpi o.fl.
Staðgreiðsluverð: 1 99.900 kr<
BlackLine D, 28" breiðtjald
• Svartur, flatur skjár
• 50 riða flöktfrí mynd.
> 70 stöðva minni og 8 síðna minni í textavarpi.
■ Hljóðútgangur fyrir magnara.
■ Tveir hátalarar og bassahátalari.
■ 2 Scart-tengi o.fl.
Staðgreiðsluverð: 79.900 kr.
Heimilistæki
SÆTÚNI 8 > SfMI S69 1500
umboðsmenn um land allt