Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2001, Side 2
18
MÁNUDAGUR 26. MARS 2001
Sport
Fjölþraut karla:
1. Viktor Kristmannsson, Gerplu . 44,800
2. Dýri Kristjánsson, Gerplu..44,550
3. Jónas Valgeirsson, Ármanni .. 36,400
4. Grétar K. Sigþórsson, Ármanni 36,250
5. Anton H. Þórólfsson, Ármanni . 36,500
Gólfæfingar karla:
1. Dýri Kristjánsson, Gerplu ..8,000
2. Grétar K. Sigþórsson, Ármanni . 7,700
3. Viktor Kristmannsson, Gerplu .. 7,500
Bogahestur
1. Rúnar Alexandersson, Gerplu .. 9,150
2. Viktor Kristmannsson, Gerplu .. 8,250
3. Dýri Kristjánsson, Gerplu ..8,100
Hringir
1. Dýri Kristjánsson, Gerplu ..7,700
2. Viktor Kristmannsson, Gerplu .. 7,300
3. Jónas Valgeirsson, Ármanni ... 5,800
Stökk karla
1. Dýri Kristjánsson, Gerplu ..7,850
2. Þórir A. Garðarsson, Ármanni . 7,825
3. Grétar K. Sigþórsson, Ármanni . 7,800
Tvíslá karla
1. Rúnar Alexandersson, Gerplu .. 8,350
2. Dýri Kristjánsson, Gerplu ..7,800
3. Viktor Kristmannsson, Gerplu .. 7,650
Svifrá
1. Viktor Kristmannsson, Gerplu .. 6,800
2. Anton H. Þórólfsson, Ármanni.. 6,350
3. Dýri Kristjánsson, Gerplu ..6,200
Fjölþraut kvenna:
1. Sif Pálsdóttir, Ármanni . . . 30,250
2. Birta Benónýsdóttir, Ármanni . 26,700
3. Svava B. Örlygsdóttir, Árm. ... 26,050
4. Lilja Erlendsdóttir, Gerplu .... 25,800
5. Auður Guðmundsdóttir, Árm. . 25,400
Stökk kvenna:
1. Sif Pálsdóttir, Ármanni .... 8,225
2. Tanja B. Jónsdóttir.Björk . . . 8,025
3. Birta Benónýsdóttir, Ármanni .. 8,000
Tvíslá kvenna:
1. Svava B. örlygsdóttir, Árm..6,300
1. Birta Benónýsdóttir, Ármanni .. 6,300
3. Sif Pálsdóttir, Ármanni .... 6,250
Jafnvægislá:
1. Sif Pálsdóttir, Ármanni .... 7,775
2. Sigurlaug H. Ámadóttir, Gerplu 6,900
3. Svava B. Örlygsdóttir, Árm..6,650
úrslit á einstökum áhöldum.
Keppendur á mótinu voru 25, 13 í
kvennaflokki og 12 í karlaflokki.
Ármann sendi ríflega helming
keppenda á mótið, sjö stúlkur og
sjö stráka. Gerpla sendi fjórar
stúlkur og fimm stráka og svo áttu
Björk og Stjaman hvort sinn
keppanda í kvennaflokki.
Yfirburöir hjá Sif
í kvennaflokki báru Ármanns-
stúlkur höfuð og herðar yfir aðra
keppendur. Fremst i flokki var Sif
Pálsdóttir, 14 ára stúlka sem varði
fjölþrautartitil sinn frá því í fyrra
en þá varð hún yngst alíra til þess
að vinna íslandsmeistaratitil í
fjölþraut kvenna. Sif var hæst á
þremur áhöldum af fjórum í
keppninni og hafði töluverða yfir-
burði á mótinu. Hún hlaut sam-
tals 30.250 stig fyrir æfingar sínar.
Æfingar Sifjar voru mjög glæsi-
legar og mikill kraftur og útgeisl-
un einkenndi æfingar hennar um
helgina. Keppnin um annað til
fimmta sætið á mótinu var hins
vegar mjög hörð og fá stig skildu
keppendur í þessum sætum að.
Birta stóð sig vel
Birta Benónýsdóttir, stalla Sifj-
ar úr Ármanni, stóð sig best og
hlaut 26.700 stig fyrir æfingar sín-
ar og því silfurverðlaunin. Birta
kom töluvert á óvart á mótinu. Á
undanfórnum mótum hefur hún
þurft að lúta í lægra haldi fyrir
öðrum stúlkum en hún hefur
greinilega æft mjög vel undan-
famar vikur og mánuði og það er
svo sannarlega að skila sér, því
hún sýndi miklar framfarir og átti
annað sætið fyllilega skilið. Þriðja
varð svo hin 13 ára Svava B. ör-
lygsdóttir, einnig úr Ármanni.
Svava hlaut 26.050 stig fyrir æfmg-
ar sínar. Svava, sem er nýstigin
upp úr veikindum, stóð sig mjög
vel og höfðu margir á orði hve
glæsilega stúlkan framkvæmdi
æfingar sínar, erfiðar en samt
með reisn.
Nýju reglurnar erfiöar
Þær stöllur úr Ármanni voru
sammála um að hinar nýju reglur
alþjóða fimleikasambandsins
væru svolítið strangar en þetta
var í fyrsta skipti sem keppt var í
þeim á íslandsmóti. Nýjar reglur
koma alltaf í kjölfar Ólympíu-
leika. „Það er miklu erfiðara að fá
bónusa fyrir erfiðar æfingar og
samtengingar núna,“ sögðu þær
og það skýrir að miklu leyti hve
einkunnir á þessu móti eru lægri
heldur en undanfarin ár því að án
þessara bónusstiga verður upp-
hafseinkunn stúknanna lægri og
því lokaeinkunnin líka. „En það
er líka gaman að kljást við þær og
reyna að gera eitthvaö nýtt og
erfitt." Þær voru allar ánægðar að
mótslokum en hefðu allar viljað
gera hitt og þetta aðeins betur,
semsagt kröfuharðar ungar stúlk-
ur sem vita hvað þær vilja og eiga
að geta.
Viktor kom á óvart
1 karlaflokki var búist við
spennandi keppni því að Dýri
Kristjánsson og Rúnar Alexand-
ersson komu heim til þess að vera
með á mótinu. Dýri stundar nám
og æfmgar í Bandaríkjunum og
Rúnar býr í Svíþjóð og stundar
þar æfingar með þjálfara sínum
Mata Kirmes. En það var litli
hnokkinn Viktor Kristmannsson,
16 ára félagi þeirra Dýra og Rún-
ars úr Gerplu, sem gekk út sem
sigurvegari dagsins.
Viktor kom öllum á óvart og
vann fjölþrautarkeppnina með
44.800 stig eftir harða keppni við
Dýra. Rúnar var ekki í baráttunni
í fjölþrautinni þar sem hann tók
aðeins þátt á tveimur áhöldum,
bogahesti og tvíslá. Þegar ein um-
ferð var eftir munaði aðeins 0,15 á
Dýra og Viktori og spennan 1 al-
gleymingi. Viktori tókst betur upp
á svifránni, síðasta áhaldinu,
hlaut 6.850 en Dýri hlaut 6.700 og
því stóð Viktor á efsta palli í lok
dagsins. Dýri, sem var íslands-
meistari í fjölþraut í fyrra, varð
því að játa sig sigraðan að þessu
sinni en fékk silfrið með 44.550
stig. í þriðja sæti varð svo Jónas
Valgeirsson úr Ármanni með
36.400 stig.
Gaman aö vinna Dýra
Viktor var himinlifandi yfir ár-
angrinum, enda haföi hann ekki
búist við þessum góða árangri fyr-
ir mótið. „Ég veit ekki eiginlega
hvað ég á að segja, þetta kemur
mér svo á óvart. Ég vissi aö ég
væri alveg á hælunum á Dýra en
ég hef aldrei unnið hann áður á
svona stóru móti svo það er gam-
an að það skyldi gerast í dag,“
sagði Viktor með bros á vör.
Geröi fullt af litlum
mistökum
Dýri var ekki alveg nógu sáttur.
„Mér gekk svo sem alveg stórá-
fallalaust en ég gerði samt fullt af
litlum mistökum og margt smátt
gerir eitt stórt þannig að svo fór
sem fór,“ sagði Dýri. Báðum
fannst þeim hinar nýju reglur al-
þjóða fimleikasambandsins nokk-
uð strembnar en þær ættu að
verða viðráðanlegar, það tæki
bara smátíma að venjast þeim.
-AIÞ
Sif Pálsdóttir, 14 ára fimleikadrottning úr Ármanni, haföi mikla yfirburöi í
kvennaflokki. Hún vann fern gullverölaun á mótinu. DV-mynd PÖK
Gólfæfingar:
1. Sif Pálsdóttir, Ármanni .... 8,000
2. Auður Guðmundsdóttir, Árm. .. 7,000
2. Birta Benónýsdóttir, Ármanni.. 7,000
íslandsmót i áhaldafimleikum
karla og kvenna fór fram um helg-
ina i Laugardalshöll. Á laugardegi
voru íslandsmeistarar í fjölþraut
krýndir en á sunnudegi fóru fram
Hér sjást allir verðlaunahafar á íslandsmótinu í áhaldafimleikum sem haldið var um helgina. DV-mynd ÞÖK
íslandsmót í áhaldafimleikum í Höllinni:
Yfirburðir
- hjá Sif Pálsdóttur í Qölþraut kvenna en Viktor Kristmannsson vann óvænt hjá körlum