Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2001, Side 9
24
MÁNUDAGUR 26. MARS 2001
MÁNUDAGUR 26. MARS 2001
25
Sport
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari:
Svekktastur
- að ná ekki stigi gegn Búlgörum
„Mér fannst við vera að berj-
ast allan leikinn. Strákamir
lögðu sig 100% fram og ég var
stoltur af þeim, sérstaklega þann
tíma sem við vomm einum
færri. Ég er svekktastur yfir því
að hafa ekki náð einu stigi hérna
í Sofíu,“ sagði Atli Eðvaldsson
landsliðsþjálfari eftir landsleik
íslendinga og Búlgara í Sofíu á
laugardaginn.
Byrjuöum vel
„Við byrjuöum vel. Við sköp-
uðum okkur nokkur færi og náö-
um aö skora. Eftir markið hörf-
uðum við aðeins, Búlgararnir
settu upp nokkuð þunga pressu.
Við týndum okkur í stöðum,
héldum ekki skipulaginu, misst-
um boltann á hættulegum stað
og var refsað fyrir. Nokkrum
mínútum seinna fær Lárus Orri
síöan rauða spjaldið."
Get ekki dæmt um rétt-
mæti spjaldsins
„Ég sá ekki atvikiö nógu vel
en eftir því sem Lárus Orri sagði
mér þá rétt klappaði hann hon-
um á kinnina og gæinn datt með
þvilíkum tilburðum. Við skulum
vona að dómarinn hafi gert rétt
því eftir að við urðum einum
færri var á brattann að sækja
fyrir okkur. Það væri hræðilegt
fyrir knattspyrnuna og ófyrirgef-
anlegt af dómaranum ef hann
hefur látið Búlgarann komast
upp með leikaraskap. Þetta er í
annað skiptiö í fjórum leikjum
sem við missum mann út af á
vafasaman hátt og svo virðist
sem stríösgæfan sé ekki okkar
megin nú um stundir,“ sagöi Atli
Eðvaldsson, svekktur yfir brott-
rekstri Lárusar Orra sem var
harður, svo milt sé til orða tekið.
Stoltur í seinni hálfleik
„Við gerðum breytingar í hálf-
leik og mér fannst aðdáunarvert
hvemig strákamir spiluðu
seinni hálfleikinn manni færri.
Ég var stoltur af þeim. Við áttum
færi til að skora og vamarlega
lokuðum við þeim svæðum sem
við áttum að loka vel fyrir utan
þegar markiö kom. Ég veit ekki
hvað gerðist í markinu. Strák-
amir töldu vitlaust, færslan var
engin og Búlgarinn var allt í
einu einn og óvaldaður fyrir
framan markið. Búlgararnir
mega eiga það aö þeir refsuðu
okkur grimmilega fyrir mistökin
í leiknum og það er hlutur sem
við getum lært af þeim.“
Komu okkur ekki á óvart
„Búlgaramir komu okkur ekki
á óvart. Viö vissum hvernig þeir
myndu spila og það var ekki oft
sem þeir ollu okkur vandræðum.
Ég held að þeir hafi ekki vanmet-
ið okkur en við unnum vel í leik-
skipulaginu og gerðum þeim lífið
leitt. Árni Gautur var frábær í
markinu en þaö sem stendur upp
úr er öll vinnan sem liðið lagði á
sig í leiknum. Allir leikmenn
liösins gáfu allt í leikinn og það
var leiöinlegt að við skyldum
ekki uppskera í það minnsta eitt
stig eftir öll hlaupin og alla bar-
áttuna einum færri í fimmtíu
mínútur.
Núna taka við tveir leikir gegn
Möltu og síðan heimaleikur gegn
Búlgörum og við þurfum helst að
ná níu stigum út úr þeim leikj-
um,“ sagði Atli Eðvaldsson í
spjalli við DV-Sport eftir leikinn.
Áttum skilið að
vinna leikinn
„íslenska liðið er mjög líkam-
lega sterkt, í góöu formi og vel
skipulagt. Við voru taugaóstyrk-
ir fyrir leikinn því þetta var leik-
ur sem við urðum að vinna. Eft-
ir að íslenska liðið tapaði einum
leikmanni duttu miöjumennimir
hjá þeim mjög aftarlega og það
geröi okkur erfitt um vik. Mér
fannst við eiga skiliö að sigra því
við fengum fleiri færi og vorum
mun meira með boltann. Við eig-
um hins vegar mikið verk fyrir
höndum við að byggja upp öflugt
landslið og þessi sigur á sterku
liði íslands er skref í átt aö því
markmiöi," sagði Stoicho
Mladenov, landsliðsþjálfari
Búlgara, á blaðamannafundi eftir
landsleik Búlgaríu og íslands í
Sofiu á laugardaginn.
-ósk
£#}UNDANKEPPNI HM
1. riðill
Lúxemborg-Færeyjar........0-2
0-1 Jacobsen (75.), 0-2 Mörkere (82.).
Rússland-Slóvenía.........1-1
1-0 Khlestov (8.), 1-1 Knavs (23.).
Júgóslavía-Sviss .........1-1
1-0 Mihajlovic (68.), 1-1 Chapuisat
(84.).
Rússland 3 2 1 0 5-1 7
Slóvenía 4 1 3 0 7-6 6
Sviss 4 1 2 1 8-5 5
Júgóslavía 2 1 1 0 3-1 4
Færeyjar 3 1 1 1 5-7 4
Lúxemborg 4 0 0 4 1-9 0
2. riðill
Andorra-Holland..............0-5
0-1 Patrick Kluivert (9.), 0-2 Jimmy
Floyd Hasselbaink (36.), 0-3 Pierre
Van Hooijdonk (61.), 0-4 Pierre Van
Hooijdonk (71.), 0-5 Mark Van
Bommel (85.).
Kýpur-írland.................0-4
0-1 Roy Keane (32.), 0-2 Harte, viti
(43.), 0-3 Kelly (80.), 0-4 Roy Keane
(89.).
Portúgal 4 3 1 0 9-2 10
Irland 4 2 2 0 9-3 8
HoUand 4 2 11 11-4 7
Kýpur 4 2 0 2 8-10 6
Eistland 4 2 0 2 4-6 6
Andorra 6 0 0 6 3-19 0
3. riðill
Búlgaría-lsland...............2-1
0-1 Hermann Hreiðarsson (25.), 1-1
Tchomakov (36.), 2-1 Berbatov (78.).
Malta-Danmörk.................0-5
0-1 Sand (8.), 0-2 Heintze (50.), 0-3
Sand (63.), 0-4 Jensen (76.), 0-5 Sand
(79.).
N-írland-Tékkland.............0-1
0-1 Nedved (12.).
Tékkland 4 3 1 0 6-0 10
Danmörk 4 2 2 0 9-3 8
Búlgaría 4 2 116-3 7
N-írland 4 112 2-3 4
ísland 4 1 0 3 3-8 3
Malta 4 0 1 3 0-9 1
Lárus Orri Sigurösson sést hér í bar-
áttu viö Martin Petrov, leikmann
búlgarska liösins, í Sofíu á laugardag-
inn. Petta var ekki eina viöureign þeirra
félaga í leiknum því Lárus Orri var rek-
inn af velli eftir viöskipti við Petrov.
Reuters,
- aftur setti undarlegt rautt spjald
Varamaöurinn Dimitri Berbatov tryggir Búlgörum sigurinn gegn íslandi meö
góöu skoti eftir aö hafa gleymst inni á miöjum vítateig íslenska liösins.
Hermann Hreiöarsson reynir aö komast fyrir boltann. Reuters
DV, Sófinn, Þverholti:
íslenska landsliðið tapað fyrir Búl-
görum, 1-2, í undankeppni HM í knatt-
spymu í Sofíu á laugardag og missti
Búlgara við það fjórum stigum fram úr
sér en íslenska liðið skipar í
framhaldinu næstneðsta sæti þessa sex
liða riðils.
Endurkoma Lámsar Orra Sigurðs-
sonar í íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu fékk undarlegan og snöggan
endi. Eftir 39 mínútur fékk Lárus að
líta rauða spjaldið frá enskum dómara
leiksins. Lárus Orri klappaði einum
kappa búlgarska liösins, sem lá kylli-
flatur, á kinn og sá enski þóttist merkja
bolabrögð Lárasar Orra og dró upp
rauða spjaldið.
Einum færri í rúma 51 mínútu varð
verkefni íslenska liðsins erfitt en það
var þó bara sofandaháttur i smástund
í vörninni í seinni hálfleik sem hrifsaði
stigið af íslenska landsliðinu. íslenska
liðið á að vera komið upp á sama stall
og Búlgarir og það mátti merkja á
þessum leik. Til þess að íslenska liðið
nái enn lengra þarf frammistaða þess
þó að vera betri en á laugardag og
stigin fleiri úr leikjum sem þessum.
Föstu leikatriöin skila vei
Fram að rauða spjaldinu hafði leik-
urinn þróast nokkuð vel fyrir íslenska
liðið sem hafði náð forustunni 16 mín-
útum áður og sett þá mikla pressu á
heimamenn. Likt og með hin tvö mörk
íslenska liðsins í undankeppninni kom
markið eftir fast leikatriði, góða horn-
spyrnu frá Þórði Guðjónssyni. Eiður
Smári Guðjohnsen náði þá góðu skoti á
markið en vörnin varði aðeins til að
boltinn hrykki fyrir fætur Hermanns
Hreiðarssonar sem skoraði rétt utan
markteigs.
Óþarfur en óverjandi
þrumufleygur
Rauða spjaldið var ekki það fyrsta
sem íslensku strákamir máttu svekkja
sig yfir í leiknum því jöfnunarmark
Búlgara kom eftir klaufagang Heiðars
Helgusonar og Amars Þórs Viðarsson-
ar í vörninni en Heiðar missti boltann
frá sér við vítateigslínu og Krassimir
Tchomakov nýtti sér það meö óverj-
andi þrumuskoti. íslenska vömin hafði
rétt áður staðið af sér stórsókn og því
var óþarfi að gefa Búlgörum
kost á draumaskotfæri en umræddur
Tchomakov var duglegur að láta vaða á
íslenska markið.
Varamennimir gleymdust
Rauða spjaldið hafði mikil áhrif á
gang leiksins en íslenska liðið hafði þó
góð tök á því að verjast Búlgörum ein-
um manni færri. Sigurmark Búlgara
var samvinna varamannanna
Svetoslavs Todorovs og Dimitris Ber-
batovs sem nýttu sér sofandahátt í is-
lensku vöminni. Berbatov fékk boltann
frá Todorov dauðafrír á markteig og
tryggði Búlgörum mikilvægan sigur.
íslenska liðið beit aöeins frá sér í lokin
og hefði vel með smáheppni getað jafn-
að en það tókst þó ekki og stigin eru að-
eins þrjú í fyrstu fjórum leikjum und-
ankeppni HM.
49 aukaspyrnur
Alls dæmdi enski dómarinn Michael
Riley 49 aukaspymur í leiknum, 23 á
íslendinga og 26 á Búlgara, og leikur-
inn var ekki vel leikinn þar sem
boltinn gekk stutt og illa milli manna.
Búlgarar áttu ágæta leikkafla en í
heildina voru fæstar sóknaraðgerðir
þeirra tfl að hafa áhyggjur af. íslenska
liðið var aftur á móti nokkuð frá sínu
besta í þessum leik en þó voru leik-
menn inni á milli að leika vel.
Árni Gautur Arason varði vel í
markinu og verður ekki sakaður um
mörkin. Eiður Smári Guðjohnsen gerði
oft mjög vel í að létta pressunni af ís-
lensku vöminni og vann vel fyrir liðið.
Eiður er greinilega í frábæra formi og
í raun óheppnin að frábær aukaspyrna
hans fór vitlausu megin á slána undir
lok fyrri hálfleiks. Brynjar Bjöm
Gunnarsson barðist líka vel að vanda,
Ríkharður var ógnandi í loftinu og að
allan tímann. Rúnar sinnti sínum
skyldum líka vel, bæði á miðjunni og í
bakverðinum, þó oft áður hafi fleiri
boltar gengið í gegn um hann en á laug-
ardag.
Vörnin óörugg
Vörnin virkaði óöragg og vamar-
samvinna Eyjólfs og Hermanns
var oft á tíðum mistæk og í raun
áhyggjuefni að þeir ná ekki betur
saman en raun ber vitni. Kant-
menn liðsins, þeir Þórður Guð-
jónsson og Heiðar Helguson, nýtt-
ust heldur ekki nógu vel og það er
ekki nógu gott að íslenska liðið fær
ekki fleiri fyrirgjafir inn í teig þar sem
Ríkharður er mjög sterkur í loftinu.
Varamenn íslenska liðsins voru
einnig vonbrigði. Enginn þeirra fann
sig á vellinum eða náði að skila ein-
hverjum aukakrafti inn i liðið en
Amar Grétarsson fékk þó gott færi
undir lokin sem hefði getað tryggt
stigið en markvörður Búlgara varði
vel.
Þegar upp er staðið frá þessum leik
er ljóst að tap er mikil vonbrigði. Það
má vissulega hrósa íslensku
strákunum fyrir að halda velli þó þeir
lentu manni undir en einnig gagnrýna
þá fyrir slæm varnarmistök sem
kostuðu bæði stigin að þessu sinni.
Búlgaría-Ísland 2-1 (1-1)
0-1 Hermann Hreiðarsson ........23.
1- 1 Krassimir Tchomakov ....... 34.
2- 1 Dimitri Berbatov ..........77.
Lið íslands: Ámi Gautur Arason - Lárus
Orri Sigurðsson, Eyjólfur Sverrisson, Her-
mann Hreiðarsson, Arnar Þór Viðarsson -
Þórður Guðjónsson (Amar Grétarsson 57.),
Rúnar Kristinsson, Brynjar Björn Gunnars-
son, Heiðar Helguson (Tryggvi Guðmunds-
son‘73.) - Eiður Smári Guðjohnsen (Andri
Sigþórsson 60.), Rikharður Daðason.
Gul spjöld: Heiðar Helguson og Brynjar
Bjöm Gunnarsson. Rauö spjöld: Láms Orri
Sigurðsson (39.). -ÓÓJ
-------------------------h-
lenska knattspyrnulands-
liðinu hefur ekki gengið vel í
heimsóknum sinum til Aust-
ur-Evrópu i undankeppni HM
og EM. Þessi um helgina varð
sú 24. í röðinni, aldrei hefur
sigur komist í hús og leikur-
inn í Sofiu var sá 21. sem
tapaðist.
íslenska liðiö hefur alls leik-
ið 46 landsleiki gegn þjóðum
frá Austur-Evrópu, 35 þeirra
hafa tapast, átta hafa endað
með jafntefli og aðeins þrír
sigrar hafa unnist hjá íslenska
landsliðinu í knattspyrnu gegn
þessum þjóðum.
Undir stjórn Atla
Eðvaldssonar lék islenska
knattspyrnulandsliðið fyrstu
fimm leikina án taps. Af
síðustu átta leikjum hafa aftur
á móti sex tapast, þar af þrir af
fjóram landsleikjum á þessu
ári. -ÓÓJ
|X 9/UNDANKEPPNI HM
4. riðill
Aserbaídsjan-Moldavía 0-0
Svíþjóð-Makedónia . . . 1-0
1-0 Svensson (43.).
Tyrkland-Slóvakía .... 1-1
1-0 Sukur, víti (53.), 1-1 Tomaschek
(68.).
Tyrkland 4 2 2 0 5-2 8
Slóvakía 4 2 2 0 4-1 8
Svíþjóð 4 2 2 0 3-1 8
Makedónia 4 112 3-3 4
Moldavía 4 0 2 2 0-3 2
Aserbaídsjan 4 0 13 0-5 1
5. riðiH
Armenía-Wales .... 2-2
1-0 Minasyan (32.), 1-1 Hartson (40.),
1-2 Hartson (49.), 2-2 Movsesyan (66.).
Noregur-Pólland .... 2-3
0-1 Olizadebe (23.), 0-2 Olizadebe
(30.), 1-2 Carew (59.), 2-2 Solskjær
(66.), 2-3 Karwan (80.).
Úkraína-Hvíta-Rússland .... 0-0
Pólland 4 3 10 94 10
Úkraína 4 2 11 5-5 7
Hv.-Rússland 4 2 11 5-5 7
Wales 4 0 3 1 4-5 3
Armenía 4 0 2 2 5-7 2
Noregur 4 0 2 2 3-5 2
6. riðiH
Króatía-Lettland .... 4-1
1-0 Balaban (7.), 2-0 Balaban (42.), 3-0
Balaban (44.), 3-1 Stolcers (60.), 4-1
Vugrenic (89.).
Skotland-Belgía .... 2-2
1-0 Dodds (1.), 2-0 Dodds, víti (28.),
2-1 Wilmots (58.), 2-2 Van Buyten
(90.).
Belgía 4 2 2 0 16-3 8
Skotland 4 2 2 0 6-3 8
Króatía 3 12 0 5-2 5
Lettland 4 10 3 2-9 3
San Marínó 3 0 0 3 1-13 0
7. riðill
Bosnía-Austurríki .... 1-1
1-0 Barbarez (43.), 1-1 Baur (61.).
Spánn-Liechtenstein . . .... 5-0
1-0 Helguera (20.), 2-0 Mendieta (36.),
3-0 Hierro, víti (54.), 4-0 Raul (68.),
5-0 Mendieta (81.).
Fernando Hierro skoraði sitt 26.
mark fyrir Spán og jafnaði þar með
met Emilio Butragueno sem mesta
markaskorara spænska landsliðsins
frá upphafi.
Spánn 4 3 10 10-2 10
ísrael 3201 5-3 6
Austurríki 3 12 0 3-2 5
Bosnía 3 0 12 3-6 1
Liechtenst. 2 0 0 3 0-8 0
8. riðiU
Ungverjaland-Litháen . . .... 1-1
1-0 Sebok, víti (70.), 1-1 Razanauskas
(74.).
Rúmenia-ftalía .... 0-2
0-1 F. Inzaghi (28.), 0-2 F. Inzaghi
(32.).
Ítalía 4 3 10 9-2 10
Ungverjal. 3 12 0 94 5
Georgía 2 10 1 4-2 3
Rúmenía 3 10 2 1-5 3
Litháen 4 0 13 2-12 1
9. riðiU
England-Finnland .... 2-1
0-1 G. Neville, sjálfsm. (27.), 1-1 Owen
(43.), 2-1 Beckham (50.).
Þýskaland-Albanía . . .. .... 2-1
1-1 Deisler (50.), 1-1 Kola (65.), 2-1
Klose (88.).
Sóknarmaóurinn Miroslav Klose,
sem leikur með Kaiserslautem, kom
heldur betur sterkur inn á í sínum
fyrsta landsleik fyrir Þýskaland og
skoraði sigurmarkið með skalla
tveimur mínútum fyrir leikslok.
Þýskaland 3 3 0 0 5-1 9
England 3 111 2-2 4
Finnland 4 112 3-4 4
Albanía 3 10 2 4-4 3
Grikkland 3 10 2 1-4 3
V ináttulandsleikur
Frakkland-Japan . ... 5-0
1-0 Zidane, viti (9.), 2-0 Henry (14.),
3-0 Wiltord (56.), 4-0 Trezeguet (63.),
5-0 Trezeguet (69.).
-ósk
Sport
David Beckham, sem var fyrirliöi enska landsliösins gegn Finnum, fagnar
hér glæsilegu marki sínu sem tryggöi Englendingum mikilvægan sigur.
Reuters
Undankeppni HM1 knattspyrnu:
Beckham
- bjargaði Englendingum gegn Finnum
David Beckham reif sig upp úr lá-
deyðu undanfarinna vikna, lagði
upp mark fyrir Michael Owen og
skoraði sigurmarkið í mikilvægum
sigri Englendinga á Finnum, 2-1, á
heimavelli Liverpool, Anfield Road,
á laugardaginn.
Megum ekki gleyma okkur
„Við megum ekki gleyma okkur.
Við björguðum okkur fyrir hom,
sýndum mikinn karakter og blésum
lífi í vonir okkar um að komast í úr-
slitakeppni HM. Ef við töpum hins
vegar fyrir Albaníu á miðvikudag-
inn þá gefur þessi sigur harla lítið,“
sagði David Beckham, fyrirliði Eng-
lendinga, eftir leikinn.
Stórsigur Dana
Danir unnu auðveldan sigur á
Möltu í Valletta, 5-0, og skoraði
framherjinn Ebbe Sand þrennu.
Danir léku Maltverja sundur og
saman í hitanum í Valletta og þurfti
markvörður Dana, Thomas Sören-
sen, sjaldan að hafa sig í frammi.
Danir eru í öðru sæti riðilsins með
átta stig, tveimur stigum á eftir
Tékkum sem unnu sigur á N-írum í
Belfast, 1-0, þökk sé marki frá hin-
um frábæra Pavel Nedved. Danir og
Tékkar mætast í Prag á miðviku-
daginn og Búlgarar taka á móti N-
írum.
Þægilegt hjá ítölum
ítalir unnu mikilvægan sigur á
Rúmenum í Búkarest, 2-0, með
tveimur mörkum frá Filippo Inzag-
hi og til að fullkomna daginn fyrir
ítali þá náðu Ungverjar, þeirra
helstu keppinautar, aðeins jafntefli
gegn Litháen á heimavelli.
Ekkert gengur hjá Noregi
Norðmenn töpuðu fyrir Pólverj-
um í Ósló og eru á botni 5. riðils
með tvö stig eftir fjóra leiki. Pólverj-
ar eru hins vegar í góðu formi þessa
dagana og leiða riðilinn. Framherj-
inn Emmanuel Olizadebe skoraði
tvö mörk fyrir Pólverja.
-ósk
íslenska U-21 árs landsliðið:
Tap i Vratza
- þýðir að Island
íslenska landsliðið skipað leik-
mönnum 21 árs og yngri lék gegn
Búlgörum í Vratzky á fóstudaginn.
Búlgaría fór með sigur af hólmi í
leiknum, 1-0, og er ekki hægt að
segja annað en sá sigur hafi verið
sanngjarn. Búlgarar skoruðu sigur-
markið á 13. mínútu og höfðu tögl
og hagldir allan fyrri hálfleikinn.
Islenska liðið hresstist í seinni hálf-
leik og var þrívegis nálægt því að
jafna leikinn.
Enn án sigurs
Þetta tap þýðir að íslenska liðið
er enn án sigurs
er enn án sigurs í riðlinum. Liðið
gerði jafntefli gegn Dönum í fyrsta
leik en síðan hefur það tapað þrem-
ur leikjum i röð, gegn Tékkum, N-
írum og Búlgörum.
Lið íslands: Ómar Jóhannsson,
Páll Almarsson, Bjarni G. Viðars-
son (Ámi K. Gunnarsson, 61.), Ind-
riði Sigurðsson, Grétar Steinsson,
Baldur Aðalsteinsson (Ray Ant-
hony Jónsson, 89.), Jóhannes K.
Guðjónsson, Helgi V. Daníelsson,
Þórarinn Kristjánsson, Guðmundur
Steinarsson (Orri Freyr Hjaltalín,
77.), Veigar Páll Gunnarsson. -ósk