Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2002, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002
M
agasm
DV
Kvennablaðib Nýtt líf er 25 ára og Gullveig
Sæmundsdóttir hefur verió ritstjóri í 17 ár:
„Við höfum með skýrum hætti skil-
greint okkur sem kvennablað og
fjöllum um þau mál sem konum
standa næst. Á þessum tuttugu og
fimm árum sem liðin eru síðan
fyrsta blaðið kom hefur það líka
breyst mikið, í samræmi við breytta
sjálfsmynd íslenskra kvenna. í dag
eru konur kröfuharðari en áður og
sjálfsmynd þeirra sterkari. Það hef-
ur jafnframt breytt áhugasviðum
þeirra,“ segir Gullveig Sæmunds-
dóttir, ritstjóri Nýs lífs.
Manneskjuleg pólitík
Um þessar mundir heldur blaðið
upp á 25 ára afmæli sitt. í upphafi
hét blaðið Líf og var sagt tískublað.
Síðar var nafninu breytt í Nýtt líf
vegna málaferla er vörðuðu nafnið
Líf. Og þegar Gullveig tók við rit-
stjóm þess fyrir sautján árum vildi
hún ekki að blaðið væri skilgreint
sem blað um tísku. „Mér fannst það
of einföld skilgreining sem jafn-
framt þrengdi möguleika okkar,"
segir Gullveig.
Hún segir ritstjómarstefnu sína
alla tíð hafa verið þá að fjalla um
fólk sem hafi sögur að segja; bæði
frægt fólk og alþýðufólk sem sitt-
hvaö hafi reynt og gert. Eitthvað
sem geti vakið aðra til umhugsunar.
„Ég hef stundum kallað þetta mann-
eskjulega pólitík, það er hvemig
þjóðfélagið virkar í raun. Hins veg-
ar höfum við alltaf forðast
flokkspólitík og sé farið inn á það
svið fjöllum við um fólk í öllum
flokkum."
Eigum vonir og þrár
Þegar Lif hóf göngu sína árið 1977
var íslenska tímaritaflóran næsta
fátækleg. „Það var að vísu fyrir
mína tíð hér en ég hygg að blaðið
hafi á sínum tíma helst verið að
keppa við dönsku vikublöðin. Á
þessum tíma nutu þau mikilla vin-
sælda hér á landi og gera raunar
enn. Mér hefur alla tíð þótt mikil-
vægt að fylgjast með erlendum
tímaritum og helstu gerjun í efnis-
tökum þeirra. Taka mið af hug-
myndum þeirra og flytja hingað inn
en þó með íslenskri skírskotun,"
segir Gullveig Sæmundsdóttir.
Þótt konur séu skilgreindur
markhópur Nýs lífs séu karlar
drjúgir sem lesendur. „Stundum
segja karlar við mig að þeir hafi nú
lesið hitt og þetta í blaðinu. Hafi séð
það hjá konunni eða á biðstofu þeg-
ar þeir fóru í fótsnyrtingu," segir
Gullveig.
„Hins vegar lit ég svo á að ekki
„Stundum hafa þó komlö tll okkar grelnar eftir karla. Ég fagna því alltaf og nú í seinni tíð koma æ oftar fram á rit-
völlinn karlar sem þora að skrifa á mjúkum og mannlegum nótum. Að því leyti hafa viðhorf í blaðamennsku
breyst," seglr Gullveig Sæmundsdótlr m.a. hér í vlðtallnu. Magasín-mynd E.OI.
úr í þjóðfélaginu; verið brautryðj-
andi annarra kvenna á íslandi. Árið
1991 þegar tilnefning þessi fór fram
í fyrsta sinn varð Vigdís Finnboga-
dóttir, þáverandi forseti íslands, fyr-
ir valinu enda ruddi hún brautina á
heimsvisu fyrir konur og baráttu
þeirra. Kona ársins 2002 er Berglind
Ásgeirsdóttir, áður ráðuneytisstjóri
í félagsmálaráðuneytinu. Hún tók
nýlega við aðstoðarframkvæmda-
stjórastöðu hjá OECD sem er á al-
þjóðavisu eitt valdamesta embætti
sem íslendingur hefur komist í.
„Af mörgum minnisstæðum við-
tölum sem ég hef tekið þá kemur
fyrst upp í hugann viðtal sem ég tók
fyrir tæpum áratug við unga móður
á Akureyri sem var fómarlamb
nauðgara; þess sem löngum var
nefndur sólbaðsstofuræninginn.
Þetta viðtal vakti þjóðarathygli og
hvemig þessi unga kona lýsti
reynslu sinni veit ég að mörgum
þótti athyglisvert. Frásögn hennar í
þessu viðtali var meðal annars not-
uð sem kennsluefni við háskóla. Þá
fjölluðum við einnig á sínum tíma
um málefni minnisbOaðra og
Alzheimer-sjúklinga. Ég veit að sú
frásögn gekk á milli aðstandenda
sem ljósrit þegar loka átti deild fyr-
ir þessa sjúklinga á Landakoti sl.
sumar. Ef til vill hefur frásögnin því
haft einhver áhrif í þá veru að fall-
ið var frá lokun - og ef svo er þá tel
ég að til nokkurs hafi verið unnið."
Viðmælandinn í jákvæðu Ijósi
Gullveig Sæmundsdóttir starfaði
sem grunnskólakennari um fimmt-
án ára skeið. Þá venti hún sínu
kvæði í kross og fór í íslenskunám
við Háskóla íslands. „Ég hélt að
kennslan yrði ævistarf mitt og ætl-
aði að halda áfram í því þegar mér
bauðst að gerast ritstjóri Nýs lífs.
Ég ákvað að slá til og vera hér í eitt
ár. Fara síðan aftur í kennsluna
sem ég geri þó líklega ekki úr
þessu.“
Aðspurð segir Gullveig að starf
kennarans sé um margt svipað
starfi ritstjórans. Bæði störfm gangi
út á skipulagningu og að leiða hóp-
inn áfram og leiðsegja honum. Út-
gangspunktur í báðum störfum séu
hins vegar hin mannlegu samskipti.
Það að virða viðmælandann og setja
sig í hans spor. „Slíkt verður líka að
vera þegar maður er að taka per-
sónuleg viðtöl. Oftast ganga þau út á
að varpa jákvæöu ljósi á viðmæl-
andann."
Annað líf fyrir utan Nýtt líf
Þótt ritstjórastarfið sé erilsamt og
vinnudagurinn oft langur segist
Gullveig kappkosta að eiga sér líf
utan vinnunnar. „Ég vil eiga mér
annað líf fyrir utan Nýtt líf,“ segir
hún og hlær. Hún segist njóta sín í
hlutverki húsmóður og ömmu fyrir
Ekki bara tíska, snyrting og tertur
séu ýkja skörp skil milli þess efnis
sem konur og karlar vilja. öll erum
við manneskjur sem eigum okkar
vonir og þrár. Eigum fjölskyldur og
eitthvað það sem stendur nærri
hjarta okkar. Um slíkt fjallar Nýtt
líf og efnistök kvennablaðs eru ekki
bara tíska, snyrting og tertur."
Karlar á mjúkum og
mannlegum nótum
Sem áður segir hefur Gullveig
verið ritstjóri Nýs lífs í 17 ár. Lung-
ann af þeim tíma hefur Jónína Leós-
dóttir verið hennar
hægri hönd sem rit-
stjórnarfulltrúi.
/
Blaðamennimir hafa flestir hverjir
staldrað skemur við. „Þetta hafa þá
í flestum tilvikum verið ungar
blaðakonur sem hafa verið hér í
einhver ár eða misseri. Kannski
flust siðan til útlanda eða farið í
barneignarleyfi. En að hópurinn
sem skrifar blaðið endurnýist reglu-
lega tel ég vera til bóta. Þannig
fáum við gegnum nýja blaðamenn
breytta sýn á tilveruna og það þjóð-
félag sem við erum að fjalla um á
hverjum tíma.“
í dag eru það einvörðungu konur
sem koma að blaðinu, fyrir utan
ljósmyndarann. „Stundum hafa þó
komið til okkar greinar eftir karla.
Ég fagna því alltaf og nú í seinni tíð
koma æ oftar fram á ritvöllinn karl-
ar sem þora að skrifa á mjúkum og
mannlegum nótum. Að því leyti
hafa viðhorf i blaðamennsku breyst,
góðu heilli," segir Gullveig.
Líftíminn er langur
Nýtt líf kemur út ellefu sinnum á
ári og að jafnaði er blaðið 140 blað-
síður að stærð. Sum blaðanna eru
hins vegar stærri og viðameiri; jóla-
blaðið sem kom út fyrir skemmstu
er 274 síður. Hefur síðufjöldi ís-
lensks tímarits aldrei orðið meiri en
í þessum einstaka blaði.
„Mér finnst,“ segir Gullveig
Sími 550-5000
Útgefandl: Útgáfufélagiö DV ehf., Skaftahlíð 24.
Ábyrgðarmenn: Óli Bjöm Kárason og Jónas
Haraldsson.
Umsjónarmaður: Stefán Kristjánsson.
sk@magasln.ls
Blaðamaður: Siguröur Bogi Sævarsson.
slgbogl@magasln.ls
Auglýsingar: Katrín Theódórsdóttir - kata@dv.is
og Inga Gísla - inga@dv.is
Prentun: Árvakur hf.
Upplag: 80.000 eintök.
Dreifing: Póstdreifing ehf.
Dreift ókeypis á höfuðborgarsvæöinu, á Akureyri
og til áskrifenda DV úti á landi.
„gaman að sjá hvað fólk geymir
þessi blöð lengi; hvað líftími þeirra
er óskaplega langur, Ég kem stund-
um í sumarhús eða á læknastofu og
sé þar kannski tíu ára gamalt ein-
tak af Nýju lífi sem fólk er að blaða
í. Mér finnst þetta sýna vel hvað
áhrifamáttur tímarita getur veriö
mikill - og þegar allt er saman lagt
síst minni en dægurmiðlanna."
Brautryöjendur og
minnisstæð viðtöl
Hápunkturinn í útgáfu Nýs lífs á
ári hverju er tilnefningin á konu
ársins. Þann sæmdartitil fær ein-
hver sú kona sem skarað hefur fram
utan að spila bridds, badminton og
golf og sé um þessar mundir að
skipuleggja golfferð sextán vin-
kvenna til útlanda.
,íýrir fólk sem starfar í fjölmiðl-
un er afskaplega mikilvægt að eiga
sér athvarf utan vinnunnar. Það eru
mörg dæmi um fólk sem hefur
hreinlega brunnið út í þessu starfi
og margir hætta í störfum á þessum
vettvangi. Mér finnst það undir-
strika mikilvægi þess að huga að
hinum mannlega þætti í eigin til-
veru - til þess að geta notið lífsins
og afls þess sem það býður.“
-sbs
Næsta Magasín 9. janúar
Þetta 15. tölublaö af DV-Magasín er síðasta blaö órsins.
Næsta Magasín kemur út þann 9. janúar á nýju ári.
Um leiö og við þökkum frábærar viðtökur óskum við lesend-
um gleöilegra jóla og farsældar á komandi ári.