Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Blaðsíða 6
-1 6 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003 Fréttir DV Eldri borgarar mótmæla Landssamband eldri borgara segist mótmæla og lýsa vanþóknun á „þeim vinnubrögðum Alþingis, að samþykkja stóraukin lífeyr- isréttindi til þingmanna, ráðherra og fleiri af æðstu ráðamönnum ríkisins, á sama tíma og stór hluti elli- h'feyrisþega verður að láta sér nægja lífeyri, sem er um og undir lágmarks fram- færsluþörfum." í tilkynningu frá stjórn landsambandsins segir að 1. janúar hækki grunnlíf- eyrir ellilífeyrisþega sam- kvæmt ákvörðun Alþingis um 3%, eða um 619 krónur á mánuði og verði 21.249 krónur: „Ákvörðun Alþingis sýn- ist hvorki vera í neinu sam- ræmi við almenna launa- þróun í landinu né heldur ennþá síður í takt við þær breytingar á lífeyriskjörum annarra sem Alþingi hefur nýlega samþykkt og hæst hefur borið í almennri um- ræðu að undanförnu. Þessu er hér með harðlega mót- mælt." Er stundað vændi á hótel- um í Reykjavík? „Ég, veit það ekki efsatt skal segja. Vona hins vegar að svo sé ekki/'segir Erna Hauksdótt- ir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Hún segir vændi þess eðlis að ekki sé svo glatt að henda reiður á því hvar og hvort það er stundað og bætir við að hún viti að hótelstjórar geri allt sem þeir geti tilað koma í veg fyrirþað. Hann segir / Hún segir „Það má vel vera en við vitum þá ekki afþví,,, segir GeirJón Þórisson yfirlögregluþjónn í lögreglunni í Reykjavík. Hann segir mál þess eðlis hafa kom- ið upp en telur alls ekki að um skipulagt vændi sé að ræða. „Við höfum heyrtýmislegt og það hafa verið í gangi sögur um vændi en ég held að þær séu orðum auknar," segir hann. 25 eldri borgarar á hjúkrunarheimilinu Eir eru í einangrun. Aðstandendur gamla fólksins eru beðnir að koma ekki í heimsókn í viku vegna Norwalk veirunnar og hefur heimilsfólkið ekki fengið neina þjónustu. Hjúkrunarheimillfi Eir Þar búa 730 heimilis- menn. Norwalk veiran er sérstaklega varasöm fyrir eldra fóik og lasburöa. Aðstandendur heimilsmanna á heilli deild á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík voru beðnir að koma ekki að heimsækja ættmenni sín í heila viku. Deildin var einangruð um síðustu helgi vegna magakveisu sem kom upp á hjúkrunar- heimilinu og verður haldið í einangmn fram á mánudag hið minnsta. Á deildinni búa 25 heim- ilsmenn. Um er að ræða sýkingu af völdum svo- kallaðrar Norwalk veiru, sem gengur nú á landinu og veldur niðurgangi og uppköstum. „Við ákváðum að bregðast vel við til að forðast að þetta breiddist út um hjúkrunarheimilið", seg- ir Jóna Magnúsdóttir, staðgengill hjúkrunarfor- stjóra. Á Eir búa 130 manns á 6 deildum. „Svona pestir eru sérstaklega varasamar fyrir eldra fólk og lasburða". Sautján heimilismenn sýktust og tíu starfsmenn, en enginn varð alvarlega veikur eða þurfti á sjúkralrúsinnlögn að halda. „Við takmörkuðum allar heimsóknir og lokuð- um allri þjónustu á næstu hæð, en þar er meðal annars sjúkraþjálfun og dægradvöl fyrir heimils- menn. Auk þess eru auknar hreiniætiskröfur fyrir alla sem búa og starfa á heimilinu. Aðstandendur voru beðnir um að koma ekki í heimsókn. Við lögðum áherslu á að útskýra þetta vel fyrir fólki og flestir tóku þessu mjög vel“, segir Jóna. „Þetta er greinilega í rénun, og ekki hafa kom- ið upp ný tilfelli síðastliðna tvo sólarhringa. En við ætlum að hafa varann á fram yfir helgi", seg- ir Jóna. Varúðarráðstafanir þessar eru gerðar í samræmi við leiðbeiningar Landlæknisembætt- isins um sýkingar á heilbrigðisstofnunum. Þar fengust þær upplýsingar að sjúkdómurinn gangi í langflestum tilfellum yfir á einum til þremur sólarhringum án nokkurrar meðferðar. Veiran getur smitast beint manna á milli við snertingu eða með matvælum, en einnig eru dæmi þess að veiran hafi borist í loftinu til fólks í nánasta um- hverfi. Sýkingar sem þessar koma upp á hverju ári, en ekki er vitað um aðra hópsýkingu á heil- brigðisstofnun af völdum veirunnar um þessar mundir. Barnaklámsmaðurinn ákærður fyrirjól Ríkissaksóknari leggur fram ákæru á hendur Ágústi Magnússyni vegna barnakláms eftir helgina. Lögreglan í Reykjavík handtók Ágúst í júní síðastliðnum og var gerð húsleit á heimili hans í kjölfar- ið. Við húsleitina fundust þúsundir mynda af barnaklámi og öðru klámfengnu myndefni, um var að ræða myndbandsspólur og geisla- diska. Við yfirheyrslur játaði Ágúst að eiga myndefnið en þetta er mesta magn barnakláms sem lög- regla hefur lagt hald á í einu máli. Haft var eftir lögreglu að fundist hefðu heimamyndbönd þar sem maðurinn virtist vera í kynferðis- legum athöfnum við ungmenni. Myndböndin voru sögð mjög óskýr. Fréttablaðið sagði frá því í gær sex drengir komi við sögu í málinu. DV greindi frá því í sumar að lögregla hefði fengið ábendingar um grunsamlega hegðun Ágústs á spjallrás á Netinu. Svo virtist sem hann væri að tæla til sín börn og ungmenni með aðstoð Netsins. Ágúst starfaði hjá Tollstjóranum í Reykjavík í tæp tuttugu ár. Hann var í vinnunni þegar hann var handtekinn. Eftir handtökuna sagði hann starfi sínu hjá embættinu lausu. Hann hefur alla tíð lagt sig fram um að vinna með börnum og unglingum. Fyrir um fimmtán árum var Ágúst rekinn úr starfi hjá KFUM en samtökin reka sumar- búðir fyrir drengi. Forráðamenn KFUM sögðu Ágúst hafa verið rek- inn að því hann stóð sig illa í starfi. DV greindi frá því í sumar að seinna hefði Ágúst ráðið sig hjá öðrum sumarbúðum á vegum samtakanna en verið rekinn vegna ósæmilegrar hegðunar gagnvart börnum. Ágúst var rekinn frá Fínum miðli fyrir nokkrum árum og var ástæðan sú að hlustendur kvörtuðu undan honum. Þeir báru honum á brýn að hafa tælt unga drengi í útsendingu. Þá varð hann uppvís að því að sanka að sér barnaklámefni af Net- inu. Varsla barnakláms er refsiverð og getur varðað allt að tveggja ára fangelsi ef brotin teljast stórfelld. Hins vegar varðar það allt að tólf ára fangelsi að hafa samræði eða önnur kynferðismök við börn undir 14 ára aldri. Ágúst Magnússon Veröur formlega ákærður eftir helgi. J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.