Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003 Fréttir DV Stærsta jóla- tré í heimi íbúar í smábænum Gubbio á Italíu stæra sig af því að eiga stærsta jólatré í heimi. Það er 600 metra hátt og er alls 12 kílómetrar að lengd. Tréð liggur upp eftir hlíðum fjallsins Ingino sem bærinn stendur við og hefur vakið mikla athygli víða á ftalíu. Fjöldi ferða- fólks hefur lagt á sig ferða- lag til Gubbio til að berja dýrðina augum og mun bæjarsjóður njóta góðs af þeim aukna ferðamanna- straumi. Miklarfjár- festingar Fjarðabyggðar Fjarðabyggð mun auka skuldir sínar verulega næsta árið en miklar fram- kvæmdir eru ráðgerðar hjá sveitarfélaginu. Fjárfest verður fyrir allt að 1.3 millj- örðum króna og mun stærsti hluti upphæðar- innar fara til hafnargerðar og uppbygg- ingar grunn- skólanna á svæðinu. Tekjur af byggingaleyfis- gjöldum álvers Alcoa nema tæpum 30 milljónum króna en mestum hluta þess verður varið til sérverkefna sem tengjast álversupp- byggingunni. Olía unnin úr fiskúrgangi Rannsóknarvinna við að þróa aðferð til að framleiða smuroh'u úr fiskúrgangi hefst eftir áramótin í Nor- egi. Stórfyrirtækið Rolls Royce Marine hefur fengið rannsóknafyrirtækið Möre- forskning til verksins, sam- kvæmt frétt skipa.is. Rolls Royce Marine er fyrirtæki á sviði skipahönnunar, skipa- smíði og framleiðslu vél- búnaðar fyrir skip. Rann- sóknaráð Noregs styrkir rannsóknirnar, enda eftir miklu að slægjast fyrir fisk- veiðiþjóðir. Halldór Björnsson, formaður Starfsgreinasambandsins. Ég er almermt hræddur við það sama og aðrir og vona að maður haldi góðri heilsu og það komi ekkert fyrir mann. Ég er ekki hræddur við neitt áþreifantegt, nema að ég er drulluhræddur við að keyra í hálku. Ég stirðna upp þegar ég lendi í mikilii hálku og slepp ekki við það, því hræðslan hef- ur líka áhrifá aksturinn. Svo Við hvað ertu hræddur? hefég örlitlar áhyggjur af þessum samningamálum, að þetta gangi ekki upp. Fyrir utan það að þessi græðgis- væöing í þjóðfélaginu er orðin ískyggileg og ekki síst færslan á peningum yfir á fárra manna hendur. Fjölnir Þorgeirsson var sýknaður í héraðsdómi í gær af ákæru um milljóna króna tollsvik og Qársvik í tengslum við innflutning á sjö jeppum til landsins. Hann játaði á sig minniháttar bókhaldsbrot og viðurkenndi að hann hefði lítið vit á bókhaldi Fjölnir Þorgeirsson var í gær sýknaður af ákæru fyrir fjárdrátt og tollsvik þegar hann flutti sjö Grand Cherokee jeppa til landsins frá Kanada árið 1999. Ákæran var í fjórum liðum og var Fjöln- ir sýknaður af þremur ákæruliðum. Hann var sak- felldur fyrir bókhaldsbrot og hlaut mánaðar skil- orðsbundið fangelsi. Fjölnir var ákærður fyrir að hafa reynt að koma sér undan að greiða 3,5 milljónir í aðflutnings- gjöld vegna innflutnings á jeppunum og einnig fýrir að hafa dregið sér 2,4 milljónir króna frá manni sem hugðist kaupa af honum bfl. Fjölni var gefið að sök að hafa fengið seljanda bflanna, Willi- am James Evong í Kanada til að gefa út tvöfalda reikninga; annars vegar reikninga upp á um 3,5 milljónir króna og hins vegar upp á tæpar 4,4 milljónir. Fjölnir neitaði staðfastlega sök allt frá upphafi málsrannsóknar og þvertók fyrir að hafa vitað af tilvist hinna tvöföldu reikninga. Héraðs- dómur segir ósannað að Fjölnir hafi með kaupum á bílunum sjö fengið Evong til að gefa út tvo vöru- reikninga íýrir hvern bfl. Segir í dómnum að enn- fremur sé sannað að raunverulegt kaupverð bif- reiðanna sjö hafi verið hærra en nemur fjárhæð þeirra reikninga sem Fjölnir lagði fram hjá tollayf- irvöldum í maí 1999. „Kemur því ekki annað til álita en að sýkna ákærða og þar með hið ákærða einkahlutafélag," segir í dómnum en fyrirtækið er World Wide-ísland ehf. Fjölnir sagði í samtali við DV að hann væri sáttur við niðurstöðuna. Hann hefði frá upphafi borið við sakleysi í málinu. „Dómurinn sannar að ég er saklaus," sagði Fjölnir Þorgeirsson. Játaði bókhaldsbrot I niðurstöðu dómsins segir að forsögu máls- ins megi rekja til laxveiðiferðar í Kjarrá sumarið 1998 þegar hópur efnaðra einstaklinga ákvað.að leita í sameiningu hagstæðra kauptilboða í Jeep Grand Cherokee bifreiðar. Þórarinn Sigþórsson tannlæknir var í fyrirsvari fyrir hópinn og leitaði óformlegra tilboða hjá nokkrum aðilum, þar á meðal Fjölni en hann rak þá bílasöluna Skeifuna í Reykjavík. Þórarinn bar fyrir rétti að tilboð Fjölnis hafi verið lang hagstæðast eða rúmar 3,8 milljónir fyrir hverja bifreið. í framhaldinu gengu Þórarinn Sigþórsson, Ólafur B. Ólafsson, Sigurður Valdimar Gunnars- son, Einar Magnússon, Pálmi Sigmarsson, Svava Johansen, Haraldur Haraldsson, Sveinn R. Eyj- ólfsson, og Gunnar Þór Ólafsson að tilboði Fjöln- is. Bfll Sveins fellur utan sakarefnisins en hann gekk sjálfur frá innflutningnum og Gunnar Þór Ólafsson fékk sína bifreið aldrei afhenta. Fjölnir var sem fyrr segir sakfelldur fyrir bók- haldsbrot. Það var eina brotið sem Fjölnir viður- kenndi fyrir dómi. Fjölnir bar að hann hefði haft lítið vit á bókhaldsmálum á fyrrnefndum tíma og Fjölnir Þorgeirsson Sýknaðuraföllum heistu ákæruatriðum. „því hefði farið sem fór.“ Dómurinn telur að í ljósi afdráttarlausrar játningar ákærða sé sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök. Refsing, mánaðar skil- D V mynd Hari orðsbundin fangavist sem fellur niður að ári liðnu, er miðuð við að brotin hafi framin af stór- felldu gáleysi. arndis@dv.is HHHa| ■ f | Sfc Fiolnir syknaður Fyrirhugaðar uppsagnir á Landspítala: Jólauppsögnum frestað Uppsagnir starfsmanna á Land- spítala - háskólasjúkrahúsi sem tal- ið var að kæmu til framkvæmda fyrir áramót verða ekki fyrr en í fyrsta lagi fyrir 1. febrúar. Magnús Pétursson forstjóri spít- alans segir að það sé margt að at- huga í sambandi við uppsagnir allt að 200 starfsmanna. Mörg stéttar- félög komi þar við sögu og fara verði að lögum í þeim efnum. „Við spítalann starfa um fimm þúsund manns undir mörgum sviðum og það er ekki einfalt verk að fara ofan í hvar hægt er að bera niður. Við höfum ríka skyldu samkvæmt lög- um og viljum vinna þetta þannig að uppsagnir séu eins vel undir- búnar og kostur er gagnvart starfs- mönnum. Við viljum hafa sam- band við starfsmannaráð og upp- lýsa stéttarfélög þeirra sem í hlut eiga. Magnús segir ekkert nafn komið á lista en starfsfólk spítalans sé í 30 stéttarfélögum og það þurfi enginn að ganga að því gruflandi að það sé einfalt verk að segja upp fólki. Hann segir að spítalinn eigi ekki annan kost en segja upp fólki og í því felist ekki nein hótun af hálfu ráðamanna þar. „Það er alveg ljóst Starfsfólki úr flestum stéttum verður sagt upp á Landspitala starfa um fimm þúsund manns í þrjátiu stéttarfélögum. að það kemur alltaf niður á þjón- ustu ef segja þarf upp fólki en við munum skoða vel hvar þjónustan má helst veikjast. Undirbúningur okkar miðast að því að fólk verði vel upplýst um hverju það má eiga von og þeir sem verði fyrir uppsögnum fái þá aðstoð sem við getum veitt, „ segir Magnús Pétursson forstjóri Landspítala - háskólasjúkrahúss.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.