Frjáls verslun - 01.03.1996, Qupperneq 33
Svona verður spurt og vangavelst í
fjölmiðlum á næstunni. Allt þetta og
meira til. Mál verða rifjuð upp. Hér er
sagt rifjuð upp vegna þess að þjóðin
þekkir Ólaf Ragnar betur en nokkum
hinna frambjóðendanna.
Víkjum þá að niðurstöðu könnunar-
innar. Spurtvar: í júní næstkomandi á
að velja forseta hér á landi. Fimm hafa
sagst ætla að gefa kost á sér. Nöfnin
eru lesin upp í stafrófsröð. Hvem of-
antalinna myndir þú vilja sjá sem for-
seta?
Alls tóku 74,5% afstöðu til fram-
bjóðendanna en 25,5% voru hlutlaus
eða vildu engan ofantalinna. Um
helmingur úrtaksins, 50%, vildi Ólaf
Ragnar. Af þeim sem tóku afstöðu
fékk Ólafur Ragnar 67,0%, Guðrún
Pétursdóttir, 14,6%, Pétur Hafstein,
12,4% og Guðrún Agnarsdóttir
6,0%. Það vekur athygli að ekki einn
einasti í könnuninni sagðist vilja sjá
Guðmund Rafn Geirdal sem forseta.
FÁIR NEIKVÆÐIR GAGNVART
FRAMBOÐIÓLAFS RAGNARS
Frjáls verslun kannaði einnig við-
horf til forsetaframboðs fimmmenn-
inganna. Með þeirri spurningu mælist
hvort fólk hafi jákvæða eða neikvæða
afstöðu til fleiri en eins. Þannig getur
sami maður til dæmis haft jákvæða
afstöðu til þriggja frambjóðenda þótt
hann vilji aðeins einn þeirra í embætti
forseta.
Langflestir voru jákvæðir gagnvart
framboði Ólafs Ragnars, eða 64,5%.
Næstflestir voru jákvæðir gagnvart
framboði Guðrúnar Pétursdóttur,
eða 39,9%. Það vekur hins vegar at-
hygli að aðeins um 15% vom neikvæð
gagnvart framboði Ólafs Ragnars.
Það er sláandi útkoma fyrir andstæð-
inga hans og sýnir hve erfítt verður að
reita af honum fylgið. Og neikvæðni
út í framboð Guðmundar Rafns Geir-
dals hefur snarminnkað frá sams kon-
ar könnun Fijálsrar verslunar í byijun
mars.
Þótt spumingin um viðhorf til for-
setaframboðs mæli í sjálfu sér næst-
besta kostinn spurði Frjáls verslun
engu að síður sérstaklega um hann?
Niðurstaðan var að Guðrún Péturs-
dóttir naut mest stuðnings en munur-
inn á henni og Pétri Hafstein og Guð-
rúnu Agnarsdóttur var samt tiltölu-
lega lítill. Það vekur athygli að um
37% voru hlutlaus í þessari spurn-
ingu. Það má túlka sem vissan styrk-
leika fyrir Ólaf Ragnar.
HREINT EINVÍGITVEGGJA?
Það hlýtur að valda andstæðingum
Ólafs vissum vonbrigðum hvað fylgið
um næstbesta kostinn dreifist mikið á
milli Guðrúnar Pétursdóttur, Guð-
rúnar Agnarsdóttur og Péturs Haf-
stein. Harðir andstæðingar Ólafs
gætu túlkað þetta sem svo að best
væri að tvö þeirra drægju sig til baka,
eða öllu heldur fari ekki fram þegar
framboðsfrestur rennur út undir lok
maí, til að fá fram hreint einvígi á milli
Ólafs og einhvers hinna.
Margir hafa velt því fyrir sér
hvernig tíðarandinn sé varðandi em-
bættið, hvort fólk vilji karl eða konu
sem forseta. Því hefur verið hent á
lofti að fólk vilji að næsti forseti verði
karl með fjölskyldu. Þess vegna
spurði Frjáls verslun hvort fólk vildi
karl eða konu sem næsta forseta? Um
60% svarenda sögðust hlutlaus, vera
alveg sama. Um 27% sögðust vilja
karl en um 13% konu. Það er því
meira fylgi á meðal þjóðarinnar með
því að karl verði frekar næsti forseti
en kona þótt langflestum standi á
sama.
FÓLKIER SAMA ÞÓTT STJÓRN-
MÁLAMAÐUR VERÐIFORSETI
Frjáls verslun spurði einnig hvort
fólk vildi stjómmálamann sem for-
seta. Rúmlega helmingur sagðist
vera hlutlaus hvað það snertir, vera
alveg sama. Hins vegar sögðust um
34% á móti því að fá stjómmálamann
og um 12% sögðust því fylgjandi.
Þetta er að sjálfsögðu athyglisverð
niðurstaða. Ólafur Ragnar hefur
nefnilega verið einhver umdeildasti
stjórnmálamaður landsins í áraraðir.
Hvers vegna nýtur hánn þá svo mikils
fylgis þegar svo margir, sem taka af-
stöðu með og á móti, vilja ekki fá
stjómmálamann sem forseta?
FYLGISJÁLFSTÆÐISMANNA
Ólafur Ragnar hefur meira fylgi en
aðrir frambjóðendur í öllum flokkum.
Þannig styðja fleiri sjálfstæðismenn
Ólaf Ragnar en alla hina frambjóðend-
urna til samans. Það hlýtur að vera
sláandi fyrir sanntrúaða sjálfstæðis-
menn þegar haft er í huga að Ólafur
hefur verið einn helsti andstæðingur
sjálfstæðismanna um árabil. Af þeim
sem kjósa Alþýðubandalagið segjast
74% ætla að kjósa hann og um 68%
þeirra sem styðja Framsóknarflokkinn.
Stuðningsmenn þessara flokka em því
dyggustu stuðningsmenn Ólafs.
L
33