Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1996, Side 60

Frjáls verslun - 01.03.1996, Side 60
Matur er frainreiddur í sérlega glæsilegum sal á neðstu hæð. Ilægt er að fá mat af smáréttaseðli allan daginn. I Fundarsalurinn á Hótel íslandi tekur 70 manns í sæti og þar er fullkomin aðstaða með nauðsynlegum tækjum. Hægt er að láta taka fundi upp á hljóðsnældu ef óskað er. Glæsilegt og personulegt hót HÓtel ÍSLAIMD „Hótel ísland er tiltölulega lítið hótel og því teljum við okkur geta veitt persónulega þjónustu. Takmark okkar er að gestir geti gengið að hlutunum vísum. Við reynum að þjóna okkar viðskiptavinum á hlýlegan hátt og viljum geta sinnt óskum fastagesta okkar óumbeðið,“ segir Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstjóri á Hótel Is- landi. Ingibjörg hefhr starfað á hót- elinu frá opnun en áður vann hún á Hótel Sögu. Reyndar er Hótel ísland í eigu Hótel Sögu og hefur svo verið í nærfellt þrjú ár. Ingi- björg hefur unnið við hótelstörf með hléum frá árinu 1984. Hún segir að það sé spennandi að taka við rekstri nýs hótels. Hótel ísland er með nýjustu og glæsilegustu hótelum landsins og var fullklárað snemma árs 1992. Alls eru í boði 119 herbergi, þau stóru eru með baði en þau minni með sturtu, þrjár svítur og fimm herbergi með eldhúskrók. í öllum herbergj- um er sími, sjónvarp, smábar, hitaketill og bakki með tei og kaffi. „Minni herbergin, sem reyndar eru ekki lítil, henta vel fyrir einn eða tvo í styttri tíma. Stærri herbergin eru mjög vinsæl hjá athafnafólki sem þarf að hafa góða aðstöðu. í þeim herbergjum er setkrókur og gott skrifborð, auk buxnapressu,“ segir Ingibjörg. Hún nefnir að herbergin með eldhúskróknum henti vel þeim sem staldra lengur við og vilja geta hitað sér eitthvað létt á þeim tíma sem hentar. Annars segir hún eldunaraðstöðuna tiltölulega lít- ið notaða, enda bjóði hótelið upp á mat allan daginn. Úr þessum herbergjum er mikið útsýni í allar áttir. „Hótel ísland er tiltölulega lítið hótel og því teljum við okkur geta veitt persónu- lega þjónustu," segir Ingibjörg Ólafsdótt- ir hótelstjóri. Myndin er tekin í anddvri hótelsins. 60

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.