Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1996, Page 68

Frjáls verslun - 01.03.1996, Page 68
 VIGFÚS GÍSLASON, HÖRPU Vigfús Gíslason, sölustjóri málningarverksmiðjunnar Hörpu hf. Hann er 39 ára áhugamadur um útivist og fjallgöngur. Hann býr í Þorlákshöfn og ekur 80 kílómetra á dag, til og frá vinnu. álningarverksmiðj- an Harpa á sextíu ára afmæli á þessu ári og er í hópi elstu iðnfyrir- tækja á íslandi sem enn starfa. Harpa var sett á laggimar við Skúlagötuna í Reykjavík árið 1936 og þar voru bækistöðvar fyrirtæk- isins allt til ársins 1988 þegar það flutti upp á Stór- höfða þaðan sem marglit þökin í Grafarvogi blasa við. Það er ekki ólíklegt að Harpa hafi lagt sitt af mörk- um þar eins og víða annars staðar á landinu. Harpa framleiðir gæðamálningu sem með stöðugri vöruþró- un hefur verið löguð að ís- lenskum aðstæðum. „Okkar stærsta verkefni nú á vordögum er að minn- ast þessara tímamóta og halda afmælisfagnað fyrir vini okkar og velunnara sem koma víða að,“ sagði Vigfús Gíslason sölustjóri hjá Hörpu. „Við munum minnast af- mælis okkar með ýmsu móti sem fólk mun taka eftir.“ Vigfús sagði að sumarið væri jafnan háannatími í málningarframleiðslu og þá margfaldaðist salan í utan- hússmálningu meðan sala í innanhússmálningu væri jöfn og stöðug allt árið. Þessu mæta Hörpumenn með því að byrja að fram- leiða utanhússmálningu á lager fljótlega eftir áramót svo málningarglaðir við- skiptavinir grípi ekki í tómt þegar sólin hækkar á lofti. Hjá Hörpu vinna að jafnaði 30 manns og reynt er að jafna vinnunni á allt árið og forðast sveiflur. Vigfús upp- lýsir að veðurfar hafi vissu- lega áhrif á málningarsölu en þó ekki á þann hátt sem margir halda. „Samanburður á veður- farstölum og sölutölum yfir útimálningu leiðir í ljós að það dregur ekki svo mikið úr málningarsölu þótt rigni heldur er það hitastigið sem ræður. Því lægri sem hitinn er því minna selst af máln- ingu.“ Vigfús Gíslason er 39 ára gamall. Hann fæddist og ólst upp á bænum Flögu í Skaftártungu, sonur Gísla Vigfússonar og Sigríðar Sig- urðardóttur, og lauk skyldu- námi þar eystra en kom í bæinn rúmlega tvítugur og eftir stutta viðdvöl hjá steypustöð fór hann að vinna hjá Hörpu og árin eru orðin 14 talsins sem hann hefur starfað við að selja málningu. „Ég er ekki málarameist- ari en ég reyni að vera vel heima í faginu svo ég geti rætt um málningu, bæði við málara og tæknimenn." Vigfús viðurkennir að vera kröfuharður tóm- stundamálari og segist t.d. vera búinn að dútla við að mála eldhúsið heima hjá sér síðan um áramót. Eiginkona Vigfúsar er Lydía Pálmarsdóttir frá Hvolsvelli og þau eiga tvo syni, Gísla 17 ára og Sigur- berg 11 ára. Þau hjónin eru búsett í Þorlákshöfn og Vig- fús ekur alltaf til vinnu sinn- ar, 80 kílómetra á dag. „Mér finnst þetta ekkert mál. Ég ek alls um 30-35 þúsund kílómetra á ári.“ Vigfús og Lydía eiga sum- arbústað í landi Flögu og átt- hagarnir seiða því Vigfús sem segist hvergi una sér betur en við skógrækt og gróðurvinnu kringum bú- staðinn. Þau aka austur hvenær sem tækifæri gefst en á þessum slóðum á Vig- fús stóran vinahóp og frændgarð. Vigfús heldur sér í þjálfun með því að stunda innan- hússknattspymu og lék lengi með hópi Skaftfellinga í Reykjavík en sparkar nú austur í Þorlákshöfn þar sem hann segir að sé frábær aðstaða í nýlegu íþróttahúsi. Á sumrin eru fjallaferðir og gönguferðir hans líf og yndi og hann hefur ásamt fé- lögum sínum farið víða, m.a. um Homstrandir og í sumar er stefnt í Víkur og Fjörðu milli Eyjafjarðar og Skjálfanda. „Við ferðumst á eigin vegum og göngum með all- an búnað og nesti á bakinu, frjálsir eins og fuglar. Þetta er frábær ferðamáti og ekki til betri aðferð til að njóta íslenskrar náttúru.“ TEXTI: PÁLL ÁSGEIRSSON MYNDIR: BRAGI Þ. JÓSEFSSON 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.