Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 71
FOLK
HREFNAINGÓLFSDÓTTIR, PÓSTIOG SÍMA
„Sem hlutafélag getur Póstur og sími tekið fullan þátt í samkeppni og verið í sókn,“
segir Hrefna Ingólfsdóttir, blaða- og upplýsingafulltrúi Pósts og síma.
óstur og sími er það
stórt fyrirtæki að
hér er alltaf eitthvað
nýtt að gerast. Við kynntum
nýverið Samnet símans og
nú þegar eru notendur um
80 talsins. Önnur nýjung er
„númerabirting“ en með því
að fjárfesta í litlu tæki geta
símnotendur séð hveijir eru
að hringja í þá eða hafa reynt
að ná í þá yfir daginn. Tækið
kemur því að hluta til í stað-
inn fyrir símsvara því það
geymir tiltekinn fjölda núm-
era,“ segir Hrefna Ingólfs-
dóttir, blaða- og upplýsinga-
fulltrúi Pósts og síma.
„Einkavæðing Pósts og
síma er spennandi verkefni
sem er á döfinni. Mér k'st
sjálfri vel á fyrirhugaða
breytingu og veit að margir
starfsmenn hlakka til að
vinna hjá Pósti og síma hf.
Ytri skilyrði munu breytast
og við væntum þess að
fyrirtækið verði sterkara,
öflugra og sveigjanlegra.
Sem hlutafélag getur Póstur
og sími tekið fullan þátt í
samkeppni og verið í sókn.
Það eru mismunandi viðhorf
innan fyrirtækisins til þess-
arar breytingar en ég tel að
hún muni tryggja framgang
fyrirtækisins og þar með at-
vinnuöryggi starfsmanna."
FJÖLBREYTT STARFSSVIÐ
Allir landsmenn nota
þjónustu P&S daglega á
einn eða annan hátt og því
hafa flestir skoðanir á fyrir-
tækinu. Það kemur því ým-
islegt til kasta blaða- og upp-
lýsingafulltrúans.
„Til mín leitar ótrúlegasta
fólk í leit að upplýsingum um
fyrirtækið, nemendur,
fréttamenn og skólafólk.
Fyrirtækið spannar vítt svið
og því vinsælt verkefni hjá
skólakrökkum. Ég reyni að
liðsinna þeim sem leita upp-
lýsinga og ef ég get ekki
svarað erindinu sjálf leið-
beini ég þeim áfram til réttra
aðila.“
í starfi blaða- og upplýs-
ingafulltrúans er líka fólgið
að sjá um útgáfu blaða fyrir
starfsmenn og viðskiptavini
auk vinnu við ársskýrslu.
Því þarf Hrefna að hafa nána
samvinnu við aðrar deildir
fyrirtækisins.
FÆÐING DÓTTURINNAR
Hrefna er þrítug að aldri,
fædd og uppalin í Reykjavík.
Hún lauk stúdentsprófi frá
MR árið 1984 og hóf því
næst nám í stjórnmálafræði
og fjölmiðlafræði við HÍ. Að
því námi loknu tók hún við
núverandi starfi.
„Á sumrin vann ég sem
blaðamaður á Morgunblað-
inu og sú reynsla, ásamt
náminu í Hí, var góður
grunnur fyrir þetta starf. Ég
hef fengið að móta mitt starf
á þeim sex árum sem eru
liðin. Á þessum tíma hafa
orðið gífurlegar breytingar í
fjarskiptamálum sem hafa
gert það að verkum að starf-
ið er mjög krefjandi en að
sama skapi skemmtilegt,"
segir Hrefiia. Hrefiia er gift
Gísla Þór Gíslasyni iðnaðar-
tæknifræðingi en hann er
framkvæmdastjóri Lands-
sambands íslenskra raf-
verktaka. Þau eiga níu mán-
aða dóttur, Margréti.
Aðspurð um áhugamál
nefnir Hrefna fjölmiðla og
stjórnmál. Hún hefur starf-
að innan Sjálfstæðisflokks-
ins frá sextán ára aldri, fyrst
í HeimdaOi og síðustu ár í
Hvöt, félagi sjálfstæðis-
kvenna, þar sem hún lét ný-
lega af formennsku.
„Þegar ég eignaðist dótt-
ur mína í fyrra breytti ég
nokkuð mínum áherslum.
Að vera formaður Hvatar er
heilmikið starf og því fylgja
önnur trúnaðarstörf innan
flokksins. Formannsstarfið
er mjög skemmtilegt og ég
er mjög ánægð að hafa próf-
að það. Ég ákvað að taka
mér hlé frá öllum félags-
störfum í bili, enda vinn ég
fullan vinnudag og vil sinna
fjölskyldunni í frítímanum.
Ég á áreiðanlega eftir að
fara á fullt í félagsstörfin
þegar fram í sækir,“ segir
Hrefna.
TEXTI: JÓHANNA Á. H. JÓHANNSDÓTTIR MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON
71