Vísir - 29.03.1969, Qupperneq 9
V í SIR . Laugardagur 29. marz 1969.
9
Eilífðarmálin rædd í næturklúbbum
:
I
5
Undanfarið hefur verið hljótt yfir starfsemi
næturkiúbbanna, sem settir voru á stofn fyrr á
þessu ári. Þrír starfa áfram, eftir sem áður, þrátt
fyrir að lögregluyfirvöld sýndu rétt klærnar. Lög-
regluvörður stóð nokkrar nætur við dyr klúbbanna
og meinaði mönnum aðgang. Það er nú úr sögunni,
meðlimir klúbbanna eru í friði með starfsemi sína
og að sögn er klúbblífið gróskumikið um þessar
mundir. Aðeins einn klúbbanna bíður átekta,
Apollo, hann mun væntanlega ekki opna fyrr en
rannsókn á lögmæti starfseminnar er lokið.
'Y7'isir fór snemma í vikunni á
* stjá eftir að líða tók aö
nóttu og heimsótti næturklúbba.
Það var mánudagskvöld, Röðull
hafði lokað dyrum sínum, en í
Þórskaffi dunaðj dans. Brátt
mundi skemmtun þar úti og gest
ir margir hverjir snúa til klúbb
anna, sem og varð raunin. Yfir
götuna var talsveröur straum-
ur fólks, sem sótti til atlögu
við dyr Klúbbs 7, en annar far-
vegur lá að dyrum Start-klúbbs
ins sem er til húsa í rafgeyma-
hleöslunni Pólar við Einholt.
★ Áfengislöggjöf, —
hvað er nú það?
„Það sem við viljum. er skoð
anakönnun hjá ykkur í Vísi” til
kynnti æðstiprestur þeirra Start
manna, Ámundi Ámundason,
fyrrum „impresario” með meiru,
ungur piltur með heiðarlegt and
lit og gleraugu eins og snyrti-
legir umboðsmenn Votta Jehóva
nota gjarnan.
Skrifstdfan er búin gömlum
húsgögnum. Gegnt Ámunda
hangir málverk í skærum litum
af Winston heitnum Churchill,
en i stigauppgangi hafði sjálfur
Krústjoff heilsað okkur Hús-
næðið virðist sæmilega vel úr
garði gert, þó á ódýran máta,
viðareftirlíking á barnum o. s.
frv„ en setustofan búin ágæt-
um húsgögnum og teppalögðu
gólfi. Nokkrir ungir menn voru
að spila á spil og höfðu glas við
hönd.
Ámundj segist sakna lögreglu
þjónanna, sem stóðu vakt, þeir
hafi verið mætustu menn, auk
þess hafi þessi þjónusta verið
veitt ókeypis. í starfi sínu fyrr
um hefði hann kynnzt himin-
háum reikningum fyrir lögreglu-
vörzlu Kvaðst hann vonast til
að sjá þá aftur.
— Hvað er til í sögusögnum
'um ofsagróða af fyrirtækinu,
spyrjum við Ámunda.
„Ja, fólk segir, það hlýtur
að vera ofsagróð; af öllu saman
þú veizt, en öll fyrirtæki skila
gróða, ekki satt. Við erum til í
að borga skatta af öllu saman
eins og aðrir, ef farið er fram á
það.“
Ámund; kveður félaga vera
140 talsins, þar af 60 stofnfélag
ar og sé ýmislegt á stefnuskrá
klúbbsins, sem er opinn alla
daga (og nætur) frá kl. 20, til
óákveöins tíma um morguninn,
t.d. máifundir og ferðalög. Á-
mundi kveður það ekki rétf að
hjá honum séu klúbbfélagar ein
ungis komungt fólk. Þarna séu
þeir yngstu 21 árs, en þeir elztu
um sextugt. Félagar bera ekki
lykla að klúbbnum, en fá þá
síðar, þ. e. að ytri hurð, en við
innri hurð veröur dyragæzla".
— Áfengislögin?
„Ja, hvað er nú það? Jú, það
er meira en lítið gallað plagg,
ég hef lesið hana þú skilur“.
— Nú er talið aö hér fari fram
áfengissala, sem sé ólögleg. —
Hvemig berast vínbirgðimar
hingað?
„Félagar koma með flöskurn
ar hingað og við færum spjald-
skrá yfir það, sem afgreitt er
til þeirra“. segir Ámundi og
hampar spjaldskrá meö nöfnum
klúbbfélaga og því, serú þeir
hafa lagt til af áfengi og þaö.
sem þeir sömu hafa tekið út.
„Lögreglan segir annað, en hér
er bara fullyrðing gegn fullyrð-
Ámundi með „prótókolIinn“
yfir „an“ og „pró“ í áfengis-
birgðamálum klúbbsins, þ. e.
„innlagt“ og „úttekið“.
ingu“, segir Ámundi Ámunda-
son.
Það er að veröa margt um
manninn í skrifstofu Start-
klúbbsins. Upphaflega voru það
einungis viðtalendur og nokkr
ir af framámönnum klúbbsins,
nú koma gestir sumir góðglaðir
og kátir og vilja fá sinn skerf
af þeim veigum sem þeir eiga
inni. Ámundi ókyrrist og spyr:
„Fer þetta ekki aö verða búið?“
Viötalinu er lokið.
Utan dyra stendur allstór hóp
ur, sem ekki fær inngöngu, upp
fyllir ekki öll skilyrði, hef
ur ekki félagsréttindi. Einn af
bílum lögreglunnar ekur lötur-
hægt hjá garði, laganna veröir
skima í átt að klúbbdyrunum,
sjá ekkert athugavert og halda
áfram suður Einholtið í hæga-
gangi.
★ UNTOUCHABLES
Tveir þjónar hjá Loftleiðum,
Sigþór og Auðunn eru drifkraft
urinn í Klúbbi 7 viö Nóatún, en
þar „verzla“ þeir í kapp við
Röðul hinum- megin götunnar,
þ.e.a.s. þar fá klúbbfélagar
vín sitt afhent eftir miðakerfinu
sem tiðkast í klúbbum þessum.
Blaöamenn Vísis fengu ekkj aö-
gang að klúbbnum á þeim for-
sendum að klúbbur þeirra hefði
ekki fengið það lof til þessa i
blaðinu aö það ætti slíkt skilið,
að sögn Auðuns þjóns, forstöðu
manns þar. Sama sagði Örn Ing
ólfsson, skrifstofumaður, sem
er formaður stjórnarinnar. Þið
eruö ekki meölimir og fáið ekki
að koma inn“, var svariö. Auk
þess kváðust þeir félagar hafa
blaðafulltrúa á blööunum, sem
sæju um þá hliðina fyrir sig,
kæmu því f blöðin, sem þeir
sjálfir vildu Virtust þeir ó-
ánægðir með hlut Vísis i því
máli, en vildu ekki gefa upp
nöfn blaðafulltrúa þessara.
Á þeim dögum, sem lögreglan
og næturklúbbamenn eltu sam-
an grátt silfur, dögum sem
minntu á bannárin í Bandaríkj
unum meö „Untouchables“ f
fararbroddi, gerði lögreglan
Klúbb 7 einu sinni heimsókn.
Innan dyra var spurt hverjir
væru á ferðinni, Þegar svarið
var: „Lögreglan", var svarað
innan frá: „Augnablik" Eftir
10—15 mín. var opnað. Klúbb
félagar voru þá á kvikmynda-
kvöldi og ræddu eilíföar nálin
á milli eins og gengur og gerist
í öllum góðum klúbbum. Áfengi
sást varla á nokkrum manni.
Eflaust eru það kjaftasögur að
nokkrum útúrdrukknum hafi
verið komiö fyrir f annexi á
næstu hæð fyrir ofan, meðan
I kurteisisheimsóknin stóð yfir.
Einnig er það eflaust rangt að
hleypt hafi verið inn í þennan
klúbb allar nætur um bakdyr,
m^'i.n lögreglan vaktaði aðaldyr
á dögunum En um þetta og
margt annað gafst ekki kostur
að spyrja klúbbsmenn f Nóa-
túni.
★ Glaumgosar
og Las Vegas
Dyr Playboy-klúbbsins (Glaum-
gosaklúbbsins) við Borgartún
voru lokaðar þetta kvöld,
klúbburinn er aðeins opinn um
helgar en sá sem rekur þetta
fyrirtæki er Hreiðar Svavars-
son. Innréttingar eru faTlegar
og dýrar og þykir þeim, sem
sótt hafa þennan klúbb, að hann
sé snyrtilegastur og menmngar-
legastur þeirra þriggja, sem
starfandi eru. Hins vegar þótti
lögreglumönnum klúbbsstjórinn
nokkuö aðsópsmikill og djarf-
mæltur, þegar hann stóð I stríð-
inu mikla á dögunum, enda var
mönnum heitt í hamsi.
Las Vegas við Grensásveg er
eign hlutafélagsins Rjá, sem
Rolf Johansen, stórkaupmaður
er aðaleigandi að, en Ásgeir
Magnússon stjórnar klúbbnum.
Innrétting og öll aðstaöa þar er
betri en allra hinna kjúbbanna
en stjóm klúbbsins tö.k þá á-
kvörðun að hafa lokhð þar til
línur í næturklúbbamálum
skýrðust.
— jbp —
Playboy-klúbburinn er til húsa í nýreistu og glæsilegu húsi og innréttingaraar hafa verið
vandaðar í hvívetna — Start-klúbburinn er f iðnaðarhúsnæði við Einholt.
(tísib sm=|
Á að leyfa næturklúbba
í Reykjavík?
Rúnar Árnason, húsgagna-
smiður:
— Alveg skilyröislaust. Hvar á
fólkiö að vera eftir aö þaö fer út
af skemmtistööunum? Á götunni
eða á það að halda partí í heima-
húsum?
Sigmar Jónsson, verzlunarmaöur:
— Ég mundi nú segja, aö viö
hefðum ekkert viö næturklúbba að
gera nema þeir væru opnir al-
menningi og ef þeir væru á stað
þar sem þeir röskuðu ekki ró al-
mennings og væru reknir lögum
samkvæmt.
Margrét Kjartansdóttir, síma-
stúlka:
— Mér finnst það alveg sjálfsagt.
Ég hef t.d. farið í nokkra þeirra
og finnst þar mjög huggulegt og
skemmtilegt.
Jón Guðmundsson, starfsmaður
Menntaskólans:
— Nei, alls ekki. Fyrst og fremst
held ég, að það myndi auka drykkju
skap og hvers konar ólifnað, þó að
þeir vilji ekki viðurkenna það,
Kristín Sveinbjarnardótfir, ritari:
— . Alveg sjálfsagður hlutur. Þá
gæti maður hugsað sér, að þetta
partihald í heimahúsum minnkaði,
einnig fylliri á götum úti, og fólk
þyrfti ekki að svolgra i sig i port-
um eða úti á götunni né kaupa vin
á svörtum markaði.