Vísir - 21.07.1970, Side 9
VÍSIR . Þriðjudagur 21. júlí 1970.
9
— Hafið þér ferðazt uin
Austfirði?
Ólafur Ólafsson, húsasm.: —
Nei, þangað hef ég aldrei komið.
tm
Sigurður Már Helgason, bólstr-
ari: — Já ég hef gert það nokkr
um sinnum. Sérstaklega hef ég
notið þess að koma til Loð-
mundarfjarðar og mundi vilja
ráðleggja öllum að veita sér þá
ánægju, að koma þangað að
minnsta kosti einu sinni á lífs-
leiðinni.
Alice Boúcher: — Nei, nei, nei,
þar hef ég aldrei ferðast um.
Óskar Magnússon, fyrrum sjóm.
— Nei. Ég hef lítið ferðast um
landið og hef heldur ekki neina
sérstaka löngun til sh'kra ferða
laga — sama hvort sem þar er
um að ræða Austfirði, eða ein-,
hverja aðra firði.
Daðl ÞorgrímSon, skrifstofum.
hjá Loftleiðum: — Ég hef ekki
komið til Austfjarða, að öðru
leyti en því að ég hef eitt tveim
Verzlunarmannahelgum i Atla-
vík en það voru líka ánægju-
legar stundir og mig langar mik
ið til að fara þangað aftur við
fyrsta tækifæri.
Hafdís Ingvarsdóttir, nemi: —
Nei til Austfjarða hef ég
aldrei komið — og er heldur
ekki á leið þangað.
Mikil aukning i ferðamannastraumnum
til Austurlands:
■ „Það hefur verið mjög mikið að gera hér í sumar, mun
meira en í fyrra, og fjölgar útlendingunum stöðugt.
Einkanlega eru það 9 daga ferðir Ferðaskrifstofu ríkisins,
sem eru mjög vinsælar, og ég hef jafnvel orðið vör við að
hingað kemur sama fólkið ár eftir ár,“ sagði Lára Sigur-
björnsdóttir, hótelstýra á Eddu-hótelinu að Eiðum, er við
spjölluðum við hana á dögunum um ferðamannastrauminn á
Austurlandinu.
^usturland er mjög vinsælt af
erlendum ferðamönnum, og
eru skipulagðar þangað mjög
margar hópferðir á vegum feröa
skrifstofanna í Revkjavík. Síö-
an bílfært var frá Öræfunum og
austur fvrir hefur gífurleg aukn
ing orðið í ferðamannastraumn-
um á SA-landinu, enn enn-
þá fer þó mestur hluti ferða-
mannanna í gegnum Egilsstaði.
gjarna í sundlaugina, svo er
gróðrarstöðin á Hallomsstað
skoðuð og ekið kringum fljótiö.
Þeir skoða einnig Hengifoss í
Fljótsdal, sem þykir nijög falleg-
ur og ferðamenn tala mikið um.
margir fara út í Húsey í Hróars
tungu þes sjá þeir selina á skerj
um og gæsir eru oft labbandi
við veginn. Margir fara til Seyð-
isfjarðar, einkum þegar verið er
Hlöfn í Hornafirði er meðal vinsælustu áningastaða erlendra
ferðamanna á íslandi, og hefur mikil breyting orðið á bæjar-
lífinu í sumar síðan bærinn fylltist af ferðamönnum.
,Hélt að ferðamemimir rugluðu
saman hestum og hreindýrum"
— spjallaö um ferðal'óg á Austurlandi —
Höfn vinsælasti áfangastaðurinn — hrein-
dýrin á Héraði eiga óskipta athygli ferðamanna
Flogið er til Egilsstaða alla daga
vikunnar, en farþegar með flug-
vélum eru yfirleitt flestir fs-
lendingar, samkvæmt upplýsing-
um Flugfélagsins. Farþegar til
Hafnar í Hornafirði eru flestir
útlendingar, enda eru skipulagð-
ar fjölmargar hópferðir frá
Rvík beint til Hafnar og síð-
an um Austfirði, eða öfuga leið
frá Austfjörðum til Hafnar og
þaðan til Reykjavíkur.
„Hvað vilja útlendingamir
helzt sjá á Austfjörðum?" spyrj-
um við Láru, en hún hefur ver-
ið hótelstýra þar eystra nú um
nokkurra ára skeið.
„Það er hreina loftið, sem
það talar mest um. Það gera
vist allir erlendir ferðamenn á
íslandi. Nú, svo er það náttúru-
fegurðin, hrikaleiki fjallanna og
óspillt umhverfi.
„Hvert fara ferðamennimir
helzt um Austurland?"
„Það eru skipulagöar ferðir
til Egilsstaða, þar fara þeir
að salta. Nú, svo er Borgar-
fjörður eystri mjög vinsæll af
erlendum ferðamönnum.“
„En þarna í nágrenni Eiða?“
„Hér skoða þeir grjótið, og
tína þar gjama í poka við vegar-
brúnina. Svo höfum við 4 hrein-
dýr hér rétt hjá okkur I svokall-
aðri Skógargirðingu, og þau
eiga svo sannarlega óskipta at-
hygli ferðamanna. Ég vissi ekki
af þeim fyrr en þýzk kona kom
til mín og sagöist hafa séð
hreindýr héma rétt hjá. Ég hélt
að hún væri eitthvað að rugla,
og spurði hana hvort þetta hefði
ekki bara verið hestur. Þá band-
aði hún og pataði yfir höfðinu
á sér, og þá þóttist ég skilja
að þetta heföi verið hymd
skepna, enda kom það I Ijós,
að fjögur hreindýr vom þama
skammt frá, og þau hafa verið
þar í sumar."
„Reyna ferðamennimir að
nálgast dýrin?“
„Já, en þau eru fljót að skjót-
Hengifoss í Fljótsdal er meðal hæstu fossa Iandsins, og mjög
margir útlendingar skoða fossinn og stuðlabergið við hann.
ast undan þessum stóru hópum.
Einn og einn maður hefur þó
meö lagni getað nálgast þau, en
annars eru þau mjög stygg."
„Veit þetta fólk mikið um
ísland?“
„Já, yfirleitt. Það er áber-
andi, hvað menntafólk er í mikl
um meirihluta. — Kennarar —
prófessorar og læknar eru mjög
algengir gestir hér hjá okkur,
og þetta fólk veit vel að hverju
það gengur, þegar það kemur
hingað austur.‘«'*• " • • • • *•
Við þökkum Láru fyrir rabjj.
ið og vendum okkar kvæði í
kross og tölum næst við annan
hótelstjórann á Höfn í Horna-
firði, Áma Stefánsson.
JJótelið Höfn er aöeins nokk-
A urra ára gamalt, en þegar
er mjög mikil aðsókn að því,
og hefur bærinn fengið á sig
nýjan svip með tilkomu hótels-
ins og allra erlendu og inn-
lendu ferðamannanna, sem þang
að koma.
„Það hefur aldrei verið eins
mikið að gera hér og nú i sum-
ar. Hér hefur verið yfirfullt á
hótelinu frá því I júní, og við
höfum yfirleitt jafnmörg her-
bergi pöntuð úti f bæ. Okkar
næsta verkefni verður fyrirsjá-
anlega að stækka hótelið um
helming til að geta annað eftir-
spurn yfir sumarið," sagði Ámi
og bætti við, að með tilkomu
akvegar yfir Breiðamerkursand
hefði ferðamannastraumur auk-
izt mjög til þessa landshluta,
og fari mjög margir útlendingar
frá Höfn með bflum inn í Skafta
fell.
„Er mikil breyting á bæjarlíf-
inu, sfðan erlendum ferðamönn-
um fjölgaði á Höfn?“
„Já, það er mjög mikil hreyf-
ing f allri verzlun hér, einkan-
Iega f öllu sem íslenzkt er. Mest
er keypt af gripum, sem Helgi
Guðmundsson f Hoffelli býr til,
en hann límir steina á ýmsa
hluti."
„Hvað þarf helzt að gera á
Höfn til að bæta aðstööuna fyr-
ir erlenda ferðamenn?"
„Stækka hótelið, en auk þess
er margt sem þyrfti að gera,
sem við á hótelinu getum ekki
annað. Það þyrftj að byggja upp
miklu meiri þjónustu hér fyrir
erlenda ferðamenn."
„Hvað er vinsælasta fæðuteg-
undin hjá útlendingum, sem
dveljast hjá ykkur?"
„Lambakjöit og nautakjöt er
mjög vinsælt, svo og allur nýr
fiskur, sem viö höfum nóg af.
Silungur er einnig mjög eftir-
sóttur."
„Taka útlendingarnir þátt f
skemmtanalífinu í bænum?“
„Nei, biddu fyrir þér, þeir
láta böllin eiga sig, en íslend-
ingarnir sem hingáð koma
skvetta sér gjama upp og fara
á böllin.“
„Er ekki mikið tjaldað þarna
í nágrenninu?"
„Jú. hér er tjaldstæði rétt hjá,
og þar er alltaf töluvert af
fólki."
„Og að lokum, Árni, hvað
skoða ferðamennirnir helzt
þarna í nágrenninu?"
„Þeir fara í Stokksnesið, Al-
mannaskarð og Lón, auk þess
sem mjög margir skoða Jökulsár
Iónið eða Flágajökulinn," sagði
Ámi, og við spjöllum svo að
endingu við Ara Sigurbjörnsson
á afgreiðslu Flugfélagsins á Eg-
ilsstöðum.
„JJér hefur verið mjög mikið
A að gera og nú erum við
t. d. með aukaferð og 15 manns
á biðlista. Hingaö koma stórir
hópar oft í viku, en þaö fólk er
með fararstjóra og við þurfum
Iítið að hugsa um það. Einstakl-
ingar koma hingað margir utan
úr heimi og yfirleitt em þeir
með mjög vel skipulagða ferða-
áætlun, og lítið þarf að hjálpa
þeim til aö komast leiðar sinnar.
Einstaka sinnum fáum við samt
hingað fólk, sem veit ekkert
hvert það er að fara og varla
hvað það er statt f heiminum,
en þaö er nú sem betur fer
hrein undantekning."
„Er mikið af fólki, sem tjald-
ar þama á Egilsstöðum?"
„Hér er nýtt tjaldstæði með
snyrtingu og þar er fjöldi
manns í tjöldum. Síðan gisti-
rými var tekið f notkun á Vala-
skjálf hefur þar verið mjög mik-
ið að gera, en búast má við að
ferðamannastraumurinn nái hér
hámarki f lok þessa mánaðar,"
sagði Ari að lokum.
Þeir sem hyggja á ferðalag
austur á land, geta komizt flug-
Ieiðis til Egilsstaða fyrir 1950
krónur og til Hafnar fyrir 1720
krónur. Þá er hægt að fara með
áætlunarbíl frá Akureyri til Eg-
ilsstaða fyrir 590 krónur og til
Eskifjarðar fyrir 690 krónur.
Einnig fara bílar niður á flesta
firðina frá Egilsstöðum. —-ÞS
I .T J
' ■ i
' j