Vísir - 11.10.1974, Page 1
VISIR
64. árg. —Föstudagur 11. október 1974 —198. tbl.
Fóstureyðingum hefur
fjölgað um helming
— baksíða
„Ógurlegt
ástand"
— segir
skipstjór-
inn á
w
Isborgu,
sem losar
hjálpargögn
í Honduras
— Baksíða
Verða
Austfirðir
„andlit"
landsins?
— bls. 2-3
•
Rekinn úr starfi
fyrir að móðga
Hjálprœðisherinn
— Lesendur
hafa orðið
— bls. 2
Strippar á
Iðnó-
sviðinu
— baksíðu-
viðtal
við
nýja
leikkonu í
Kertalog
HVERT SLYSIÐ Á FÆTUR
H H mmm m — kona varð fyrir
ÖÐ Rl J í GÆRDAG —kona varð fyrir alvarlegu slysi á Bústaðavegi
stórskemmdust tveir bilar
siðdegis i gær, þegar annar ók af
Klapparstig inn á Hverfisgötu i
veg fyrir hinn. Meiðsli voru ekki
stórvægileg.
Þeir lögreglumenn, sem blaðið
ræddi viö i morgun, voru sam-
mála um, aö þetta væri einn af
meiri háttar slysadögum I borg-
inni i langan tima.
—ÓH
Hvert umferðarslysið á
fætur öðru varð í borginni í
gærdag. Lauk þeim rétt
undir miðnættið með
hörkuárekstri á mótum
Miklubrautar og Grensás-
vegar. úr þeim árekstri
voru 5 manns fiuttir á
slvsavarðstofu/ en meiðsli
voru ekki alvarleg.
Alvarlegasta slysið varð á
Bústaöavegi, rétt við gatnamót
Háaleitisbrautar. Þar varð 65 ára
gömul, fótgangandi kona fyrir
fólksbil. Hún lærbrotnaði,
meiddist á mjaðmagrind og hlaut
höfuðáverka. Hún er þó ekki talin
i lifshættu.
Feðgar lentu i umferðaróhappi,
þegar þeir óku aftan á bil. Farar-
tæki þeirra var mótorhjól, sem
sonurinn ók. Viö áreksturinn féllu
báðir i götuna.og meiddist sonur-
inn.
Litil telpa varð fyrir bil i
Vonarstræti um fimmleytið. Hún
meiddist á handlegg.
Fleiri umferðaróhöpp uröu.en
flest ekki eins alvarlegs eðlis. Þó
Frá slysinu á Bústaöavegi, þar sem ekiö var á fulloröna konu, sem var fótgangandi. Þaö sakar ekki aö minna lesendur á hin ómetanlegu
endurskinsmerki til aö nota á illa uppiýstum götum og reyndar hvar sem er. Ljósm. Vísis: BG.
VILL FÁ SINN HLUTA
STEINAHLÍÐAR AFTUR
— Mál Carls J.
Eiríkssonar gegn
Sumargjöf verður
tekið fyrir í
hœstarétti í vetur
Eitt þeirra þriggja systkina,
sem gáfu Barnavinafélaginu
Sumargjöf fjóra hektara lands i
borgarlandinu til reksturs barna-
heimilis, hefur gert kröfu til aö fá
sinn hiuta landsins aftur. „Gjöfin
var háö fjórum skilyröum, en öll
skilyröin hafa veriö brotin utan
þaö eitt, aö eignin ber ennþá
nafnið Steinahilö”, sagöi Carl J.
Eirlksson I viötali viö Visi, er
hann skýröi frá ákvöröun sinni.
„Þar sem Sumargjöf hefur ekki
fullnægt öllum skilyrðunum, álit
ég gjöfina afturkræfa,” sagði
Carl ennfremur. Hann hóf mála-
ferli i desember 1970 vegna þessa
máls,og lauk þeim loks i undir-
rétti i júnlmánuði siðastliðnum —
honum i óhag.
Málið er nú komið til hæstarétt-
ar og veröur tekið þar fyrir eftir
áramót.
Steinahlið er innst við Suður-
landsbraut. Þar bjuggu foreldrar
Carls og þar ólst hann upp. Móöir
hans, Elly Schepler, lézt 1941, en
faðir hans, Halldór Eiriksson
heildsali, lézt árið 1948. Arið eftir
gáfu Carl og systur hans tvær
Sumargjöf landareignina
Steinahlið aö ósk Halldórs.
„En það var með ákveðnum
skilyrðum,” útskýrir Carl. „I
fyrsta lagi var skýrt tekið fram,
að þar yrði eingöngu starfrækt
barnaheimili og sérstök áherzla
lögö á að kenna börnunum
trjárækt og matjurtarækt. 1 öðru
lagi átti félagið að tryggja
samþykki bæjarstjórnar fyrir
þvi, að land það, sem fylgir eign-
inni, yrði ekki skert. Og i þriðja
lagi átti félagið að sjá svo um, að
hlynnt væri eftir mætti að gróöri
þeim, sem nú er á lóðinni.”
011 þessi skilyrði telur Carl, að
hafi verið brotin meira og minna,
og komst undirréttur að þeirri
rtiðurstöðu, að þær ásakanir væru
á margan hátt á rökum reistar.
Eða eins og segir i dómnum:
....er ljóst, aö brestur hafi
veriö á þvi af hálfu stefnda
(Sumargjafar) að fullnægja
skilyrðum gjafabréfsins."
Engu að siöur var Sumargjöf
dæmd sýkn saka af kröfum Carls
á þeim forsendum. ,.að hið langa
aðgerðarleysi hans og hinn langi
timi að öðru leyti. sem liðinn er.
eiga að leiða til þess aö hann fái
ekki komið fram kröfum sinum i
málinu."
Systur Carls hafa ekki haft nein
afskipti af málaferlunum.
— ÞJM
WILSON MEÐ 40% Á BAK VIÐ SIG
„Verkamannaflokk-
urinn mun að öllum lik-
indum hafa hreinan
meirihluta atkvæða á
brezka þinginu, þegar
talningu atkvæða lýkur
hér siðar i dag”, sagði
Björn Bjarnason, frétta-
stjóri erlendra frétta, i
simtali frá London i
morgun. Þegar talið
hefur verið i um 500 af
635 kjördæmum, er þvi
spáð, að Verkamanna-
flokkurinn hafi 5 þing-
manna meirihluta.
Atkvæðamagnið hefur
sveiflazt um 2% til
Verkamannaflokksins.
Von Frjálslynda flokksins um
mikla fylgisaukningu er oröin að
engu. lhaldsflokkurinn hefur
tapað þingmönnum bæöi til
Verkamannaflokksins og skozkra
þjóðernissinna, sem hafa aukið
fylgi sitt.
Allir flokkar segjast óánægðir
með úrslitin. Þegar Harold
Wilson gengur i 4 sinn frá
kosningum til starfa i forsætis-
ráðuneytinu, hefur hann ekki
nema um 40% þjóðarinnar á bak
við sig. Hann veröur I mjög
erfiðri aðstöðu til aö leggja fram
og knýja i gegn meö stuöningi
engra annarra þingmanna en
sinna eigin umdeild lagafrum-
vörp. 1 sjónvarpsviötali I nótt
sagöi Wilson, að næstu 2 ár yrðu
mjög erfið i Bretlandi. A þeim
tima yröi gripið til ráðstafana
gegn mesta vanda þjóöarinnar
frá lokum siðari heimsstyrjaldar-
innar. Sitji Wilson næstu 5 ár,
hefur hann verið forsætisráð-
herra Breta lengur en nokkur
annar á þessari öld.
Sjá bls. 5