Tíminn - 08.10.1966, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 8. október 1966.
fslenzka sveitin sem þátt tok
í Evrópu-sjóstangaveiðimótinu
sem fram fór í Gíbraltar dag-
ana 27. ágúst til 4. sept. er
nýkomin heim. Sveitina skip-
uðu: Einar Ásgeirsson, Jónas
Halldórsson, Ásgeir Jónsson og
Valgerður Bára Guðmundsdótt
ir.
Þátttakendur í mótinu voru
180 talsins. Fulltrúar frá 40
þjóðum. Þarna voru saman-
komnir flestir fræknustu sjó-
stangaveiðimenn frá Evrópu.
íslenzka sveitin stóð sig fram
úrskarand vel og kemur til
baka með samtals 17 verðlauna
gripur. Einnig varð sveitin nr.
sveitarverðlaun. Sveitin varð
efst í borgarkeppni og fengu
veglegan skjöld sem er farand-
cipur. Einnig varð sveitin nr
2 í frjálsu sveitakeppninni og
einnig önnur í Evrópu-keppn
inni. Valgerður Bára varð Ev-
rópu-meistari kvenna.
Þátttakendur róma mjög all
ar móttökur Gíbraltarbúa og
að mótð hafi verið stórglæsi-
legt í alla staði og vel skipu-
lagt. Þau eru sammála að þetta
hafi verið stórkostlegt ævin-
týri.
14 OG 15 ARA
f SÍÐUMÚLA
KJ-Reykjavík, föstudag.
f kvöld voru sex unglingar,
þrjár fimmtán ára stúlkur, tveir
piltar á sama aldri og einn fjórt
án ára piltur, fjarlægð af lög-
reglunni úr „sjoppu“ við Aust
urbæjarbíó, vegna óláta og ölv
unar. Var farið með þessi sex
ungmenni niður á lögreglustöð,
þar sem þau viðurkenndu fimm
að hafa bragðað meira og minna
áfengi í kvöld, en fjórtán ára
pilturinn var svo ofurölvi að
hann gat ekki sagt til sín fyrst
í stað, heldur aðeins útatað varð
sto/u lögreglunnar í spýju. Seint
og um síðir tókst svo að fá upp
úr honum að hann væri frá Akur
eyri, og var hann við svo búið j
fluttur í fangageymslu lögregl
unnar í Síðumúla, þar sem hann
verður líklegast í nótt, eða þar
til bráir það mikið af honum að
hann getur sagt til sín. Ekki
fékkst upp úr ungmennunum
hvar þau höfðu fengið áfengið.
STUTTAR FRÉTTIR
Sara Lindmann
væntanleg
Sara Lidman, sænska skáldkon
an heimsfræga, er væntanleg til
íslands seint í þessum mánuði, í
boði Menningar og friðarsam-
taka íslenzkra kvenna.
FJÖLBREYTT VETRARSTARF-
SEMIÆSKULÝÐSRÁÐS RVÍKUR
Æskulýðsráð Reykjavíkur mun
reka víðtækt tómstunda- og félags
starf fyrir æskufólk borgarinnar.
Að Fríkirkjuvegi 11 verður „Opið
hús“ fyrri unglinga 15 ára og eldri
fjögur kvöld í viku, þriðjudag,
föstudag, laugardaga og sunnud.
í því sambandi verður efnt til ým
iss konar skemmtana, sýninga og
dansleikja. Á þriðjudagskvöldum
veðra kvikmyndasýningar, kvöld-
vökur eða leiksýningar. Á föstu-
dagskvöldum verða dansleikir, og
einnig á sunnudögum kl. 4—7 e.
Ýmis félög og klúbbar munu
einnig starfa að Fríkirkjuvegi 11,
og í Golfskálanum í samvinnu við
Æskulýðsráð.
Námskeið í nokkrum greinum
tómstundaiðju verða haldin að
Fríkirkjuvegi 11 og að gefnu til-
efni er rétt að benda á, að nám-
skeiðin eru fyrir ungt fólk frá
14 ára aldri, og allt að 25 ára
aldri.
Sjóvinnunámskeið fyrir pilta
verða haldin að Lindargötu 50
að venju, og hefjast þau í lok
þessa mánaðarl
f gagnfræðaskólum borgarinn
ar mun Æskulýðsráð í samvinnu
við skólana standa fyrir ýmiss
konar félags- og tómstundastarfi
sem kynnt mun verða í skólunum
hverjum fyrir sig.
skrifstofa skulýðsráðs, opin
skrifstofa Æskulýðsráðs, opin
virka daga kl. 2—8, sími 15937.
Sara Lidman er einkum kunn
hér á landi fyrir bók sína „Sonur
minn og ég“, sem út kom árið
1962, og hlaut mjög góðar viðtök
ur. M. a. skrifaði frú Sigríður Thor
lacius um bókina: „Af fyrri rit-
verkum Söru Lidman var ljóst,
að hún var góður rithöfundur.
Með skáldsögunni „Sonur minn og
ég“ hefst hún í hóp ritsnillinga.
Hin óvægna mannlýsing með kyn
þáttavandamál Suður-Afriku að
sögusviði, verður ógleymanleg.
Sara Lidman ferðaðist um Viet
nam á síðasta ári, og hélt síðan
marga fyrirlestra um þá för, bæði
í Svíþjóð og Noregi. Auk þess
kom hún fram í útvarpi og sjón
varpi og viðtöl birtust við hana
í blöðum. Hún ferðaðist m. a. um
þau landsvæði, í Norður-Vietnam.
sem harðast hafa orðið úti í loft
árásum Bandaríkjamanna og ræddi
við Danton, ofursta, bandarísk-
an flugmann, einn þeirra, sem
komizt hafa af, er flugvélar þeirra
hafa verið skotnar niður.
Skáldkonan mun flytja hér fyr
irlestra um för sína bæði í Reykja
vík og á Akureyri, og verða þeir
nánar auglýstir síðar.
Slátrað vegna
garnaveiki
KJ-Reykjavík, fommtudag.
Núna í haust verður öllu fénu
að Hegranesi í Rípurhrepp í Skaga
ALFREDO CAMPOLI
KEMURINÆSTU VIK
GB-Reykjavík, föstudag.
Fiðluleikarinn Alfredo Campoli
verður einleikari í fiðlukonsertin
um í D-dúr eftir Beethoven, sem
fluttur verður á næstu tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands n.k.
fimmtudag, í Háskólabíói, en
stjórnandi verður Bohdan Wod
iczco.
Væru tónleikarnir haldnir viku
síðar, mundu þeir bera upp á sex
tugasta afmælisdag fiðluleikar-
ans. Alfredo Campo-li fæddist á
Ítalíu en fluttist fimm ára gamall
til Englands og hefur átt þar
heima síðan Níu ára gamall lék
hann fyrst opinberlega í Coven-
try, og þrettán ára var honum
veitt gullmedalía fyrir fiðluleik
á tónlistarhátíðinni í London 1919.
Alfredo Campoli
Hann hefur verið einleikari með
öllum helztu hljómsv. Bretlands,
er þeir hafa stjórnað, Beecha,
Barbirolli, Sargent og Boult, hald-
ið tónleika í mörgum löndum og
hefur leikið að staðaldri í brezka
útvarpinu, BBC.
A-listi
kjörinn
í Sleipni
KJ-Reykjavík, föstudag.
f kvöld voru talin atkvæði hjá
Bifreiðastjórafélaginu Sleipni í
kosningum fulltrúa á ASÍ-þing. Á
kjörskrá voru 124, atkvæði
greiddu 96 ög hlaut A-listinn 54
atkvæði en B-listinn 39 atkvæði,
3 seðlar voru auðir. Fulltrúar
Sleipnis á Alþýðusambandsþingin
inu . verða því þeir Pétur Krist-
jónsson og Einar Steindórsson.
iVlaramenn eru þeir SveinbjöJn
Gíslason og Valgeir Sighvatsson.
firði lógað vegna garnaveiki, sem
kom þar upp. Hafa stöðugt verið
að finnast ný garnaveikitilfelli í
fénu, og'þvi var ákveðið að því
skyldi öllu lógað nú í haust. Ekki
hefur orðið vart við frekari út-
breiðslu gamaveikinnar i Skaga-
firði. m begar var vitað um. í
vor, en aldrei er þó hægt að þver
taka fyrir það að einhvers staðar
sé sjúk kind.
Fréttir úr Flóanum
Stjas-Vorsabæ. fimmtudag.
í síðustu viku var lokið seinni
Framhald á bls. 14
Onnur verk á tónleikunum á
fimmtudag, verða forleikurinn að
óperunni „Semiramide," eftir Ros
ini, og sinfónía nr. 4 eftr tékkn-
eska tónsikáldið og fiðluleik-
arann Bohuslav Martinu.
Afmíplissvning í
Mvndlistarskól-
anum
Um þessar mundir stendur yfir
afmælissýning í Myndlistarskólan
um, og eru á henni bæði mál-
verk og höggmyndir. Er sýning
þessi haldin i tilefni af 20 ára
afmæli skólans, og á henni eni
þrjátiu verk eftir nemendur skól
ans sem nú eru sumir hverjir í
námsferð ásamt kennurum sínum
i London.
Sýningin i Ásmundarsal er op-
in kl. 17—22 daglega.
Innritun í skólann byrjar
á mánudag. Barnadeildir taka til
starfa 20. þ.m. en deildir fullorð
inna 1. nóv.
Ræðir ástandið í
SA-Asíu
Væntanlegur er hingað til lands
n.k. fimmtudag, Bandaríkjamað
urinn Julius C. Holmes, fyrrv. am
bassador. Hann mun flytja er-
indi á almennum fundi Stúdenta
félags Reykjavikur, sem haldinn
verður í Tjarnarbúð n.k. laugar-
dag, kl. 2 e.h. í erindi sínu mun
Mr. Holmes ræða ástandið í Suð-
austur-Asíu og skuldbindingar
Bandaríkjamanna þar. Að erind-
inu loknu mun fyrirlesari svara
fyrirspurnum.
Julius Holmes býr yfir mikilli
reynslu á sviði bandarískra utan
ríkismála, en hann hefur gegnt
störfum í ýmsum löndum, m.a.
Frakklandi, Tyrklandi, Rúmeníu,
Englandi, Hong Kong og íran.
Mr Holmes var í Suður-Vietnam
fyrir stuttu og er vel kunnugur
ástandinu þar.
Tltlánstími Borgar-
Hókasafnsins
'“Uffist
Frá og með 1. október lengist
útlánstími Borgarbókasafnsins og
útibúa þess. Verður útlánið í aðal
safninu hér eftir opið frá kl. 9
á morgnana, til kl. 22, en hádegis-
tíminn kl. 12—13 dregst frá. Á
laugardögum verður útlánið opið
frá kl. 9—19 og á sunnudögum frá
kl. 14—19. Er þetta mjög aukinn
útlánstími, þar eð útlánið var ekki
opnað fyrr en kl. 14.
Lestrarsalurinn verður opinn
á sama tíma og útlánið.
Þá verður útibúið að Sólheimum
27 hér eftir opið frá kl. 14 í stað
kl. 16 áður. og verður barnadeild
inni lokað kl. 19. en fullorðins-
deildinni kl. 21.
Hin útibúin að Hólmgarði 34
og Hofsvallagötu 16 verða hér eft
ir opnuð kl. 16 í stað 17 áður.
og lokað kl. 19. Þó. verður full-
orðinsdeildin að Hólmgarði 34
opin á mánudögum til kl. 21, eins
og verið hefur.
Útibúin eru lokuð á laugardög-
um og sunnudögum.