Vísir - 06.04.1976, Blaðsíða 7
7
Sigruðu
Þetta eru sigurvegararnir i söngvakeppni sanitaka sjónvarps-
stööva i Evrópu (Eurovision), bresk söngsveit sem nefnir sig
„Brotherhood of men”. Söngvakeppnin var haldin i Haag á sunnu-
dag. Söngvararnir fjórir sigruðu meö laginu Save your kisses for
me. Óneitaniega minnir samsetning sveitarinnar á sænsku söng-
sveitina ABBA.
Fjöldaflótti
úr spœnsku
fangelsi
Þrjátiu og einn fangi slapp úr
Segovia fangelsinu fyrir noröan
Madrid i gær. Fangarnir voru
flestallir fclagar i ETA, sam-
tökum skæruliða i Baskahér-
uöum Spánar. Þetta er mesti
fjöldaflótti úr spænsku fangelsi
siðan i borgarastríöinu 1936-39.
Talið er að fangarnir hafi
komist undan með þvi að klifra
niður þakrennu á hliðarálmu
fangelsisins, og hlaupa burt,
yfir akrana. Siðan hafi félagar
þeirra fyrir utan tekið þá upp i
bila á þjóðveginum.
Fangarnir sluppu á tveggja
klukkustunda timabili milli
eftirlitsferða varðanna. Nokkrir
fanganna höfðu hlotið 20 ára
fangelsisdóma fyrir þátttöku i
aðgerðum skæruliða.
Yfirvöldum verður varla
skotaskuld úr að fylla i skarðið.
Aðeins nokkrum klukku-
stundum fyrir flótta fanganna,
hafði innanrikisráðuneytið til-
kynnt að 50 félagar og stuðn-
ingsmenn ETA skæruliðasam-
takanna hefðu verið handteknir
i Baskahéruðunum.
ETA samtökin hafa nú i haldi
iðjuhöld nokkurn, og er krafist
540 milljón króna lausnargjalds
fyrir hann, ella verði hann drep-
inn.
Hótanir við
amerískan
diplómat í
Moskvu
llópur rússa veittist aö liátt-
settum bandariskum sendi-
ráösstarfsmanni i Moskvu i
gær. Reymond Benson menn-
ingarráðgjafi var aö fara út úr
bil sinum fyrir utan Tjækovski
bljómleikahöllina, þegar stór
og stæðilegur rússi gekk i veg
l'yrir hann.
„Hann spurði mig hvort ég
væri bandariskur” sagði Ben-
son frá. Hann sagði að um leið
hefðu sex eða sjö aðrir menn
umkringt hann.
„Þetta voru allt stórir
menn. Einn tók i kragann á
jakkanum á mér, og þá tók ég
i hann. Við streittumst nokkra
stund.”
Benson sagði að meðan á
nuddinu hefði staðið, hefðu
rússarnir sagt við hann: „Þú
býrð i friði hérna. Hvers
vegna leyfirðu okkar fólki
ekki að búa i friði i New York?
Ef eitthvað meira kemur fyrir
það þar, þá gerist það sama
hér. Segðu sendiherra þinum
það.”
Rússarnir áttu augsýnilega
við skotárás sem gerð var ný-
lega á rússneska sendiráðið i
New York.
Þegar rússarnir höfðu haft i
hótunum við Benson, slepptu
þeir honum, og fór hver i' sina
áttina. -
Ætla enn að mata
krókinn á
lestarráninu
Mennirnir, sem dæmdir
voru fyrir „lestarránið
mikla”, frægasta afbrot, sem
framið hefur verið á Bret-
landseyjum, hafa tekið saman
höndum um að reyna að fá
glæpinn til að borga sig.
Sjö lestarræningjanna, sem
höfðu með sér 2,6 milljónir
sterlingspunda úr póstlest
1963, segjast nú hafa myndað
með ser félag með blaðafull-
trúa og biða nú aðeins eftir til-
boðum i sögu þeirra „eins og
hún raunverulega var”.
Ellefu lestarræningjanna
náðust og voru dæmdir fyrir
þrettán árum i samtals 365
fangelsisár. Sjö hafa verið
látnir lausir til reynslu, þrir
biða lausnar siðar á þessu ári,
og einn, Ronald Biggs, sem
slapp, býr i Rio de Janeiro.
Forseti Hafréttarráðstefnunnar varar þingfulltrúa við:
Harðnandi afstaða gegn
rétti strandríkja stofnar
ráðstefnunni í hœttu
Forseti Hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóöanna i New York
varaöi þingfulltrúa viö þvi i gær
aö harðnandi afstaða gegn yfir-
ráöum strandrikis yfir cfnahags-
lögsögu, gæti stofnað ráðstefn-
unni í hættu.
Falsaðir
forn-
gripir
Scotland Yard vinnur nú að
rannsókn á þeim grun manna,
að forn stjarnfræðiáhöld, sem
seld hafa verið i Bretlandi,
Frakklandi óg Sviss, séu föls-
uð. — Hér er um að ræða gripi,
sem hafa verið sagðir vera frá
15. og 18. öld.
Rannsóknin hófst, þegar
fornmunasali taldi sig hafa
orðið þess áskynja, að 21 forn-
gripur stjarnfræðinga frá
þessum timum hafi verið fals-
anir. Taldi hann að einhverjir
sérfræðingar í Bretlandi hefði
smíðað gripina.
Grunur þessa forngripasala
er sá, að um fjörutiu slikar
falsanir til viöbótar séu á
markaðnum, og telur hann, að
sami maðurinn hafi gert þær
allar.
Hann sagði að flestir
þessara 21 fölsuðu forngripa,
sem hann vissi um, hefðu ver-
ið seldir á virðulegum uppboð-
um eins og hjá Sothebys og
Christies, og heföu þeir verið
slegnir á verði allt frá 400
pundum upp í 3,400 sterlings-
pund.
Shirley Amersinghe, forseti
ráðstefnunnar, sagði að andstaða
gegn sérréttindum strandrikja
hefði aukist á ráðstefnunni. Hann
hvatti þingfulltrúa til að ræða
málin óformlega, til að .auka
skilning hvers annars á mismun-
andi sjónarmiðum, i stað þess að
standa i málalengingum i nefnd-
um.
Vonir manna höfðu staðið til að
samstaða næðist um þær tillögur
sem legið hafa fyrir um 200 milna
efnahagslögsögu. Óbreyttar eru
þær tillögur mjög hagstæðar is-
lendingum. Sú harka sem virðist
nú færast i málin getur valdið þvi
að sitthvað verði dregið til baka
af tillögunum.
mæla seladrápi i Noregi og
Kanada. Ekki svo að sendiráðs-
starfsmenn væru að fleygja i
hana kæstu selakjöti, heldur
höfðu margir i göngunni mun
meiri áhuga á leikkonunni heldur
en þvi sem mótmælt var.
BARDOT VARÐ EKKI UM SEL
Birgitte Bardot þurfti lögreglu- broddi mótmælagöngu að norska
vernd, þegar hún skálmaði i sendiráðinu i Paris, til að mót-
BY
clynol
125 gr.