Vísir - 26.02.1977, Blaðsíða 6

Vísir - 26.02.1977, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 26. febrúar 1977 yisnt Spáin gildir fyrir sunnudaginn 27. febrúar Hrúturinn 21. mars—20. aprfl: Vegna áhrifa Venusar muntu hitta væntanlegan maka eða vin á næstunni. Þú umgengst vini þina mikið i dag og eitthvað ánægju- legt rekur á fjörur ykkar. Nautiö 21. aprll—21. mai: Eitthvert smáatriði veldur þér töfum i dag. Reyndu að láta það ekki á þig fá! Það leysist úr hnútnum seinni partinn. Sinntu skyldum þinum af ánægju. Tviburarnir 22. mai—21. júni: Þetta er óheppilegur dagiir til ferðalaga og trúariðkana. Nýr boöskapur gæti bylt viðteknum skoöunum. Vertu hjálplegur þeim sem eiga i erfiðleikum. Krabbinn 21. júni—23. júli: Þú verður að láta meira fé af hendi rakna en þérerum, reyndu að fá meiri yfirsýn yfir tekjur þinar og eignir. Þú gætir lent i deilum i kvöld. l.jóniö 24. júlí—23. átfúst: Óánægja og önuglyndi einkenna fjölskyldulifið i dag, reyndu þvi aö vera ekki of þröngsýnn. Leystu vandamálið á friðsaman hátt. sa M eyja n 24. ágúst—23. sept.: 'Þú verð deginum við að aðstoða aðra og er það góðra gjalda vert. En vertu ekki of fórnfús, hugsaðu iika um eiginn hag. Vogin 24. sept.—23. okt.: Ástfangið fólk er óútreiknanlegt i dag. Þú ert i vafa um að hve , miklu leyti má treysta þvi. Tóm- stundamálin gætu leitt af sér erfiðleika. Drekinn 24. okt.—22. nóv.: Þú ert eitthvað niðurdreginn i I dag. Fjölskyldan veitir ekki eins ;_mikla ánægju og þú bjóst við, sér- ;[ staklega þar sem vinnan fylgir i þér inn á heimilið. 1 Bogmaöurinn 23. nóv.—21. des.: Veröu deginum með vinum þin- um og hann mun reynast óvenju- iegur að mörgu leyti. Einhver ykkar verður fyrir aðkasti, réttu rhonum hjálparhönd. & Steingeitin 22. des.—20. jan.: ! Eitthvað óvænt verður til þess að riðla öllum áætlunum þinum, láttu það ekki valda þér vonbrigð- um, það verður þér til happí Taktu ágreiningi' með jafnaða: geði. Vatnsberinn 21. jan.—19. febr.: Þér finnst þú verða fyrir órétt- látri gagnrýni. Óvæntar breyting- ar koma þér úr jafnvægi. Taktu samt engar ákvarðanir i fljót- ræði, biddu þar til málfn skýrast. Fiskarnir 2«. fcbr —2«. mars: Þér finnst þú vera utangátta i dag og að lifið sé þér andstætt. Það getur vel verið en það er þá bara timabundið ástand.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.