Tíminn - 30.08.1968, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
FÍ>STUDAGUR 30. ágóst 1968.
M.s. Blikur
ier vestur um land í ’hring
ferð 5. sept. Vörumóttaka
föstudag, mánudag og þriðju-
dag til Patreksfjarðar, Tálkna
fjarðar, Mdudals, Þingeyrar,
Flateyrar, Suðureyrar, Bolunga
víkur ísafjarðar, Norðurfjarð-
ar, Siglufjarðar, Ólafsfjarðar,
Álkureyrar, Húsavíkur Raufar-
hafnar Þórshafnar, Bakkafjarð
ar og Mjóafjarðar.
M/s Esja
fer austur um land í hring-
ferð 6. sept. Vörumóttaka föstu
dag, mánudag og þriðjudag til
Djúpavogs, Breiðdalsvíkur, —
Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarð-
ar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar,
Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, —
Borgarfjarðar og Vopnafjarð-
ar.
M/s Herjólfur
fer til Vestmannaeyja og
Hornafjarðar 4. sept. Vörumót
taka mánudag og þriðjudag.
PLASTGLER
UNDIR SKRIFBORÐSSTÓLA
— VERNDAR TEPPIN _
— BETRI VINNUAÐSTAÐA —
GEISLAPLAST SF
v/MIKLATORG _ SÍMI 21090
FRÉTTIR DAGSINS »
Framhald af dis 3
Jarðvinnu vegna skólabygg-
ingarinnar er að mestu lokið,
en það verk var boðið út sér-
staklega.
Fyrsti áfangi fyrirhugaðrar
skólabyggingin er 7238 rúm
metrar, og verða í honum 12
almennar kennslustofur og 4
sérkennslustofur.
Skólinn verður reistur
skammt frá Víðistöðum og er
staðsettur þar m.a. til að taka
við nemendum úr nýju hverfi,
sem þar er fyrirhugað að bygg-
ist á næstu árum.
Arkitektarnir Sigurjón
Sveinsson og Þorvaldur Krist-
mundsson teiknuðu skólahús-
ið og önnuðust ásamt verk-
fræðingum undirbúning útboðs
undir umsjón bæjarverkfræð-
ings og fræðslustjóra.
(Bæjarstj. Hafnarfj.).
Sextán slösuðust í umferS-
arslysum í síSustu viku
Framkvæmdanefnd hægri
umferðar hefur fengið tilkynn
ingar úr lögsagnarumdæmum
landsins um umferðarslys, sem
lögreglumenn hafa gert skýrsl
ur um í þrettándu viku hægri
umferðar.
í þeirri viku urðu 84 slík
umferðarslys á vegum í þétt-
býli, en 8 á vegum í dreifbýli,
eða alls 92 umferðarslys á land
inu öllu. Þar af urðu 50 í
Reykjavík.
Samkvæmt reynslu frá 1966
og 1967 eru 90% líkur á því,
að slysatala í þéttbýli. sé milli
58 og 92, en í d^eifbýli milli
10 og 32, ef ástahd umferðar-
mála helzt óbreytt. Slík mörk
eru kölluð vikmörk, eða nán-
ar tiltekið 90% vikmörk, ef
mörkin eru miðuð við 90%
likuc_.,.. A**- ■ ■
Slysatölur. voru því milli. vik
marka í þéttbýli en lægri en
Sonur okkar,
Haraldur ÞórSarson,
Ásenda 5, verður jarðsunginn frá safnaðarheimlli Langholtskirkju
laugardaginn 31. ágúst kl. 10.30 árdegis.
Unnur Haraldsdóttir.
Þórður Kristjánsson.
Faðir okkar og fósturfaðir,
Guðjón Þórðarson
frá Jaðri, Langanesi, verður' jarðsunginn frá Fossvogskirkju, laug-
ardaginn 31. ágúst kl. 10.30 aráegis.
Fyrir hönd vandamanna,
Óskar Guðjónsson.
Jón Magnússon,
frá Hurðarbaki, andaðist hinn 28. ágúst.
Systkini og vinir, Ásvallagötu 16.
Margrét Júlíana Sigmundsdóttir
frá Skógum, andaðist 29. þ. m. að hjúkrunarheimilinu Sólvangi
f Hafnarflrði.
Börn hinnar látnu.
Útför eiginkonu minnar,
Ingiríðar Eyjólfsdóttur,
Yita-Bæli, A-Eyjafjöllum, verður gerð laugardaginn 31. ágúst kl.
2 síðdegis frá Eyvindarhólakirkju.
Vegna mín, barna okkar og ættingja
hinnar látnu.
Ingimundur Brandsson.
Alúðar þakkir færum við öllum þeim er sýnt hafa okkur samúð
og hluttekningu vegna andláts föður okkar
Jóns Ólafssonar
frá Austvaðsholti.
Börn hins iátna.
neðri vikmörk í dreifbýli.
Af fyrrgreindum umferðar-
slysum urðu 33 á vegamótum
í þéttbýli við það, að ökutæki
rákust á. Vikmörk fyrir þess
háttar slys eru 13 og 32. Tala
sl'ikra slysa er því fyrir ofan
efri vikmörk.
Á vegum í dreifbýli urðu 3
umferðarslys við það, að bif-
reiðar ætluðu að mætast. Vik-
mörk fyrir þá tegund slysa eru
2 og 21.
Alls urðu í vikunni 9 um-
ferðarslys, þar sem menn urðu
fyrir meiðslum. Vikmörk fyr-
ir tölu slíkra slysa eru 3 og
14. Af þeim, sem meiddust,
voru 4 ökumenn, 8 farþegar
og 4 gangandi menn, eða alls
16 menn.
SISE mótmælir ákvörSun
læknadeildar.
Stjórn SÍSE, Sambands ís-
lenzkra stúdenta erlendis, mót
mælir harðlega þeirri ákvörð-
un Læknadeildar Háskóla fs-
lands, að veita ekki erlendum
stúdentum inngöngu í deildina.
Telur stjórnin, að ákvörðun
þessi geti haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir íslenzka stúd-
enta, sem eru við nám, eða
hyggja á nám erlendis. Erlend
háskólayfirvöld hafa sýnt ís-
lenzkum námsmönnum mik-
inn velvilja og veitt þeim skóla
vist, þó að heimamönnum hafi
verið vísað frá.
Hætt er við, að breyting
geti orðið á þessari afstöðu
gagnvart íslendingum, er er-
lend háskólayfirvöld frétta á-
kvörðun þessa.
Stjórn SÍSE hvetur íslenzk
háskólayfirvöld til þess að end
urskoða afstöðu sína í þessu
máli. /
(Fréttatilkynning.)
| *,.,Árbók Landsbókasafnsins
1967.
Árbók Landsbókasafnsins
1967, 24. árgangur, kom út á
150 ára afmæli safnsins.
Auk skýrslu um starfsemi
Landsbókasafnsins 1967 og
venjulegra skráa, sem birtar
eru í Árbókinni, eru í þessu
nýja hefti eftirtaldar greinar:
Finnbogi Guðmundsson ritar
um Sveinbjörn Egilsson og
Carl Christian Rafn, Haraldur
Sigurðsson um Joris Carouls
og íslandskort hans, Ólafur
Pálmason um skrár Landsbóka
safnsins og Ólafur F. Iljartar
um íslenzka bókagerð 1887—
1966, og fylgir grein hans tafla
er sýnir, hve mörg rit hafa
komið út í einstökum bóka-
flokkum á þessu skeiði.
Árbók Landsbókasafnsins
1967 er prentuð í Prenthúsi
Hafsteins Guðmundssonar og
er 139 blaðsíður auk fyrr
nefndrar töflu.
HUMPHREY
Framhald af bls. 1
um fulltrúanna á flokksþinginu
eftir að úrslitin voru kunn, heldur
tók kona hans við hyllingunni, er
var blandin óánægju.
Nokkrir fulltrúanna á þinginu,
sem eru mjög óánægðir vegna ó-
sigursins sem tillaga minnihlutans
um stefnuna í Vietnam beið og
útnefningu Humphreys hafa hótað
því að segja sig úr Demókrata-
flokknum og mynda nýjan flok;k.
McCarthy hefur hins vegar ,lýst
yfir að hann muni ekki taka að
sér forystu í slíkri hreyfingu, sem
örugglega myndi ná takmörkuðu
fyigi.
Þrátt fyrir djúpstæða sundr-
ungu sem ríkir innan flokksins
og hið ruddalega framferði lög-
reglunnar gagnvart mótmælaað-
gerðum ungmenna er skapað hef
ur andrúmsloft þrungið spennu i
Chicago, er talið líklegt, að John
son verði viðstaddur slit flokks-
þingsins, en þau byrja skömmu
fyrir miðnætti að íslenzkum tíma.
En ekkert verður tilkynnt um
komu Johnsons fyrr en á síðustu
stundu.
Johnson forseti sagði eftir að
kunnugt var um útnefningu flokks
ins, að demókratar hefðu útnefnt
ágætan og mjög vel hæfan mann
sem forsetaefni og hann skoraði
á flokkinn að fylkja sér einhuga
að baki Humphrey í forestakosn
ingunum í nóvember.
Snemma í morgun sagði Hump-
hr.py að gleðin yfir útnefningunni
væri blandin sorg vegna uppþot-
anna og óeirða, sem henni fylgdu.
— Það er leyfilegt að vera óá-
nægður í þjóðfélaginu, en það
verður að láta óánægjuna í ljós
eftir reglum samfélagsihs, sagðl
Humphrey, og sikýrði frá því, að
hann hefði snúið sér til dómsmála
ráðuneytisins og FBÍ og beðið um
rannsókn á uppþotunum.
Til mikilla átaka kom í nótt
milli reiðra ungmenna og lögregl-
unnar í Ohicago í þaun mund er
flokksþinginu var að Ijúka. Eftir
að Humphrey hafði verið útnefnd
ur gengu um sex hundruð þing-
fulltrúa og varamenn eftir Michi-
gan-breiðstrætinu í þögulli mót-
stöðu gegn útnefningu Humphreys
og Johnsons-stjórnar-stefnunni i
Vietnam.
Harðar árásir hafa verið gerðar
á borgarstjórann í Ohicago, Ric-
hard Daily og Chicago-lögregluna
í blöðum, útvarpi og sjónvajpi.
Það er talað um lögregluríki og
Daily er líikt við þá tegund glæpa-
manna sem haldið var að hefðu
dáið út með A1 Capone.
Allt var með kyrrum kjörum
í miðborg Ohicago í dag en rnikil
spenna lá í loftinu. Lögreglan og
þjóðvarðliðar hafa stöðugt vakandi
auga með hundruðum mótmæla
seggja, sem enn halda til í Grant-
garðinum við Michican breiðgöt
una rétt við Hilton hótelið, þar
sem bæði Humphrey og McCarthy
hafa aðsetur sitt.
Þegar dagur rann í morgun
og yfirvöld gátu gert sér grein
fyrir ástandinu var skýrt frá því
að 267 menn hefðu verið hand
teknir um nóttina, 29 lögreglu-
menn hefðu meiðzt, tala meiddra
og særðra óbreyttra borgara, það
er að segja mótmælaseggja, áhorf
enda og blaðamanna var álitin vera
frá 100 allt upp í 300. Margir
blaðamenn urðu fyrir barðinu á
hinum löngu kylfum lögreglu-
mannanna í nótt. Þykir framganga
lögreglunnar í Chicago hafa verið
hin hrottalegasta.
TÉKKÓSLÓVAKÍA
Framhald af bls. 3
ástandið í Tékkóslóvakíu. Blaðið
nefnir dæmi: — í Reuter-fregn
frá sl. miðvikudegi var skýrt frá
því að Gustav Husak einn af tðkk
nesku aðstoðarforsætisráðherrun-
um, hafi sagt af sér embætti. Iz-
vestjia segir, að Reuter hafi hald
ið því fram að Husak hafi látið
af em'bætti til þess að sýna and-
stöðu sína við Moskvusáttmálann,
en raunverulega ástæðan hafi ver
ið því fram að Hujak hafi látið
efa9emdir um að 14. flokksþing
tékkneska komimúnistaflokksins
iiail verið löglegt.
Einkennisklæddir járnbraut
’arstarfsmenn stóðu heiðursvörð,
er einn stanfsbróðir þeirra var
jarðsettur í Prag í dag. Hinn látni
hafði fallið fyrir vélbyssu-
skothríð sovézkra hermanna. Síð-
ustu tónar tékkneska þjóðsöngs-
ins heyrðust varla fyrir gráti þeg
ar kistan með líki hins 20 ára
gamla eimreiðarstjóra var borin
út úr fullskipaðri kirkiunni
Æskufólk. sem stóð heiðurs-
vörð meðfram veggjum kirkjunn-
ar létu fána síga unz þeir snertu
gólfið
Meðal margra, sem lögðu
blómkrans við líkbörurnar var
ung, svartklædd kona, sem hefur
sagt frá því hvernig dauða járn-
Sumarhátíð
á Laugum
Gísli ájörn
Sumarhátíð Framsóknarmanna
á Norðausturlandi verður .haldin
n.k. laugardagskvöld að Laugum
ír Reykjadal og hefst kl. 21,00.
Ávörp flytja Gísli Guðmundsson,
alþm. og Björn Teitsson, stud.
mag. Jóhann Konráðsson syngur
einsöng við undirleik Áskels Jóns
sonar. Jóhann Ögmundssón flytur'
gamanþátt.
Að lokum munu Laxar og Sæ-
björg leika og syngja fyrir dansi.
brautarstarfsmannsins bar að. Þau
voru samferða til vinnu síðdegis.
á miðvikudaginn í bifreið með
vestur-þýzku númeri. Sovézkir her
menn kölluðu til þeirra skipun um
að nema staðar, hvað þau gerðu,
en samt sem áður skutu hermenn
irnir á bifreiðina. „Ég fleygði mér
út úr bifreiðinni“, sagði unga kon-
an, „og hrópaði: Skjótið ekki,
skjótið ekki, en þeir héldu áfram
að skjóta.“
Ung stúlka, sem í bílnum var,
var einnig skotin niður og fjórir
aðrir vegfarendur, sem voru nær
staddir, særðust.
Stúlka, félagi hins látna úr æsku
lýðssamtökum, sagði í stuttri
ræðu sem hún hélt í kirkjunni:
„Þeir, sem létu lífið fyrir frelsi
okkar, munu aldrei gleymast. Þess
sverjum við eið“.
A Áreiðanlegar heimildir
herma, að auk hinnar opinberu yf-
irlýsingar, sem gefin var í Iok
Moskvuviðræðnanna milli tékkn-
eskra og soyézkra leiðtoga, hafi
tékkneskum leiðtogum einnig ver
ið settar frekari reglur, þar sem
þeim er gert að hefja ýmsar að-
gerðir.
Sagt er, að Rússar hafi ekki kraf
izt þess að leiðtogar Tékka undir
rituðu reglur þessar, en að öðru
leyti er lítið um þær vitað. þó
eiga eftirfarandi atriði að vera aðal
inntak þeirra:
1. Kommúnistaflokkurinn skoli
hafa mest áhrifavald um stjórn
landsins. Þjóðarráð og ríKÍsstjórn
in skipi annað sæti.
2. Ríkisstjórninni í Prag skuli
breytt. Jiri Hajek utanríkisrá?«
herra og Otarr Sik aðstoðarforsæt
isráðherra láti af embætti.
3. Fóik, sem hefur veitt hernáms
Iiðinu aðstoð, skuli ekki beitt mis-
rétti.
4. Tékkar skuli liafna lanum frá
kapítalískum löndum og Alþjéða
bankanum.
5. Auk þess að prentfreisi verö
ur afnumið, skai láta fara fram
hreinsanir meðal tékkneskra og
erlendra blaðamanna, sem gagn
rýnt hafa Sovétríkin síðustu vik
ur. Strangt eftirlit skuli haft með
þeim blaðamönnum erlendum, er
fá Ieyfi til að dvelja áfram í
Tékkóslóvakíu.
6. Taíía skuli upp ströng ákvæði
um ferðalög inn og úr landinu.
7. Sambandið milli Tékkóslóva
kíu og Vestur-Þýzkalands. skuli
Vera hið sama og milli Austur-
og Vestur-Þýzkalands.
8. Tékkar skuldbindi sig til að
spyrja ieiðtoga hinna Varsjárbanda
laganna álits í öllu sem viðkemur
samskiptum við Bonnstjórnina.
9. Tékkneskir leiðtogar skuli
minnka verulega samskipti sín
við leiðtoga Rúmeníu og Júgó-
slavíu.
10. Ilerir Tékka skuli vera und
ir yfirstjórn Varsjárbandalagsins.